Morgunblaðið - 04.03.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthlas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10 100.
Aðalstræti 6, sími 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Sjómanna-
samningar
Sjómannadeilan er nú
aö mestu leyst. Sjó-
mannafélög, sem felldu ný-
gerða kjarasamninga hafa
nær öll tekið ákvörðun um
að fresta verkfalli og þar
með hefur nær allur fiski-
skipafloti landsmanna haf-
ið veiðar á ný. Þetta eru
mikilsverð tíðindi. Rúm-
lega hálfsmánaðar verkfall
á fiskiskipaflotanum hefur
valdið því, að líklega höfum
við tapaö um það bil 1,3
milljöröum króna á loðn-
unni einni saman. Við ís-
lendingar höfum engin
efni á slíkri stöðvun á
miðri loðnuvertíð. Vonandi
verður þessi reynsla þó til
þess, að til slíkrar stöðvun-
ar kemur ekki á ný á svo
viðkvæmum tíma, enda
tapa sjómenn ekki síður
miklum fjármunum á því
en aðrir.
Sjómannadeila þessi hef-
ur leitt í ljós mjög mikinn
veikleika í uppbyggingu
sjómannasamtakanna.
Menn standa agndofa
frammi fyrir því, hversu
fáir sjómenn hafa tekið
þátt í að afgreióa kjara-
samningana á félagsfund-
um, sem um þá hafa fjall-
að. Ljóst er, að óformleg
samtök sjómanna hafa
starfað utan við hin skipu-
lögðu sjómannasamtök.
Jafnframt hefur það komið
í ljós í sambandi við af-
greiðslu kjarasamninga
nú og kom raunar einnig
fram, þegar fiskiskipaflot-
inn sigldi í höfn í nóvem-
bermánuði, að starfandi
sjómenn fá alltof litlar
upplýsingar um þau mál-
efni, sem snerta kjör
þeirra beint, svo sem um
útgerðarkostnað, verðlag á
sjávarafurðum á erlendum
mörkuðum og markaðsmál
almennt.
Stundum er talað um, að
verkalýðssamtökin séu of
sterk og þess vegna sé ekki
nægilegt jafnræði á vinnu-
markaðnum. Svo virðist
sem sjómannasamtökin
séu of veik og að það geti
háð verulega eðlilegum
samskiptum sjómanna og
útgerðarmanna við samn-
ingagerð um kaup og kjör.
Þess vegna er ástæöa til að
hvetja til þess, aó sjómenn
sjálfir taki málefni sín til
athugunar í ljósi fenginnar
reynslu, meó það sérstak-
lega í huga að auka upplýs-
ingastreymi um hagsmuna-
mál sjómanna og sjávarút-
vegsins almennt til starf-
andi sjómanna á fiskiskipa-
flotanum og styrkja sam-
tök þeirra í landi.
í minningu Ásgríms
Idag eru 100 ár liðin
frá fæðingu Ásgríms
Jónssonar, eins mesta
listmálara, sem ísland
hefur alið og brautryðj-
anda í myndlist á Is-
landi. 1 grein sem mynd-
listargagnrýnandi Morgun-
blaðsins, Bragi Ásgeirsson,
ritar í Morgunblaóið i dag
um Ásgrím Jónsson segir
hann m.a.: „Ásgrímur telst
ekki fyrsti íslenzki mynd-
listarmaðurinn, en um
margt telst hann forgöngu-
maður á sviði málaralistar
og ekki þarf langt aó leita
að tiltækum heimildum til
að sannfærast um, aö af
„hinum þremur stóru“
frumkvöðlum framsæk-
innar íslenzkrar nútíma-
listar á enginn fremur
skilið að teljast brautryðj-
andi en Ásgrímur. Hann er
ekki einungis elztur þeirra,
heldur fór hann fyrstur
utan til listnáms haustið
1897, og efndi einnig fyrst-
ur til sýningar á eigin verk-
um haustið 1903.“
Ragnar Jónsson í Smára
segir í stuttri grein um Ás-
grím Jónsson í Morgun-
blaðinu í dag: „Brautryðj-
andinn í íslenzkri myndlist
og einn af frjóustu snill-
ingum okkar fyrr og síðar,
Ásgrímur Jónsson, listmál-
ari, var hreinlyndur maður
og drenglundaður, hroð-
virkni og óráðvendni
óþekktur veikleiki í brjósti
hans. Hann var hreinn og
beinn og óskiptur hvar sem
hann tók til höndum.“ Um
leið og þess er minnst, að
100 ár eru liðin frá fæð-
ingu Ásgríms Jónssonar
kemur í hug sú kona, sem
öörum fremur hefur stuðl-
að að því, að landsmenn
hans hafa haft tækifæri til
að njóta listar hans, en þaó
er frú Bjarnveig Bjarna-
dóttir, sem annazt hefur
starfrækslu Ásgrímssafns
með miklum sóma og
bjargað mörgum verkum
Ásgríms frá því að týnast
og skemmast. Um þetta
starf segir Ragnar Jónsson
í Morgunblaðinu í dag:
„Frú Bjarnveig átti þá
eiginleika í ríkum mæli,
sem Ásgrímur mat hæst,
reglusemi og trúmennsku
ásamt skilningi á listsköp-
un hans og lífsbaráttu. Ef
Ásgrímur Jónsson væri í
dag á meðal okkar hefði
hann sjálfur gert lýðum
ljóst það hnitmiðaða og
fórnfúsa starf er Bjarnveig
Bjarnadóttir vann fyrir list
hans síðustu áratugi og
varla er ofmælt, að hún
hafi fært lífsstarf hans nær
okkur um hálfa öld.“
Á þessum tímamótum
hefur verið ákveðið að efna
til sýningar á verkum Ás-
gríms Jónssonar að Kjar-
valsstöóum. Er það mjög
við hæfi. Á þeirri sýningu
munu vera til sýnis mörg
verk, sem ekki hafa áður
komið fyrir almennings-
sjónir. Ásgrímssýning á
Kjarvalsstöðum mun verða
vel sótt og vekja verðskuld-
aða athygli. Hún gerir ekki
sízt hinum yngri kynslóð-
um þessa lands kleift að
kynnast af eigin raun list
Ásgríms Jónssonar.
Búnaðarþing vill
fækka grágæsinni
Vitni vantar
Á FUNDI Búnaðarþings á þriðju-
dag var lagt fram eitt nýtt mál,
fjallar það um skipulagningu bú-
vöruframleiðslunnar.
Þá voru tvö mál til síðari um-
ræðu. Annað var erindi Búnaðar-
sambands Dalamanna um afurða-
tjónstryggingu búfjár og sam-
ræmingu á tryggingum land-
búnaðarins og leiðbeiningar um
þær.
I ályktun Búnaðarþings er lögð
áherzla á auknar upplýsingar um
tryggingar og að bændum sé leið-
beint á því sviði. Þá er skorað á
tryggingafélögin, sem annast
tryggingar í sveitum, að fylgjast
með því að skyldutrygging úti-
húsa sé ekki vanrækt.
Síðara málið sem afgreitt var
frá Búnaðarþingi var um það tjón
sem grágæsin veldur á ræktunar-
löndum bænda. Málið var afgreitt
með svohljóðandi ályktun:
Vestmannaeyingar
ganga inn í skuttog-
arakaup í Póllandi
KFTIK þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, mun nú nokkurn veginn
fullvíst, að Vestmanneyingar
gangi inn i kaup á skuttogara,
sem er í byggingu fvrir Barð-
ann h.f. i Kópavogi í Póllandi.
Togari þessi, sem er um 50«
iestir að stærð, á að afhendast
síðari hluta þessa árs.
Barðinn h.f. mun hafa hætt
vio þessi kaup og kaupendur í
stað þess fyrirtækis verða
Fiskíðjan, Vinnslustöðin og ls-
félagið hf. í Vestmannaeyjum.
Búnaðarþing beinir þeim til-
mælum til stjórnar Búnaðarfélags
Islands, að hún beiti sér fyrir
eftirfarandi:
1. Að lögum um fuglaveiðar og
fuglafriðun frá 1966 verði breytt
þannig, að grágæs verði einungis
friðuð í maí og júni fyrir skot-
vopnum.
2. Rannsakað verði, með hvaða
hætti er auðveldast að fækka grá-
gæsinni.
3. Hafnar verði tilraunir á eldi
grágæsa, sem veiddar eru lifandi,-
meðan þær eru í sárum.
4. Kynnt verði rækilega fyrir
búnaðarsamböndum ákvæði nú-
gildandi laga frá 1966 um undan-
þágu á friðun grágæsa. Jafnframt
verði brýnt fyrir samböndunum
að skipuleggja varnaraðgerðir
gegn ágangi gæsanna.
Nefndin hafði samband við dr.
Finn Guðmundsson, og taldi hann
ekkert við það að athuga að fella
niður friðun á grágæs, þar sém
gæsinni hefði fjölgað mjög mikið
áundanförnum árum.
Búnaðarþing 1970 beindi því til
Búnaðarfélags Islands að láta
hefja rannsóknir, meðal annars á
möguleikum á nytjum af grágæs-
inni, en lítið mun hafa orðið af
framkvæmdum.
Kngin fyrirstaða hefur verið á
þvi á undanförnum árum að fá
undanþágu frá friðunarákvæð-
um, hvað varðar grágæsastofninn,
jafnvel hefur nægt, að viðkom-
andi sveitarstjórn hafi sótt um
undanþágu fyrir alla sveitina.
Virðist því einboðið, að meðan
núgildandi friðunarákvæði eru i
gildi, verði það brýnt fyrir þeim
aðilum, er verða fyrir búsifjum af
völdum gæsastofnsins, að sækja
um undanþágu frá friðunar-
ákvæðum.
★
Þrjú mál voru til fyrri umræðu:
Erindi Friðberts Péturssonar um
vegamál, erindi Hjartar E. Þór-
arinssonar um leiðbeiningar I
gæsa- og andarækt og að síðustu
erindi þeirra Agnars Guðnasonar
og Sigurðar J. Líndals um for-
fallaþjónustu í sveitum.
Eftir nokkrar umræður um
þessi mál var þeim visað til síðari
umræðu.
Næsti fundur Búnaðarþings
verður í dag kl. 9.30.
Guatemala-söfn-
uninni lokið
G UATEMALA-söfnun Rauða
kross Islands er nú lokið og hafa
þegar verið sendar rúmar 2 millj.
kr. til hjálarstarfsins þar.
Að sögn Eggerts Ásgeirssonar
hjá Rauða krossi Islands hafa þæoa,
fréttir borizt frá Guatemala, aí^
fyrsta hjálparstarfi Rauða kross-
ins sé að ljúka og rikisstjórnin sé
að taka við.
A ÁKINU 1975 slösuðust mun
færri börn í umferðinni í Kevkja-
vlk en árið 1974. 1 frétt frá um-
ferðarráði kemur fram að 1974
voru 100 börn flutt á slysadeild
en 58 börn árið 1975. Af þessum
58 börnum reyndust 38 vera
slösuð, þar af 18 með meiri háttar
meiðsli en 17 börn hlutu minni
háttar meiðsli. Á árinu 1974 voru
hins vegar 62 börn slösuð þar af
41 með meiri háttar meiðsli.
Ástæðurnar fyrir þessari ágætu
þróun eru eflaust margar en
greinilegt er að skilningur for-
eíara og barna á hættum umferð-
arinnar hefur aukizt til muna.
Þar á umferðarskóiinn Ungir veg-
farendur vafalaust drjúgan þátt í
SLYSARANNSÓKNARDKILD
lögreglunnar hefur beðið
Morgunblaðið að auglýsa eftir
vitnum að eftirtöldum árekstrum.
Síminn er 10200.
23.2. 1976 kl. 17:00.
Ökumaður R-43093, fólksbif-
reiðar, Peugeout 504, ók norður
Rauðarárstig, á móts við Búnaðar-
bankann ók rauð Taunusbifr.,
árg. 68 eða 69, af stæðinu og lenti
á hægri hlið, hægri hurðar neðar-
lega. Ekki vitað um skrásetningar
númer viðkomandi bifreiðar.
23.2. 1976
Ekið á kyrrstæða bifreið, R-
43329, Cortina fólksb., árg. 1967,
rauða að lit, þar sem hún stóð á
móts við hús nr. 56A við Framnes-
veg. Skemmdir: Vinstra framaur-
bretti dældað og framljósker
skemmt.
1.3. 1976
Ekið á kyrrstæða bifreið, R-
12073, Ford Cortina fólksb., árg.
en skólinn hefur nú starfað í 6 ár.
Umferðarskólinn Ungir vegfar-
endur er bréfaskóli og fá börnin
sem í honum eru send verkefni til
úrlausnar. Verkefnin eiga börnin
að vinna með aðstoð foreldranna.
Umferðarskólinn er nú að hefja
sitt 7. starfsár og eru sendingar
þegar farnar að berast börnunum.
Aðíld að umferðarskólanum
eiga 50 sveitarfélög en fjöldi
barna er um 18.000. Börnin eru á
aldrinum þriggja til sjö ára. Send-
ingar frá skólanum eru rúmlega
100.000 talsins. Kostnaður við
skólann er áætlaður á þessu ári
5.3 miiljónir króna, þar af greiða
sveitarfélögin 4.5 milljónir en
Umferðarráð 800 þúsund.
1966, hvíta, einlita, þar sem hún
stóð gegnt húsi nr. 19 við Meðal-
holt á tímabilinu kl. 12:30—16:30
þann dag. Skemmdir: Vinstra
framaurbretti dældað og luktar-
rammi einnig. Svartur litur í sári,
eftir hjólbarða eða höggvara.
FIMMTUDAGINN 12. febrúar
varð árekstur í Elliðavogi vestan
við gatnamót Kleppsmýrarvegar.
Þar rákust saman bifreiðarnar R-
44546 og jeppabifreið úr Kópa-
vogi. Reykjavíkurbifreiðin var af
Austin mini-gerð. Á eftir R-
bílnum ók Range Rover bifreið og
kona stjórnaði henni. Hún fór út
og hjálpaði bifreiðarstjóra mini-
bílsins, sem einnig var kona, til að
ýta henni af stað, en mikill snjór
var þegar þetta gerðist. Vill slysa-
rannsóknardeild lögreglunnar ná
tali af þessari konu.
Munch
málverki
stolið í
Stokkhólmi
Stokkhólmi — 2. marz
— NTB.
MÁLVERKI eftir Edward
Munch var stolið úr Moderna
museet i Stokkhólmi i dag.
Myndin er af danska rithöf-
undinum Helge Rode. Ilún er
um 2 metrar á hæð, 1 metri á
breidd, og hefur verið skorin
úr rammanum. Ljóst er að
veruleg spjöll hafa orðið á
málverkinu þar sem 2—4
sentimetra ra*ma hefur orðið
eftir í rammanum.
Málverkið er metið á 60
milljónir íslenzkra króna.
Slysum á börnum hefur
fækkað í Reykjavík