Morgunblaðið - 04.03.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976
5
Öskudagur á Akureyri
ÁAKUREYRIeru börnin mjög samtaka um að halda öskudaginn
hátfðlegan og klæðast gjarnan margvfslegum búningum og gerv-
um. Þetta er gamall siður á Akureyri og á rætur að rekja og
óslitinn feril til aldarinnar sem leið, og er hluti af menningu
Akureyrar.
Nú eru allar horfur á að árið í ár verði hið síðasta sem þessi
siður er f heiðri hafður, þar sem það er haft fyrir satt að
væntanleg sé ný reglugerð við grunnskólalögin sem geri ekki ráð
fyrir að öskudagurinn verði frfdagur f grunnskólum. Hætt er við
að alvarlegur kurr komi f lið öskudagsbarna á Akureyri ef þetta
reynist rétt.
Meðfylgjandi myndir eru að sjálfsögðu teknar á Akureyri f
gær. Ljósmyndari var Sverrir P.
Búnaðarþing:
Nefnd semji lög
um vinnuaðstoð
í sveitum
A FUNDI búnaðarþings I gær voru
tvö mál tekin til afgreiðslu og er það
fyrra um kosningu milliþinganefndar
til að semja frumvarp til laga um
vihnuaðstoð í sveitum og skal
nefndin skila áliti sínu fyrir Búnaðar-
þing 1977. Hitt málið, sem þingið
afgreiddi í gær var um könnun á
möguleikum á auknum markaði fyrir
kjöt af aligæsum og öndum.
í greinargerð flutningsmanna tillög-
unnar um vinnuaðstoð í sveitum, en
þeir eru Agnar Guðnason og Sigurður
J Líndal, segir að Búnaðarþing hafi
áður samþykkt að fela stjórn Búnaðar-
félagsins að kanna möguleika á slikri
vinnuaðstoð en lítið hafi síðan verið
aðhafst i þessu máli, þó þörfin sé enn
jafn brýn og áður og þyki þvi rétt að
þingið skipi sjálft nefnd til að semja
lagafrumvarp um málið
Síðara málið, sem þingið afgreiddi í
dag, var flutt af búfjárræktarnefnd
þingsins og segir í ályktuninni að á
undanförnum árum hafi fáeinir
bændur stundað ræktun aligæsa og
anda, en kjöts af þeim hefur verið neytt
sem hátíðarmatar á stórhátíðum
Fuglar þessir lifa og þrífast að miklu
leyti á grasi og heyfóðri og því lítill
tilkostnaður við þá annar en kostnaður
við byggingar og önnur mannvirki í
Ijósi þessa felur þingið stjórn B í í
samráði við Framleiðsluráð land-
búnaðarins að láta fram fara könnun á
möguleikum á aukningu markaðar fyrir
kjöt af alifuglum og öndum Jafnframt
skoraði þingið á Rannsóknastofnun
landbúnaðarins að hefja búskapartil-
raunir með ræktun gæsa og anda við
mismunandi aðstæður Jafnframt verði
kannað hvort hagkvæmt reynist með
eggjatöku úr varplöndum grágæsa að
unga út eggjum og ala ungana upp og
nýta þá síðan að eldi loknu sem slátur-
dýr.
i
et
■o® \69'JP
&<£*£#**
L ..*J' \fe'®ðVsS°°
L '6ð'
FALKINN