Morgunblaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRlL 1976
Aðalfundur Alþjóða-
samtaka leiðsögumanna
— Fólk hér
orðið
langþreytt
Framhald af bls. 2
stæðismanna, en meirihluti þeirra var
fylgjandi afstöðu okkar og ákvörðun."
Aðspurður svaraði Sigurður því til
að þeir hefðu óskað eftir því að vara-
menn þeirra tækja sæti þeirra í bæjar-
stjórn, en hann kvaðst ekki hafa gert
sér grein fyrir því að fulltrúar annarra
flokka hefðu getað sett það strik í
reikninginn sem raun bar vitni með
neitun um afsagnarbeiðni og eftir
niðurstöðu bæjarstjórnar hefðu þeir að
uthugðu máli ákveðið að hlita úrskurði
hinna andstæðu flokka
Sigurður sagði að ráðning bæjar-
stjóra hefði ekki verið aðalatriðið í
ágreiningnum, margt kæmi til. svo
sem sundrung mnan bæjarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna og það að þeir
Emar hefðu talið of mikmn tíma fara i
smámál á meðan stóru málin sætu á
hakanum ,,hað hefur verið reynt til
þrautar að sætta sjónarmiðm," sagði
Sigurður," en það tókst ekki Fulltrúa-
ráðið bað okkur að sitja áfram, en við
neituðum því "
Sigurður sagði að á fulltrúaráðsfund-
inum hefði ekki komið fram afgerandi
tillaga um ráðnmgu í starf bæjarstjóra,
heldur hefði meirihluti fulltrúa viljað
kanna þau mál til hlítar Úrslit i at-
kvæðagreiðslu þar um fóru þannig að
22 greiddu þeirri tillögu atkvæði, 8
voru á móti og 1 7 sátu hjá
Um framhald mála sagði Sigurður
,,Auðvitað geta þessir hlutir lagazt ef
hmir fulltrúarnir vilja taka upp skyn-
samlegri og ábyrgari vinnubrögð í
framtíðmni "
Sigurður sagði að lokum að ekki
stæði til að stofna nýjan flokk á þeirra
vegum og þeir væru ekki í öðrum
flokki
XXX
„Ég veit ekkert ems og er," sagði
Einar Haukur, þegar Mbl spurði hann
um framvindu mála, „og það hafa
engar viðræður verið við okkur af
hendi sjálfstæðismanna eða annarra
og við Sigurður höfum ekki heldur
talað saman Við höfum lýst því yfir að
við munum standa að kjöri Páls
Zóphaniassonar í starf bæjarstjóra en
við höfum ekki rætt eða samið um
nokkra frekari samvmnu til vinstri "
Aðspurður um það hverra fulltrúi
hann væri nú í bæjarstjórn svaraði
Einar Haukur „Ég er fulltrúi þess fólks
sem kaus mig Ég var i framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og ég taldi mér
skylt að hlusta á fulltrúaráðið. en eftir
mðurstöðu þess taldi ég mig ekki eiga
samleið með því og ákvað því að víkja
úr bæjarstjórn og fulltrúaráði flokksins,
en bæjarstjórn neitaði
Emar Haukur var þá spurður að því
hvort honum fyndist eðlilegt að aðrir
flokkar gætu ráðskazt þannig með
ákvarðanir kjörinna fulltrúa í bæjar-
stjórn, en Emar Haukur kvaðst ekki
vilja meta það „Staða okkar er dálítið
sjálfstæð." sagði hann, „það er ekki
neinn fastur meirihluti lengur og ég
get því ekki litið svo á að neinn mál-
efnasamningur sé í gildi lengur Þessi
atburður á sér aðrar orsakir en ráðn-
ingu bæjarstjóra því um er að ræða
djúpstæðan skoðanamun um einstök
mál og því gátum við ekki átt samleið
lengur
„Við fjórir fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins," sagði Emar Haukur, „gátum sætt
okkur við ákveðinn mann sem bæjar-
stjóra ef samstarfsflokkur okkar hefði
fallizt á það, en hins vegar var óráðið
hvort annar maður en Páll kæmi til
grema, þótt ýmis nöfn væru nefnd, en
ég tel nauðsynlegt að bæjarstjórn fái
nú þegar fastan starfsmann í starf
bæjarstjóra
XXX
Sigurgeir Kristjánsson fulltrúi Fram-
sóknarflokksms sagðf í samtali við
Mbl um þetta mál „Það kom upp
ágremmgur meðal fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksms en afsagnarbeiðni tveggja
fulltrúanna var felld í bæjarstjórn Það
varð s.imkomulag við aðra tvo fulltrúa
Sjálfsta ðisflokksms um að láta viku-
legan meirihlutafund sjálfstæðismanna
og fmmsóknarmanna falla niður i
þess iri viku á meðan mál væru að
skýr.isi en það hefur ekkert verið gert í
því að slí ta samstarfinu."
Si(jiirý«ir kvaðst ekki vita hvað yrði
úr ' sambándi við ráðningu bæjar-
stjóia, eri það væri meirihluti fyrir þvi
að . í'á Hins vegar," sagði Sigur-
geir," er eðlilegast að sjá til, þvi blóð-
nætur eru bráðastar og bezt er að láta
þær „liða hjá "
xxx
Sígurbjörg Axelsdóttir bæjarfulltrúi
sagði um málið ,,Ég veit ekki hver
framvindan verður, þar sem við erum
nú orðin tvö i minnihluta i bæjarstjórn,
en ég hygg að þetta verði þó Sjálf-
stæðisflokknum til góðs þegar fram
liður og fái sjálfstæðisfólk til að standa
betur saman Það hefur verið svo að
Magnús Magnússon hefur ráðið ferð-
inni I bæjarstjórn og samstarfsmenn
okkar hafa ávallt talað fyrr við fulltrúa
minnihlutans en okkur og við höfum
þvi i rauninni verið meirihluti i minni-
hluta Minnihlutaflokkarnir hafa alltaf
verið að bjóða samstarf á breiðum
grundvelli, en þar hefur enginn hugur
fylgt máli og þar sem á hefur þurft að
taka, hafa þeir krafsað i smámálin en
látfð stórmálin undir mottu. Fólk hér er
orðið svo langþreytt á þessum skripa-
leik að það veit hvorki upp né niður og
ég held að mestur vilji sé hjá þvi til að
öll bæjarstjórnin segi af sér Það vilja
allir ná plássinu upp, en svo er fram-
vindan eins sorgleg og raun ber vitni
Félagar okkar vildu ekki endurskoða
afstöðu sina að beiðni okkar, en þeir
létu andstæðingana skipa sér fyrir "
BLAÐINU hefur borizt greinar-
gerð sem Félag íslenzkra bif-
reiðaeigenda sendi Allsherjar-
nefnd neðri deildar Alþingis
vegna frumvarps um að leiða í lög
notkun öryggisbelta I bifreiðum.
Segir í greinargerðinni að Alls-
herjarnefnd neðri deildar hafi
ekki óskað umsagnar FIB um
þetta mál þrátt fyrir að FIB sé
viðurkennt af stjórnvöldum sem
forsvarsaðili bifreiðaeigenda á Is-
landi. Þar sem frumvarp þetta
komi fyrst og fremst til með að
snerta hinn almenna bifreiðaeig-
anda í landinu vill FtB leyfa sér
að koma á framfæri skoðunum
sínum á þeim hluta frumvarpsins
og greinargerð með því er að
öryggisbeltum snýr.
A meðal samþykkta sem lands-
þing FlB gerði í október s.l. var
samþykkt varðandi notkun
öryggisbelta. Segir þar að lands-
þingið telji notkun bílbelta mikil-
vægt öryggistæki og beri að efla
notkun þeirra svo sem verða má
með aukinni fræðslu og kynn-
ingu. Hins vegar telur fundurinn
tæplega tímabært að lögbjóða
notkun bílbelta eins og umferðar-
menningu er hát-tað hér á landi.
Þingið telur varhugavert að taka
upp lagaákvæði nema tryggt sé að
þeim sé fylgt.
Ibúasamtök Grjótaþorps bjóða
til kvikmyndasýningar í Tjarnar-
bæ, fimmtudaginn 1. apríl 1976
kl. 21. Sýnd verður 30 mínútna
löng kvikmynd um verndun og
endurbætur á gamalli borg I Bret-
landi, Chester.
Eftir sýningu myndarinnar
verða umræður um verndun
I FRÉTT frá Félagi leiðsögu-
manna segir að dagana 6. og 7.
marz hafi verið haldinn í Turku f
Finnlandi aðalfundur Alþjóða-
samtaka leiðsögumanna. 1
samtökum þessum eru 18 leið-
sögumannafélög á Norður-
löndum, þ.á m. Félag leiðsögu-
manna, sem er samtök íslenzkra
leiðsögumanna.
Markmið Alþjóðasamtaka leið-
sögumanna er að efla innbyrðis
samvinnu og kynni milli aðildar-
félaganna, samræma menntun,
löggildingu og kjör leiðsögu-
manna í aðildarlöndunum og að
koma á auknu samstarfi milli
þeirra mörgu aðila sem starfa við
ferðamannamóttöku og þó sér-
staklega leiðsögumannafélaga og
ferðamálayfirvalda.
I Finnlandi eru leiðsögumanna-
félög starfandi í öllum stærstu
bæjum og borgum landsins og
hafa þau með sér landssamband.
Sjá félögin um alla menntun og
Þá telur FlB greinargerð
frumvarpsins verulega óná-
kvæma.
Segir m.a. í greinargerð með
frumvarpinu að notkun bílbelta
hafi oft bjargað mönnum frá
alvarlegum slysum eða dauða.
Þetta er satt og_ rétt segir í bréfi
FlB. Þó telur FlB að réttara hefði
verið að birta jafnframt tölur eða
álit sérfróðra manna um hugsan-
leg slys af völdum bílbelta ef
notuó hefðu verið. Það verður að
taka tillit til þess að vegir og
veðrátta hér á landi eru ekki sam-
bærileg við aðstæður á öðrum
Norðurlöndum en við þær er
alltaf verið að miða.
Þá er rætt um þær undanþágur
sem gert er ráð fyrir að dóms-
málaráðherra geti sett nánari
reglur um samkvæmt frumvarp-
ipu. Telur FlB að þegar búið væri
að veita slíkar undanþágur yrðu
ekki aðrir eftir en einkabílstjór-
ar, sem verið væri að vernda, eða
réttara sagt hafa vit fyrir eins og
segir í bréfinu.
FlB vill eindregið hvetja til
áframhaldandi áróðurs fyrir notk-
un bílbelta og telur að ekki sé
fullreynt hvort viðhlítandi árang-
ur næst án lagaboðs en bezt væri
að svo gæti orðið.
gamalla húsa almennt. Arki-
tektarnir Gestur Olafsson og
Magnús Skúlason munu hefja um-
ræður með örstuttu spjalli.
Samtökin hvetja allt áhugafólk
um húsavernd til að mæta í
Tjarnarbæ.
Ibúasamtök Grjótaþorps.
þjálfun leiðsögumanna I sam-
vinnu við opinbera aðila.
Núverandi formaður Alþjóða-
samtaka leiðsögumanna er Bo
Grönholm frá Abo Guideklubb,
en hvert Norðurlandanna á fimm
fulltrúa í stjórn samtakanna.
Fulltrúi íslenzkra leiðsögumanna
er Birna G. Bjarnleifsdóttir, for-
maður Félags leiðsögumanna.
Næsti fundur Alþjóðasamtaka
leiðsögumanna verður haldinn í
Bergen að ári.
— Upptaka
Framhald af bls. 18
dæma skipstjóra til refsingar,
en á hinn bóginn þykir ekki
rétt að láta hann hagnast á því
að landa slíkum afla jafnvel
þótt I smáu væri. Um það hve
mikill hluti afla væri þannig
ólöglegur ætti sjaldnast að vera
ágreiningur og ætti því að vera
óþarfi að láta slik mál fá ítar-
lega dómstólameðferð eins og
fyrr segir.
— Bráðabirgða-
lausn
Framhald af bls. 5
5. Verkið er langt á veg komið og
mestum hluta fjármagnsins, sem til
þess var ætlað, þegar ráðstafað.
Niðurstaða mln er sú, að rétt sé að
halda verki þessu áfram og leitast
við að fá hjúkrunardeildina til rekst-
urs sem fyrst, og að allir, sem mátið
varðar, taki höndum saman til að
tryggja þvi farsælan framgang.
Kynni min af yfirlæknum Borgarspit-
alans eru þau, að ég veit. að ekki
mun á þeim standa til góðra verka,
þegar ákvörðun er tekin.
Reykjavik, 31. marz 1976.
Birgir Isl. Gunnarsson.
— Líbanon
Framhald af bls. 1
menn, að Sýrlendingar virtust tví-
stígandi í afstöðu sinni og hann
kvaðst harma ef það stafaði af
þrýstingi frá einhverju öðru
landi. Engu að síður byttu vinstri-
menn þó vinir við að Sýrlending-
ar stæðu við hlið þeirra í blíðu og
stríðu.
Frá bækistöðvum Franjiehs
forseta bárust þær fregnir í dag
að þeir væru mjög ánægðir með
að Kurt Waldheim hefði reifað
Líbanonmálið I öryggisráðinu en
þeir hafa hvað eftir annað látið
þann vilja í ljós að Sameinuðu
þjóðirnar hafi milligöngu um
friðarumleitanir I hverri mynd
sem slfkt gæti orðið.
— Norðmenn
Framhald af bls. 1
fljótt og auðað væri til að koma í
veg fyrir aukinn ágang á norskum
miðum vegna útfærslu fiskveiði-
lögsögu annarra ríkja.
Hansen landvarnaráðherra
sagði að ríkisstjórnin mundi efla
landhelgisgæzluna svo að hún
gæti sinnt verkefnum sínum
þegar norska fiskveiðilögsagan
yrði færð út.
Hann sagði að stjórnin mundi
gera þinginu grein fyrir endur-
skipulagningu landhelgisgæzl-
unnar á vorþinginu. Hins vegar
mundu líþa fjögur til fimm ár þar
til smíði skipa í samræmi við
þessa endurskoðun landhelgis-
gæzlunnar gæti hafizt. A þessum
aðlögunartíma yrðu skip tekin á
leigu til að efla gæzluna.
—...♦----------
r
— Ihaldsmenn
Framhald af bls. 1
KAPPHLAUP
Jafnframt hefur brezka togara-
sambandið látið I ljós áhyggjur
vegna samþykktar frumvarpsins
um útfærslu bandarísku fisk-
veiðilögsögunnar í báðum deild-
um bandaríska þingsins. Tals-
maður sambandsins sagði í gær að
samþykktin kæmi ekki á óvart og
mundi ekki hafa bein áhrif á fisk-
veiðar Breta, en sýndi hvað Bret-
ar hefðu dregizt langt aftur úr i
kapphlaupinu um stærri fisk-
veiðilögsögu.
Hann sagði enn fremur að sú
hætta væri fyrir hendi, að erlend
skip, sem neyddust til að hætta
veiðum við Bandaríkin vegna út-
færslunnar þar, leituðu á önnur
mið þar sem brezkir togarar væru
fyrir þannig að ásóknin mundi
aukast.
— íþróttir
Framhald af bls. 38
fyrir leikslok. í seinni hálfleiknum
stóðst vörn Bayerns öll áhlaup og
Beckenbauer og félagar hans standa
því óneitanlega vel að vígi þó þeir
hafi „aðeins" náð jafntefli
í Evrópukeppni bikarhafa lék
West Ham gegn Eintracht Frankfurt
á útivelli og sigraði þýzka liðið 2:1.
Það eru þó ekki slæm úrslit fyrir
West Ham, sem á heimaleikinn eftir
Mörkin í leiknum skoruðu þeir
Neuberger og Kraus fyrir Frankfurt,
en Paddon fyrir enska liðið
Þá mættust einnig Anderlecht og
Sachsenring Zwickau í bikarkeppn-
inni og þó svo að leikið væri I
A-Þýzkalandi þá sigruðu Belgarnir
með þremur mörkum gegn engu —
þeir eru því öruggir áfram í úrslit
keppninnar Mörk þeirra gerðu Van
der Elst (2) og Rensenbrink
í UEFA-keppninni lék SV
Hamborg og Brugge og urðu úrslitin
jafntefli, 1:1. Mörkin gerðu Reiman
fyrir þýzka liðið, en Lambert fyrir
Belgana
— Ólafur Ólafs-
son látinn
Framhald af bls. 3
mjög til sín taka svo og málefni
biblíufélaga. Hann ritaði mikið
um kirkjuleg málefni og
kristniboð og þýddi auk þess
nokkrar bækur og bæklinga.
Kona Olafs, Herborg Ölafsson,
norsk að ætterni, lifir mann sinn.
pix
— Leigjandi
réðst á. . .
Framhald af bls.3
takið á mér svo að ég gat losað
höndina og opnað lásinn. Ég
ætlaði síðan að hlaupa eins og
rautt strik til að hringja á lögregl-
una en hinn kemur þá á eftir mér.
Gamli maðurinn, Jónmundur,
grípur þá í handlegginn á honum
og meðan ég er að hringja á lög-
regluna þjarmar hinn að gamla
manninum, fer með hann fram á
gang og hendir honum þar niður
þrjár tröppur og ofan á pall.
Hleypur síðan á eftir honum og
leggst þar ofan á gamla manninn.
Við kölluðum á konu sem býr
niðri, og þegar hún kom, hljóp
maðurinn i burtu. Litlu síðar kom
lögreglan og hún kannaðist þá við
manninn, og mun hafa handtekið
hann litlu síðar."
Kristín sagði, að lögreglan hefði
siðan flutt þau bæði í slysadeild-
ina, þar sem gert hefði verið að
meiðslum þeirra. Kvað hún meira
sjá á gamla manninum en sér, því
að hann hefði eymsl I baki og
væri mjög bólginn eftir átökin.
Hann hefði heldur ekki verið vel
heilsuhraustur, með kransæða-
stlflu og reykeitrun eftir bruna á
Öðinsgötunni ekki alls fyrir
löngu, og því ekki búinn undir
átök sem þessi.
Morgunblaðið ræddi einnig við
Guðlaugu Björgvinsdóttur, dóttur
Kristinar, og kvaðst hún f gær
hafa haft tal af Bjarka Elíassyni,
yfirlögregluþjóni, og beðið um að
lyklar að íbúð móður hennar yrðu
teknir af manninum, þar eð hann
yrði látinn laus I dag. Hefði hún
fengið þau svör, að slíkt væri ekki
hægt og einnig að ekki væri hægt
að meina manninum sem leigj-
anda aðgang aftur að íbúð móður
hennar nema til kæmi fógetaúr-
skurður þar að lútandi. „Við vilj-
um þessum ógæfumanni ekkert
illt,“ sagði Guðlaug, „en við hljót-
um þó að ætlast til þess að lögregl-
an og réttarfarið I landinu tryggi
öryggi móður minnar og meini
manninum aðgang að íbúðinni
aftur.“ En eftir þessi svör yfirlög-
regluþjónsins kvað Guðlaug sér
ekki ljóst hvernig og hvert henni
bæri að snúa sér til að móðir sín
væri hult.
Blaöburðarfólk óskast
r
Uthverfi : Langagerði
UPPL. I SIMA 35408
FÍB telur ótíma-
bært að lögleiða
notkun bílbelta
Ibúar Grjótaþorps bjóða
til kvikmyndasýningar