Morgunblaðið - 04.02.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.02.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR 1976 13 Stjórn Chile færlánhjá Alþjóðabanka A FUNDI Alþjóðabankans, sem ■ haldinn var f gær I Washington, greiddi Jðn Sigurðsson, fulltrúi Norðurlandanna f stjórn bank- ans, atkvæði gegn tillögu um 33 milljón dollara lán til herfor- ingjastjórnarinnar I Chile, að þvf er fróttaritari Mbl. I Gautaborg sagði f gær eftir sænskum heimildum. I frétt frá AP kemur fram, að lánveitingin hafi verið samþykkt, að sögn áreiðanlegra heimilda, þar eð Robert McNamara, bankastjóri Alþjóða- bankans, hafi lýst sig fylgjandi þvf og Bandarfkjamenn fylgt eftir umsókn Chilestjórnar. Fulltrúar Evrópulanda sátu hjá, að þvf er AP segir, en harðlega hafi verið barizt gegn þvf að lánið yrði veitt, m.a. af samtökunum Amnesty International. Að sögn fréttaritara Mbl. i Gautaborg er þetta í annað skipti sem Jón Sigurðsson greiðir atkvæði gegn því að Alþjóðabank- inn veiti herforingjastjórninni lán, en í fyrra samþykkti bankinn lánveitingu til landbúnaðarupp- byggingar í Chile. Bandarikin hafa 40% atkvæða í stjórninni, en til þess að tillaga verði samþykkt þarf hún % hluta atkvæða. Þess má geta að umsóknum stjórnar Allende heitins forseta var alltaf synjað af stjórn bankans. Herfor- ingjastjórnin hefur þegar fengið 168 milljónir dollara í lánum frá bankanum frá árinu 1973. Bokassa sýnt banatilræði París —3. febr. — Reuter. FORSETA Miðafríkulýð- veldisins, Jean-Bedel Bokassa, var sýnt banatil- ræði á flugvellinum í Bangui í dag, en hann slapp ómeiddur, að því er áreiðanlegar heimildir herma. Bokassa marskálkur komst til valda í uppreisninni árið 1966. Hann er 54 ára að aldri og er ákafur baráttumaður fyrir lögum og reglu. Hann barðist með Frökkum í síðari heimsstyrjöld- inni og síðar í Indókina. Árið 1972 komst nafn hans óvænt á siður heimsblaðanna. Þá bárust fregnir um fruntalega meðferð á föngum i Bangui, og höfðu þrír verið barðir í hel að undirlagi Bokassa, að því er sagt var. Arið 1970 hóf hann leit í Vietnam að dóttur sinni, Martine, sem hann hafði ekki haft spurnir af árum saman. Tvær stúlkur gáfu sig fram, og kváðust báðar vera hin týnda dóttir. Bokassa stefndi þeim báðum til Bangui og lýsti þvi síðan yfir, að önnur væri dóttir hans. Hina ættleiddi hann og gifti siðan báðar á fimmtugs- afmæli sinu. Moynihan beitir neitunarvaldinu í öryggisráðinu. „Mis- heppnað” — segir Expressen um Lénharð fógeta (•autahorg 3. febrúar. Frá fréttaritara Mbl. Pétri J. Kirfkssyni: KVIKMYND íslenzka sjónvarpsins Lénharður fógeti, sem byggð er á leikriti Einars H. Kvar- ans, var sýnt í sænska sjónvarpinu s.l. sunnu- dagskvöld. Kvikmyndin fékk dræmar undirtekt- ir. Aðeins eitt dagblað, Expressen í Stokkhólmi, sá ástæðu til að fjalla um hana í sjónvarpsgagn- rýni sinni og var umsögn blaðsins neikvæð. Blaðið sagði: ,,Af og til gerist það, að íslenzkt leikrit skjóti upp koll inum í sjónvarpinu, og eru þau flest ágæt að gæðum. Fógetinn var hins vegar alveg mis heppnað. Þrátt fyrir við- bjóðsleg morð, nauðgan- ir, bruna og aftökur var efnið þótt ótrúlegt sé ekki neitt.“ „Afstaða mín var alltaf afstaða Bandaríkjaforseta — sagði Daniel P. Moynihan eftir afsögnina Sameinuðu þjóðunum og víðar 3. febrúar — Reuter. DANIEL Patrick Moynihan, sem í gærkvöldi sagði af sér embætti sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, gegndi því starfi enn í dag þar eð Ford for- seti bað hann um að vera áfram unz eftirmaður hefði verið ákveð- inn. Moynihan sagði í gær, að forsetinn hefði „mjög virtan mann í huga“, en sögusagnir eru um að Shirley Temple Black, fyrrum barnastjarna I kvikmynd- um, muni taka við. Hún er nú sendiherra f Ghana, en einnig er önnur kona, dr. Rita Hauser, kunnur lögfræðingur talin koma tii greina. 0 Moynihan, sem er 48 ára að aldri, varð á aðeins sjö mánaða setu hjá S.Þ. umdeildasti sendi- herra Bandarfkjanna hjá þeirri stofnun frá upphafi og vakti bæði aðdáun og reiði fyrir tæpitungu- lausar yfirlýsingar. Hann sagði í gærkvöldi, að honum hefði ekki verið bolað úr embættinu, en hann hefði hins vegar ekki „stokkið úr því“ heldur. Góðar heimildir herma að Moynihan hafi þótt skorta á stuðning Henry Göteborgs Posten um 200 mílurnar í leiðara: Munu torvelda Islendingum síldveiðarnar 1 Norðursjó OautaborK 3. febrúar. Frá fróttarita Mbl. Pétri J. Firfkssyni: UM helgina birti sænska blaðið Göteborgs Posten forystugrein um kröfur um 200 sjómflna fisk- veiðilögsögu, sem nú eru háværar f hciminum. Sagði m.a. f greininni, að margt benti til þess, að I upphafi greinarinnar er sagt frá ákvörðun öldunga- deiidar Bandarfkjaþings um að færa út fiskveiðilögsögu Banda- rfkjanna þann 1. júli 1977. Segir blaðið, að Bandaríkin séu þar með komin I hóp fjöl- margra strandríkja sem ekki telja sig geta beðið með út- færslu þar til niðurstaða hefur fengizt á hafréttarráðstefnu S.Þ. Sfðan segir: „Með þvf að Island hefur gengið á undan og lýst yfir 200 mílna fiskveiðilög- sögu hefur málinu verið flýtt. Allt bendir til þess, að Bretland komi á eftir um mitt næsta ár og þá kemur upp aðstaða gagn- stæð þeirri sem er í dag, þar sem íslendingar verða að fara fram á að fá að veiða ákveðið magn af sild f brezka hluta Norðursjávar. Þær samninga- viðræður verða vafalaust erfið- ar eftir þorskastríðið, sem nú stendur yfir. Brezka stjórnin hefur reynt að ná málamiðl- unarlausn en Islendingar hafa sýnt hörku í viðræðum og aðeins boðið lítinn hluta ar þeim þorskkvóta sem Bretar vilja veiða innan nýju mark- anna. Líklega verða Bretar að láta undan en reiðin er mikil meðal sjómanna sem ekki fást til að veiða við Island nema gegn miklum uppbótum." Sfðan segir: „Það sem reitir Breta mest til reiði er að is- lenzk skip veiða drjúgan hluta af Norðursjávarsildinni og að Islendingar neita að viður- kenna þann kvóta sem þeim er Bretar tækju sér 200 miðlna fiskvciðilögsögu um mitt næsta ár og þá gæti orðió erfitt fyrir lslend- inga að fá að halda áfram sfldveiðum í Norðursjó eftir það, sem á undan hefði gengið f samskiptum þjóðanna. ætlaður af þeirri nefnd sem á að reyna að takmarka síld- veiðar svo að komizt verði hjá ofveiði." Þá segir blaðið að þjóðir við Norðursjó óttist nú eyðingu sfldarinnar og geti það flýtt fyrir því að komið verði á nýj- um fiskveiðimörkum og þá muni Norðursjór í stórum dráttum skiptast á milli Noregs og Bretlands. Þetta óttist sænskir sjómenn og sé það skiljanlegt þar sem alger óvissa rfkir um hagsmunamál þeirra. „Sænska stjórnin er opinber- lega bjartsýn á að hægt verði að semja við aðrar þjóðir um fisk- veiðiréttindi, en það er erfitt að sjá á hverju hún byggir þá bjartsýni sína," segir blaðið að lokum. Kissingers, utanríkisráðherra, við sig, en Kissinger sjálfur bar það til baka í gær, og sagði að Moyni- han hefði „framfylgt stefnu okk- ar og haft fullan stuðning okk- ar... Moynihan sendiherra er ná- inn vinur minn og var útnefndur eftir að ég las grein þar sem hann sagði hvað þyrfti að gera hjá S.Þ. Við töldum bezt að láta hann gera það.“ Moynihan hótaði eitt sinn að degja af sér eftir að hafa gagn- rýnt afstöðu utanríkisráðuneytis- ins. Kissinger sagði að eftirmaður Moynihans myndi framfylgja sömu stefnu og hann, en „það er aðeins einn Pat Moynihan". Sam- band Moynihans við aðra sendi- herra hjá samtökunum var i mörgum tilvikum stirt, og i dag lýstu ýmsir virðingu fyrir honum, en um leið létti yfir því að hann skyldi vera að fara. Einkum varð Moynihan fyrir gagnrýni vegna harðorðra yfirlýsinga í garð ríkja þriðja heimsins, kommúnista- ríkjanna og Arabaríkjanna, og kallaði hann S.Þ. „absúrdleikhús- ið“ i þvi sambandi.En samkvæmt skoðanakönnun nýlega studdu um 70% bandarísku þjóðarinnar óvægna afstöðu hans hjá S.Þ. Er hann skýrði frá afsögn sinni í gær, sagði Moynihan, að hann hefði nú verið 13 af síðustu 19 árum í opinberri þjónustu og nú væri kominn tími til að snúa sér aftur að kennslu, en hann var prófessor í stjórnmálafræðum við Harvardháskóla, og að því að skrifa bækur, „sem ég hef þegar tekið við fyrirframgreiðslu fyrir- og eytt“. Hann tók skýrt fram að hjá S.Þ. hefði afstaða hans alltaf verið afstaða Bandaríkjaforseta um leið. Hann útilokaði ekki að hann myndi taka þátt í stjórnmál- um einhvern tima á ný. Margir telja að lagt verði kapp á að fá Moynihan í framboð fyrir demó- Framhald á bls. 27 The Times: Bráðabirgðasamningur Breta og EBE um 200 m London 3. febrúar AP LUNDÚNABLAÐIÐ The Times skýrði frá því í dag, að Bretar og önnur aðildarríki EBE hefðu undanfarið unnið að þvf af fullum krafti f Briissel að gera korta- teikningar af 200 mílna efnahagslöggjöf. Segir blaðið að Bretar og hinar EBE-þjóðirnar hafi komizt að bráða- birgðasamkomulagi um framtíðarskipan fiskveiðistefnu EBE á grundvelli 200 mflna efnahagslögsögu og að það samkomulag verði haft að leiðarljósi á væntanlegri hafréttarráðstefnu í marz. Síðan segir blaðið: ,,Það er kaldhæðni, að á sama tíma og Betar hafa verið að tapa baráttunni um veiði- heimildir á Islandsmiðum hafa þeir unnið að því af fullum krafti að koma í veg fyrir að aðrar þjóðir geti gert kröfur um veiði- heimildir undan Bretlands- ströndum“ Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.