Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976
Steingrfmur Arnar flugvallarstjóri t.v. og Bjarni Ilerjólfsson
flugumferðarstjóri standa þarna við það sem eftir er af flugturn-
inum en úr þessari byggingu er stjórnað allri flugumferð til Eyja
og á s.l. ári var Vestmannaeyjaflugvöliur mcð flesta farþega á
innanlandsleiðum. Lengst til vinstri á myndinni má sjá á við-
bygginguna sem fauk, en rnvndin var tekin áður en hún tókst
aftur á loft f einni vindhviðunni. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir í
Eyjum.
Flugturninn
í Eyium fauk
IIELMINGUR af flugturninum
f Eyjum fauk f roki f fyrrinótt
og er þar um að ræða viðbygg-
ingu sem reist var f eldgosinu
1973. Eftir stendur gamli flug-
vallarskúrinn þar sem flugum-
sjónarmenn hafa aðstöðu, en sá
skúr er gamalt hermannaeld-
hús frá strfðsárunum. Mesta
mildi var að enginn svaf f flug-
turninum, en starfsmenn flug-
vallarins hafa oft gist þar
einmitt f viðbyggingunni sem
var setu- og kaffistofa. 20 metra
hátt mastur úr 30—40 sm
breiðu tré rifnaði upp og
hrotnaði f þrjá parta. Veðrið f
fyrrinótt var ekki verra en oft
kemur fyrir f Eyjum, en hins
vegar eru flugvallarmann-
virkin svo úr sér gengin að sögn
Steingríms Arnar flugvallar-
stjóra að ekki var við öðru að
búast. „Það kemur að því,“
sagði Steingrfmur f spjalli við
Morgunblaðið, „að þetta drasl
tekur sig allt upp og hverfur út
f buskann."
Viðbygging flugturnsins sem
fauk, lenti f grjóturð norðan
við sjálfan turninn eítir að
h2Í3 íént á 20 metra háa mastr-
inu og slitið stög þess. Ekki var
viðlit vegna veðurs að festa við-
bygginguna niður og skömmu
eftir hádegi f gær tók hún sig•
aftur á loft og gjöreyðilagðist
þegar hún skall niður, en um
það leyti var farið að hrikta svo
f gamla flugturninum að flug-
umsjónarmaðurinn Bjarni
Herjólfsson, varð að flýja hann
og var þó vindhraðinn ekki
nema um 80 hnútar að sögn
Steingríms. Það scm eftir er af
flugturninum er 11 fm gólfflöt-
ur, en f gær var unnt að ganga
frá loftnetum til bráðabirgða
þannig að flugumsjónartækin
eru virk að hluta. Steingrfmur
kvað þá vera orðna vana að
horfa á það drasl sem þeir
hefðu fyrir aðstöðu fjúka út f
veður og vind, þvf haustið 1972
hefði stór verkfæraskúr tekizt á
loft f einni vindhviðunni.
„Við þökkum hins vegar
fyrir," sagði Steingrfmur
Arnar, „að fá ekki á kjaftinn
þegar við biðjum um eitthvað
nýtt, þvf við erum ekki svo hátt
skrifaðir hérna. Það er alltaf
verið að mæla og teikna og
hanna og hefur verlð svo f ára-
tug, en það er ekkert annað
sem gerist og menn koma sér
ekki einu sinni saman um hvar
nýju mannvirkin eiga að rfsa,
ef það verður þá ekki áfram
hangið í skúramenningunni."
Næst er 20 metra mastrið sem
kubbaðist í þrennt, þá viðbygg-
ing flugturnsins sem fauk og
fjærst sér á gömlu flugturns-
bygginguna sem hriktir og
skelfur ef eitthvað er að veðri.
Ljósmynd Mbl. Sigurgeir í Eyj-
Nýtt rækjuverð
Lífleg fasteigna-
sala undanfarið
Fasteignaverð í Reykjavík hef-
ur hækkað um 40% á tæpu ári
NÝTT lágmarksverö á
rækju og hörpudiski var
ákveðið á fundi Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins sl.
mánudag og gildir það frá
16. febrúar sl. til 30. júní
nk.
Samkvæmt hinni nýju
verðákvörðun verður verð
a stórri rækju, 220 stk. í kg
eða færri, kr. 60 á hvert
kíló, á smá rækju, 221 stk.
til 330 stk. í kíló, kr. 30 á
hvert kíló, og á hörpudiski
6 sm á hæö eða yfir, kr. 35
hvert kíló.
ÓVENJU mikið hefur verið um
fasteignaauglýsingar í Morgun-
blaðinu að undanförnu og aug-
lýsa margar fasteignasölur eftir
FÉLAG kvikmyndargerðarmanna
hefur sett bann á alla sjálfstæða
vinnu félaga sinna fyrir sjón-
varpið og einnig bann á sýningar
verka sömu aðila eftir að slitnað
hefur upp úr samningaviðræðum
kvikmyndagerðarmannaog Rfkis-
útvarpsins.
Á blaðamannafundi sem kvik-
myndagerðarmenn boðuðu til í
gær kom fram að vegna þessa
stöðvast ýmis afbrigði af stunda-
vinnu fyrir sjónvarpið. Það kom
fram á fundi kvikmyndagerðar-
manna að þeim finnst sjónvarpið
ekki hafa stuðlað sem skyldi að
íslenzkri kvikmyndagerð þótt það
hafi verið einn af upphaflegum
þáttum í starfi sjónvarpsins. Þó
kom það fram að kvikmynda-
gerðarmenn kváðust ekki ætlast
tii þess af sjónvarpinu að það
leysti þeirra vandamál; i því efni
yrðí að koma til stofnun kvik-
myndasjóðs, en þeir sögðu að það
sem þeir stefndu að með samning-
um væri aukin samvinna milli
kvikmyndagerðarmanna og sjón-
varps.
Bentu þeir á að tilkomaíslenzks
sjónvarps hefði fremur orðið
Mennirnir lausir
MENNIRNIR tveir, sem setið
hafa í gæzluvarðhaldi í Kópavogi
vegna innbrotsins í Bragakjör i
Grindavík um síðustu helgi , eru
nú lausir. Þeim var sleppt í gær.
Báðir mennirnir viðurkenndu
innbrotið. Þeir hafa áður komið
við sögu lögreglunnar.
Sinfóníuhljómsveit-
in frestar enn
ELLEFTU tónleikar Sinfóníu-
hSjómsveitar Islands, sem halda
átti þ. 26. febrúar, féllu niður
vegna verkfallsins. Áformað var
að flytja þessa tónleika í kvöld,
fimmtudaginn 4. marz, en þar
sem nóturnar hafa enn ekki
borizt verður að fresta þeim enn
um sinn.
12. reglulegu tónleikar hljóm-
sveitarinnar verða haldnir
fimmtudaginn 11. marz sam-
kvæmt efnisskrá.
Bátur á reki
á Elliðaánum
Árbæjarlögreglan fékk í
gær tilkynningu um að
bátur væri á reki ofarlega í
Elliðaánum. Er þetta segl-
bátur, blár aó lit, 18—20
feta langur. Hefur
báturinn líklega veriö við
sumarbústaó við Elliða-
vatn en losnaö í óveðrum
undanfarna daga. Eigandi
bátsins er beðinn að snúa
sér til Arbæjarlög-
reglunnar.
fasteignum á skrá vegna mikillar
sölu. Morgunblaðið leitaði I gær
til nokkurra fasteignasala í
Revkjavík og bar þeim saman um
þeim til trafala en hitt, því í um
það bil áratug hefðu íslenzk
stjórnvöld haldið að vandamál
þeirra væru leyst með tilkomu
sjónvarpsins. Þess má geta að
rúmlega helmingur félaga í
Félagi kvikmyndagerðarmanna
er starfandi hjá sjónvarpinu.
Samningaumieitanir hófust
snemma árs 1975, en þeim lauk er
samninganefnd Rikisútvarpsins
sleit skyndilega viðræðum 11. feb.
s.i. og taldi þær tilgangslausar.
Framhald á bls. 31.
Flugvél
nær fokin
ÞAÐ óhapp gerðist í rokinu síð-
degis í gær, aö báðar hurðir á
stóra flugskýlinu austanvert við
Reykjavíkurflugvöll voru opnað-
ar í einu og skemmdist flugvél
sem þar var inni þegar önnur vél
skall á hana. Hurðinni var lokað
með snarræði og kom það vafa-
laust í veg fyrir meiri skaða á
vélunum, sem fóru allar á hreyf-
ingu við þann mikla súg sem
myndaðist í skýlinu, þegar báðar
hurðirnar vorn opnaöar samtímis.
UM þessar mundir stendur yfir í
Norræna húsinu sýning Sigurðar
Örlygssonar listmálara, en hann
er í hópi yngri myndlistarmanna
landsins. Sýning hans hófst sl.
laugardag og hefur aðsókn verið
að fasteignasala hefði verið mjög
lífleg að undanförnu. Til dæmis
var góð sala í febrúar þrátt fyrir
verkföll og virðist sem margt fólk
hafi notað sér verkfallsfriið til að
kíkja i kringum sig eftir fasteign-
um.
Það kom fram hjá fasteignasöl-
unum að fasteignaverð fer stöð-
ugt hækkandi. Var það álit þeirra
að verðið hafi hækkað um 40% á
tæpu ári. Tveggja herbergja íbúð-
ir í Breiðholti, sem í fyrravor
seldust á 3,5 milljónir kosta nú
um og yfir 5 milljónir. I eldri
borgarhlutunum eru íbúðirnar í
hærra verði og eru t.d. 5,8
milljónir settar upp fyrir tveggja
herbergja íbúð í Vesturbænum.
Fjögurra herbergja ibúð í Breið-
holti, sem í fyrravor kostaði 6
milljónir kostar nú 8—8,5
milljónir.
Mjög góð og örugg sala er yfir-
leitt á tveggja og þriggja her-
bergja íbúðum en stærri íbúðir
seljast dræmar nema þær séu i
eftirsóttum hverfum t.d. Foss-
vogs- og Háaleitishverfi. Einn
fasteignasali, sem Morgunblaðið
ræddi við, sagði að stórkostleg
vöntun væri nú á 2—3 herbergja
ibúðum i nýjum hverfum i
Reykjavík og kenndi hann skipu-
lagsyfirvöldum um. Hins vegar
væri nóg framboð af stærri íbúð-
um á ýmsum stigum i nýjum
hverfum, t.d. 4—5 herbergja
íbúðum. Þessar íbúðir seldust
dræmt því ungt fólk sem væri að
hefja búskap, hefði ekki efni á
því að fjárfesta í svo stórum
ibúðum.
Það kom fram hjá fasteigna-
sölunum, að þrátt fyrir að
fasteignaverð hefði hækkað mun
meira en almenn laun virtist fólk
í mörgum tilfellum hafa úr nægu
fjármagni að spila. Mjög algengt
væri að fólk væri að stækka við
sig og hefði því aðrar fasteignir
til að selja í staðinn en brúaði
bilið með peningagreiðslum.
góð. 10 myndir hafa þegar selzt,
þar af hefur Listasafnið keypt 3,
en að sögn Sigurðar eru flestar
myndanna nýlegar, þær elztu
þriggja ára gamlar. Sýningin
verður opin fram á sunnudag nk.
Félag kvikmyndagerð-
armanna setur verk-
bann á sjónvarpið
<Gróð aðsókn að sýningu
Sigurðar í Norræna húsinu