Morgunblaðið - 01.04.1976, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1976
vaxandi mæli, að við það verði
ekki lengur unað að prinsessan
miðaldra lifi hömlulausu og
dýru skemmtanalífi og það í svo
ríkum mæli að hún telji sig
ekki geta innt af hendi það sem
henni er ætlað. 1 blaðinu Sun-
Day Mirror var Margréti til
dæmis tjáð þessi skoðun og
blaðið upplýsir að snurða sé nú
0 VARLA voru brezk
blöö búin að segja vel og
rækilega frá sambúð-
arslitum þeirra Margrét-
ar prinsessu og Snow-
dons lávarðar, þegar mál-
inu var fylgt ei'tir á þann
máta að gagnrýna prins-
essuna fyrir að svíkjast
undan opinberum skyld-
um sínum. Einn þekktur
andkonungssinni í þing-
mannahópi Willie Hamil-
ton krafðist þess í þing-
inu, að Margrét yrði
strikuð út af launalista
vegna þess að hún hefði
engan áhuga á aó sinna
því sem hún fengi þó
býsna drjúga greiðslu
l'yrir árlega.
,,Hún hvorki getur né vill
sinna opinberum skyldustörf-
um sínum," sagöi Hamilton og
vék síðan í hneykslan að síð-
ustu reisu prinsessuhnar lil
eyjar í Karabiska hafinu, þar
sem hún naut lífsins með
hippavini sínum Roddy
Llewellyn. „Vilji fólk njóta lífs-
ins og gera það sem það lystir,"
sagði þingmaðurinn, „er það
ekki mál þingsins heldur hvers
og eins. En þegar um er að
ræða fulltrúa úr konungsfjöl-
skyldunni sem þiggur laun úr
vösum skaltborgaranna ber að
stöðva tafarlaust launagreiðsl-
ur, ef störfin eru ekki innt af
„Margrét prinsessa
er húðlöt
— og skyldi fara
út af launaskrá”
hendi á viðhlítandi hátt og kon-
ungborinni manneskju sæm-
andi."
Ymis brezk blöð hafa fjallað
um málíð, yfirleítt af hófsemd,
en þess gætir þó vissulega í
Anna hugsar bara um
hestamennsku.
meira að segja hlaupin á þráð-
inn í því lukkulega hjónabandi
Önnu prinsessu og Marks
Philips, vegna þess að Anna
hafi orðið að taka á sig þvílík
ókjör af verkum sem Margréti
hefði með réttu horið að vinna.
Aftur á móti hefur einnig
heyrzt á siðustu mánuðum í
brezkum blöðum, að Anna
prinsessa sé einnig að verða
hálfgerður baggi á skattborgur-
unum, vegna þess hún tregist
við að vera viðstödd þær sýn-
ingar og fyrirlestra og opnanir
stofnana sem henni beri. Ekki
er henni kennt um að lifa of
ljúfu og íburðarmiklu lífi, en
sagt að hún hugsi ekki um ann-
að en hestamennsku og æfingar
fyrir Ólympíuleikana og þótt
það sé gott og blessað megi þó
of mikið af öllu gera.
Er því af ýmsu ljóst að Bretar
eru ekki íullkomlega ánægðir
með allt sitt kóngafólk og eru
farnir að tjá sig opinskár um
það viðkvæmnismál en fyrr.
Margrét er húðlöt.
UNNIÐ er nú að heildarúttekt
á starfsaðstöðu og starfs-
möguleikum Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, sem lögð verður
til grundvallar ákvarðanatöku
um framkvæmdir og framtíð-
arrekstur fyrirtækisins.
Borgarráð hefur samkvæmt
einróma samþykkt útgerðar-
stjórnar heimilað könnunar-
viðræðu um kaup á nýjum
skuttogara af minni gerð. Ut-
gerðarráð kannar nú mögu-
leika á lánsfjáröflun til að
koma upp kældri fiskmóttöku
og betri löndunarskilyrðum i
Vesturhöfninni. Þetta og
margt fleira, varðandi BÚR,
kom fram í ræðu Ragnars
Júlíussonar borgarfulltrúa
(S), sem hann flutti við 2.
umræðu um fjárhagsáætlanir
borgarsjóðs og borgarstofn-
ana. Ræða Ragnars fer í
helztu efnisatriðum hér á
eftir.
• KÓNNUN Á STÖÐU
BÚR OG HAGKVÆM
UPPBYGGINGÁ
REKSTRARÞÁTTUM
FYRIRTÆKISINS
í tillögum borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalags. Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks. sem hér eru til umræðu,
fjallar IV tillagan um Bæjarútgerð
Reykjavikur Ég vil taka það strax fram,
svo ekki valdi misskilningi, að ég er
flutningsmönnum algjörlega sammála
um nauðsyn þess að hraða uppbygg-
Heildarúttekt á starfsaðstöðu BÚR:
Kæld fiskmóttaka o g
bætt löndvmarskilyrði
ingu BÚR sem mest Bæjarútgerðin
var á sínum tíma stofnuð af þáverandi
bæjarstjórn, sem atvinnuaukandi fyrir-
tæki í bæjarfélaginu Okkur ber að reka
fyrirtækið á sem hagkvæmastan hátt
og gera útflutningsafurðirnar sem verð
mætastar Ég er flutningsmönnum
hins vegar ekki sammála um, að sam-
þykkja eigi nú í kvöld að kaupa sku.li
tvo skuttogara af minni gerðinni, það
er undir 500 smálestum, og byggja
eigi fullkomið frystihús i Bakka-
skemmu
Ástæðan fyrir því, að ég er ekki
reiðubúinn til þessarar sarnþykktar er,
að á fundí útgerðarráðs 28 janúar s I
varákveðiðcð fela Helga G Þórðarsyni
rckstrarverkfræðingi að gera könnun á
núverandi stöðu fyrirtækisins til lands
og sjávar, og gera frumáætlanir um
aðgerðir til hagkvæmari samsetningar
og uppbyggmgar á aðalrekstursþáttum
fyrirtækisins Ákveðið var þá að hraða
þessu verki svo sem unnt væri og Ijúka
því i þessum mánuði En skila svo
áfangaskýrslu jöfnum höndum Þessu
verki er ekki lokið, og endanlegar
skýrslur um valkosti liggja ekki fyrir
ennþá Þegar endanlegar skýrslur
liggja fyrir og gefi þær til kynna, að
það sé rétt stefna að byggja margum
rætt fullkomið frystihús í Bakka-
skemmu, þá skal ekki á mér standa að
greiða slikri tillögu atkvæði i útgerðar-
ráði og síðan í borgarstjórn
• BAKKASKEMMA OG
AÐSTAÐA TIL
FISKMÓTTÖKU
Varðandi það hver verkefni þessa árs
eigi að vera, er þetta að seqja 25
febrúar s I kom Helgi á fund útgerðar-
ráðs með fyrstu áfangaskýrslu sína, en
hún fjallaði um núverandi fiskmóttöku
hjá Bæjarútgerðinni Þar kom í Ijós
Ragnar Júlíusson
borgarfulltrúi
sem raunar var vitað, að fiskmóttaka
BÚR er að minnsta kosti þrisvar
sinnum of lítil miðað við núverandi
afköst frystihússins, — tíðni landana
og reglui um meðferð fisks Ennfremur
kom fram á þessum sama fundi
skýrsla frá sérfræðingum Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna,sem hafa
eftirlit með hraðfyrstihúsum um land
allt, en þar kom hið sama fram Með
hliðsjón af þessu samþykkti útgerð-
arráð á þessum fundi einróma,
að óska þess, að BÚR fengi Bakka-
skemmu strax til afnota Þá var
ennfremur samþykkt að láta gera
kostnaðaráætlun um kælda fisk-
móttöku í skemmunni Helgi Þórð-
arson og Jón B Stefánsson verk-
fræðingur unnu síðan það verk og
skiluðu skriflegri kostnaðaráætlun,
sem dags var 9 marz s I., um breyt-
ingar á 12/21 af neðri hæð
skemmunnar En sú áætlun var upp á
48 millj kr Hefur mér ásamt fram-
kvæmdastjórum verið falið að vinna að
undirbúningi framkvæmda og öflun
fjár til þeirra Ég hefi átt viðræður við
sjávarútvegsráðherra og forráðamenn
fiskveiðasjóðs um þetta brýna nauð-
synjamál og fengið þar mjög jákvæðar
undirtektir. Er nú verið að ganga frá
formlegum umsóknum með greinar-
gerðum til fiskveiðasjóðs og fram-
kvæmdasjóðs Það skal tekið skýrt
fram, að fyrirhugaðar breytingar á
skemmunni rýra ekki á nokkurn hátt
möguleika til þess að koma þar upp
fullkomnu frystihúsi síðar
• MARGHÁTTAÐUR
ÁVINNINGUR
Auk þess að leysa þann vanda sem
BÚR er á höndum vegna þrengsla í
núverandi snóttöku er víst að árangur
næst í eftirfarandi atriðum í fyrsta
lagi: Lækkaður löndunarkostnaður
m a vegna einfaldari vinnubragða við
aukna notkun fiskikassa, en þá hefur
tiltölulega lítið verið hægt að nota
vegna aðstöðuleysis í öðru lagi: Fellur
aksturskostnaður vörubíla niður hvað
við kemur fiskflutningum til frystihúss.
í þriðja lagi Bætt meðferð á fiski um
borð t skipum og i móttöku og
flutningi eykur hráefnisgæði, sem
skapar tekjuaukningu gegnum betri
nýtingu og möguleika á að fá hærra
hlutfall á verðmætari pakkningum
Sem dæmi má nefna tölur, ef aukning
á nýtingarhl utfall i karfaflaka fer úr
28% í 29% er verðmætaauknmgin á
ársgrundvelli um 10 millj kr og hlið-
stætt í öðrum fisktegundum Karfa-
flakaframleiðsla Bæjarútgerðar hefur
Keyptur skut-
togari af minni
gerð
undanfarin ár verið frá 65 til 70% af
útflutningsverðmæti Kunnáttumenn
segja mér, að með þeim breytingum á
meðferð fisksins, sem hér um ræðir sé
ekki mikil bjartsýni að nýtingarhlut-
fallið hækki um 2% og myndi þá
útflutningsverðmætin aukast á heildar-
útflutningi um 25 til 30 millj kr á
ársgrundvelli
• kaupánýjum
_________SKUTTOGARA_________
Um kaupin á einum skuttogara af
minni gerð, þarf ekki að ræða Borgar-
ráð hefur þegar heimilað að leita eftir
samningum um kaup á slíku skipi Þær
umleitanir standa nú yfir og skýrast
þau mál nú á næstu dögum Þar sem
öll þessi mál eru nú þessa daga ýmist á
umræðu- eða framkvæmdastigi hjá út-
gerðarráði, legg ég fram eftirfarandi
tillögu frá borgarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins: „Borgarstjórn vekur
athygli á eftirfarandi: 1) Á vegum
útgerðarráðs er nú unnið að heildar
úttekt á starfsemi Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, sem verða á grundvöll-
ur tillögugerðar um framkvæmdir til
úrbóta á rekstri fyrirtækisins. 2)
Borgarráð hefur samkvæmt tillögu
útgerðarráðs samþykkt að hefja
könnunarviðræður um kaup á skut-
togara af minni gerðinni. 3) Út-
gerðarráð hefur samþykkt að kanna
möguleika á að fá lánsfé til að
standa undir framkvæmdum við að
koma upp kældri fiskmóttöku og
betri löndunarskilyrðum í Vestur-
höfninni. Með tilvfsun til þess, sem
að ofan greinir telur borgarstjórn
ekki ástæðu til sérstakrar ályktunar
um mál þetta nú og visar framkom-
inni tillögu til útgerðarráðs til af-
greiðslu f sambandi við endanlegar
ákvarðanir um framkvæmdir Bæjar-
útgerðar Reykjavikur."