Morgunblaðið - 20.09.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975
Gunnar Geir
sýnir flot-
listaverk á
Tjörninni
GUNNAR Geir Kristjánsson
listmálari efnir til sýningar á
flotlistaverkum á Tjörninni í
Reykjavík n.k. sunnudag milli 3
og 5 fyrir framan Iðnó.
„Við eigum svo stóra vatna-
sali,“ sagði Gunnar Geir í
spjalli við Morgunblaðið, „og
það er sjálfsagt að nýta þá eitt-
hvað. Ég mun sýna þarna þrjú
verk, gerð úr frauðplasti en
máluð og er þessi sýning kynn-
ing á þessu stílbrigði, sem ég
Framhald á bls. 22
Spftali St. Josepssystra f Hafnarfirði
Veiðiþjófar gripnir
á Landmannaafrétti
Selfossi sem hefur unnið að því
i rækta upp þessi vötn á undan-
rnum árum, sagði í samtali við
orgunblaðið i gær, að það versta
ð svona veiði væri að fiskurinn í
itnunum væri uppeldisfiskur.
ötnin hefðu verið fisklaus, þar
I fyrir nokkrum árum, að farið
ir að sleppa í þau bleikjuseiðum
á Skúla á Laxalóni. Ræktunin
hefði borið góðan árangur og
stangveiðimenn hefðu fiskað vel í
þeim. — En þetta er svipað hjá
okkur og bændum, við uppsker-
um aðeins það sem við sáum,
sagði Ólafur.
Hann sagði, að málið hefði nú
verið sent saksóknara í Reykjavík
en veiðiþjófarnir voru allir það-
an, en vinna við Sigölduvirkjun.
Varið land til umræðu á árs-
þingi norrænna rithöfunda
NÝLEGA birtist f Þjóðviljanum
klausa þar sem skýrt var frá þvf
að 23. og 24. þ.m. yrði formaður
Rithöfundasambands tslands Sig-
urður A. Magnússon, á ársþingi
Norræna rithöfundaráðsins f
Sundvoll f Noregi. Sagði enn-
fremur að Sigurður yrði eini full-
trúi tslands á þinginu og myndi
hann flytja þar erindi, sem
nefndist Tjáningarfrelsi á Islandi
ógnað — en í erindinu ýrði
fjallað um meiðyrðamálin vegna
skrifa um Varið land.
í lögum Rithöfundasambands
íslands er kveðið svo á að sam-
bandið sé ekki stjórnmálavett-
vangur, heldur hagsmunasamtök
rithöfunda.
I ljósi þessa sneri Mbl. sér ti
Sigurðar A. Magnússonar o
spurði fyrst hvort þetta framla
hans til ársþingsins bryti ekki
bága við lög sambandsins.
Sigurður sagði:
— Tjáningarfrelsi er ekk
stjórnmálalegs eðlis, heldu
flokkast það beint undir hagí
munamál.
— Er það með vitund og vilj
stjórnarinnar, að þú fjallar ur
þetta mál á ársþinginu?
— Að sjálfsögðu
— Er það ekki fremur óvenjt
legt, að formaður slíkra samtak
reki persónuleg mál sfn í nafn
sambandsins á erlendum veti
Framhald á bls. 22
' -
WU/ ''Jy tyr'" 'Í
Byggt við spítala Jóseps-
systra í Ha&iarfírði
JÓSEPSSYSTUR í Hafnarfirði,
sem þar hafa rekið sjúkrahús
frá því árið 1926, hafa nú reist
viðbyggingu við spítalann, sem
nýlega hefur verið tekin í notk-
un. í hinni nýju álmu eru 12
sjúkrarúm, sem bætast við þau
42, sem áður voru i sjúkrahús-
inu, þannig að nú geta verið þar
samtals 54 sjúklingar.
systurnar við það að viðbygg-
ingin væri tekin í notkun.
Systurnar eru nú alls 14, þar af
eru 8 í reglunni hér, en 4 eru
erlendis frá og eru aðeins til
aðstoðar hinum átta. Tvær
systur starfa f eldhúsi spítal-
ans.
Gunnar Geir Kristjánsson við flotlístaverk sfn á þurru.
Ljósmynd Mbl. Br. H.
FYRIR skömmu var komiö að
þremur veiðiþjófum, sem höfðu
lagt þrjú net f vatn á Landmanna-
afrétti, en þetta vatn er leigt
leigutökum á Selfossi og hefur
verið í ræktun undanfarin ár, og
er eingöngu leyfð stangveiði í
þessum vötnum. Við yfirheyrsiur
kom f ljós, að mennirnir höfðu
lagt netin nokkrum sinnum f
vatnið og haft gott upp úr.
Ólafur Jónsson, lögregluþjónn
Príorinnan systir Eulalia,
skýrði Mbl. frá því, að fram-
kvæmdir við bygginguna hefðu
hafizt f júnímánuði 1973, en á
fyrstu hæð hinnar nýju álmu er
eldhús og borðstofa. Á annari
hæð er skrifstofa og 12 sjúkra-
rúm og á þriðju hæð eru stof-
ur og í risi aðstaða fyrir
systurnar sjálfar.
Systir Eulalia sagði að vinnu-
aðstða batnaði mjög fyrir
Cr risi nýbyggingarinnar, þar sem systurnar sjálfar hafa aðstöðu.
Ljósmynd Sv Þorm.
XJtlit fyrir að mikið
verði um rjúpu í ár
FINNUR Guðmundsson fugla-
fræðingur er um þessar mundir
staddur f Hrísey við sínar árlegu
rannsóknir á rjúpunni. Er þetta
fjórða og sfðasta rannsóknarferð
hans til Hríseyjar á þessu sumri.
Finnur sagði í samtali við Mbi. að
rjúpnastofninn væri nú f örum
vexti og myndi hann ná hámarki
næsta ár. Stofninn yrði allstór f ár
og ætti þvf rjúpnaveiði að geta
orðið góð í haust ef vel viðrar til
veiðanna, en rjúpnaveiðitfmabil-
ið hefst að venju 15. október n.k.
Að sögn Finns eru sveiflurnar í
rjúpnastofninum árvissar, hann
nær hámarki á þvf ári áratugsins
sem endar á 6 en er í lágmarki
síðast á áratugnum. Síðast var
hann í lágmarki árin 1968—’70
„Veður hefur ekki áhrif á þessar
sveiflur nema að litlu leyti og ég
veit ekki glöggt hvaða áhrif veðr-
ið í sumar hefur haft á stofninn í
einstökum landshlutum en í Hrís-
ey var a.m.k. gott varp,“ sagði
Finnur að lokum.
Stolið
60 þús. kr.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
var í fyrrakvöld kölluð á Hótel
Sögu, en þar hafði verið stolið
frá barþjónum um 35 þúsund
krónum í peningum auk
tveggja vínflaskna, svo verð-
mætið er alls um 60 þúsund
krónur. Málið er óupplýst. Þá
var í gærmorgun tilkynnt inn-
bort í Ofnasmiðjuna, en þar
höfðu þjófar haft á brott með
sér 20 þúsund krónur um nótt-
ina.
Lítið
fannst
af loðnu
RANNSÓKNARSKIPIÐ Árni
Friðriksson er væntanlegt til
Reykjavíkur í dag eftir að hafa
verið við loðnurannsóknir um
þriggja vikna skeið við Vestur- og
Norðurland. Að sögn Hjálmars
Vilhjálmssonar leiðangursstjóra
fannst nánast ekkert af loðnu í
þessari ferð, en allt svæðið frá
Hala austur fyrir Sléttu var skoð-
að og nyrst var farið að 68° n.br.
Það sem fannst af loðnu var
helzt að vestursvæðinu, en loðnan
var yfirleitt mjög dreifð. Nú síð-
ustu dagana virtist hún hins veg-
ar hafa þétt sig eitthvað. Þá tafði
veður mjög fyrir rannsóknunum,
en bræla var mikinn hluta útivist-
artímans.
Ármannsfellsmálið:
Borgarráð skipar
rannsóknarnefnd
Á FUNDI Borgarráðs f gær lagði
Björgvin Guðmundsson borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins fram til-
lögu um að Borgarráð skipaði
nefnd til þess að athuga þær sögu-
sagnir sem ganga um bæinn
varðandi lóðaúthlutun til
Armannsfells. Allir borgarráðs-
menn samþykktu tillöguna ein-
Síldin dreifð
ÞAÐ MUN yfirleitt hafa verið
frekar tregur afli hjá reknetabát-
unum i nótt og hringnótaskipin,
sem hingað eru komin hafa enn
ekkert fengið, sagði Jakob Jak-
obsson leiðangursstjóri á Bjarna
Sæmundssyni þegar Mbl hafði
samband við hann í gær.
Jakob sagðist vita um einn rek-
netabát, sem fengið hefði 20 tunn-
ur í fyrrinótt en bátarnir hefðu
almennt verið 8—9 sjómílur frá
Hvanney. Síldin væri yfirleitt
frekar dreifð og hefði lítið komið
upp i sjóinn.
Þá sagði Jakob að þeir á Bjarna
Sæmundssyni væru nú staddir við
Hrollaugseyjar og þar hefði lóðað
á torfumyndanir niður við botn
síðari hluta dags í gær.
róma, en samkvæmt upplýsingum
Alberts Guðmundssonar borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
lagði tillögumaður til að nefndin
yrði skipuð trúnaðarmönnum
allra flokka sem sæti eiga f
borgarstjórn.
Aðspurður 'svaraði Albert þvi
til, að fyrirkomulag og skipun
nefndarinnar yrði væntanlega
ákveðin á fundi borgarráðs næsta
þriðjudag. „Ég mun að minnsta
kosti,“ sagði Albert, „leggja
áherzlu á að þetta mál verði tekið
sem fyrst fyrir og fái þá meðferð
sem óskað hefur verið eftir og ég
fagna því að þetta mál skuli verða
rannsakað niður i kjölinn, þvi það
leiðir þó vonandi í ljós allan sann-
leika málsins svo menn geti áttað
sig á hvað hefur gerzt í þessu
máli.“
Leiðrétting
í grein Morgunblaðsins í gær
frá Vopnafirði misritaðist nafn
Kristins Péturssonar. Var hann
kallaður Kristján. Er beðið vel-
virðingar á mistökunum.