Morgunblaðið - 04.02.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.02.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR 1976 17 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Munið sérverzlunina með ódýran fatnað, Laugarnes- vegi 82, sími 31 330. X-kubbar — X-kubbar flashperur. Úrval af efnum fyrir áhugaljósmyndara. Alkaline rafhlöður í tölvur. Amatör, Laugaveg 55, S. 22718. Útsala — Útsala 20—80% verðlækkun. Dragtin, Klapparstíg 37. Síðir kjólar Ný sending. Dragtin, Klapparstíg 37. Föster — Rönisch — Hupfeld Píanó með góðum greiðslu- skilmálum. Sýnishorn fyrir- liggjandi. Uppl. Suðurgötu 3. Lampar og Gler. Sími 21830 eða á kvöldin i síma 26625. Útsala 20% afsláttur, útsala. Rauðhetta Iðnaðarhúsinu. Frimerkjasafnarar Sel íslenzk frímerki og FCD- útgáfur á lágu verði. Einnig erlend frímerki og heil söfn. Jón H. Magnússon, pósthólf 3371, Reykjavík. Bronco '66 til sölu mjög góður. Til greina kemur 2ja—5 ára fasteignatryggt skuldabréf eða eftir sam- komulagi. Sími 15041 og 36081. TankbUI til sölu Volvo 375 árg. 61. 6 tonna tankur. 60 m háþrýstislanga. Vatnsdreifari. Billinn hentar til slökkvistarfa, rykbinding- ar, við steypu o.fl. Mælir og minna próf. Aðal Bílasalan Skúlagötu 40 sími 1 501 4. Óskilahross Á Bjarnarstöðum í Grímsnes- hreppi er í óskilum svört hryssa 4ra vetra, ótamin og ómörkuð. Verður seld 15. febr. hafi réttur eigandi ekki gefið sig fram. Fjallskilastjóri. Óli Jó Óskum eftir að kaupa segul- bandsupptöku af hinum landsfræga þætti „Bein lína", við æðsta yfirvald dóms- og viðskiptamála íslands. Tilboð merkt „Kjúklingar og yfirlýs- ingar" — 3894 sendist afgr. Mbl. Biý Kaupum blý langhæsta verði. Staðgreiðsla. Málmsteypa Ámunda Sig- urðssonar, Skipholti 23, simi 16812. -trw húsnæöi í boöi Gott iðnaðarhúsnæði til leigu undir þrifalegan iðn- að. Sérstaklega hagstætt rúmmetragjald. Uppl. í síma 82274 og 22471 á kvöldin. Til leigu góð 110 ferm íbúð í Laugarneshverfi. Til- boð ásamt uppl. um fjöl- skyldustærð sendist Mbl. merkt: Fyrirframgreiðsla 3892. Til leigu strax nýleg 5 herb. íbúð í háhýsi í Breiðholti. Uppl. í símum 26277 og 20178. Framtalsaðstoð Tímapantanir í síma 1 7938. Haraldur Jónasson, lögfræðingur. Bólstrun Klæðum bólstruð húsgögn. Fast verð, þjónusta við lands- byggðina. Bólstrun Bjarna og Guð- mundar, Laugarnesveg 52, sími 32023. Atvinna óskast 23 ára stúlka óskar eftir vinnu hálfan daginn, fyrir há- degi, eða á helgarkvöldum. Uppl. í síma 32326. Ungur maður með verzlunarpróf óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Tilboð merkt: ,.at- vinna-3893" sendist Mbl. Einkamál Miðaldra maður i góðri stöðu óskar eftir að kynnast konu á aldrinum 40 — 50 ára, sem gæti verið bæði félagi og vin- ur. Þær sem vildu athuga þetta sendi uppl til Mbl. sem fyrst auðkennt „sumar og sól- 3918". Algjörri þagmælsku heitið. □ GLITNIR 5976247 — 1 Frl. I.O.O.F. 7 E 157248'/! □ HELGAFELL 5976247 IV/V. — 2. RMR-4-2-20-VS-FH-FR-HV I.O.O.F. 9 E 157248’/! 0 Sálarrannsóknarfélag íslands Heldur félagsfund að Hall- veigarstöðum fimmtudaginn, 5. febrúar kl. 20.30. Erindi flytur Helgi P. Briem fv. sendiherra. Góðtemplarahúsið Hafnarfirði Félagsvistin í kvöld miðviku- dag 4. febrúar. Verið öll vel- komin og fjölmennið. Kvenstúdentar Munið opna húsið að Hallveigarstöðum miðviku- daginn 4. febrúar kl. 3—6. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin A Aðalfundur Far- fugladeildar Reykjavikur og B.Í.F.verður fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 20.30 að Laufásvegi 41. Venjuleg aðalfundar- störf. Kvenfélagið Fjallkon- urnar Breiðholti III halda fund fimmtudaginn 5. febrúar kl. 20.30 í Fellahelli. Dagskrá. Félagsvist. Rætt um árshátíð. Konur fjölmennið! Stjórnin. Frá Sálarrannsóknar- félaginu í Hafnarfirði Fundur verður í sálarrann- sóknarfélaginu í Hafnarfirði í Iðnaðarmannahúsinu við Linnetsstíg í kvöld, miðviku- daginn 4. feb. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Erindi, 2. Skyggnilýsingar, Hafsteinn Björnsson miðill. Aðgöngu- miðar fást í Bófcapbúð Olivers Steins. Árshátíð Árshátíð Lögreglufélags Reykjavíkur, verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu, fimmtudaginn, 5. febr. n.k. og byrjar með borðhaldi kl. 19.30. Aðgöngumiðar fást hjá stöðvarmönnum og við innganginn. Allir lögreglu- menn og gestir þeirra vel- komnir. Stjórnin. I.O.G.T. St. Einingin nr. 14. Fundur í kvöld kl. 20.30. í Templara- höllinni v/Eiríksgötu. Dagskrá: Bræðrakvöld — Lög og létt hjal. Veitingar. Fundurinn er opinn og gest- um er heimil þátttaka. Félagar fjölmennið. Æðstitemplar verður til við- tals á fundarstað kl. 17--- 1 8, sími 13355. Kristniboðssambandið Almenn samkoma verður i Kristniboðshúsinu Laufásveg 13, i kvöld kl. 20.30. Filipía Kristjánsdóttir, talar. Fórnarsamkoma. Allir vel- komnir. Hörgshlíð 1 2 Almenn samkoma — boðun fagnaðarerindisins i kvöld miðvikudag kl. 8. — Síra Þorgrímur Framhald af bls. 19 byggðasafn í góðu viðhaldi. Félagsafskipti sfra Þorgríms, sem mótuðust af anda lýðskólastefn- unnar og glöggskyggni, vöktu þegar athygli og náðu aðlögun f hinu mikla félagsmálahéraði. Er það þeim mun merkilegra en presturinn var meiri íhaldsmaður en sóknarbörnin ákafari fylgjend- ur Jónasar frá Hriflu. Skal full- yrt, að Jónasi leizt illa á að fá þenna hægrisinnaða gáfumann inn f mitt ríki sitt. En ekki koma allir dagar f einum böggli.... Enn er það eitt frá sumrinu 1931, sem seint mun gleymast f Aðaldal. Unga prestskonan, frú Áslaug Guðmundsdóttir frá Hvanneyri, þókti fágætlega fögur. Hún reyndist göfugrar gerðar og var kölluð mikil kona á Grenjaðar- stað. Fannst fljótt á hvern mann- kærleika hún bar í brjósti og hver EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU styrkur hennar var í dagönn og lífsbaráttu. — Öll 4 börn þeirra hjóna fæddust á Grenjaðarstað, Ásdís húsfreyja og organisti á öl- keldu í Staðarsveit, Ragnheiður og Sofffa húsmæður og kennarar í Ölafsvík og Guðmundur, sem var skólastjóri á Lýsuhóli í Staðar- sveit eftir háskólanám, en nú kennari á Akranesi. Stundum verður þess vart, að leitað er skýringa á flutningi prests í annað kall. Jafn sjálf- sagður hlutur þarf engrar skýr- ingar, þvf að víst er þess von, að prestar æski nokkurar tilbreytni í starfi. Þar er aðal atriðið, þótt ýmist annað komi til s.s. ferða- þreyta og leiði á sfekju fámennis- ins, betri skilyrði til búrekstrar eða skólahalds, uppruna- og ætt- artengsl. Það, sem ætla má, að beint hafi sjónum síra Þorgrfms að Staðarstað, er hann hugsaði til hreyfings á Grenjaðarstað, er t.d. líkara fólk og land því, sem þau hjónin voru handgengnust frá bernsku sinni á Vesturiandi. Þá voru prestarnir á Snæfellsnesi á þeim tíma miklu skoðanalíkari síra Þorgrfmi en kollegarnir fyrir norðan og er ekki ólíklegt, að hann hafi hugsað gott til sam- félags við þá. Norðlenzku prest- arnir, og þá ekki sízt hinir mörgu bekkjarbræður hans þar, mátu hann vissulega mikils, lærdóm hans, gáfur og vináttu, en hið nána og glaða trúarsamfélag gat hann ekki átt með þeim. Mögu- leikarnir á ýmiss konar kristilegri félagsþátttöku og kirkjulegu nefndastarfi opnuðust líka von bráðar eftir að kom vestur. Var hann kjörinn f kirkjuráð 1947 og sat þar meir en 20 ár. Lengi var hann í undirbúningsnefnd al- mennu kirkjufundanna, sókti al- þjóða kirkjuþingið í Hannover 1952 fyrir hönd þjóðkirkjunnar og átti sæti á kirkjuþingi mörg ár. Formaður var hann f Kirkjukóra- sambandi Snæfellsnesprófasts- dæmis og frá 1963 prófastur Snæ- fellinga og síðan Dalamanna að auki frá 1971. — I Staðarsveit var sfra Þorgrímur bæði f sveitar- stjórn og forgöngumaður ýmissa félaga og að sjálfsögðu skóla- nefndar. Beitti hann sér fyrir skólastofnun að Lýsuhólslaug og varð hreppsfélagió þvf ekki hlut- takandi að sambyggðaskólanum við Kolviðarneslaug. Af þvf fáa, sem hér var talið má sjá, að kirkjuleg embættisstörf síra Þorgríms náðu langt út fyrir prestakallið og kröfðust mikillar vinnu og ferðalaga hins vökula kirkjuþjóns og ótrauða kristna áhugamanns. Störfin voru jafn trúlega unnin heima fyrir og út á við. Það var fjarri skaplyndi síra Þorgríms að láta nokkuð skyggja á prestsstarfið sjálft, þótt þjónaði f fámenni. Rækti hann því guðs- þjónustuhald og annað af mikilli kostgæfni. En þeirri spurningu verður aðeins svarað með skír- skotun til mikillar andlegrar orku og líkamshreysti hans, hvernig hann kom öllu þessu í verk. Hann samdi sínar kraftmiklu og fal- legu, vekjandi ræður á nóttunni. Sfmstöðin með háværri önn og afgreiðslu var hljóðnuð. Nemendurnir sváfu á sfðasta prestssetursskólanum á fslandi, og allt var kyrrt á hinu gamal- gróna hefðarsetri sögu og kristni á stað á Ölduhrygg. En í rfki sköp- unarinnar úti fyrir staðnum vakti fegursti fjallahringur, sem nokkur drottins þjónn lifir innan og starfar í á þessu landi — ávallt í birtu náttfriðarins, því að myrkur er ekki til f djúpri hugsun og vitru hjarta síra Þorgríms. Ágúst Sigurðsson á Mælifelli. VÉRZLUNRRBRNKINN ■sr u

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.