Morgunblaðið - 12.09.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
21
Reynir Hugason:
Athugasemdir við ummæli
um embætti byggingarstjóra
Mikils misskilnings hefur gætt
hjá ýmsum byggingariðnaðar-
mönnum er hafa lesið skýrslu
Rannsóknaráðs um þróun
byggingastarfsemi. Hnjóta þeir
gjarnan um eina setningu 1 grein
7.41 er hljóðar svo. „7£skilegt
væri,*að komið yrði á fót embætti
byggingarstjóra. Byggingarstjóri
ætti að yfirtaka ábyrgð meistara
við áritun á teikningar húsa.“
Telja sumir iðnarmenn þarna að
sér höggvið, og halda að með
þessu sé verið að leggja til, í 1.
Iagi 5—10% aukalegan bygg-
ingarkostnað og f 2. lagi að
háskólamenntaðir tæknimenn séu
þarna að reyna að sölsa undir sig
meiri völd og nýja atvinnumögu-
leika.
Þetta er eins og áður segir al-
varlegur misskilningur, og er því
best að grein 7.4.1 birtist hér sem
heild.
Ábendingar
7.4.1. „Æskilegt væri, að komið
yrði á fót embætti byggingar-
stjóra. Byggingarstjóri ætti að
yfirtaka ábyrgð meistára við árit-
un á teikningar húsa. Jafnframt
beri hann alla ábyrgð á snurðu-
lausri framkvæmd byggingar-
innar og losar byggjandann á
þann hátt við margháttað ónæði
og óhagræði, er hann nú hefur.
Byggingarstjórinn ætti annað-
hvort að vera einn meistaranna,
húsateiknarinn, byggingaverk-
fræðingur, byggingatæknifræð-
— Norðaustur-
land
Framhald af bls. 19
að elta sól. Það er ofsa hiti hér
stundum, en einn maður hér er
snaróður, syndir og syndir í
sjónum út í Hólma, og svo er
hann prakkari lfka var á bát
með félaga sínum úti á sjó í sól
og blíðu og sagðist ætla að fá
sér sundsprett til að friska sig
upp. Gaurinn synti þá undir
bátinn og lét sig hverfa, faldi
sig undir borðstokknum hinu-
megin og félagi hans varð auð-
vitað skíthræddur um að gaur-
inn hefði drukknað. Þannig er
hann, frekar vogaður f allt,
hvergi hræddur."
„Er unga fólkið hérna dug-
legt?“
„Það vinnur mest í frysti-
húsinu — ef við fáum vinnu, þá
vinna allir, það vantar alla
peninga. Það er lítið um það að
fólk flytjist héðan. Stákarnir
fara stundum til Reykjavíkur
eða eitthvað annað og sumir
koma með stelpur hingað og
fara að byggja, það eru margir
að byrja að byggja núna en þeir
ganga þó ekkert fram hjá okkur
heimastelpunum úr þvi að þú
spyrð að því.“
„Vinnur þú fram að skóla?"
„Ég veit ekki. Kannski fer ég
til Hornafjarðar um helgina. Ég
á þar frændfólk og er vön að
fara þangað á hverju ári. Svo
langar mig að skreppa til
Reykjavíkur áður en skólinn
byrjar“.
„Ætlar þú að læra meira eftir
Eiða?“
„Ég er ekkert búin að hugsa
um frekara nám, langar ekki
neitt, það er bezt að sofa, deyja,
nei ég er að leika mér, nei ekki
neitt sérstakt. Ég ætla að eiga
heima hér, verst að maður er
skyldur næstum öllum strákum
hér, það vill enginn Vopn-
firðingur fara héðan, svo það er
vel skiljanlegt að um skyldleika
sé að ræða. Það er ekki hægt að
eiga heima í Reykjavík, maður
eyðir svo miklum peningum
þar, en það er ágætt að skreppa
þangað, fínt.
Ég er og verð Vopnfirðingur,
að sjálfsögðu. Kannski er ég að
ljúga að þér, kannski fer ég, en
ég er allavega búin að ákveða
það að vera hér.“
ingur eða fulltrúi verktakafyrir-
tækis.“
I fyrsta lagi er rétt að það komi
fram að þetta eru ábendingar
starfshópsins og samdóma álit um
atriði, sem betur megi fara.
í öðru lagi, að iðnmeistarar eru
alls ekki útilokaðir, sem bygg-
ingarstjórar heldur nefndir
fyrstir starfsstéttanna.
I þriðja lagi, að nám bygginga-
tæknis við Tækniskólann miðar
að því að gera mögulegt slíkt em-
bætti.
I fjórða lagi. Nefndarmenn eru
ekki svo grunnhyggnir að þeir
ætlist til að embættið bætist ofan
á meistarakerfið eins og það er
nú, heldur komi það 1 stað þess og
gefi þar með möguleika til þess að
lækka byggingarkostnað með því
að þá skapist grundvöllur til þess
að stýra byggingaframkvæmdum
af mestri hagkvæmni fyrir hús-
byggjandann.
Eins og meistarakerfið er nú
uppbyggt er lítil sem engin stýr-
ing á því hvenær tiltekin starfs-
stétt iðnaðarmanna komi inn í
verkið, og frágangi þeirra á sínum
verkhluta til næstu iðnstéttar er
oft mjög ábótavant. (Múrarar
múra yfir rafmagnsdósir hjá raf-
virkjum og skilja eftir múrslettur
á ofnum og f gluggakistum fyrir
málara til þess að þrífa upp).
Húsbyggjandanum eru ekki
trýggð hagkvæmustu vinnubrögð
að hverjum verkþætti vegna þess
að samábyrgð meistaranna á verk-
inu og gangi þess skortir.
Því miður eru flestir sérfræð-
inganna er sömdu skýrsluna svo
uppteknir við önnur störf, eða þá
að þeir eru erlendis að þeim hef-
ur ekki gefist tóm til að svara
ummælum og dómum um
skýrsluna er komið hafa fram í
fjölmiðlum. Er von til þess að á
því verði ráðin bót, um eða eftir
20. september.
Reynir Hugason
Rannsóknaráði rfkisins.
— Oft byggt
Framhald á bls. 10
fyrir nokkrum dögum sömdum
við um kaup á skuttogara í smíð-
um í Noregi, sem á að afhenda 1.
desember, og hugmyndin er að
Ölafur Sigurðsson gangi upp f
þau kaup. Þar sem hafnaraðstaða
er hér engin, munum við gera
skuttogarann út frá Keflavík og
verður aflanum ekið hingað, eins
og öðrum afla, sem hingað berst.
Togarinn verður 299 rúmlestir að
stærð og á að kosta 370—380
millj. kr. Við fórum út f þessi
kaup, þar sem sýnt er, að ekki er
hægt að ná góðum árangri f fisk-
vinnslu nema hafa tryggt hráefni
og þá frá skuttogara."
„Ef við minnumst á þurrfisk-
verkunina aftur. Hvað getið þið
afkastað mörgum tonnum á
mánuði?“
„Ef allt gengur að óskum getum
við afkastað um 220 tonnum af
þurrum fiski á mánuði eða 7 tonn-
um á dag. Þess má einnig geta, að
um þessar mundir erum við að
taka f notkun þurrfiskverkunar-
stöð f Hveragerði.“
„Hvers vegna i Hveragerði?"
„Þar munum við nota hverahit-
ann við þurrkunina f stað oliu.
Verkunarstöðin í Hveragerði fer
með hveraorku fyrir 20 þús. kr. á
mánuði, en ef olía væri notuð,
kostað hún 120 þús. kr. Þá má
geta þess, að f fyrra ókum við um
100 lestum af saltfiski fram hjá
Hveragerði, frá Stokkseyri,
Eyrarbakka, Selfossi og jafnvel
austan af fjörðum."
„Hvað hefur fyrirtækið flutt út
mikið af þurrfiski á þessu ári?“
„I fyrra fluttum við alls út 900
tonn af, þurrfiski, en það sem af
er þessu ári er útflutningurinn
orðinn 1300 lestir og sölu-
verðmætið 220 millj. kr. þannig
að stórt stökk hefur nú orðið.“
I spjallinu við Guðberg kom
fram, að fyrirtækin, sem hann
stýrir ná ásamt sonum sinum, eru
þrjú talsins. Fiskverkunarstöð
Guðbergs Ingólfssonar, Isstöðin
hf., sem á frystihúsið, og Fjörður
hf. sem mun gera út skutttogar-
ann, en f því fyrirtæki á einnig
Hraðfrystihús Jóns Erlingssonar f
Sandgerði, um 20%.
Þá spurði Mbl. Guðberg hvert
væri brýnasta hagsmunamál
Garðbúa.
„Hér eru nú orðnar rösklega
800 fbúar og hefur fjölgað mikið
sfðan 1971, enda er gott að fá
lóðir, og næg atvinna. Okkar
höfuðmál er að fá góðan veg, og
sem betur fer er verið að vinna að
því og verðum við sjálfsagt mjög
ánægðir þegar að því kemur, að
vegurinn verður tekinn í notk-
un.“
„Hvernig er að reka fyrirtæki í
Garðinum?"
Gæfa fyrirtækjanna
að starfsfólkið
kemur úr hreppum
Það er mjög gott, sérstaklega ef
maður er með fjölbreytilegan at-
vinnurekstur, því að þá er hægt
að dreifa fólkinu milli fyrirtækj-
anna, en hjá okkur vinna nú
80—110 manns eða 10% hrepps-
búa. Við höfum alla tið verið sér-
staklega heppnir með starfsfólk
og það er gæfa fyrirtækjanna, að
vinnukrafturinn er að mestu fólk
úr hreppnum, þó að fólk úr Sand-
gerði og Keflavík vinni hér
einnig."
„Hvernig hafið þið hagað upp-
byggingu fyrirtækisins gegnum
árin?“
Okkar sérstaða er
að við eigum megnið
af fyrirtækjunum
„Það hefur verið byggt upp
smátt og smátt, I fyrstu mjög
hægt, en síðan í nokkuð stórum
stökkum frá 1968, en þá byrjuð-
um við allir feðgarnir í því. Við
höfum reynt að taka sem minnst
af lánum í opinberum sjóðum.
T.d. er þurrfiskverkunin algjör-
lega byggð upp án stórlána. Okkar
sérstaða er að við eigum fyrirtæk-
in, sem gerir það að verkum að
betra er að reka þau, a.m.k. um
þessar mundir, hvað sem síðar
gerist. Og við höfum haft það að
stefnumarki og ráðast aldrei í
meira en það sem við ráðum við.
Það má lia- koma fram, að ég
hefði aldrei trúað því, að hið
margumtalaða kerfi væri til fyrr
en við fórum út í skuttogarakaup-
in. Við hefðum gefizt upp, ef
Matthías Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra hefði ekki hjálpað
okkur.“
„Hvert er svo næsta stórverk-
efni ykkar feðga?"
„Að vélvæða fyrstihúsið
meira,“ segir Guðbergur. _j». <).
ígir*
• ;
- *v * .>
4 NY GLÆSILEG SNIÐ! MARG
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU!
FORÐIST EFTIRLIKINGAR!