Morgunblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975 MET STEFÁNS VERMJR STAÐPEST — Það er hvergi í alþjóðareglun- um að finna ákvæði um hvað með- vindur megi vera mikill til þess að met I tugþraut og fimmtarþraut fái staðfestingu. og þvl verður afrek Stefáns Hallgrímssonar I tugþrautar- keppninni staðfest sem íslandsmet, sagði Magnús Jakobsson formaður laga- og leikreglnanefndar FRÍ I við- tali við Morgunblaðið I gær. en sem kunnugt er voru nokkur áhöld um að met Stefáns fengi staðfestingu, þar sem meðvindur var um 6*m/sek. I 110 metra grindahlaupinu. Var það álit margra að meðvindur mætti ekki vera meiri en 4 m/sek. til þess að afrekið teldist löglegt, en nú hefur sem sagt annað komið á daginn. Stefán Hallgrímsson hljóp 110 metra grindahlaupið i tugþrautinni á 14,8 sek., sem er hans bezti tími. Hins vcgar ber öllum grindahlaupur- um saman um að erfitt sé að hlaupa þegar meðvindur sé svo mikill og hann var t umrætt skipti. Þeir verði r Italskur sigur UNGUR ítali, Vladimiro Panizza sigraöi í „Tour Piedmont" hjól- reiðarkeppninni sem lauk nýlega, en keppni þessi er elzta hjól- reiðarkeppnin sem fram fer á þjóðvegum. Hjólaði Panizza 243 kílómetra frá Milano til Torino á 5.57,0 klst. I öðru sæti varð Enrico Paolini frá Italíu og þriðji varð Roger de Vlaeminick frá Belgíu. þá að stytta skrefin, og fái þar af leiðandi ekki eins gott jafnvægi yfir grindunum. Mátti llka sjá það í tug- þrautinni, að flestir áttu í nokkrum erfiðleikum, og náðu slzt betri tíma en þeir hafa áður náð I logni. Köge enn í forystu Eftir 21 umferð í dönsku 1. deildar keppninni I knattspyrnu hefur Köge enn forystu með 29 stig. Holbæk er í öðru sæti með 27 stig, en á mögu- leika á að ná Köge að stigum, þar sem þeir hafa leikið einum leik færra. Leikurinn sem Holbæk á inni er við B 1903, sem er um miðja deild, þannig að Holbæk á að eiga nokkuð góða möguleika á að ná Köge. j þrioja sæti I deildinni er svo Næstved með 26 stig, en sFðan koma AaB með 25 stig, Esbjerg með 24 stig, Vanlöse með 24 stig, KB, meistarar fyrra árs, með 23 stig, B 1901 með 23 stig, B 1903 með 21 stig. Randers Freja með 19 stig, Vejle með 18 stig, B 93 með 1 7 stig, Frem með 16 stig, Fremad A með 16 stig, B 1909 með 13 stig og á botninum er svo Slagelse sem einnig er með 13 stig, en óhagstæðara markahlutfall en B 1909. Efstu liðin I 2. deild eru Kastrup með 32 stig, OB með 30 stig og Hvidovre og Lyngby með 25 stig. Knattspymunieimirnir standa með Bremner SVO kann að fara að skozka knattspyrnusambandið verði að velja á milli þess að taka leik- mennina fimm, sem dæmdir hafa verið I ævilangt bann með skozka landsliðinu, í sátt aftur, eða að Skotland hætti að leika landsleiki. Skozkir knatt- spyrnumenn hafa nú hótað þvf að gefa ekki kost á sér í lands- liðið, nema látið verði undan og Billy Bremner og félagar teknir í sátt. Það sem knattspyrnu- mennirnir eru einkum óánægð- ir með, er það að landsliðs- mennirnir skyldu ekki fá neina möguleika á að skýra málið frá sínu sjónarhorni. Aðeins einn þeirra, sem var.dæmdur, Billy Bremner, hefur viljað segja eitthvað um málið, en hann seg- ir að það hafi fleiri en eina hlið, og það séu forkastanleg vinnu- brögð að dæma menn, án þess að gefa þeim kost á að verja sig. Það hefur komið í ljós við rannsókn málsins, að það var ekki ævintýri þeirra félaga á næturklúbbnum Bonaparte sem réð úrslitum, heldur miklu fremur framkoma þeirra á Marina Hoteli í Vedbæk í Dan- mörku, er þeir komu heim eftir að lögreglan hafði fjarlægt þá frá næturklúbbnum. Þannig hefur t.d. einn af stjórnar- mönnum skozka knattspyrnu- sambandsins, sem var með í ferð þessari sem áhugamaður, en ekki fararstjóri, látið hafa það eftir sér, að knattspyrnu- mennirnir hafi hagað sér eins og skepnur er þeir komu heim á hótelið, og það sé ekki for- svaranlegt að senda slfka menn í keppnisferð fyrir Skotland. Dönsku blöðin sem gerðu mikið úr atburði þessum hafa breytt mjög um tón, eftir að dómurinn yfir leikmönnunum fimm var kveðinn upp, og benda nú á að hliðstætt hafi einu sinni komið fyrir hjá dönskum íþróttamönnum, er þeir fóru í keppnisferð til Sovétríkjanna. Þá hafi nokkrir þeirra Ieikmanna verið dæmdir í keppnisbann, en reynslan hafi síðar leitt í ljós að verið var að hengja bakara fyrir smið, og viðkomandi íþróttagrein, hand- knattleikur, hafi beðið mjög mikið tjón af skjótum ákvörðunum forystumanna. Keppendur f afrekskeppni Flugfélags Islands. Júlíus sigraði í Afrekskeppni FÍ JULlUS R. Júlíusson bar sigur úr býtum I Afrekskeppni Flug- félags Islands f golfi, sem fram fór á Nesvell- inum um sfðustu helgi. Lék Júlíus á samtals 77 höggum, sem er fremur slakur árangur, eða 7 höggum yfir pari vallar,- ins. I Afrekskeppni Flug- félagsins eiga sex menn þátttökurétt, Islands- meistarinn, sigurvegari f Coca Colamótunum og sigurvegarar í meistara- mótum stærstu golf- klúbbanna. Til keppn- innar að þessu sinni mættu 5. Leiknar voru 18 holur, og hafði Júlíus tekið forystuna eftir fyrri hlutann og lék hann þá á 38 höggum. I öðru sæti voru þeir Þór- hallur Hólmgeirsson og Hallgrimur Júlíusson, Islandsmeistarinn, Björgvin Þorsteinsson, frá Akureyri var hins vegar ekki í essinu sínu og lék á 43 höggum. Hann stóð sig hins vegar bezt í seinni hlutanum, ásamt Júliusi, en báðir léku þá á 39 höggum. Úrslit keppninnar uðru þau, að Júlíus lék á 77 höggum, Þórhallur Hómgeirsson varð í öðru sæti á 80 höggum, Hallgrímur Júlíusson og Björgvin Þorsteins- son léku á 81 höggi og Árni Jónsson lék á 91 höggi. HE tfKJ [AVI K —] LA Nl 1)11) Síðasta meiriháttar frjáMþróttamót tmabilsins SlÐASTA meiriháttar frjáls- fþróttamót þessa keppnistfmabils fer fram á Laugardalsvellinum um næstu heigi, en þá munu eig- ast þar við lið Reykjavíkur og landsbyggðarinnar f stigakeppni. Fram hafði komið mikill áhugi á keppni þessari hjá ýmsum aðil- um, og urðu málalok þau að reyk- vfska frjálsfþróttafólkið skoraði á frjálsíþróttafólk landsbyggðar- innar til keppni, að gömlum og góðum sið. Sfðan var kosin fjög- urra manna undirbúningsnefnd fyrir mótið og áttu sæti f henni Guðmundur Þórarinsson og Stefán Jóhannsson af hálfu Reykjavíkur og Sigurður Geirdal og Hafsteínn Þorvaldsson af hálfu landsbyggðarinnar. FRl til- nefndi síðan fimmta manninn f nefndina, Magnús Jakobsson. Hafa þeir fimmmenningarnir síðan unnið að undirbúningi mótsins, sem verður töluvert um- fangsmikið. I keppninni verður keppt f öll- um þeim frjálsíþróttagreinum sem eru keppnisgreinar í bikar- keppni FRl, og verða keppendur 3 f grein frá hvorum aðila og stig reiknuð þannig að fyrsti maður fær 6 stig, annar maður 5 stig o.s.frv. Stjórn FRl og framkvæmda- stjórn UMFl hafa ákveðið að greiða í sameiningu að hálfu ferðakostnað þeirra keppenda sem um langan veg eiga að sækja til keppninnar, og er þetta gert til þess að tryggja að allt bezta frjáls- íþróttafólk landsins mæti til leiks. Bæði liðin hafa nú verið valin, óg má Ijóst vera af valinu að búast má við mikilli keppni, og báðir aðiiar haga vali keppenda sinna greinilega með stigabaráttuna í huga. Vekur það t.d. athygli að landsbyggðarmenn velja Jón Diðriksson, UM§B, til keppni í 3000 og 5000 metra hlaupum, jafnvel þótt Jón hafi til þessa verið sterkari sem millivega- lengdahlaupari. Er þetta gert vegna þess að búizt er við að Jón Ásgeir — vann Standard Charleroi STANDARD Liege, liðið sem Asgeir Sigurvinsson leikur með í Belgíu, vann þýðingarmikinn sigur f 1. deildar keppninni þar- lendis í fyrrakvöld, er það sigraði La Louviere á útivelli með einu marki gegn engu. Þar með hefur Standard hlotið fimm stig í keppninni, eftir fimm leiki, en það er Molenbeek sem hefur forystu f keppninni og er með 10 stig eftir 5 leiki, eða fullt hús. Liðið sem Guðgeir Leifsson leikur með, Charleroi, gekk hins nái fleiri stigum í hlaupum þessum en í millivegalengdunum. Óhugsandi er að spá fyrir um úrslit í keppninni. Síðast þegar slfk keppni fór fram lauk henni með sigri landsbyggðarinnar, en Framhald á bls. 20 GuSgeir — tapaSi vann — tapaði vegar ekki eins vel, það tapaði fyrir Liegeois á útivelli með 2 mörkum gegn 3 og hefur liðið aðeins hlotið 1 stig úr 5 leikjum sfnum. Orslit annarra leikja í belgísku knattspyrnunni f fyrrakvöld urðu sem hér segir: Beveren — Anderlecht 2—2 Malinois — Burgeois 0—2 Molenbeek — Lokeren 3—1 Beerschot — Antwerpen 2—5 Lierse — Ostend 0—1 Bruges — Malines 0—2 Waregem — Berchem 3—1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.