Morgunblaðið - 04.03.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976
19
— Ásgrímur Jónsson
Aldarminning
Framhald af bls. 15
gangar í París, létu sér fátt um finnast.
— Hér kemur greinilega fram, aó
Asgrímur gerðist fyrstur Islendinga til
að hrífast og meðtaka impressjónistana
og þetta var nokkru áður en Jón Stefáns-
son hélt til Parísar og gerðist nemandi
Henri Matisse, en.hann laðaðist þó frek-
ar að myndheimi Cézanne. Hrifnæmi
Asgríms fyrir nýjum viðhorfum varð
mikill ávinningur fyrir íslenzka mynd-
list, hafði ómæld áhrif á þróun hennar
og varð sporgöngumönnum Asgríms til
eftirbreytni um frjálslyndi og viðsýni.
Hér var strax í upphafi mörkuð sú
heillaríka stefna, sem réð því, að íslenzk
myndlist tengdist fljótlega evrópskum
nýlistarstraumum og varð ekki utan-
garðsfyrirbæri í norrænni myndlist. Að
vísu var þetta þálist dagsins í gær í
evrópskri framúrstefnulist, og nýjar
listastefnur voru hvarvetna að skjóta
frjóhnöppum víðsvegar í álfunni, en það
væri sem að krefjast ofurmannlegra
kraftaverka að ætla Asgrími að meðtaka
þau gildi umbúðalaust þ.e. að sjá yfir öll
þróunarskeið. Hjá Asgrimi tekur næst
við stutt viðdvöl í Múnchen og siðan
þriggja vikna dvöl í ítölsku listaborginni
Flórenz, en því næst var haldið til Rómar
og barið að dyrum hjá hinu alkunna
pensjónati Dinesen, þar sem Einar Jóns-
son hafði áður dvalið og józku frúnni var
i fersku minni. 1 Róm dvaldi hann
sumarlangt og næsta vetur þar til hann
heldur heimleiðis í marz. Hann fór víða
um í kynnisferðir meðan á Rómardvöl-
inni stóð, m.a. til þorpanna sérstæðu í
Albano og Sabínaf jöllunum, Rocca di
Papa og Tivoli, en þar var svalara lofts-
lagyfir hásumarið en i Róm. Einnig fór
hann til Napoli og Sorrento,
smábæjarins undurfagra við Napoli-
flóann. Minntist hann einkum Napoli-
dvalarinnar vegna hins frábæra
málverks Pieter Bruegels (1520—1569),
„Blindingjarnir", eða réttara „Blindur
leiðir blindan", en sagt er að hinn niður-
lenzki málari hafi, haft borgarstjórnina í
heimabyggð sinni í huga, er hann málaði
myndina!
Dvölin á Italiu varð Ásgrimi tímabil
mikils þroska, og þótt hann málaði ekki
mikið og þá aðallega íslenzk viðfangs-
efni þá skoðaði hann söfnin þeim gaum-
gæfilegar, náttúruna, mannfólkið og
landið, og hefur örugglega gert sér
margar ferðir i hinn einstæða og risa-
stóra almenningsgarð, VillaBorghese,
en þar eru tvö listasöfn í ævagömlum
höllum.
Á heimleið sinni kom Asgrimur við í
Berlín og hafði dvölin þar mikla þýðingu
fyrir list hans, og íslenzka myndlist í
heild, meó þvi að þar öðlast hann fyrstu
veruleg kynni af frönsku impressjónist-
unum, og einkum var þar mikið safn
mynda eftir Renoir, og það undarlega
kom fram að Ásgrími fannst hann hafa
þekkt hann frá upphafi vega.
Heim til Islands er Asgrímur alkom-
inn um Jónsmessuleytið sama ár búinn
starfslöngun og bjartsýni. Mun ég gera
starfsferli Ásgríms hér heima nokkur
skil um leið og ég rita um þá stóru
sýningu á myndum Ásgrímssafns, sem
framundan er.
Ásgrímur Jónsson er fyrsti Islending-
urinn á þessari öld, sem gerir málaralist
að ævistarfi sínu, Þórarinn B. Þorláks-
son vann eingöngu að málverki i
fristundum sínum og ásumrin. Sextán
ár með mörgum Ásgrímssýningum í
Vinaminni liðu frá fyrstu sýningu Ás-
grims þar til nýir myndlistarmenn koma
til sögunnar með marktækar sýningar.
Kjarval hafði þó efnt til sýningar í ágúst-
mánuði 1908, en það var sýning byrjanda
og bar þar mest á „eðlisgáfunni og lær-
dómsleysinu“, samkvæmt umsögn í
Lögréttu. „Ég ætla að það hafi verið
fyrsta eða annað ár mitt i Vinaminni
(1909—10), að til mín kom alvarlegur
ungur maður, hár og grannvaxinn og
leit út fvrir að geta verið sjómaður.
Erindi hans var að falast eftir kennslu-
stundum í teikningu og málverki, en ég
var tregur til og færðist undan því. Eg sá
strax, að gestinum urðu þetta sár von-
brigði og spurði hann mig, hvort hvergi
mundi þá auðið að fá slíka kennslu hér í
bænum. Mér gekkst hugur við, er ég
fann, hvað honum var námið mikið
kappsmál, og fór svo, að ég hét honum
nokkurri tilsögn. Eg gat þó ekki, eins og
á stóð, bætt manni á vinnustofu mína og
varð það að ráði, að éggengi til hans um
skeið.“
Um og eftir 1920 komu þeir allir heim,
þroskaðir og agaðir listamenn, Kjarval,
Muggur og Jón Stefánsson. Er mér ráð-
gáta hversvegna hinn f jölhæfi Muggur
telst ekki í röð brautryðjendanna, því að
margt sem hann vann hafði aldrei verið
gert áður í íslenzkri myndlist.
— Ásgrímur Jónsson var alla tíð
fáskiptinn og dulur, hann helgaði list-
inni allt sitt líf, var svo hófsamur á
veraldleg efni, að við meinlæti jaðraði.
En hann var örlátur miðlari þekkingar
til hinna yngri, styrkti félaga sina er áttu
í erfiðleikum, m.a. með því að kaupa
verk þeirra þeim óvitandi, og jafnvel að
útvega þeim verkefni að tjaldabaki, og
greiða fyrir úr eigin vasa. Hann hafnaði
heldur ekki að sýna með þeim yngstu og
róttækustu, færu þeir fram á það, því að
hann vildi veg þeirra sem mestan, trúr
þeirri víðsýni er hann hafði þegið í
vöggugjöf.
Hér fór maður auðugur af manngildi,
ríkur af listgáfu, sá sanni vormaður
þjóðar sinnar, sem var samtið sinni fyrir-
mynd og sporgöngumönnum fagurt for-
dæmi og reisti sér óbrotgjarnan minnis-
varða.
Fyrstu minningar frumbernsku
Ásgrims tengdust rauðum feiknstöíum
og eldrúnum, sem ristu dimmt himin-
hvolfið, og hinn ungi sveinn skynjaði
þann háska og jafnframt hrikadýrð, sem
er samfara lífinu á þessari jörð.
Á ævikvöldi dreymdi Ásgrím draum,
sem raunar ávallt var einn og samur:
„Mér hefur þótt sem ég kæmi gestur
eftir langa útivist á æskuheimili mitt og
er þá allt, sem ég sé, með sömu um-
merkjum og í gamla daga. En það, sem
hefur gert mér þennan draum sér-
stæðastan og haft hefur á mig dýpst
áhrif, er hin undursamlega ró og kvrrð,
sem hvílt hefur vfir öllu, svo að ég hef
aldrei skvnjað jafndjúpan og hugljúfan
frið, hvorki i vöku né svefni. Það gerist
ekki neitt, en allt í þessum draumi er
eilíft og heillandi."
— Var ekki heiðríkjan, sem stöðugt
fylgdi Ásgrími Jónssyni í lífi og starfi, að
minnast hér við sinn kæra mögur?
Bragi Ásgeirsson.
Olof G. Tandberg
heldur tvo fyrirlestra í fundarsal Norræna húss-
ins:
Fimmtudag 4. mars kl. 20:30
Nordiskt naturvetenskapligt UNESCO samarbete
Laugardag 6. mars kl. 16:30
Kurderna har inga vánner
Allir velkomnir
íslensk-sænska félagið Norræna húsið.
NORRÍNÁ HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
einhver afgreiðslan opin
allan daginn
KL. 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
W AÐALBANKINN yX BANKASTRÆTI 5 SÍMI 27200 llj
ÚTIBÚIÐ V 1 LAUGAVEG1172 SÍMI 2 0120 1111
1 1 AFGREIOSLAN /# UMFERÐARMIÐSTÖÐ SÍMI 2 2585 j
*Æ BREIÐHOLTSÚTIBÚ f ARNARBAKKA 2 SÍMI 74600 llil l
VCRZlUNRRBflNKINN
LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LIT
OC
ui
>
<
h
CC
ui
>
<
h
□
oc
UJ
>
<
I-
cc
UJ
>
<
h
□
DC
UJ
>
<
h
Sértilboð í teppum
★
HOFUM SÉRTILBOÐ í TEPPUM,
NÆSTU TVÆR VIKUR.
við í Litaveri, því það hefur ávallt borgað sig
LITAVER
Grensásvegi 18
(Hreifilshúsinu)
H
>
<
m
33
r
H
>
<
m
33
r
H
>
<
m
33
r
H
>
<
m
33
r
H
>
<
m
33
LIT
LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER