Morgunblaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRtL 1976
íslenzku hlaupararnir í Englandi allir í góðri œfingu
Verðor ekki erfitt að ná
OL-Iágmarkinu, segir Ágúst
Agúst Asgeirsson var meðal
keppenda á frjálsfþrótlamóti,
sem fram fór f Manchester f Kng-
landi um sfóustu helgi. Keppti
Agúst f 1500 metra hlaupi og varrt
hann 5. af 15 keppendum. Tfmi
Agústs var 3:55.0 og er þart lang-
hezti tími sem hann hefur nárt f
þessari grein á þessum árstfma.
— Eg ætlarti mfr reyndar aö ná
enn betri tfma f þessu hlaupi, en
vcður var ekki vel fallið til
keppni, þannig art óg held art óg
geti verirt sæmilega ánægður með
þennan tfma, sagði Agúst. — Mig
vantar enn meiri snerpu, en hún
a-tti art koma þegar ég fer art
hlaupa meira f mótgm. Lg ætla
mér art ná Olympfulágmarkinu f
3000 metra hindrunarhlaupinu
og hef ekki trú á art þart reynist
erfitt.
Urslit og verðlauna-
afhending í Höllinni
ÚRSLITALEIKURINN í bikarkeppni KKÍ fer fram í Laugardalshöllinni i
kvöld og eigast þar við Ármann og Ungmennafélag Njarðvíkur. Hefst
leikurinn klukkan 20.00 og þó svo að Ármenningar séu nýbakaðir íslands-
meistarar þá er ógerningur að spá fyrir um úrslit leiksins því Njarðvíkingar
eru mjög frískir um þessar mundir.
Það verður ýmislegt annað um að vera í Laugardalshöllmm í kvöld Þanmg fer
úrslitaleikurmn í bikarkeppni kvenna fram að leik karlanna loknum og eigast þar
við KR og ÍR
Á milli leikjanna verða afhent verðlaun ..besta leikmanni íslandsmótsins'' sem
þjálfarar liðanna í 1 deildinni velja og ..stigakóngurmn og vítaskyttuprmsinn'' fá
sín verðlaun
í hálfleik fyrri leiksms leika þeir Þórir Magnússon og Curtis Carter í undan
úrslitum firmakeppni KKÍ í hálfleik seinni leiksms mætast síðan Gunnar
Þorvarðarson og sigurvegarinn i emvigi ..Trukks og Þóris um sigurlaunm i
firmakeppninni
Fyrsía frjálsíþrótta-
mótið á Melavelli í
dag - ekki aprílgabb
GUÐMUNDUR Þórarinsson þjálf-
ari frjálsíþróttafólksins í ÍR lætur
það ekki á sig fá þó enn sé snjór
yfir öllu og vellir lítt fallnir til
keppni í frjálsum íþróttum.
Fyrsta frjálsíþróttamót ársins
utanhúss fer fram í dag á Meia-
vellinum og verður keppt í kúlu-
varpi, kringlukasti og sleggju-
kasti. Mótið hefst klukkan 18.30
og Guðmundur tók það sérstak-
lega fram að hér væri ekkí um
aprílgahb að ræða.
Þá fer fyrsta Hljómskálahlaup-
ið fram í dag og byrjar það klukk-
an 18.00. Síðan verður keppt 8.,
15., og 29. apríl og 6. og 13. mai.
Af þeim örtrum fslenzkum
frjálsfþróttamönnum, sem dvelja
f Englandi er þart helzt að frétta
að Sigfús Jónsson verrtur meðal
keppenda á Heimsmeistaramóti
stúdcnta, sem fram fer f Belgfu
nú um helgina. Keppir Sigfús
sem fulltrúi Háskóla tslands. Vil-
mundur Vilhjálmsson er sagrtur f
mjög góðri æfingu um þessar
mundir eins og Agúst og Sigfús
og nýlega fékk hann tfmann 48.1 f
400 metra hlaupi á æfingu, en
þann tfma ætti honum ekki að
veitast erfitt art bæta þegar út f
keppni kemur.
Antírésarmót á skíð-
um íyrir þau yngstu
UM NÆSTU helgi fer fram á Akureyri
skiðamót fyrir yngsta skíðafólkið,
aldurshópinn 7—12 ára Mþtið er
kennt við þá vmsælu persónu Andrés
Önd og fer keppni sem þessi fram um
víða veröld Meiningin er að í framtið-
inni fari sigurvegararnir i keppninni til
sams konar móts erlendis Af þvi getur
þó ekki orðið i vetur
Víkingur
Aðalfundur Handknattleiksdeildar
Víkmgs verður haldinn i félagsheimili
Vikings miðvikudaginn 7 apríl Fund-
urinn verður i félagsheimilmu við
Hæðargarð og hefst klukkan 20 30
Bayern Munchen
hélt jöfnu í Madrid
REAL Madrid náði aðeins jafntefli
gegn Bayern Munchen I fyrri leik
liðanna í Evrópukeppni meistara-
liða í Madrid í gærkvöldi. Úrslitin
urðu 1:1 og verður erfitt fyrir Real
Madrid að sleppa við tap á heima-
velli Þjóðverjanna, það stefnir því
allt i að Bayern Munchen verði i
úrslitum keppninnar einnig i ár, en
i fyrra léku þeir gegn enska liðinu
Leeds. St. Etienne lék á heimavelli
gegn hollenzka liðinu PSV
Eindhoven. Frakkarnir unnu 1:0,
Enska
(knatt-
spyrnan
NOKKRIR leikir fóru fram i ensku
knattspyrnunni Í gærkvöldi og
vakti sigur Leeds gegn Newcastle
þökk sé fyrirliða þeirra, Jean
Michael Larque, sem skoraði
markið úr aukaspyrnu á 15.
mínútu leiksins.
Alls fylgdust 110 000 áhorfend-
ur með viðureign Real Madrid og
Bayern Múnchen og eðlilega var
fögnuður þeirra mikill þegar
Roberto Martinez skoraði þegar á 7
minútu leiksins Heldur sljákkaði i
þeim er markakóngurinn mikli, Gerd
Múller, jafnaði þremur minútum
Framhald á bls. 22
á útivelli mesta athygli. Leeds
gerði 3 mörk gegn 2 og skoraði
hinn ungi Carl Harris sigur mark
Leeds. í Skotlandi sigraði Rangers
lið Metherwell 3:2 í undanúrslit-
um bikarkeppninnar. Það leit þó
ekki gæfulega út fyrir Rangers um
tima er liðið var tveimur mörkum
undir.
VALUH vann Fylki 24:16 og KR vann IR 30:20 í gærkvöldi í bikar-
keppni HSI. Eru þá fjögur lið eftir í keppninni, Víkingur, FH, Valur
og KR. A myndinni sjást leikmenn númer 9 hjá IR og KR, kapparnir
Gunnlaugur Hjálmarsson og Hilmar Björnsson. Gunnlaugur og félagar
höfðu betur í 2. deildinni í vetur, en KR-ingarnir með Hilmar
Björnsson í broddi fylkingar geta þó hrósað sigri gegn IR í tveimur
síðustu leikjum þessara liða.
Norðurlandamót pilta í Laugardalshöllinni um helgina og stúlkurnar leika í Svíþjóð
það einu sinni gerzt að pilta-
landsliðið hafi orðið Norður-
landameistari, í Finnlandi árið
1970. Fyrirliði unglingalands-
liðsins þá var Stefán Gunnars-
son. Auk hans voru í liðinu
handknattleiksmenn, sem flest-
ir hverjir hafa síðan leikið með
a-landsliðinu. Má þar nefna
Ölaf Benediktsson, Val, Pálma
Pálmason, Fram, Pál Björgvins-
son, Víkingi, Guðjón Magnús-
son, Val, Axel Áxelsson,
Dankersen, og Guðjón Eplends-
son, Fram.
ÖLL LIÐIN SVIPUÐ
Jón Árni Rúnarsson sem er
fyrirliði unglingalandsliðsins
að þessu sinni keppti fyrst á
Norðurlandamóti árið 1974 og
þá í Danmörku, í fyrra var
hann meðal leikmannanna á
mótinu í Danmörku og í þriðja
skiptið er hann i liðinu nú. —
Það er erfitt að segja hvaða lið
sigrar að þessu sinni, sagði Jón
Árni á fundi með fréttamönn-
um i fyrradag. — Liðin eru öll
orðin mjög svipuð að styrkleika
og því er enginn leikur unninn
fyrirfram. Svíar og Danir hafa
t.d. yfirleitt verið álitnir eiga
sterkustu liðin, en okkur hefur
gengið lítið betur með Finnana.
Keppnin á Norðurlandamót-
inu um helgina ætti því að geta
orðið mjög skemmtileg og er
miðaverði stillt í hóf. Kostar
miði á hverja tvo leiki 500
krónur fyrir fullorðna og 100
krónur fyrir börn. Þá er einnig
hægt að kaupa kort á alla leik-
ina á 1500 krónur.
Dómarar mótsins verða þeir
Björn Kristjánsson og Óli Olsen
frá Islandi, Palle Thomassen og
Niels Knudsen frá Danmörku,
Kai Huseby og Arne Kristian-
sen frá Noregi.
Þess má svo geta að þeir
Kjartan Steinbach og Kristján
örn Ingibergsson verða dóm-
arar á Norðurlandamóti
stúlkna í Karlstad um helgina.
-áij.
V
Erfiður róður en von um
sigur íslenzku piltanna
tSLENZKA piltalandslirtirt ætli
art eiga nokkra möguleika á
sigri f Norrturlandamóti pilta
sem fram fer f I.augardalshöll-
inni um helgina. Hins vegar
verrtur rórturinn enn erfirtari
hjá stúlknalandslirtinu, sem
keppir f NM f Karlstad. Nirtur-
rörtun leikja þar er þeim and-
snúin, en vonandi tekst þcim
þó art klifra eitthvart upp töfl-
una frá því sem var f fyrra, en
þá varrt fslcnzka lirtirt f nertsta
sæti.
Þegar hefur verið greint frá
skipan þessara liða, en ein
breyting hefur nú verið gerð á
kvennaliðinu. Hjördís Sigur-
jónsdóttir fingurbrotnaði í leik
við Kanada í síðustu viku og
getur því ekki farið með liðinu
til Svíþjóðar. 1 hennar stað
hefur Halldóra Magnúsdóttir
úr Val verið valin. I báðum
liðum er handknattleiksfólk,
sem gert hefur garðinn frægan
með meistaraflokksliðum sinna
félaga. Af stúlkunum má nefna
Ármannsstúlkurnar Erlu
Sverrisdóttur og Guðrúnu
Sigurþórsdóttur, Gyðu Ulfars-
dóttur úr FH og Jóhönnu Hall-
dórsdóttur úr Fram.
Af piltunum eru þeir senni-
lega þekktastir Pétur Ingólfs-
son úr Ármanni, Gústaf Björns-
son úr Fram, Bjarni Guðmunds-
son úr Val, Jón Hauksson,
Haukum, og Andrés Kristjáns-
son, FH. Allir hafa piltarnir
sem leika í unglingalandsliðinu
leikið meira eða minna með
meistaraflokksliðum sinna fé-
laga og einn leikmannanna
hefur meira að segja leikið með.
a-landsliði. Er það Bjarni Guð-
mundsson, en hann á 8 ungl-
ingalandsleiki og 4 a-Iandsleiki
að baki. Fyrirliði piltaliðsins
hefur þó mesta reynslu i ungl-
ingalandsleikjum. Hann er
Framarinn Jón Árni Rúnarsson
sem leikið hefur 8 unglinga-
landsleiki. Hann leikur væntan-
lega alla leikina í mótinu að
þessu sinni og nær hann þá 12
u-landsleikjum. Aðeins einn
handknattleiksmaður hefur
leikið fleiri lciki með unglinga-
landsliði, Gunnar Einarsson,
FH og Göppíngen, sem Iék á
sínum tíma 13 unglingaleiki.
Þeir Hilmar Björnsson, KR,
Guðjón Erlendsson, Fram,
Pálmi Pálmason, Fram, og
Hannes Leifsson, Fram, hafa
allir leikið 12 unglingalands-
leiki.
NORÐURLANDA-
MEISTARAR 1970
Norðurlandamót pilta er nú
haldið hér á landi í annað sinn.
Verður mótið sett á föstudag-
inn klukkan 20.00 af Gísla Hall-
dórssyni forseta ISl. Siðan
hefst fyrsti leikurinn og verður
hann á milli íslands og Noregs.
Leikir mótsins fara fram sem
hér segir, allir í Laugardals-
höll:
Föstudagur kl. 20.00
ísland — Noregur
Svíþjóð — Danmörk
Laugardagur kl. 10.00
Noregur — Finnland
Island — Svíþjóð
Laugardagur kl. 15.00
Danmörk — Noregur
Island — Finnland
Sunnudagur kl. 10.00
Danmörk — Finnland
Svíþjóð — Noregur
Sunnudagur kl. 15.00
Finnland — Svíþjóð
Island — Danmörk
Að síðasta leiknum loknum
fer fram verðlaunaafhending
og að sjálfsögðu verður það
vonandi islenzka liðið sem
kemur til með að standa á
hæsta þrepi verðlaunapallsins
að keppninni lokinni. Hefur
Þessir þrfr leikmenn verrta sennilega burrtarásar í fslenzka lirtinu á Norrturlandamótinu f Laugardalshöllinni um helgina. FH-ingurinn
Andrés Kristjánsson er lengst til vinstri, Bjarni Gurtmundsson úr Val f mirtið, en hann hefur leikirt 4 a-landsleiki, og lengst til hægri er
Pétur Ingólfsson, hin stórefnilega skytta úr Armanni.