Morgunblaðið - 28.03.1976, Side 40
Loðna fannst
útí af Grindavík
Töluvert magn á ferðinni
TÖLUVERT loðnumagn fannsl
úti af Grindavík í fvrrakvöld og
fékk þá einn bátur góða veiði og
margir sæmilegan afla. Um
kvöldið hvessti aftur. þannig að
skipin gátu ekki haldið áfram
veiðum. en veður fór hatnandi á
nv í gærmorgun.
Þegar loðnan fannst i fyrra-
kvöld, höfðu skipin ekkert getað
verið að veiðum síðan á mánu-
dagsmorgun, en þá veiddist loðn-
an úti af Garðskaga. Á þeim tíma
sem er liðinn síðan. hefur loðnan
því haldið áfram austur með land-
Að sögn Jafets Ólafssonar hjá
loðnunefnd fékk Grindvíkingur
250 tonna afla í f.vrrakvöld og
nokkur skip voru með góðan afla,
þó áð þau hafi ekki farið í land.
Hann sagði, að sjómenn segðu, að
hrognin rynnu nú úr loðnunni,
þannig að hún væri nú að hrygna.
Það henti til þess, að ef veður
héldist gott yrði hægt að veiða
loðnuna jafnvel í vikutíma enn.
ASÍ íhugar málshöfðun
vegna búvöruhækkunar
ALÞVÐUSAMBAND ISLANDS
fhugar nú málshöfðun vegna
verðhrevtingar þeirrar á land-
húnaðarvörum. sem gildi tók 24.
mars sl. Björn Jónsson. forseti
ASl, sagði f samtali við hlaðið. að
forráðamenn ASl teldu að laga-
ákvæði hefðu ekki heimilað að
taka inn f launalið verðlagsgrund-
vallarins þá hækkun. sem varð á
kaupi 1. mar/ sl.. þar sem miða
ætti við hækkun á kaupi í al-
mennri verkamannavinnu í
Revkjavfk á undangengnu
þriggja mánaða tímahili áður en
verðbrevtingin á sér stað. Gunnar
Guðhjartsson. formaður Stéttar-
samhands hænda. sagði að mörg
fordæmi væru fvrir því að launa-
liðurinn hefði verið hækkaður til
samræmis við þær hækkanir á
viðmiðunarlaununum. sem vitað
væri að taka ættu gildi fram að
þeim tíma. sem nvr verðlags-
grundvöllur levsti þann eldri af
hólmi.
B.jörn Jónsson sagði að enn
hefði ekki verið tekin endanleg
ákvörðun um hvort um málshöfð-
un vrði að ræða af hálfu ASÍ en
um það vrði tekin ákvörðun á
fundi miðstjórnar ASÍ í vikunni .
Varðandi það atriði hér um ræðir
henti B.jörn á að samkvæmt lög-
um væri heimilt að brevta sölu-
verði landbúnaðarvara ársfjórð-
ungslega vegna hækkunar á
kaupi og væru í þessu sambandi
tilteknar f.jórar dagsetningar. Nú
væri um að ræða verðbrevtingu,
sem miðaðst hefði átt við 1. marz
og væru ASÍ-menn ósáttir við að
launahækkun. sem tekið hefði
gildi þann dag. væri reiknuð inn í
verðlagsgrundvöllinn að þessu
sinni. Björn tók fram að ASl væri
einnig að láta kanna lagalegar
forsendur hækkana á fleiri þátt-
um hækkunar búvöru s.s. slátur-
kostnaði. vinnslu- og dreifingar-
kostnaði auk smásöluálagningar-
innar.
Gunnar Guðbjartsson tók fram
að samkvæmt þeim lögum. sem
hér væri vitnað til ætti söluverð
landbúnaðarvara á innlendum
markaði að miðast við að tekjur
þeirra. sem landbúnað stunda
væri í sem nánustu samræmi við
tekjur annarra vinnandi stétta og
í samræmi við þetta hefði skapast
sú hefð að taka inn í verðlags-
grundvöllinn þær launahækkan-
ir. sem öðlast hefðu gildi um það
leyti. sem nýr verðlagsgrundvöll-
ur hefði verið samþvkktur.
Ljósmvndari Mbl. Mauniís á Start.
Hraðbrautarakstur í þéttbýli? Nei. bílalestir að mætast
á Holtavörðuheiði eftir að snjóþunganum hefur verið
rutt úr vegi. Neðri myndin sýnir hluta af bílalestinni sem
sat föst um tíma vegna hríðar og snjóskafla.
Gæzlan hefur augastað á Engey:
4 skip koma til greina
— segir Pétur Sigurðsson
MORGUNBLAÐINU er
kunnugt um. að Land-
helgisgæzlan hefur áhuga
á að taka skuttogarann
30 tonnum hent fyrir borð:
Hefðu gefið af sér
60 tonn eftir 2 ár
I þættinum Kastljós f fvrrakvöld
kom fram hjá Olafi Björnssvni
frá Keflavík að Ragnar Franzson
skipstjóri á skuttogaranum Dag-
stjörnunni teldi sig hafa þurft að
henda allt að 30 tonnum af fiski 3
ára og vngri þegar togarinn var á
veiðum við Revkjafjarðarál fvr-
ir skömmu. Tók Ólafur þetta sem
dæmi um hið mikla smáfiskadráp
við tsland að undanförnu.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band vió Sigfús Schopka fiski-
fræðing og spurði hann hvað
þessi 30 tonn af fiski hefðu getað
gefið mikið af sér. ef fiskurinn
hefði fengið að lifa til a.m.k. 5 ára
aldurs.
Sigfús sagði að ef miðað væri
við að ná hámarksnýtingu út úr
stofninum og gert ráð fyrir 18%
afföllum í stofninum á hverju ári.
þá hefðu þessi 30 tonn átt að gefa
af sér um 60 tonn eftir tvö ár eða
þegar fiskurinn hefði náð 5 ára
aldri. 3 ára fiskur gæfi yfirleitt af
sér um 1 kíló en 5 ára fiskur 2
kíló.
Engey RE-1 á leigu til
Landhelgisgæzlustarfa. v
Þórhallur Helgason, fram-
kvæmdastjóri ísfells h.f.,
sem er eigandi Engeyjar.
sagðist hvorki geta játað
né neitað að við sig hefði
verið rætt, þegar Mhl. bar
þetta undir hann í gær.
Pétur Sigurðsson, for-
stjóri Landhelgisgæzlunn-
ar. sagði í samtali við
Morgunblaðið að Gæzlan
hefði augastað á fjórum
togurum og ekki væri hægt
að neita því að Engey væri
meðal þeirra. Lítillega
hefði verið rætt við eigend-
ur skipanna. en engin
niðurstaða lægi fyrir enn.
Engey er systurskip
Baldurs. 742 rúmlestir að
stærð. Togarinn er bvggð-
ur í Póllandi árið 1974 og í
skipinu er 3000 hestafla
Zgoda-Sulzer aðalvél. Mun
togarinn ganga líkt og
Baldur eða um 17 mílur og
hægt er að auka ganghraða
skipanna með litlum breyt-
ingum.
Sleginn
og rændur
30 þús. kr.
MAÐUR nokkur. sem var
í húsi með fleira fólki í
miðborginni í fyrrinótt
varð fyrir því óhappi að
ráðist var á hann. hann
sleginn niður og rændur
30 þúsund krónum, sem
hann var með á sér.
Árásarmennirnir voru
gómaðir fljótlega og hafa
þeir áður komið við sögu
lögreglunnar.
Til lesenda
LESENDUR MorKunhlaðsins
eru beðnir velvirðingar á því.
að hlaðið er aðeins 40 sfður í
dag. þrátf fvrir mikið aug-
IvsingamaKn. Er það vegna bil-
unar í prentvél hlaðsins. sem
veldur því. að ekki er hæKt að
prenta stærra blað. Ekki verð-
ur unnt að Ijúka viðKerð fvrr
en eftir helKÍ-
Óróií
brezkum
togara-
mönnum
ALLT var rólegt á
miðunum úti fyrir Aust-
urlandi í gærmorgun. en
brezku togararnir sigldu
þar fram og til baka. í
fyrradag fóru flestir tog-
aranna á friðaða svæðið,
en þeir héldu þaðan á ný
í gærmorgun.
Talsmaður Landhelgis-
gæzlunnar sagði í gær að
mikill órói væri í skip-
stjórum togaranna, ein-
faldlega af einni ástæðu:
Það
fiskur.
fengist hvergi
Bóluefni gegn svínavír-
usnum tilbúið í árslok
FRAMLEIÐSLA á bóluefni KeRn
svínavfrus þeim, er menn halda
að Ifkist spönsku veikinni i II-
ræmdu. er nú hafin ok verður
efnið til í miklum mæli í árslok.
Að söKn Ólafs Ólafssonar land-
Iæknis er landlæknisembættið í
stöðuKu sambandi við Alþjóða-
heilbrÍKðismálastofnunina
(WHO) ok heilbrÍKðis.vfirvöld á
Norðurlöndunum. SaKði Ólafur.
að Norðurlandaþjóðirnar hefðu
enn ekki tekið neina ákveðna af-
stöðu í þessu máli. en þeKar bólu-
efnið yrði tilbúið yrði að líkindum
strax tekin ákvörðun um hvort
Norðurlandabúar yrðu bólusettir
eða ekki. Hann saKðist vilja taka
það fram, að enn hefði ekki verið
hæjrt að sanna hvort umræddur
vírus væri sams konar ok sá er
varð valdur að spönsku veikinni.