Morgunblaðið - 21.02.1976, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.02.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976 17 Bergþóra Kristins- dóttir—Minningarorð Fædd 14. júní 1907. Dáin 11. febrúar 1976. Ein af mætum húsfreyjum Reykjavikur verður til grafar bor- in í dag, Bergþóra Kristinsdóttir á Grettisgötu 84, Hún sýndi glöggt dæmi þess, hvernig unnt er að strá gleði og hamingju í kringum sig, þótt sjálf ætti hún um áratugi við þungbæra sjúkdóma að stríða svo að oft mátti ekki á milli sjá, hvort sigra mundi, lífið eða dauðinn. Bergþóra Kristinsdóttir fæddist á Patreksfirði 14. júlí 1907. Voru foreldrar hennar hjónin Evlalia Kristjánsdóttir og Kristinn Bene- diktsson, sjómaður þar og póstur um skeið. Var Bergþóra næstelzt fimm barna þeirra hjóna, og eru þau nú öll látin, en tvær hálfsyst- ur hennar eru enn á lífi. Hinn 5. júli 1930 gekk hún að eiga Þorkel Ásmundsson, húsasmíðameistara, frá Fellsaxlarkoti í Innri- Akraneshreppi, öðlingsmann á allan máta, og varð sambúð þeirra hin farsælasta. Lifir hann hana ásamt fimm börnum þeirra, en alls eignuðust þau níu börn saman. Þrjú af börnum þeirra létust skömmu eftir fæðingu, en elzta dóttir þeirra dó þriggja ára gömul, og hefði orðið 45 ára daginn eftir andlát móður sinnar, hefði hún lifað. Öll hin börnin eru upp komin og hafa stofnað sín heimili. Eru þau þessi: Ásmundur Kristbjörn, húsasmiðameistari, giftur Hrafnhildi Kristins- dóttur, Ellen gift Gunnari B. Kristinssyni, stýrimanni, Kristin Evlalía, gift Kristjáni B. Samúels- syni, afgreiðslumanni, Helga Ingi- björg, gift Guðmundi H. Haralds- syni, vélstjóra og Guðmundur Valdimar, rafvirki, giftur Jónu S. Sigurðardóttur. Öll eru þau búsett í Reykjavík. Auk þessa átti hún eina stjúpdóttur, Guðbjörgu Amelíu, sem giftist Páli Guðjóns- syni sjómanni í Vestmannaeyjum. Barnabörn Bergþóru eru 7, og auk þess 4 stjúpömmubörn. Öll þessi stóra fjölskylda hefur haldið mjög fast saman, og ástúð eindrægni og gagnkvæm virðing verið þar ríkjandi. Hefur oft verið harla gestkvæmt á heimili þeirra Bergþóru og Þorkels, og ávallt var það hún, sem með glaðværð, góðvild og léttleik í allri framkomu var hinn góði andi heimilisins, og ekki spillti þar rólyndi og fáguð fram- koma heimilisföðurins í hvivetna. Eins og vikið var að í hupphafi þessara orða, átti Bergþóra siðustu tvo áratugina lengstum við mjög þungbær veikindi að stríða. Hún var löngum sárþjáð, og missti mátt líkamans að meira eða minna leyti þráfaldlega, en aldrei lét andi hennar bugast og aftur var hún komin glöð og bros- andi meðal ættingja og kunningja. Vakti þol hennar og þrautseigja undrun allra sem til þekktu. Fjórum sinnum varð hún að ganga undir mikla uppskurði, og oft að dvelja á sjúkrahúsi þess á milli. En hún sá alltaf björtu hliðarnar á lífinu. Vissulega stóð hún ekki ein í baráttu sinni. Eig- inmaður hennar sýndi henni ein- staka umhyggju, börnin og tengdabörnin elskuðu hana og vildu allt fyrir hana gjöra, öll þessi stóra fjölskylda var eins og einn maður. Síðustu árin var nágrannakona hennar, Ágústa Jónsdóttir ætíð boðin og búin að koma til aðstoðar og vera henni til léttis, og læknar hennar og hjúkrunarfólk sýndu henni nærgætni. En ekki má sköpum renna. Hún hafði ætlað að verða HÓTEL BORG Okkar vinsæla kalda bord ásamt þorramat í hádeginu í dag Lokað í kvöld vegna einka- samkvæmis. systur Bergþóru vill einnig tjá henni hugheilar þakkir, en Svava hafði frá fermingu verið í skjóli systur sinnar, og siðan tóku þau hjón Bergþóra og Þorkell að ser son þeirra Sigurgeir H. Bjarria- son, sem óist upp hjá þeim frá 1 1 til 20 ára aldurs. Þá veitti hún einnig heimili hans mikla hjálp, þegar Svava andaðist. Að lokum flyt ég Bergþóru Kristinsdóttur innilegar þakkir mínar og konu minnaf fyrir langa og trygga vináttu og'ljið Guð að styrkja alla ástvini,; hennar i þeirra mikla missi, efíTfeita henni sæla endurfundi vié þá ástvini sem á undan voru tfarnir, og blessa hana um alla eégjð. ---------- Fiskibátur til sölu 20 tonna fiskibátur, 4ra ára gamall með fiýrri vél. WU, Bátnum fylgja handfærarúllur og troll. Upplýsingar í síma 14174 — heima 300Ö8 samferða manni sínum á vina- fagnað, og var hress og glöð. Samt þurfti hún að vitja læknis síns, Sigurðar Sigurðssonar, fyrra miðvikudag. Hún kom inn til hans, tók af sér kápuna og hné útaf um leið og hún settist. Læknirinn ásamt starfsbróður sinum, Guðjóni Lárussyni, sem einnig hafði annazt hana, fylgdi henni til sjúkrahúss og gerði allt sem unnt var til að vekja hana til lífs. En stundin var komin og fögru lffi lokið. Eftirlifandi venzlamenn vilja koma á framfæri kæru þakklæti til lækna hennar. og annarra þeirra sem önnuðust hana og að- stoðuðu. Mágur hennar, Bjarni Elíasson, sem kvæntur var Svövu dansieikur í kvöld i Hinir frábæru CABARETT ásamt SEXICATS skemmta Skemmtun fyrir alla Grindavík HAUKAR Sætaferðir frá B.S.I. og Torgi, Keflavík. Nafnskírteini. Gestir kvöldsins hljómsveitin Dinamit með Hebba kalda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.