Morgunblaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1976
5
Hafnarstr,
Jakka
Kinverk^gr
blussur . s
Vatteruð vesti
og jakkar
Elle bolir
35 litir
lika rö
Heilar peysur
Rúllukragapeysur
Hnepptar peysur?
Ferminga
hettukápur
Skokkar og
Kjólar úr
Baby flauel
maður Læknaráðs Borgarspítala),
borgarlæknir, borgarverkf ræðingur
og hjúkrunarstjóri heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins. Hefur
nefnd þessi unnið síðan að undirbún-
ingi framkvæmda. Byggingarnefndin
sendi I byrjun júnl stjórn sjúkrastofn-
ana bréf og óskaði eftir umsögn um
æskilegt fyrirkomulag innréttinga og
rekstursfyrirkomulag. Þvi svaraði
stjórnin að höfðu samráði við
Læknaráð Borgarspítala. Þótt ekki
hafi fyrirfram verið leitað samþykkis
lækna Borgarspítalans áður en
ákvörðun um Hafnarbúðir var tekin,
er þó Ijóst, að rétt kjörnir fulltrúar
lækna Borgarspítalans hafa fylgzt
með málinu og verið til samráðs um
einstaka þætti þess. Mótmæli yfir-
læknanna nú, þegar verkið er í full-
um gangi, verða þvi að teljast heldur
siðbúin.
Varðandi avhugasemd yfirlækn
anna um starfslið er á það fallizt, að
skortur er á sérmenntuðu starfsfólki
og Ijóst, að það þarf atorku og góðan
vilja til að manna slíka deild. Það er
hins vegar ekkert einsdæmi með
Hafnarbúðir og sama myndi væntan-
Bráðabirgðalausn
vegna neyðarástands
Greinargerð borgarstjóra um sjúkradeild í Hafnar-
búðum vegna opins bréfs yfirlækna Borgarspítalans
UNDANFARIN ár hafa vandamál
langlegusjúklinga, bæði aldraðra og
annarra, mjög verið á dagskrá.
Enginn vafi er á þvi, að mikill skortur
hefur verið á rúmum fyrir slíka sjúkl-
inga, enda oft verið rækilega á það
bent, m.a. af læknum Borgar-
spítalans Kjörnir borgarfulltrúar
þekkja þetta vandamál einnig, þvi að
algengt er, að borgarfulltrúar séu
beðnir ásjár af fjölskyldum, sem hafa
langlegusjúklingá innan sinna vé-
banda og geta hvergi fengið þeim
vistun.
í borgarstjórn hefur það þvi verið
einróma álit borgarfulltrúa, að eitt
brýnasta verkefni á sviði félags- og
heilbrigðismála i borginni væri að
fjölga rúmum fyrir hjúkrunar- og
langlegusjúklinga, jafnframt þvi að
byggja ætti dvalarheimili fyrir aldrað
fólk, sem ekki þyrfti eins mikillar
umönnunar við.
Fyrir rúmu ári stóð þannig á, að
Hafnarbúðir voru lausar til afnota.
Borgarstjórn samþykkti þá skv. til-
lögu heilbrigðismálaráðs að afhenda
Borgarspítalanum húsið til að reka
þar endurhæf ingar og hjúkrunar-
deild. Ráðstöfun þessi var hugsuð til
bráðabirgða, eða þar til varanlegri
lausn hefði fengizt á þessu vanda-
máli. Leyfi fékkst hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu, en borgin hugðist
leggja húsið fram með nauðsynleg-
um endurbótum, án þess að gera
kröfu um hlutdeild í stofnkostnaði
frá ríkissjóði. Lögð er áherzla á, að
ákvörðun þessi var tekin til að ráða
til bráðabirgða nokkra bót á ástandi,
sem sumir hafa lýst sem algjöru
neyðarástandi.
Hafizt var handa um undirbúning
endurbóta og hafa framkvæmdir nú
staðið í nokkurn tíma. Áætlaður
kostnaður við breytingu hússins og
nauðsynlegar viðgerðir er um 37
millj. króna. Þar af höfðu um
mánaðamótin febrúar/ marz verið
greiddar 7.9 millj. kr., en allmikið
hefur verið unnið f húsinu sfðan.
Útboð hefur þegar farið fram á ýms-
um búnaði, en reiknað er með, að
hann verði um 16 millj. króna, en að
sjálfsögðu væri unnt að nota hann á
öðrum stöðum.
Ein meginforsenda i bréfi yfir-
lækna Borgarspftalans er sú að flýta
eigi byggingu B-álmu og stefna að
þvi, að hún komist í notkun sem
fyrst. Auðvitað væri það æskilegasta
lausnin á þessu vandamáli, en til
þess skortir fé. Samkvæmt lögum á
ríkissjóður að fjármagna þá fram-
kvæmd 85% og borgarsjóður 15%.
Fyrsta fjárveiting ríkisins er nú á
fjárlögum fyrir árið 1976 og er 10
millj. kr. Sú fjárhæð dugar ekki fyrir
teikningum. Borgin hefur að vísu
látið í Ijós vilja sinn til þess að leggja
örar út fé og fá síðan endurgreitt frá
rfkinu. Hefur borgarsjóður boðizt til
að leggja út 50 millj. kr. á þessu ári,
en algjör forsenda þess er að sjálf-
sögðu, að samningar hafi tekizt við
rfkið um fjármögnun þessarar bygg
ingar f heild. Er nú verið að ganga frá
tillögum til heilbrigðisráðuneytisins
um það efni, en framkvæmdir eru
algjörlega háðar því, hvort slíkir
samningar takast. Heildarkostnaður
byggingarinnar var í júní 1975
áætlaður tæplega 600 millj. króna,
þar af f hluta rfkissjóðs 510 millj.
króna. Byggingarnefnd Borgar
spítalans hefur sýnt fram á, að með
þvf að hefjast handa á þessu vori
mætti taka f notkun árið 1978 60
rúm, en Ijóst er að enn vantar afl
þeirra hluta, sem gera skal, þ.e. fjár-
magnið. Til þess, að sú áætlun stæð-
ist þyrfti á tfmabilinu að vera til
ráðstöfunar 324.7 millj. kr. Af
framansögðu er því Ijóst, að eins og
nú standa sakir er ekki Ifklegt, að sú
áætlun reynist raunhæf.
í fjárhagsáætlun borgarsjóðs fyrir
1976 er ekki ætlað annað fjármagn
til viðgerða og endurbóta f Hafnar-
búðum en af þeim lið, sem fjallar um
stofnanir f þágu aldraðra. Fram-
kvæmdir eru þegar það langt á veg
komnar, að Ijóst er, að það fjármagn
verður ekki notað á báðum stöðum,
þ.e. f Borgarspftala og Hafnar
búðum. Tillagan um að veita þær 47
millj. kr., sem í Hafnarbúðir fara, úr
sjóði aldraðra til B-álmu Borgar
spftala er því ekki raunhæf. Þá
leggja yfirlæknarnir til, að Hafnar
búðir verði seldar og andvirðinu
varið til B-álmu Borgarspftalans.
Þegar ákvörðun var tekin um
hjúkrunardeild f Hafnarbúðum lágu
fyrir ýmsar tillögur um notkun húss-
ins. Ýmsar borgarstofnanir vantar
húsnæði til sinnar starfsemi og eru f
dýru leiguhúsnæði, m.a. í mið-
bænum. Rætt var um að koma
einhverjum þeim stofnunum fyrir f
Hafnarbúðum. Þá kom og til greina
að reka þar heimili fyrir sjómenn og
verkamenn, eins og húsið var upp-
haflega ætlað til. Neyðarástandið f
málefnum hjúkrunarsjúklinga varð
til þess, að borgarfulltrúar sameinuð-
ust í ákvörðun um hjúkrunardeild.
Annað voru borgarfulltrúar einnig
sammála um, þ.e. að Hafnarbúðir
eru ekki til sölu. Húsið er á einum
bezta og verðmætasta stað f borg-
inni og getur nýtzt Reykjavfkurborg
á margvfslegan hátt, þegar bráða-
birgðanotkun þess sem hjúkrunar-
heimilis lýkur. Tillagan um sölu
hússins og notkun söluandvirðisins
er þvf heldur ekki raunhæf.
í bréfi yfirlæknanna kemur fram,
að ekki hafi verið leitað álits stjórnar
sjúkrastofnana Reykjavfkurborgar,
læknaráðs Borgarspftalans eða um-
sagna yfirlækna spftalans. Er hug-
myndin um breytingu Hafnarbúða f
hjúkrunar- eða langlegudeild kom
fram, var haft samráð við borgar-
lækni, yfirlækni endurhæfingardeild
ar, framkvæmdastjóra Borgarspftal-
ans og forstöðukonu. Það var skoð-
un þeirra, að slfkri starfsemi mætti
koma fyrir í húsnæðinu með nauð-
synlegum breytingum, en bent var á,
að um óhagkvæman rekstur yrði
væntanlega að ræða. Heilbrigðis-
málaráð Reykjavfkur samþykkti
sfðan tillögu um málið og í kjölfar
þess borgarstjórn þann 2. febrúar
1975. Heilbrigðisráðuneytið veitti
heimild til rekstursins þann 25. apríl
1975 og segir svo í bréfi ráðuneytis-
ins. „Ráðuneytið hefur fengið um-
lega gilda um „öldrunardeild"
Borgarspftala, sem yfirlæknarnir
gera að umtalsefni. Með samrekstri
og hreyfingu starfsfólks á milli
deilda mætti e.t.v. auðvelda lausn
þessa máls.
Niðurstöður þessarar greinargerð
ar eru sem hér segir:
1. Neyðarástand rfkir f málum
hjúkrunar- og langlegusjúklinga,
þannig að bráðabirgðaaðgerðir til að
létta vandann eru fullkomlega rétt-
lætanlegar.
2. í Hafnarbúðum fæst hvert rúm á
2 millj. króna, en f B-álmu Borgar
spítala yrði hvert rúm á um 3 millj.
króna, skv. áætlun frá í júní, sem
vafalaust hefur hækkað allnokkuð.
3. Engin bráðabirgðalausn er f aug-
sýn og fjármagn er ekki tryggt til að
koma f notkun B-álmu, hvorki að
hluta né að öllu leyti. Hafnarbúðir
eru ekki til sölu og verða ekki.
4. Það hlýtur að vera til bóta að fá í
gagnið 25 rúm á þessu ári, þegar
haft er í huga, að næsti valkostur er
að bíða f óákveðinn tfma eftir B-
álmu.
Framhald á bls. 22
sagnir sérfróðra aðila um málið og
verið bent á ýmsa augljósa ókosti við
rekstur slíkra stofnunar á þessum
stað. Þrátt fyrir þetta telur ráðuneyt-
ið rétt að veita umbeðið leyfi og
tekur þá fyrst og fremst mið af
vanda, sem fyrir hendi er vegna vist-
unar hjúkrunarsjúklinga á Reykja-
vfkursvæðinu." Þann 2. maf 1975
var á fundi heilbrigðismálaráðs sam-
þykkt að skipa byggingarnefnd, er f
áttu sæti forstöðukona Borgarspftal-
ans, fulltrúi stjórnar sjúkrastofnana
Reykjavfkurborgar (þáverandi for-
STOR-BINGO"^
veröur haldiö í kvöld
1 .apríl íSigtúni. Glæsilegt úrval vinninga
Ma: 3 sólarlandaferðir með ferðaskrifstofunni Úrval — Húsgögn frá HP húsgöqn
Urmull heimilistækja frá Rowenta og Philips o.fl. o.fl.
Spilaðar verða 18 umferðir. Stjórnandi Ragnar Bjarnason.
Skemmtiatriði: Jörundur. Húsið opnað kl. 7.30.
Heildarverðmæti vinninga hálf milljón króna.
Bingóið hefst kl. 20.30
Knattspyrnudeild Fram.