Morgunblaðið - 19.12.1975, Page 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1975
— Hvaðan leggur
Framhald af bls. 5<*
lausum aðgerðum? Hver er þáttur
flugmálastjóra í málinu?
Vegna persónulegra kynna
minna við Agnar Kofoed Hansen
trúi ég ekki að sá drengur, sem
hann er, geri ekki það sem í hans
valdi stendur til þess að flugsaga
Islendinga verði sem mest og
glæsilegust. Viðkomandi ráðu-
neyti er eini aðiljinn honum æðri
og ber því skylda, siðferðileg ef
ekki önnur, til þess að hafa flug-
málastjóra til ráðuneytis um allar
aðgerðir í flugmálum.
Air Viking gat, og getur vafa-
laust enn, fengið hagstætt, erlent
lán gegn ríkisábyrgð. Lán þetta
mundi hafa forðað Alþýðu-
bankanum frá hneykslinu og
styrkt Air Viking að mun. En viti
menn — umsókn Air Viking ligg-
ur óafgreidd mánuðum saman, en
óskabarn þjóðarinnar númer 2VS
fær nokkurra milljarða tryggingu
í þjóðarsameigninni. Furðulegt er
að lesa eftir fulltrúa ráðuneytis-
ins, að umsóknin sé óafgreidd
vegna þess, að ekki hafi verið
gengið eftir því að hún fengist
afgreidd.
Já, góðir samborgarar með
sjálfstæða hugsun. Er þjóðfélagið
að taka þá stefnu að sauma að
þeim sem vilja sýna stórhug og
þora að berjast áfram, eða — er
verið að sauma að rikisvaldinu af
þeim sem verða ofvaxin óskabörn
þess. Eða á að nefna þetta þrýst-
ing? Þykir engum skrýtið að
stofnuð skuli ferðaskrifstofa SlS,
akkúrat núna og SlS-bankinn
skuli hafa veð i vélum Air Vik-
ing? SlS er að margra dómi
ofvaxið afkvæmi hugsjónamann-
anna sem stofnuðu til þess og svo
stórt getur það orðið að hægt sé að
stiga ofan á hinn venjulega
athafnamann eins og maur. Geta
menn bótalaust verið flettir klæð-
um í fjölmiðlum, eins og reynt var
við Guðna Þórðarson og þeir
staðið berskjaldaðir, vegna þrýst-
ings frá stóru óskabörnunum?
Þrátt fyrir trúnaðinn? Þrátt fvrir
þagnarskyldu? Og svo kemur í
ljós að ástandið hjá Air Viking er
sizt verra en hjá margri útgerð-
inni, þrátt fyrir allar undan-
gengnar tilraunir til að knésetja
fyrirtækið. Hvað veldur þessu
misræmi? Og enn er ráðist á
Sunnu. Leyfissvipting frá 15.
janúar 1976. Sér nokkur hvað er
að gerast? Lesa menn æsifrétt-
irnar, hlusta á þær í útvarpi og
horfa á þær í sjónvarpi — og
JOLAGJÖFIN ER 1 KENWOOD
THORN
Laugavegi 1 70— 1 72 — Sími 21240
gleyma þeim að stundu liðinni?
Nei, geymið þetta í huganum, það
varðar ekki eingöngu Air Viking
og Sunnu, það varðar þig og mig.
Almenningur getur í dag keypt
sólarlandaferð fyrir 40—50 þús-
und kr. Væri verðið svona
hagstætt ef Air Viking hefði ekki
orðið til? Ég er hræddur um ekki.
Hefði Sunna orðið að segja já og
amen við fargjöldunum sem
einokunaraðilji hefði skammtað,
er hætt við að dæmið hefði litið
öðruvisi út. Ég hélt í alvöru að
nóg væri komið af reynslu Islend-
inga af einokuninni.
Hvað liggur raunverulega að
baki eftirtöldum aðgerðum ríkis-
valdsins gegn Sunnu og Air Vik-
ing?
Svipting flugrekstrarleyfis Air
Viking. Hvers vegna?
Leyfissviptingin afturkölluð.
Hvers vegna?
Skaðabæturnar i salti i kerfinu.
Hvers vegna?
Umsókn um erlenda lántöku
meðan öðrum er veitt" fyrirgr.
Hvers vegna?
Svipting ferðaskrifstofuleyfis
jan. 1976. Hvers vegna?
Hvað næst? Hvers vegna?
Hverju sætir slík meðferð á
íslenzkum fyrirtækjum? Spurt í
alvöru. Óskabarnið númer 2H
hefði sennilega ekki verið til í dag
ef það hefði fengið samsvarandi
trakteringar þegar það var
krakki.
Mál þetta er kolgruggugt, mikil
fýla af því og mál til komið að
fáist viðhlftandi skýring á mis-
munun ríkisvaldsins á þessum
tveim fyrirtækjum sem ættu að
geta starfað hlið við hlið í hollri
samkeppni, almenningi til góðs.
Það er alger óhæfa og ætti að
leiða til skilyrðislausrar afsagnar
viðkomandi embættismanna, ef
rétt reynist, að þeir vogi sér að
mismuna íslenzkum fyrirtækjum,
þó svo að rikið sé hluthafi í öðru
en ekki hinu.
Aths. ritstj.
Það skal tekið fram, að „mold-
viðri“ hefur ekki verið um þetta
mál hér 1 blaðinu né „æsifréttir"
og hlýtur greinarhöfundur að
eiga við einhverja aðra fjölmiðla.
Einnig er ástæða til að taka fram,
að mál þetta er 1 rannsókn að ðsk
allra aðila og hvggilegt að biða
eftir niðurstöðu þeirrar
rannsóknar.
DtOntAMIUR
Fjölbreyttar veitingar. Munið kalda borðið.
Opiðfrá kl. 12—14.30 og 19—23.30.
víniRnpfBfln
HOTEL LOFTLEHMR