Morgunblaðið - 11.03.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1976
Guðrún Sigurþórsdóttir svtfur hítt yfir varnarvegg FH og skorar laglegt
mark.
— ÞETTA er ekki búið, en því er ekki að
neita að erfiður þröskuldur var yfirstiginn að
þessu sinni, sagði Guðjón Jónsson, þjálfari
Framliðsins að loknum leik þess og Vals ■ 1.
deildar keppni íslandsmótsins í handknatt-
leik í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld, en í
þeim leik vann Fram stærri sigur en nokkurn
Segja má að íslandsmeistaratitillinn
sé nú innan seilingar hjá Framliðinu
Það á eftir að leika við KR, og leiki
Framstúlkurnar jafngóðan leik þá og
þær gerðu á móti Val í fyrrakvöld þarf
tæpast að spyrja að leikslokum. — En
það er enginn leikur búinn fyrr en
hann er flautaður af, og við litum ekki
á KR sem léttan andstæðing, sagði
Guðjón Jónsson, sem hefur náð mjög
góðum árangri með Framliðið í vetur.
Þegar Guðjón var að því spurður
hvað hefði skapað þennan stórsigur
Fram, sagði hann að það hefði öðru
fremur verið ágæt vörn liðsins — Þær
geta þetta stelpurnar, þegar þær vilja
það við hafa, sagði hann, — þá hafði
það mikið að segja að Arnþrúður Karls-
dóttir kom nú aftur inn í liðið og var
ógnandi og virk í leiknum
Þórarinn Eyþórsson þjálfari Valsliðs-
ins kvað erfitt að gefa skýringu á
útkomu Vals í leiknum — Þær léku
vel í stundarfjórðung og síðan ekki
söguna meir, sagði hann, — en fram
hjá því má heldur ekki líta, að Framlið-
ið lék þarna algjöran toppleik og spil-
aði allan leikinn mjög skynsamlega
KR marði Víking 9:8
Undir þessi orð Þórarins er óhætt að
taka Framstúlkurnar léku leik þennan
mjög yfirvegað og vel, gáfu sér tima til
þess að bíða eftir tækifærum, teygðu
mjög vel á Valsvörninni út ? hornin, og
komu síðan með ágætar „keyrslur" inn
á miðjuna, sem komu Valsiiðinu æ
ofan í æ á óvart, þannig að hún
opnaðist illa
hafði órað fyrir, eða 13—5, eftir að staðan
hafði verið 4—3 ! hálfleik. Er sennilega
langt síðan að kvennalið Vals í handknattleik
hefur fengið svo slæma útreið ! leik við
hérlent lið, en sem kunnugt er hafa Vals-
stúlkurnar verið atkvæðamestar ! þessari
íþróttagrein í meira en áratug.
og þar af þrjú úr vítaköstum segir bezt
söguna um vörn Framliðsins i leiknum
Beztu leikmenn Fram i þessum leik
voru, auk Kolbrúnar Jóhannsdóttur,
þær Jóhanna Halldórsdóttir, Guðríður
Guðjónsdóttir og Helga Magnúsdóttir
Sem fyrr segir hleypti endurkoma Arn-
þrúðar Karlsdóttur einnig miklu lifi í
Framliðið Vert er sérstaklega að fjalla
um frammistöðu Guðríðar Guðjóns-
dóttur, en þessi unga stúlka skoraði
mörk á mjög þýðingarmiklum augna-
blikum i leiknum og stóð sig að auki
með miklum ágætum i vörninni
EF.TIR að hafa horft á leik Ármanns
og FH og Fram og Vals I 1. deildar
keppni íslandsmótsins f handknatt-
leik í Laugardalshöllinni I fyrrakvöid
var sem stigið væri mörg skref aftur
á bak er kom að síðasta leik kvölds-
ins sem var milli KR og Víkings. Sá
leikur var heldur slakur af hálfu
beggja liðanna, en úrslitin urðu þau
að KR stúlkurnar sigruðu með 9
mörkum gegn 8, eftir að staðan
hafði verið 5—2 þeim I vil í hálfleik.
Þótt þessi leikur væri mikill eftir-
bátur hinna tveggja brá ýmsu fyrir í
honum sem hróss og umsagnar er
vert Lið þessi eru ekki áþekk þótt
styrkleikamunur þeirra sé ekki rmkill
KR-liðið byggir að mestu upp á sterk-
um einstaklingum Hjördisi, Hansinu
og Önnu Lind, en Vikingsliðið er hins
vegar mjög jafnt og má segja að þar
skeri sig engin ein stúlka úr Á sama
hátt og segja má að það sé galli
KR-liðsins hversu mjög það byggir á
einstaklingsframtakinu, þá sé það
einnig galli Víkingsliðsins að hafa ekki
innan sinna vébanda stúlkur sem geta
tekið af skarið þegar það á við
Beztan leik ? KR-liðinu í fyrrakvöld
áttu þær Hjördís Sigurjónsdóttir og
Anna Lind Sigurðsson, en Hansína var
einnig vel virk í spilinu og var ógnandi
Framhald á bls. 18
En eins og Guðjón Jónsson sagði,
þá var vörnin aðall Framliðsins í leikn-
um, en hún var frábærlega vel útfærð
og spiluð — svo vel að langt er síðan
maður hefur séð slikt til íslenzks
kvennaliðs, ef þá nokkurn timann Sig-
rún Guðmundsdóttir var tekin úr um-
ferð í leiknum, svo vel að hún náði
varla að hreyfa sig, og Framstúlkurnar
voru stöðugt á ferðinni og gáfu Vals-
stúlkunum aldrei minnsta tækifæri til
athafna Markvarzla liðsins hjá Kol-
brúnu Jóhannsdóttur var einnig með
miklum ágætum Það að Valsstúlkurn-
ar skyldu ekki skora nema fimm mörk
Valsliðið lét mótlætið í leiknum fara ?
taugarnar á sér og náði ekki að sýna
sitt bezta Um of var reynt að ná
Sigrúnu Guðmundsdóttur lausri, og
virtust Valsstúlkurnar tæpast trúa því
að mörk yrðu skoruð án þess að hún
gerði það Beztan leik í Valsliðinu áttu
þær Björg Guðmundsdóttir og Elín
Kristinsdóttir
Mörk Fram skoruðu: Guðríður Guð-
jónsdóttir 5, Arnþrúður Karlsdóttir 3,
Guðrún Sverrisdóttir 2, Jóhanna
Hauksdóttir 2 og Helga Magnúsdóttir
1.
Mörk Vals Björg Guðmundsdóttir 3
(2v), Ragnheiður Blöndal 1 og Sigrún
Guðmundsdóttir 1(1v).
Dómarar voru Óli Olsen og Kristján
Örn Ingibergsson og dæmdu þeir
ágætlega
Armannsstóknrnar gerðn
út nm leikinn í upptiafi
ÁRMANNSSTÚLKURNAR sigruðu FH stúlkurnar með 15 mörkum gegn 10 i
leik liðanna i 1. deildar keppni íslandsmótsins í handknattleik sem fram fór í
Laugardalshöllinni f fyrrakvöld. Með þessum sigri ná Ármannsstúlkurnar
sennilega i það minnsta silfurverðlaunum i mótinu þar sem teljast verður
mjög líklegt að þær sigri Viking i siðasta leik sinum. Ármannsstúlkurnar eru
vel komnar að þeim verðlaunum þar sem þær hafa nú ágætu liði að skipa og
hafa framfarir þess verið umtalsverðar nú að undanförnu.
Leikurmn í fyrrakvöld mótaðist mjög um sérflokki islenzkra handknattleiks-
af þv? að á fyrstu 20 mínútum hans
náði Ármann 6 marka forystu Var
staðan eftir þessar mínútur 6 — 0 fyrir
Ármann og hafði liðið leikið ágætan
handknattleik Þegar svo loks FH-
stúlkurnar náðu að skora sitt fyrsta
mark úr vítakasti jafnaðist leikurinn, en
forysta Ármanns var þegar orðin það
mikil að henni varð ekki ógnað Þá
jafnaðist leikurmn einmg verulega við
það að FH-stúlkurnar hættu að taka
bæði Guðrúnu Sigurþórsdóttur og Erlu
Sverrisdóttur úr umferð en þær höfðu
notað tækifærið meðan á því gekk til
þess að teygja vel á FH-vörninni og
skapa þannig stöllum sinum meiri
möguleika til þess að brjótast í gegn á
miðjunni Naut Þórunn Hafstein sín vel
á meðan á þessu gekk og skoraði þrjú
mörk i röð á skömmum tíma í fyrrihálf-
leiknum Vörn Ármanns og markvarzla
Magneu Magnúsdóttur í þessum leik
var einnig mikils hróss verð
Beztan leik í Ármannsliðinu áttu Erla
Sverrisdóttir, sem virðist vera í nokkr-
kvenna um þessar mundir með að
skjóta á markið, Magnea Magnúsdóttir
markvörður og Auður Rafnsdóttir sem
barðist mjög vel í vörninni og var
emnig virk og dugleg í sóknarleiknum
Þá átti Þórunn Hafstein einnig ágætan
leik, sérstaklega þegar Guðrún og Erla
voru eltar
í FH-liðinu var Sylvía Hallsteinsdóttir
sú sem sýndi mest af sér i leiknum, en
það sem öðru fremur varð FH að falli ?
leiknum var skortur á yfirVegun í sókn-
arleiknum Gyða Úlfarsdóttir mark-
vörður varði allvel og einnig stóð
Kristjana Aradóttir vel fyrir sínu
Mörk Ármanns: Erla Sverrisdóttir 8
(3v), Þórunn Hafstein 3, Guðrún Sig-
urþórsdóttir 2, Anna Gunnarsdóttir 1,
Auður Rafnsdóttir 1
Mörk FH: Sylvía Hallsteindóttir 3
(1v), Svanhvít Magnúsdóttir 2 (1v),
Kristjana Aradóttir 2, Sigrún Sigurðar-
dóttir 2, Katrin Danivalsdóttir 1
Leikurinn var vel dæmdur af Geir
Thorsteinssyni og Hauki Hallssyni
möguleikarnir eru miklir
— sagði Guðjón Jónsson, þjálfari Framstúlknanna
johanna Halldórsdóttir hefur brotizt framhjá Björgu GuSmundsdóttur og
Inga á ekki möguleika á að verja. (Ljósm. RAX).
Þetta er ekki búið en
Leikur
með
dönsku
liði
HÖRÐUR Jón Árnason
sem aö undanförnu hef-
ur leikið með ÍR-liðinu í
handknattleik dvelur í
vetur við nám í íþrótta-
skóla í Danmörku. Hefur
hann nýlega byrjað að
leika meó 2. deildar lið-
inu Vidar og hefur vakið
mikla athygli meó
frammistöðu sinni. í
þeim tveimur leikjum
sem Höröur Jón hefur
leikið með liðinu hefur
hann skorað samtals 15
mörk og fengið mikiö
hrós fyrir frammistöðu
sína.
BJÖRN Jónsson heitir 14 ára
gamall Borgnesingur sem leik-
ur með 4. fl. liði LMFS. Björn
sem hyrjaði í körfubolta 10 ára
gamall er einn þeirra fjöl-
mörgu efnilegu Borgnesinga
sem vakið hafa athvgli í vngri
flokksliðum UMFS f vetur, og
framtíð félagsins með allan
þennan efnivið er vissulega
björt.
„Okkur hefur gengið illa í
Islandsmótinu f vetur“ sagði
Björn. „Það hefur háð okkur
talsvert að við höfum ekki haft
neinn þjálfara með okkur i
leikina nema einstaka sinnum
og eins hafa verið forföll í lið-
inu. Og ekki hvað síst mætti
kenna æfingaaðstöðunni um en
hún er afar léleg. Svo þegar við
komum í þessa stóru sali sem
keppt er í þá kunnum við ekki
almennilega á hlutina".
Við inntum Björn eftir því
hvort mikill áhugi væri á
körfubolta í Borgarnesi.
Tœir efntiegir úr 4. fi
Björn
„Já það er óhætt að segja að
hann sé gevsimikill. A veturna
er körfuboltinn langvinsælasta
íþróttin og það eru flestir sem
revna að vera með“.
Og að þeim orðum Björns
loknum þökkum við honurn
fvrir spjallið og óskum honum
og félögum hans velfarnaðar á
körfuboltavellinum.
4. fl. IR hefur staðið sig vel f
mótum vetrarins, þeir unnu
Rvk.-mótið og hafa staðið sig
vel í Islandsmótinu. Þar eru
margir efnilegir piltar, en
varla mun á neinn hallað þótt
sagt sé að Guðjón Þorsteinsson
sé þar fremstur í flokki, enda
taiinn mesta efni félagsins f
yngri flokkum í dag.
„Ég bvrjaði í Minni-bolta í
Guðjón
Val þegar ég var 10 ára og var
þar f tvö ár. Síðan hætti ég
alveg í eitt ár en gekk sfðan í
IR f haust.“
Hvað með æfingaaðstöðu?
„Við höfum 3 æfingar á viku
og þar af eru tvær í Langholts-
skóla. Það er varla nógu gott að
æfa þar, salurinn er Iftill og
þröng á þingi þegar upp undir
20 mæta á æfingar. Æfinga-
sókn hefur verið mjög góð eða
nærri 100%. Æfingarnar eru
fjölbrcvttar og skemmtilegar
sem leiðir til þess að maður fær
ekki leiða á þessu".
Þegar hér var komið sögu
slepptum við Guðjóni, enda var
hann að fara í úrslitaleik í sfn-
um riðli gegn Fram.
Liðin sem leika til úrslita í 4.
fl. um næstu helgi eru Tinda-
stóll sem sigraði í 4. fl. í fyrra,
Haukar frá Hafnarfirði og
annað hvort IR eða Fram úr
Suðurlandsriðlinum.
gk —.