Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976
31
Ekki veiðiveður hjá Bretunum í gær:
STATESMAM VEirnsr AÐ
ÁRNA FRIÐRIKSSYNI
VEÐURGUÐIRNIR tóku að sér
gæzlu fslenzku fiskveiðilögsög-
unnar fyrir brezkum land-
helgisbrjðtum f gær, og hafa
brezkir togarar ekkert getað átt
við veiðar f röskan sðlarhring,
þar sem 8—10 vindstig voru á
Austfjarðamiðum f gær þar
sem brezku togararnir halda
sig. Aður en veðrið skall á veitt-
ist dráttarbáturinn Statesman
að fiskileitarskipinu Árna
Friðrikssyni og munaði litlu að
árekstur yrði milli skipanna.
Hcfur skipstjóri Statesman
sennilega talið að þarna væri
varðskipið Baldur á ferð.
„Þetta gerðist litlu fyrir mið-
nætti i gærkvöldi,“ sagði
Sveinn Sveinbjörnsson, leið-
angursstjóri á Arna Friðriks-
syni, þegar við ræddum við
hann í gær. „Um það leyti
nálguðumst við hóp brezkra
togara um 40 mílur út af Reyða-
fjarðardjúpi, og þá kom States-
man skyndilega aðvífandi og
tók að veita okkur eftirför.
Skipið hafði þann háttinn á að
það renndi sér upp með síðu
okkar stjórnborðsmegin og
snarbeygði síðan fyrir okkur á
bakborða jafnframt því sem
skæru kastljósi var beint upp i
brúna hjá okkur. Gekk þetta
svona um stund unz að þvi kom
að við urðum að stöðva skipið
alveg til að koma í veg fyrir
árekstur, því að þá hafa ekki
verið nema u.þ.b. þrír metrar
milli skipanna. Það var svo ekki
fyrr en Ægir kom þarna að og
kallaði yfir til Statesmann
hverjir við værum og óskaði
eftir þvi að við værum látnir
afskiptalausir við störf okkar.
Skipstjórinn á Statesmann
hafði þá samband við næstu
freigátu sem aftur kallaði upp
yfirmann Scillu, og þá loks eftir
nokkurt þóf fengum við að fara
óáreittir," sagði Sveinn.
Rúmlega 30 brezkir togarar
voru hér við land í gær, og voru
þeir á nokkru stærra svæði en
verið hefur, en héldu sig í hóp-
um eftir sem áður.
fengið uppreisn æru eftir mis-
heppnaða tilraun til að verða
forsetaefni demókrata árið
1972. Eftir sigurinn sagði Jack-
son við stuðningsmenn sina:
„Kjarni sigurs okkar er sú
staðreynd að okkur tókst að ná
fram að nýju þeirri samsteypu
sem varð til þess að Franklin
D. Roosevelt, Harry Truman,
John F. Kennedy og Lyndon
Johnson náðu kjöri.“ Udall
óskaði Jackson til hamingju,
en sagði um leið að úrslitin
sýndu greinilega að hann
sjálfur (þ.e. Udall) væri fram-
bjóðandi „hinnar framfara-
sinnuðu miðju Demókrata-
flokksins". Robert Strauss, for-
maður Demókrataflokksins,
sagði í dag, að þetta væri „stór-
kostlegur sigur fyrir „Scoop"
Jackson" en „Udall hefur
einnig komið fram sem leiðtogi
þess sem hann myndi nefna
hinn frjálslynda arm flokks-
ins“. Strauss kvaðst telja að
endanleg útnefning frambjóð-
enda myndi fara fram eftir
viðræður milli allra flokks-
arma.
— Air Viking
Framhald af bls. 32
ekki flókin viðskipti. Hann kvaðst
að visu ekki hafa séð bókhald
fyrirtækisins en hann ímyndaði
sér að það byggðist upp á stórum
viðskiptum við ekki ýkja marga
aðila. Hins vegar tæki uppgjör
sem þetta alltaf sinn tíma.
— Slær í gegn
Framhald af bls.7
samkeppninni f Dallas og hélt svo til
New York, þar sem hann sigraði í
samkeppni hjá Metropolitan-
óperunni. Upp frá því hefur hann
verið þar í aðalhlutverkum. Auk þess
syngur hann reglulega með Flórens-
óperunni í Milwaukee og sló í gegn í
fyrra sumar sem Georgio Germont í
La Traviata í Santa Fe óperunni,
hlutverkinu sem hann gekk svo inn í
með svo góðum árangri nú í janúar f
Metropolitanóperunni í New York.
Einnig hefur hann sungið með
óperum í New Orleans, San
Antonio, Toledo og Winnipeg
— Stríðsástand
Framhald af bls. 1
manna, fögnuðu aðgerðum
Machels i dag vegna þess aukna
þrýstings sem þær setja á Smith.
Kenneth Kaunda, forseti Zambíu,
tók I sama streng og sagði að
Zambía og Mozambique myndu
vinna saman að því að knýja fram
réttlæti í Ródesíu, og yrði litið á
árás á Mozambique sem árás á
Zambíu. Kaunda lét sjálfur loka
landamærum lands sins við
Ródesíu fyrir þremur árum.
Machel viðurkenndi í útvarps-
ávarpi sinu að aðgeröirnar kynnu
að skaða Mozambique efnahags-
lega, en engu að síður væru þær
nauðsynlegar. Taiið er að Mozam-
bique hafi fengið margar milljón-
ir sterlingspunda fyrir að annast
inn- og útflutning Ródesíu frá því
landið hlaut sjálfstæði frá Portú-
gölum. Fyrir sjálfstæði fóru milli
70—80% viðskipta Ródesíu um
Mozambique, en nú eru þau
komin niður í um 25% og meiri
1 dag stendur vinur minn
Kristján Bjartmars, fyrrum odd-
viti í Stykkishólmi, á niræðu.
Þrátt fyrir að sjónin sé biluð og
heyrnin farið að skerðast, heldur
hann sínum bestu eiginleikum, er
alltaf spaugsamur, glaður og reif-
ur og það sem best af öllu er, að
hann er ánægður. Hann hefir um
sína daga aldrei gert neinar kröf-
ur til heimsins, hvorki um vináttu
né annað, enda veit hann að til
heimsins er lítið að sækja af
varanlegu.
Ég kem oft til Kristjáns og á
jafnan með honum góðar stundir,
upprifjunarstundir liðinna ára.
Þær enda jafnan með lofgjörð til
hins hæsta um varðveislu og
hluti þeirra fer nú um Suður-
Afríku. Það fer þvi mjög eftir
vilja og getu Suður-Afríkumanna
til að annast fiutningana hversu
mikið tjón Ródesiu verður. Ljóst
er þó að þaó verður verulegt, þvi
það leggst ofan á alþjóðlegar við-
skiptahömlur sem settar hafa
verið á landið.
Þessar aðgerðir Machels eru
gerðar nú eftir að sambúð land-
anna hefur farið hraðversnandi
undanfarnar vikur, en forsetinn
sagði að síðasta hálmstráið hefði
verið árás herþota, þyrla og stór-
skotaliðs frá Ródesíu i siðustu
viku á þorp í Mozambique.
Ródesíustjórn sagði þá að ráðist
hefði verið á skæruliðaflokk sem
áður hafði skotið á ródesískt
herlið yfir landamærin. Hefðu 24
skæruliða beðið bana. Heimildir í
Ródesíu hermdu að árásin hefði
verið gerð rétt innan við landa-
mæri Mozambique. Machel, for-
seti sagði í dag að umrætt þorp
væri Pafuri á mótum landamæra
Suður-Afríku, Mozambique og
Ródesíu. Hefðu tveir Mozam-
biquemenn beðið bana og sjö
særzt, en sjö Ródesíumenn
hefðu farizt og sjö særzt. Árásar-
vélarnar hefðu flogið yfir Suður-
Afríku, en tekizt hefði að skjóta
tvær niður. „Þetta var stríðs-
aðgerð,“ sagði Machel. „Stríðs-
glæpur gagnvart Mozambique."
Van der Byl varnarmálaráð-
herra viðurkenndi í kvöld að
ródesískir hermenn færu „öðru
hvoru“ yfir landamærin til
Mozambique að elta skæruliða, og
væri það gert í samræmi við
alþjóðleg lög og venjur. Machel
forseti gæti sjálfum sér um kennt
því hann hefði skotið skjólshúsi
yfir skæruliðana, sem svo færu
yfir landamærin að næturþeli
„til að myrða, nauðga, ræna og
rupla".
Talið er að í kjölfar þeirra
aðgerða sem Machel tilkynnti i
dag muni fylgja vaxandi stuðn-
ingur Mozambiquestjórnar við
skæruliðahreyfingar í Ródesíu.
Sagt er að þúsundir þeirra séu
þess albúnir að gera innrás í
Ródesíu frá stöðvum i
varanleg gæði «em ekkert getur
grandað.
Þetta verður engin afmælis-
grein, enda hef ég áður á stórum
stundum í lífi Kristjáns minnst
hans að verðugu. Hann hefir
lengst allra haft forystu þessa
bæjarfélags og öllum er hlýtt til
hans. I dag hugsa margir til góðs
vinar og fjölskyldu hans og senda
þeim hjónum kveðjur og árnaðar-
óskir. Ég er einn í þeim hópi1,
aðdáandi hans eðliskosta sem nú
fara minnkandi i erfiðu þjóð-
félagi. Ég þakka Kristjáni góða
samfylgd og síðast en ekki síst
falslausa vináttu, heiðríka og hug-
ljúfa. Þakka tryggð hans við mig
og mína. Árni Helga'ón
Mozambique. Einn af leiðtogum
skæruliðanna, Abel Muzorewa
biskup var viðstaddur er Machel
flutti útvarpsávarpið í dag.
— Mikið fjallað
Framhald af bls. 17
anna af fundinum mjög vin-
samlegar og gagnlegar
íslenzkum málstað. Hluti
fundarins var sýndur í danska
sjónvarpinu í gærkvöldi og
danska, norska og finnska út-
varpið og norska sjónvarpið
tóku viðtöl við Geir eftir
fundinn. Eins og sagði í frétt
Mbl. i gær voru rúmlega 80
fréttamenn frá fjölmiðlum og
fréttastofum um allan heim á
fundinum sem virðist hafa
borið tilætlaðan árangur við
kynningu á afstöóu Islendinga.
— Húsnæðismála-
stjórnarlán
Framhald af bls. 32
til ráðstöfunar i þessu skyni, en
fjöldi lánsumsókna sem sinna
þurfti, verið slikur að þessi lán
hefðu ekki orðið nema 300—400
þúsund krónur i reynd. Gunnar
kvað þó að þvi stefnt að hækka
þessi lán eitthvað til samræmis við
hækkun lánanna vegna nýbygg-
inga.
— Felldu
Framhald af bls. 32
að samningarnir vrðu skýrðir í
sjónvarpi.
Jón sagði að ljóst væri að
þegar samió væri sameigin-
lega, ættu menn jafnframt að
greiða atkvæði sameiginlega.
Menn hefðu hins vegar talið
það myndu tefja fvrir málinu,
en Ijóst væri nú að þetta skipu-
lag á atkvæðagreiðslu tefði
enn meir. Jón sagði að sér
svndist að ef atkvæði hefðu
verið talin saman, hefðu samn-
ingarnir verið samþvkktir með
naumum meirihluta.
— Samar
Framhald af bls. 1
Samuli Aikio, fulltrúi Norræna
Samaráðsins, sagði í dag að Samar
væru upphafsmenn norræns sam-
starfs. „Fyrir meir en 200 árum
undirrituðu ríkisstjórnir Noregs,
Svíþjóðar og Rússlands samkomu-
lag sem leyfir frjálsa flutninga
Sama yfir landamæri í norður-
hluta Skandinavíu," sagði hann.
Á þingi Norðurlandaráðs í dag
var ákveðið, að beina þeim til-
mælum til ráðherranefndarinnar
um aó setja á laggirnar vinnuhóp
sem í samvinnu við Norrænu
Samastofnunina og samtök Sama
skuli kanna leiðir til að varðveita
og styðja samiska menningu.
— Jackson
Framhald af bls. 17
arnar í Florida í næstu viku
verði fyrst og fremst upppi*'
milli Jacksons, ^og
Carters. Þett» er ,- fyrsta sjnn
sem J^-Kson vinnúr kosningar
utan heimarikis síns Washing-
ton, og þykist hann nú hafa
Kristján Bjartmars,
Stykkishólmi, 90 ára
— Hafrún
Framhald af bls. 32
fór veður versnandi. Er talið
fullvíst að báturinn hafi farizt um
nóttina, með það snöggum hætti
að ekki hafi gefist tóm til að
senda út neyðarkall. Að sögn
björgunarsveitarmanna er talið
líklegt að báturinn hafi farizt ein-
hvers staðar á svæðinu frá Sela-
töngum að Reykjanesi.
70 menn 40 skip
og 3 flugvélar
Hannes Hafstein, framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélags Islands
sagði í samtali vió Morgunblaðið í
gærkvöldi að um leið og farið
hefði verið að óttast um Hafrúnu i
fyrrakvöld. hefði Tilkynningar-
skyldan og Slysavarnafélagið
byrjað að grennslast fyrir um
ferðir bátsins og er hann kom
ekki í leitirnar hefói undir-
búningur að leit hafizt. Fréttin
um líkfund Jóhannesar Gunnars
frá Grindavík hefði ekki verið
tilkynnt fyrr en um kvöldið.
„Strax í birtingu í gærmorgun
fóru björgunarsveitarmenn frá
Björg á Eyrarbakka, Mannbjörg i
Þorlákshöfn, Þorbirni í Grinda-
vík, Eldey i Höfnum og Sigurvon í
Sandgerði á fjörur og leituðu á
meðan fært var vegna veðurs. Öll
strandlengjan á þessu svæði allt
austur í Selvog var gengin. Gengu
Grindvíkingar og Eyrbekkingar
svæóið í Sandvíkur milli Reykja-
nestáar og Staðarbergs."
Hannes sagði, að jafnhliða
þessu hefðu þrjár flugvélar
leitað. TF-SYR flaug yfir svæðið
úti af Reykjanesi og þar austur
fyrir. Leitarflugvél frá Varnar-
liðinu leitaði úti af Garðskaga og
norður um Faxaflóa og þyrla frá
Varnarliðinu flaug með strönd-
inni og yflir grunnslóðir. Þá tók
fjöldi báta þátt í leitinni. Var
Guðbirni Þorsteinssyni, skip-
stjóra á Þorsteini RE, falið að
skipuleggja leit bátanna og munu
einir 40 bátar hafa leitað á Faxa-
flóasvæðinu. Leituðu bátarnir á
stóru svæði og voru í þéttri röð.
Ennfremur áttu bátar frá Grinda-
vík og Þorlákshöfn aó taka þátt i
leitinni, en þeir komust ekki út úr
höfnunum vegna veðurs.
Áherzla lögð á
flugvélaleit
Að sögn Hannesar veröur lögð
áherzla á flugvélaleit i dag og
ennfremur verða fjörur gengnar í
von um að eitthvaö meira hafi
rekið á 'and.
Þessara er sakr>“-„
SkipveYjarnir á Hafrúnu sem
to'n er leitað að heita: Valdimar
Eiðsson skipstjóri fæddur 1945
kvæntur og tveggja barna faðir;
Ágúst Ölafsson, fæddur 1949,
kvæntur og á eitt barn, Þórður
Þórisson fæddur 1943, kvæntur
og á eitt barn; Július Stefánsson,
sr-jt r> H» >
fæddur 1955 og á unnustu;
Haraldur Jónsson, fæddur 1955,
trúlofaður og á eitt barn; Þessir
menn eru allir frá Eyrarbakka;
Guðmundur S. Sigursteinsson, frá
Blönduósi, fæddur 1957,
ókvæntur; og Jakob
Zophaníasson fæddur 1931 á
uppkominn son.
— 200 mílur
Framhald af bls. 1
ingnum af þeim aflamissi sem
þeir verða fyrir með því aó auka
veiðar við Færeyjar, ef öll löndin
við Norður-Atlantshaf færa út í
200 míiur.“
„Við verðum þess vegna að
treysta á það og vona að sam-
komulag náist innan Norður-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar
um rétt Færeyinga til að veiða
ákveðið aflamagn innan fiskveiði-
lögsögu hinna landanna," sagði
Henzte.
Hann sagði að Færeyingar
hefðu gert árs samning um veiðar
innan 50 mílnanna við Island en
að hann væri nú fallinn úr gildi
og að þeir sæktu nú eftir öðrum
samningi um veiðar innan 200
mílnanna og hefðu von um að
viðræður geti hafizt innan
skamms.
„Við vonumsttil að fá ákveðinn
aflakvóta en aðeins litill hluti af
honum verður þorskur," sagði
hann.
— Verkbann
Framhald af bls. 2
I fréttatilkynningu F.K. segir
síðan orðrétt:
„Félag kvikmyndargerðar-
manna hefur farið fram á bann
félaga kvikmyndargerðarmanna á
Norðurlöndum á dreifingu kvik-
mynda sem félagsmenn þeirra
hafa gert til Ríkisútvarps-
Sjónvarps þar til samningar hafa
tekist.
Fréttakvikmyndatökumenn
Sjónvarpsins utan Reykjavíkur
sem hafa aukaaðild að Félagi
kvikmyndargerðarmanna munu
hætta sendingum á efni til Sjón-
varpsins þar til samningar hafa
tekist.
I samningaviðræðum FK og
RUV var höfuðágreiningurinn
einkum um tvö atriði, upphæðir
og rétt yfir kvikmyndunum. I
samningshluta A. (um kaup RUV
á sýningarrétti áfullgerðum kvik-
myndum) var aðeins ágreiningur
um verð. Krafa FK var u.þ.b. 1,3
milljónir króna fyrir 30 mínútna
kvikmynd. Tilboð RUV var u.þ.b.
650 þúsund krónur fyrir sömu
kvikmynd. Þess má geta að fram-
leiðslukostnaóur 30 mínútna
kvikmyndar er með núverandi
verðlagi u.þ.b. 3 milljónir króna. 1
samningshluta B. (um „free-
lance" vinnu kvikmyndagerðar-
manna fyrir RUV) var ágreining-
ur fyrst og fremst um réttinn yfir
kvikmyndunum. RUV vildi halda
öllum rétti fyrír sig, í þekktum
sem óþekktum formum dreif-
ingar, en FK vildi aðeins semja
um sjónvarpsréttinn. Hugmyndir
FK um sjónvarpsréttinn eru í
megin atriðum samhljóða þeim
rétti sem RUV hefur þegar viður-
kennt i samningum við Félag is-
lenskra leikara.
Með þvi að neita samningum
við FK eru forráöamenn RUV að
hindra félagsmenn FK i þvi að
gera kvikmyndir fyrir íslenska
sjónvarpsáhorfendur."
Þá hefur stjórn Rithöfundasam-
bands Islands lýst stuðningi við
Félag kvikmyndagerðarmanna í
baráttu þess fyrir viðunandi
samningum við Ríkisútvarp-
ið/Sjónvarp og mun beita sér
fyrir frekari stuðningsaðgeróum
ef með þarf.
Þá hefur fundur stjórnar BIL
og formanna aóildarfélaga þess
haldinn f Norræna Húsinu 25
1976 lý!f- áig algerlega
sarr.£y».Kan aðgerðum Félags
kvikmyndagerðarmanna vegna
slita RUV á samningavióræðum
þessara aðila. Fundurinn lýsir sig
samþykkan ályktun stjórnar BlL
frá 18. febrúar og itrekar stuðn-
ing sinn við FK. Væntir fundur-
inn þess, að RUV gangi þegai- til
samninga við FK án þess að til
frekari aðgerða þurfi að koma af
hálfu BlL og aðildarfélaga þess,
* 9 ff b a> * A * » * » tt * « m * ét m & Tt 8 * « w .