Morgunblaðið - 28.03.1976, Síða 3

Morgunblaðið - 28.03.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 28. MARZ 1976 3 Stjórn Stúdentafélags íslands: V oru kosningarnar 1 Stúd- entafélaginu ólögmætar? BOpið bréf til stúdentaB Ágætu samstúdentar. Eins og kunnugt er orðið af blaðafréttum urðu nokkur átök á aðalfundi Stúdentafélagsins á þriðjudaginn var. Garðar Mýrdal og fyrrverandi stjórn hans hafa gefið út ýmsar yfir- lýsingar vegna þessa máls, nú síðast kom út aukablað af Stúdentablaðinu þar sem mjög er hallað réttu máli í frásögn af fundinum. Stjórn SFHI vill því I þessu bréfi reyna að skýra hvað raunverulega gerðist. Rök Garðars Mýrdal I fréttatilkynningu frá GM 24. þ.m. eru talin fjögur aðal- atriði sem að hans dómi varða ólögmæti fundarins og því boðar hann til nýs aðalfundar. Næsta dag 25. marz í nýrri fréttatilkynningu GM er boðað til framhaldsaðalfundar og nú hefur aðfinnsluatriðunum fækkað I eitt. Verða rök GM nú talin upp. Hann segir: 1. að málaröðun á dagskrá aðalfundar sé lögbundin og henni sé alls ekki hægt að bre.vta með dagskrártillögu. 2. að órökstuddum dagskrár- tillögum hafi ekki verið vísað frá 3. að kröfu um skriflega at- kvæðagreiðslu hafi verið hafnað 4. að ekki hafi verið kannað hvort allir fundarmenn hafi haft atkvæðisrétt. Rökum Garðars Mýrdal svarað Um 1. Um breytingu á dagskrá fundarins með dagskrártillögu er þetta að segja. í lögunum er ákveðið að um tiltekin mál skuli fjallað á aðalfundum eða framhalds- og aukaaðalfund- um. Þessi mál eru talin upp í 6. gr. laga SFHI í alls 6 liðum. Það er ljóst að engan þessara liða er unnt að fella burt með dag- skráartillögu. En það er jafn- ljóst að aðalfundurinn sem er óumdeilanlega æðsta vald í málefnum félagsins getur breytt röð þessara liða ná- kvæmlega eins og fundar- mönnum sýnist og þarf engar lagabreytingar til þess. Upptalningin á liðunum er i raun aðeins tillga að röðun mála á dagskrá, sem unnt er að breyta með dagskrártillögu, komi hún fram. Annað væri Iíka óeðlileg niðurstaða bæði með tilliti til eðlis aðalfundar- ins og eins þess að ekki væri heldur, ef skilningur GM væri lagður til grundvallar, hugsan- legt að breyta 1., 2. eða 3. lið dagskrárinnar (lagabreytingar eru 3. liður) og það stangast á við þann viðurkennda skilning að aðalfundir eru æðsta vald félags í öllum málefnum þeirra Rök GM eru því fallin um sjálf sig enda ekki einkennilegt þvi í upphafi fundarins bar Garðar Mýrdal sjálfur fram dagskrár- tillögu um að röð liða vrði breytt og tveim liðum frestað. Hinar nýju lögskýringar hans eru því búnar til eftir á, þegar hann hefur beðið ósigur. Um 2. Um órökstuddu dagskrártil- lögurnar er ekki margt að segja. Allur gangur er á því á fundum hversu rækilega dag- skrártillögur eru rökstuddar. Þær fjalla oftast um einföld framkvæmdaatriði á fundinum eins og t.d. röð dagskrárliða og er oft ekki nein þörf á að rök- styðja þær í löngu máli. Fundarstjóri sem kjörinn var eftir að fýrri fundarstjóri hafði verið settur af með vantrausti taldi ekki að þær dagskrártil- lögur sem fram komu væru. þess eðlis að sérstakan rök- stuðning þyrfti og átti það jafnt við um tillögur frá andstæðing- um hans um vantraust á hann, sem fellt var, sem og aðrar til- lögur varðandi framkvæmd fundarins. Um 3. Vegna kröfu um skriflega at- kvæðagreiðslu er rétt að fram komi, að ákvarðanir um hana eru í hendi fundarstjóra og ekki kom fram dagskrártillaga um skriflega atkvæðagreiðslu fyrr en atkvæðagreiðslum var að ljúka, og ekki var þess heldur óskað að beiðni um skriflega atkvæðagreiðslu yrði borin undir fundinn. Fundar- stjóri var þvi í fullum rétti er hann ákvað. að atkvæða- greiðslur um lagabreytingar yrðu með handauppréttingu enda naut hann trausts fundar- manna, hafði verið kosinn með Iófataki og vantraust á hann fellt með yfirgnæfandi fjölda atkvæða. Um 4. Það er rétt að fundarstjóri lét ekki, fremur en fundarstjóri skipaður af GM, kanna stúdentaskírteini. Fundarstjóri taldi það allsendis óþarft og ekki var bent á neinn sem væri ólöglega á fundinum né heldur það verið gert siðar. Fundar- stjóri sá hins vegar eitt eða tvö börn á örmum foreldra sinna á fundinum en taldi ekki ástæðu til að vísa þeim út. I heild má segja að þessi svör sýni rækilega fram á að öll rök GM eru fundin upp eftir á f áróðurssk.vni. „BolIumáIið“ Garðar Mýrdal og félagar hafa haldið því fram að at- burðirnir á aðalfundinum standi í sambandi við rannsókn svokallaðs „Bollumáls“ og ætli nýja stjórnin að stöðva rann- sókn þess. Þetta er firra. Stjórnin hefur í fyrsta lagi ákveðið óskað þess við Sak- sóknara, að þessi rannsókn verði sem nákvæmust og ítar- legust og í öðru lagi gæti hún alls ekki stöðvað rannsókn sakamáls sem hafin er. Það er í raun stórkostleg móðgun við stúdenta að Garðar Mýrdal skuli voga sér að ætla almenna þekkingu stúdenta slíka að þeir leggi trúnað á fullyrðingar af þessu tagi. Vaka og SFHÍ Garðar og skoðanabræður hans halda því fram, að Vaka hafi staðið fyrir þessum aðgerðum. Slíkar fullyrðingar eru úr lausu lofti gripnar. Að þessu stóðu stúdentar sem ótt- uðust að leggja ætti félagið niður. Þeir voru andvigir því að leggja félagið niður og óánægðir með algert starfsleysi félagsins og fjölmenntu því á aðalfundinn. I þeim hóp voru menn af margvislegum póli- tískum „litarhætti". Berin eru súr Af viðbrögðum Garðars Mýrdal, fráfarandi stjórnar og samstarfsmanna hennar er ljóst aó þeir þola með engu móti að verða undir í lýðræðis- legum kosningum. Þær aðgerðir þeirra að boða til ólög- legs framhaldsaðalfundar sýna það mæta vel. Sömu sögu segir framkoma þeirra á fundinum þar sem þeir stóðu fyrir slíkum ólátum að fundarstjóri neyddist til að fresta fundinum. Og unnt er að nafngreina menn sem stóðu fyrir hrindingum og gerðu sig líklega til að láta hendur skipta. þeear atkvæðin nægðu ekki. Slík framkoma er ekki sam- boðin siðúðum mönnum. Að dómi núverandi stjórnar Stúdentafélagsins væri það stúdentum og Háskólanum til mikillar hneisu og vansæmdar ef ekki reynist unnt aó greiða úr þessu máli innan veggja hans þannig að nauðsynlegt verði að leita út fyrir skólann og þá hugsanlega til hinna almennu dómstóla til að fá þetta mál útkljáð. Vonandi þarf ekki til þess að koma, vonandi sýnir Garðar Mýrdal þann lýð- ræðis- og félagsþroska að viður- kenna ósigur sinn og láta af rangfærslum sínum og hættir að misnota nafn Stúdentafélags Háskóla Islands. Revkjavik, 27. marz 1976. StjórnSFHI Kjartan Gunnarsson Sigurður Helgason GeirWaage Trvggvi Agnarsson Anna K. Jónsdóttir. Mimið Útsýnarkvöldið að Hótel Sögu í kvöld — Siá bts. 35 —I-------------------T----------------------------S Utsynarferdír ■ serflokki Vegna geysilegrar eftirspurnar, vekjum við athygli á að ÚTSÝNARFERÐIR 1976 verða senn uppseldar Costa del sol: 14. aprll Páskaferð — Biðlisti 2. mal — fáein sæti laus. 23. maí — nokkur sæti laus. 6. jún. — nokkur sæti laus. 20. jún. — nokkur sæti laus 4. júl — nokkur sæti laus 18. júl — nokkur sæti laus. 25. júl —nokkur sæti laus. 1. ág. — nokkur sæti laus 8. ág. — nokkur sæti laus 15. ág. —UPPSELT 22. ág. — UPPSELT. 29. ág. — örfá sæti laus 5. sept — örfá sæti laus 12. sept — fáein sæti laus 19. sept — laus sæti 26. sept — laus sæti 10. okt — laus sæti J------ Costa Brava: 13. mal — 28. ma! — 18. jún — 2. júl — 16. júl — 30. júl — 13. ág — 20 ág. — 27. ág. — 3. sept. — 10. sept. — laus sæti beztu ferðakjörin. örfá sæti laus. laus sæti laus sæti laus sæti laus sæti fáein sæti laus fáein sæti laus fáein sæti laus fáein sæti laus laus sæti s------- Lignano: 1. mal 23. jún. 7. júl. 21. júl. 4. ág. 11. ág. 18. ág. 25. ág. 1. sept 8. sept — Stóra ÍtalIuferSin List og saga. — laus sæti — BIÐLISTI — örfá sæti laus — nokkur sæti laus — örfá sæti laus. — örfá sæti laus — UPPSELT — örfá sæti laus — örfá sæti laus — laus sæti — laus sæti i PANTIÐ RÉTFU FERÐINA TÍMANLEGA AUSTURSTRÆTI 1 7 SÍMI 26611

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.