Morgunblaðið - 01.04.1976, Page 40

Morgunblaðið - 01.04.1976, Page 40
Al (ÍLÝSINÍÍASÍMINN ER: 22480 <n3gptti#Iðfrifr AfGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JWorgunlitnöiÖ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1976 „Borinn fer til Kröflu því verður ekki breytt” „OKKUR er uppálagt að mæta með borinn við Kröflu og þvf verður ekki breytt. llitt er svo annað mál hvort hægt er að leysa vanda Akureyringa á einhvern annan hátt,“ sagði Jakob Björnsson orkumála- stjóri í gær, þegar Mbl. bar undir hann þau ummæli Bjarna Einars- sonar bæjarstjóra á Akureyri, í blaðinu í gær, að það þýddi árs seinkun á hitavcituframkvæmdum Akureyringa ef ekki fengist að bora þriðju holuna við Laugaland. Bjarni Helgason skipherra á SÝR: 8 bátar teknir á ólöglegum veiðum og annað eins slapp Einn bátur var að toga 800 metra frá landi LANDIIELGISGÆZLUFLUGVÉLIN TF-SÝR stóð í fyrrakvöld og gærmorgun 8 íslenzka togbáta að ólögleg- um veiðum undan Suðurlandi. Á þessum slóðum er togbátum heimilt að veiða upp að þriggja sjómílna mörkunum, en umræddir bátar reyndust vera allt að 2,2 mílum innan þeirra marka eða aðeins 800 metra frá fjöruborðinu. „Þeir voru þarna alveg í kippum,“ sagði Bjarni Helgason skipherra á landheigisgæzluflugvél- inni, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi, „og þótt við höfum tekið 8 báta er ég viss um að annað eins eða meira af bátum hefur sloppið.“ SÝR kom í fyrrakvöld á bátnum staðinn að meintum ólöglegum Fram AK 85, þar sem hann var togveiðum vestur af Þjórsárósum. Tilboð dregin lil baka: Annar gleymdi þakinu en hinn heilu húsi BOROARRAÐ Revkjavíkur samþykkti á fundi sínum sl. föstudag að hcimila að samið vrði við Sveinbjörn Sigurðsson um hyggingu tveggja nýrra leikskóla, sem byggja á við Tungusel og Suðurhóla í Breiðholti á þessu ári. Sveinbjörn var með þriðja lægsta tilboðið, en tveir þeir lægstu drógu tiiboð sín til baka að athuguðu máli. Voru tilboð þeirra svo lág að furðu sættí. Eftir því sem Morgunblaðið hefur fregnað mun annar að- ilinn hafa gleymt að taka með í reikninginn kostnað við þiik en hinn mun ekki hafa gætt þess að bjóða í bæði húsin saman heldur bauð bara í annað. Alls bárust 13 tilboð í bygging- arnar. Tæki á markað sem breytir svarthvítum tækjum í lit KOMIÐ er á markað í Revkja- vfk lítið handhægt tæki, sem gerir fólki klevft að sjá lit- myndir í svarthvítum tækjum. Mun hér vera um að ræða endurhót á tæki, sem kom á markað hér á landi í fvrra- haust, en með því að tengja það tæki litsjónvarpstækjum var hægt að sjá litmyndir, jafnvel þótt íslenzka sjónvarp- ið reyndi að hindra slíkt. Innflutningur á því tæki varð til þess, að hætt var að „skerma" litsendingar ís- lenzka sjónvarpsins. Nýja tækið fæst í allflestum radió- verzlunum höfuðborgarinnar og kostar frá 6.200 til 7.400 krónur, en um tvær gerðír er að ræða. Tækið hefur verið á markaði í tvo daga, og sam- kvæmt upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í verzlunum í gær, hefur gífurleg eftirspurn verið eftir tækinu, en birgðir munu vera takmarkaðar. Ennfremur hefur verið mikið að gera hjá sjónvarpstæknimönnum, þvi nokkrum vandkvæðum er bundið að koma tækinu fyrir. Orkumálastjóri: Jakob Björnsson sagði að ef áætlanir um Kröfluvirkjun ættu að standast yrði að hefja boranir þar eins fljótt og mögulegt væri. Nú er verið að ná upp stöngum, sem eru í annarri borholunni og á því verki að ljúka um páska. Þá er eftir að flytja borinn og setja hann upp, en það er tímafrekt verk. Ef borinn yrði látinn vera áfram og bora þriðju holuna, tæki það l'A—2 mánuði til viðbótar að sögn Jakobs. Jakob Björnsson sagði að vandi Akureyringa væri ekki sá eini sem starfsmenn Orkustofnunar þyrftu að leysa. Gífurleg eftir- spurn væri eftir borum stofn- unarinnar og væri reynt að sinna öllum beiðnum eins og hægt væri. Bjarni Helgason skipherra í gæzluflugi TF-SÝR í gær- morgun kom flugvélin að 7 ís- lenzkum togveiðibátum að meint- um ólöglegum veiðum á svæðinu frá Kötlutanga vestur að Þjórsár- ósum, en bátarnir voru Sævar VE 19, Suðurey VE 20, Haförn VE 23, Illugi VE 101, Helgi Bjarnason RE 82, Ólafur Magnússon ÁR 54 og Stakkur ÁR 32. Réttarhöld í rnálum skipstjór- anna á nefndum 8 fiskibátum hófust í morgun og munu réttar- höldin fara fram í 3 lögsagnarum- dæmum, Vestmannaeyjum, Sel- fossi og Reykjavík. Bjarni sagði að ekki hefðu verið tök að ná öllum bátunum, vegna þess hve svæðið var stórt. Þá sagði hann að bátarnir hefðu greinilega gert öðrum bátum við- vart, því þegar byrjað var að miða út báta á móts við Vestmanna- eyjar og síðan haldið austur úr, voru allir bátar búnir að hífa þegar vélin fór að nálgast Kötlu- tanga. Þá sagði Bjarni að þeir hefðu vitað um fleiri báta í fyrra- kvöld, m.a. einn sem þeir náðu ekki á nafni og númeri. Sá slökkti 15 tonna bátur með 14 tonn eftir einn dag ÞAÐ varð uppi fótur og fit við Vestmannaeyjahöfn í fyrra- dag, þegar mótorháturinn Skuld VE sigldi inn í höfnina. Sáu menn að báturinn var svo mikið hlaðinn að til tíðinda mátti telja, jafnvel í Vest- mannaeyjum. Skuld VE er 15 tonna bátur, og á honum tveir menn, Bergþór Guðjónsson skipstjóri og Kristinn Kristinsson. Þegar vigtað var upp úr bátnum reyndust vera í honum rétt tæp 14 tonn af fallegum fiski, þorski og ýsu. Þennan afla hafði báturinn fengið á aðeins einum degi í troll. Aflinn var lagður upp hjá Vinnslustöð- inni og voru menn að geta sér til, að hlutur hvors manns hafi verið 120—150 þús- und krónur fyrir veióiferðina. En þess ber að geta, að svona happatúrar eru afar sjaldgæfir og þeir eru margir dagarnir sem falla úr hjá svona litlum bátum vegna ógæfta og þá daga fá sjómennirnir engan hlut. Þegar verið var að landa úr Skuld varð gömlum Eyja- manni að orði: „Þetta minnir mann nú vara á vertíð- irnar í gamla daga,“ og láir honum enginn. öll ljós þegar heyrðist í fiugvél- inni og tókst honum að sleppa í myrkrinu. Einn bátur var að toga á 20 metra dýpi. „Það er anzi hart,“ sagði Bjarni, „að skipstjórar skuli nota svona tækifærið til lögbrota þegar þeir vita að við erum uppteknir við að berjast við Bretann." Dagvistunargjöld hækka um 11% FRÁ OG með deginum í dag hækka dagvistunargjöld á dag- hcimilum og leikskólum 1 Reykjavík um 11%. Dagvistunar- gjald á dagheimilum hækkar úr 9 þúsund krónum 1 10 þúsund krón- ur á mánuði og gjald á leikskól- um hækkar úr 4500 krónum í 5000 krónur. Bergur Felixson, framkvæmda- stjóri Sumargjafar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að sótt hefði verið um þessa hækkun eft- ir áramót og á grundvelli ársupp- gjörs. Hún kæmi seint og væri augsýnilegt að frekari hækkanir þyrfti aó gera til að endarnir næðu saman í rekstrinum. Raun- verulegur kostnaður við vistun barnanna er miklu hærri en fram- greindar tölur bera með sér, því ríki og bær greiða kostnaðinn nió- ur á móti aðstandendum barn- anna. Greiða ríki og bær 60% af kostnaði við dagheimilin og 40% við leikskólana. Miðað við þessar tölur er því raunverulegur kostnaður við vist- un barna á dagheimili 25 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.