Morgunblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
29
fclk í
fréttum
Þessi mynd er frá mótmælaaðgerðum við Belemhöllina í Lissabon, þegar her
menn mótmæltu því að verða sendir til Angóla. Þeir nutu tilstyrks óbreyttri
borgara úr hópi vinstri öfgamanna. Þegar hermaður úr Iífverði forsetans ætlaði i
mótorhjóli inn á Hallartorgið ruddust mótmælendur að honum og sviptu honun
af baki, en hermenn komu honum f öruggt skjól.
Hver kálaði Dorothy?
Tennessee Williams er mesti
núlifandi leikritahöfundur
Bandarfkjanna og hann hefur
notið þess vafasama heiðurs að
vera um leið ein mesta fylli-
bytta Bandarfkjanna. Hann
hefur oft sagt, að hann hafi
„sofið“ allan áratuginn milli
1960 og 1970, og sér hafi þótt
alveg ljómandi gott að taka inn
róandi lyf með viskíinu sfnu.
Þetta er liðin tfð, að því er hann
sagði við fréttamenn nýlega,
haldandi á glasi með hvftvfns-
glundri f. „Ég gat það ekki og
Dorothy Kilgallen gat það ekki
heldur," drafaði í honum. „Ég
held, að Dorothy hafi verið
drepin. Hún var eina
manneskjan, sem tók viðtal við
Jack Ruby. Ég sá hana f sjón-
varpinu og þeir, sem þekktu
hana, vissu að hún hvorki
drakk né neytti lyfja. Hún var
drepin, og mér stendur stuggur
af þessari vitneskju.“
Það er bágt með hann Elvis.
Hann er nýkominn úr sjúkra-
húsi þar sem hann dvaldist f
hálfan mánuð til að jafna sig af
ofþreytu, að þvf er sagt var.
Krankleiki í meltingarfærum
hefur einnig hrjáð hann, og nú
hefur hann orðið að hætta við
að skemmta gestum Hilton-
hótelsins f Las Vegas eins og
ráðgert hafði verið, og mun
ekki hafa heilsu til að iðka list
sfna næstu þrjá mánuði. Elvis
Presley fékk huggulega upp-
hringingu frá Richard Nixon
þegar hann lá f sjúkrahúsinu,
en þegar Nixon lá sfna frægu
• spftalalegu á sfnum tíma lét
EIvis sér annt um hann á sama
hátt. Nú er Elvis orðinn fertug-
ur, þannig að hann getur ekki
talizt fyrirmynd táninganna og
átrúnaðargoð eins og hér f eina
tfð. Hins vegar skortir hann
ekki aðdáendur, því að lengi
lifir f gömlum glæðum.
í SÍðustU VÍku kleif 8 ára
gömul frönsk telpa, Christel
Bochatay, hæsta fjalltind f
Evrópu, Mont Blanc, sem er
4.807 metrar yfir sjávarmáli.
Christel er yngsti fjallgöngu-
maður sem nokkru sinni hefur
klifið fjallið. Ef einhver hefur
áhyggjur af þeim, sem sleppa 8
ára gömlum krakka f svona
ferðalag, þá er það óþarfi,
vegna þess að leiðsögufnaður
var með f förinni.
Eins Og fram hefur komið f
fréttum fór Yelena Sakharov
sér til lækninga til Italfu á dög-
unum, eftir langt og strangt þóf
við sovézk yfirvöld, sem láta
ekki hvern sem er valsa til út-
landa. Það sem að henni amar,
er gláka á háu stigi, og var hún
skorin upp við sjúkdómnum f
sfðustu viku. Að sögn læknis
hennar, Renato Frezzotti, var
„uppskurðurinn ekki áhættu-
laus, en útlitið væri vissulega
enn verra hefði aðgerðin ekki
átt sér stað.“
Helen Jackson, éiginkona
Henry Jackson, sem nú sækist
eftir þvf að verða forsetaefni
demókrata f Bandarfkjunum á
næsta ári, lýsti nýiega hneyksl-
un sinni á framkomu sjón-
varpsmanns nokkurs gagnvart
Betty Ford nýlega. Forseta-
frúin sat fyrir svörum f sjón-
varpsþætti og voru spurningar
spyrilsins nærgöngular hvað
snerti einkalff frúarinnar og
fjölskyldu hennar. „Spurn-
ingarnar voru ruddalegar og
blátt áfram fáránlegar og hefði
ég átt að svara þeim, þá hefði
ég svarað þvf til að þessi mál-
efni kæmu engum við nema
sjálfri mér“, sagði Helen Jack-
son.
Cassius Clay, eða mú-
hammeð Alí, eins og hann kýs
að nefna sig, lagði nýlega fram
16 milljónir króna til lfknar-
starfs f Nfger og Senegal. Með
þessari fjárhæð kom 1,6
milljón króna frá Don King,
sem er umboðsmaður boxarans
fræga Sú kvöð fylgdi gjöfinni
að féð yrði notað f þágu barna,
en Unicef og Afrocare, sjálf-
stæð þróunarstofnun, hafa
fengið sjóðinn til ráðstöfunar.
FÓLK ÞARF EKKI endilega að vera það sama og fólk, en hér fer
fram fótboltaæfing f dýragarði f Ohio. Apadaman heitir Jennifer en
fflafrúin heitir Sonja. Kannski Jennifer sé ekki‘alveg örugg um að
Sonja taki hana ekki f misgripum fyrir boltann. Sonja vegur tvö
tonn.
FACO - HLJÓMDEILD
NÝJAR
PLÖTUR
Nýjar litlar plötur
Love Will Keep Us Together
The Hustle
Black Superman/ Muhamed Ali
Dynomite
Mysty
Swearin to God
Get Down Tonight
Fallin in Love
Give it What You Got
I Can't Give You Anything
(But My Love)
Midnight Blue
What a Difference á Day Makes
Þrjú tonn af Sandi
Kysstu Kerlu að Morgni
Superman
Ruby Baby
Before the Next Teadrops Falls
Captain & Tennille
Van McCoy 8i
the Soul CitySymphony
Johnny Wakelin &
The Kinshasa Band
Tony Camillo 8i Bazuka
Ray Stevens
Frankie Valli
K.C. 8t the Sunshine Band
Hamilton, Joe Frank 8> Reynolds
B.T. Express
Stylistics
Melissa Manchester
Ester Phillips
Haukar
Brimkló
Paradis
Change
Freddie Fender
POP OG/EÐA SOFT ROKK
Eric Clapton
Rod Stewart
Alan Price
American Graffiti
Stephen Stills
America
Eagles
David Bromberg
Chicago
E.C. Was Here
Atlantic Crossins
O 'Lucky Man
Ýmsir
Stills
Hearts
One of These Nights
Midnight on the Water
VIII
ÞUNGTOG/EÐA ÞRÓAÐ ROKK
Black Sabbath
Blood Sweat 8t Tears
Procul Harum
Steppenwolf
Alexis Korner
Ritchie Blackmores
Joe Cocker
Greatful Dead
Bachman Turner Overdrive
Frank Zappa 8t Mothers
SOUL
B.T.Express
Stylistics
Minnie Riperton
Minnie Riperton
Isley Brothers
Bee Gees
Tina Turner
Kool 8t The Gang
The Crusaders
The Crusaders
Sabotage
New City
Ninth
Hour of the Wolf
Get Off my Cloud
Rainbow
Jamaica Say You Will
Blues For Allah (ný)
Four Wheel Drive
One Size Fits All
MÚSÍK
Non Stop
Best of
Adventures in Paradise
Perfect Angel
The Heat is On
Main Course
Acid Queen
Spirit of the Boogie
Chain Reaction
Southern Comfort
Einnig flestar (ef ekki uppseldar) plötur með:
Yes, E.L.P. Dr. Hook, Greatful Dead, King
Crimson, C.S.IM. & Y., Beach Boys, Byrds,
Mothers, Leonard Cohen, Chicago, Eagles,
America, Allman Brothers, Simon &
Garfunkel, Janis Joplin, Beatles. Ásamt
skemmtilegu úrvali af nýjum og gömlum jazz
og blues hljómplötum.
Sértilboð vikunnar:
Bob Dylan Blood on the Tracks
Verð: kr. 1.290.00
Laugavegi 89
Sími 13008
Hafnarstræti 1 7
Sími 13303.
Sendum
í póstkröfu