Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976 17 Segir Fokkerinn „æra varðskipin” Teng Hsiao-ping Hua Kuo-feng. ÁRÁSIR á kínverska hægri- sinna benda til þess aó hafin sé hörð valdabarátta í Peking. Flokksmálgagnió Dagblað al- þýðunnar sakar þá um að hafa valdið klofningi í mióstjórn kommúnistaflokksins og hrifs- að til sín völd í ýmsum stjórnar- deildum. Þessi klofningur hófst eftir lát Chou En-lais forsætis- ráðherra í janúar. Öllum á óvart var Hua Kuo- feng öryggismálaráðherra skip- aður starfandi forsætisráó- herra snemma i febrúar í stað Teng Hsiao-ping aðstoóarfor- sætisráðherra, sem almennt var álitið að tæki við af Chou. Síðan hefur baráttan gegn hægrisinn- um harðnað stöðugt og breiðzt út um landið. Veggspjöld hafa verið hengd upp í háskólum í Peking og Shanghai og á fleiri stöðum með árásum á Teng. Að visu hefur Teng ekki verið nafngreindur, en ekki dylst við hvern er átt þegar notuð eru skammaryrði eins og „hinn nýi Krúsjeff Kína“ „gúllas-kommúnisti" og önnur álíka sem algeng voru í árásum á andstæðinga Mao Tse-tung í menningarbyltingunni fyrir áratug. Siðan birti Dagblað al- þýðunnar forsíðugrein með árásum á hægrisinna og með svipuðu orðalagi og á vegg- spjöldunum. Við þetta færðust árásirnar á nýtt stig og þær hafa enn færzt i aukana. Að því er næst verður komizt virðast foringjar flokksins hafa Harðnandi togstreyta í Peking haldið fund seint í janúar en án þess að þeim tækist að taka afdráttarlausa ákvörðun um val eftirmanns Chous. Sú ákvörðun að skípa Hua starfandi forsæt- isráðherra virðist hafa verið málamiðlunarlausn. Verið getur að róttækir flokksfor- ingjar hafi komið i veg fyrir að Teng yrði skipaður á þeirri for- sendu, að útilokað væri að maður, sem gagnrýndur var í menningarbyltingunni, gegndi starfi forsætisráðherra. Mao formaður, sem er orðinn82 ára, hlýtur að hafa staðfest val Hua. Eftir árásirnar sem Teng sætti í menningarbyltingunni sás’t hann ekki opinberlega fyrr en 1973 þegar hann tók smátt og smátt við störfum Chous og hélt áfram þeirri hófsömu stefnu sem hann hafði fylgt. Ekkert hefur heyrzt til Tengs siðan 15. janúar og ekki vitað hvort hann gegnir áfram störf- um sínum sem varaformaður kommúnistaflokksins og forseti herráðsins. Ekki er útilokað að Teng og aðrir embættismenn, sem voru endurreistir eftir menningarbyltinguna, geti komið í veg fyrir tilraun rót- tækra til að víkja þeim frá völd- um, en þegar síðast fréttist var ekki vitað til þess að þeir hefðu hafið gagnsókn. Hingað til hefur verið talið að flestir yfirmenn herstjórnar- umdæmanna í Kina væru á bandi Tengs og að herinn mundi styðja hann og aðra hóf- sama forystumenn ef til upp- gjörs kæmi milli þeirra og rót- tækra. Róttækir foringjar hafa áður reynt að takmarka völd hófsamra manna án þess að það tækist og sagan gæti endur- tekið sig, en það á enn eftir að koma í ljós. Þrátt fyrir valdabaráttuna var Kínaferð Richard Nixons fyrrum forseta ekki aflýst svo að sú hófsama stefna Chous að. bæta sambúðina við Banda- rikin virðist enn talin nauð- synleg í Peking. Tilgangur heimsóknarinnar virðist hafa verið sá að ávíta stjórn Fords forseta fyrir að hafa ekki tekið harðari afstöðu gegn Rússum, sem þar með virðast enn taldir höfuðóvinir Kínverja, þótt við- brögð Bandaríkjamanna virðist á þá lund, að Kínverjar hafi gert sig seka um afskipti af bandarískum innanlands- málum og heimsóknin því ekki þjónaó tilgangi sínum. Árásirnar sýna að Hua for- sætisráðherra mun reynast erfitt að jafna deilur hófsamra og róttækra og ekki bætir úr skák að hann er óreyndur. Fullvíst er talið að kona Maos, Chiang Ching, standi að árásunum. Vafasamara er en áður hvort nýir leiðtogar geta tekió við völdunum með frið- samlegum hætti. Övissan um hvað vió tekur þegar Mao hverfur af sjónarsviðinu er meiri en áður. Umbæturnar á spænsku stjórnarskránni: Þjóðaratkvæði í maí eða apríl Rosyth, Skotlandi, 3. marz. AP. MICHAEL Jones skipherra, vfir- maður freigátunnar Yarmouth, sem laskaðist mikið þegar hún sigldi á varðskipið Baldur 28. febrúar, sakaði Islendinga um að setja árekstra á svið fyrir blaða- menn þegar hann hélt blaða- mannafund skömmu eftir að frei- gátan kom til viðgerða í heima- höfn sinni Rosyth við Forth-fjörð. Hann sagði ennfremur að víra- klippingar íslenzkra varðskipa gætu valdið manntjóni á brezkum togurum. Um atburðinn 28. febrúar sagði Jones skipherra að hann hefði sótt að Baldri til að fá hann til að breyta stefnu. „Hann gerði alls ekkert til að forðast mig. Hann breytti ekki stefnunni um eina gráðu. Hann minnkaði ekki hraðann um einn einasta hnút. Það eina sem fyrir honum vakti var að setja árekstur á svið,“ sagði hann. Jones sagði að Fokker Friendship-flugvél Gæzlunnar hefði verið á flugi yfir staðnum „Scoop“ Jackson — „stefnum til sigurs“. Jackson telur sigur- inn vísan Washington, 3. marz. AP — NTB. „VIÐ stefnum til sigurs . . . Við leiddum Bandarlkjamenn saman að nýju I Massa- chusetts-rfki og við munum leiða þá saman á ný í öllum rfkjunum 50,“ sagði Henry „Scoop“ Jackson öldunga- deildarþingmaður sigri hrðs- andi eftir að ljóst varð að hann hafði unnið forkosningarnar f Massachusetts f gær og þar með skipað sér fremst f röð þeirra sem sækjast eftir að verða forsctacfni demókrata. Jackson fékk 23% atkvæða og 30 fulltrúa á flokksþinginu f New York f júlf þar sem fram- bjóðandi verður valinn. Jack- son er harðlfnumaður f utan- rfkis- og varnarmálum, and- stæðingur „detente“-stefn- unnar og tilheyrir íhalds- armi demókrata. Annar varð frjálslyndur þingmaður, Morris Udall, með 18% og 21 fulltrúa, þriðji varð George Wallace, rfkisstjóri með 17% og 20 fulltrúa, og Jimmy Carter, fyrrum rfkisst jóri fékk 14% og 16 fulltrúa. 1 grannríkinu Vermont varð Carter efstur með 46%, Sargent Shriver fékk 31% og Fred Harris 16%. Þessar kosn- ingar eru þó mun léttvæg- ari en Massachusetts- kosningarnar. Á vígstöðvum repúblíkana vann Ford forseti góðan sigur i Massachusetts með 62% gagnvart 35% hjá helzta keppinautnum Ronald Reagan, og í Vermont var hlut- fallið 84%: 16% Ford í vil. Að sögn talsmanns forsetans er hann ánægður með þessi úr- slit. Nú er talið að forkosning- Framhald á bls. 31. og bætti við: „Um leið og Fokker- inn birtist eóa þegar kvikmynda- tökumenn eru um borð má bóka að óhöpp verði. Þegar fréttamenn eru ekki viðstaddir má segja að þeir hagi sér skynsamlega en þegar þeir vilja auglýsingu af einhverri ástæðu fá þeir hana.“ Skipherrann sagði að varð- skipin gætu sett árekstur á svið með því að sigla fast upp við hlið freigátu og slengja skutnum utan í hana svo að þannig virtist að freigátan hefði siglt á varðskipið. Samnorrænt stafróf Kaupmannahöfn, 3. marz. Frá fréttaritara Mbl. Pétri J. Eirikssyni: NORÐURLANDARÁÐ stefnir að því að Norðurlöndin sameini staf- róf sitt ogvill að komið verði áfót norrænni málnefnd. Hefur þingið samþykkt að beina því til ráð- herranefndar að hún geri fyrst tillögur um samræmingu á bók- stöfum og stafrófi sem Norður- landaþjóðirnar nota. Þá mælir þingið með því að stofnuð verði málnefnd sem skuli vinna að því m.a. að sömu nýyrði verði notuð í Norðurlandamálum og að málin þróist ekki sitt í hverja áttina. ------ Hraðbátar til Gæzlunnar? Stafangri, 3. marz. NTB. ÍSLENDINGAR eru að íhuga aó kaupa eða taka á leigu hrað- skreiða tundurskeytabáta og flug- vélar í Noregi eða öðrum löndum til að efla Landhelgisgæzluna að því er Einar Ágústsson utanríkis- ráðherra segir í viðtali við Stav- anger Aftenblad. Hann sagði að íslenzka ríkis- stjórnin hefði ákveðið að skipa þriggja manna nefnd til að gera tillögur sem fyrst um eflingu landhelgisgæzlunnar. Haft er eftir utanríkisráðherra að fari brezku herskipin ekki út fyrir 200 mílurnar eigi Islending- ar að íhuga úrsögn úr NATO og uppsögn samningsins við Banda- ríkjamenn um Keflavíkurstöðina. Hann leggur á það áherzlu að þetta sé sín persónulega skoðun en bætir því við að þessari skoðun aukist stöðugt fylgi meðal Is- lendinga. Haft er eftir Einari Ágústssyni að eins og sakir standi sé eðlilegra að loka Keflavíkurstöðinni en fara úr NATO, Þar með geti Is- lendingar haldið áfram aðild sinni að bandalaginu án þess að erlent herlið sé á yfirráðasvæði þeirra. Madrid 3. marZ — Reuter. SPÆNSK stjórnvöld undirbúa nú þjóðaratkvæðagreiðslu í maí eða júní um stjórnarskrárumbætur sem m.a. fela í sér stofnun þings í tveintur deildum, að því er heimildir innan stjórnarinnar sögðu í dag. Einnig væru drög að lögum um stjórnmálasamtök, sem afnema hið 37 ára gamla bann á starfsemi st jórnmálaflokka, nema hvað áhrærir kommúnista, st jórnlevsingja og aðskilnaðar- sinna, næstum tilbúin. Vinnan við að leggja drög að þessum umbótum er sögð ganga snurðu- laust þrátt fyrir verkfallaöldu og j mótmælaaðgerðir frá áramótum, en starf þetta er í höndum 18 manna nefndar undir forsæti Carlos Arias Navarro forsætisráð- herra 1 miðborg Madrid dreifði óeirðalögregla vopnuð kylfum nokkur hundruð stúdentum sem trufluðu umferð þar i dag er þeir vöktu athygli á kröfum um Sjónvarp um gervihnetti „í athugun” Kaupmannahöfn, 3. marz. NTB. NEFND ráðuneytisstjóra frá Norðurlöndum á að kanna mögu- leika á útvarps- og sjónvarpssend- ingum um gervihnetti. Könnuninni á að ljúka i byrjun næsta árs svo að ríkisstjórnir landanna geti hugleitt þennan valkost þegar þær taka afstöðu til eflingar sjónvarpssamvinnu Norðurlanda. umbætur í háskólamálum. All- margir stúdentar særðust. Skort- ur á ávöxtum, grænmeti og fiski gerði mjög vart við sig i höfuð- borginni vegna verkfalls sendibil- stjóra sem staðið hefur i viku, en þeir krefjast lægra bensinverðs og lægri vegaskatta. 1 öðrum héruðum landsins var einnig óeirðasamt vegna verkfalls þessa. I borginni Vitora í Baskahéruðum Norður-Spánar voru flestar verk- smiðjur og verzlanir lokaðar til stuðnings um 6000 verkamönnum sem verið hafa i verkfalli siðustu tvo mánuði. Mikið fjallað um fimd forsæt- isráðherra — í norrænum fjölmiðlum Kaupmannahöfn, 3. marz. Frá fréttaritara Mbl. Pétri J. Eirikssyni: SKANDINA VlSKU blöðin hafa skrifað mikið í morgun um blaðamannafund Geirs Hallgrímssonar, sem hann hélt í Kristjánsborgarhöll í gær. Er fundinum slegið upp í öllum helztu blöðum Danmerkur, Noregs, Sviþjóðar og Finn- lands, og eru frásagnir blað- Framhald á bls. 31. STÆRÐARMUNUR brezka flotans og skipakosts Landhelgisgæzlunn- ar samkvæmt uppdrætti 1 Berlingske Tidende sem birtist upphaflega í Sundav Times. I grein, sem fylgdi með og fjallar um hvernig þorska- strlðið er háð, segir að heppni islenzku varðskipanna I viðureigninni við brezka togara hafi aukizt að undanförnu en þó landi togararnir meiri afla en á sama tíma i fyrra. Sfðan 1 nóvember hafi togararnir landað 20.500 tonnum af þorski miðað við 13.000 tonn á sama tfma 1 fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.