Morgunblaðið - 14.04.1976, Page 2

Morgunblaðið - 14.04.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976 Jarðstöð 400 milljón kr. dýrari en sækapall Hinn nýi togari Bæjarútgerðar Reykjavfkur, Hjörleifur RE- 211 (áður Freyja), er nú farinn til veiða. Jóna Guð- mundsdóttir, eiginkona Ragn- ars Júllussonar, formanns út- gerðarráðs B.Ú.R., gaf skipinu nýtt nafn áður en það lét úr höfn og er myndin tekin við það tækifæri. Jóna gerði meira en að gefa skipinu nafn, hún sleppti Ifka landfestum þess er það sigldi frá bryggju. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. FH bikar- meistari FH sigraði Val í úrslitaleik bikarkeppni HSI f gærkvöldi með 19 mörkum gegn 17. Stað- an í hálfleik var 10:9 fyrir FH. Þá sigraði Ármann Fram f úrslitaleik kvennaflokksins með 17 mörkum gegn 15 eftir vftakastkeppni. Ellefu myndlistar- menn sýna á Akureyri Akureyri 13. apríl Ellefu myndlistarmenn efna til sýningar í Hlíðarbæ um páskana eða frá 15.—19. april. Þeir sýna þar 67 myndir, teikn- ingar, pastelmyndir, grafík, vatnslita og olíukrítarmyndir o.fl. Allar myndirnar eru til sölu. Myndlistarmennirnir eru þessir: Aðalsteinn Vestmann, Alfreð Flóki, Bolli Gústavsson, Elias B. Halldórsson. Guð- mundur Armann, Hallmundur Kristinsson, Helgi Vilberg, Kristinn G. Jóhannsson, Öli G. Jóhannsson, Þorvaldur Skúla- son og Örn Ingi. Sýningin verður opin á skír- dag frá kl. 17—22, föstudaginn langa kl. 15—22 og laugardag, páskadag og annan páskadag kl. 14—22. Sv.P. Skreiðardeild stofnuð við Verðjöfnunarsjóð Ákveðið hefur verið að stofna sérstaka skreiðardeild við Verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins og eru deildir sjóðs- ins þá orðnar fjórar, eða frystí- deild, saltfiskdeild, sildar- og fiskimjölsdeild, auk skreiðar- deildarinnar. 1 frétt frá sjávarútvegsráðu- neytinu segir, að sjávarútvegs- ráðherra hafi ákveðið, sam- kvæmt tillögu stjórnar Verð- jöfnunarsjóðs, að gefa út reglugerð um stofnun skreiðardeildarinnar. í stjórn hinnar nýstofnuðu deildar eiga sæti þeir fimm stjórnar- menn Verðjöfnunarsjóðs, sem lögum samkvæmt taka sæti í stjórn hinnar nýstofnuðu deildar og eru þeir fulltrúar skeiðarframleiðenda og skreiðarútffttjenda við sjóð- inn. — ÞAÐ hefur engin ákvörðun verið tekin um hvort sett verður upp jarðstöó hér á landi eða bætt verður við sækapli. Þetta er allt I athugun ennþá, en þegar er Ijóst að nokkuð mikill verðmunur er á þessum fyrirtækjum. Jarð- stöð mvndi kosta á milli 700—900 milljónir króna, en við höfum þegar fengið fast tilboð í sæstreng frá íslandi til Færeyja að okkar hluta og er verð hans 346 milljónir kr., sagði Jón Skúlason póst- og slmamálastjóri 1 samtali við Morgunblaðið í gær. „Sem kunnugt er hefur nokkuð verið rætt um hvorn kostinn isiend- ingar ættu að taka, en á næstunni þarf að taka ákvörðun um það, því að nauðsynlegt er að bæta við talrásum við útlönd fljótlega. Jón Skúlason sagði að þessi mál væru i athugun hjá islenzku og dönsku símamálastjórninni. Kvað Jón það rétt, að Mikla norræna ÁLFTANESIÐ er þriðja skipið af fimm systurskipum, er byggð voru í A-Þýzkalandi á slnum tfma, sem ferst. Hin eru Rafnkeil, sem fórst 4. janúar 1960, og Hafrún, sem fórst fyrir röskum mánuði. Þótt þessi þrjú skip hafi farizt telja menn að sjóhæfni þeirra hafi verið góð í upphafi, en á þeim 19 árum sem Hafrún og Álftanes hafa verið 1 notkun hér hafa verið gerðar margs konar breytingar á bátunum. M.a. hefur verið skipt um vél 1 þeim og settur á þá opinn bakki. — Þeir tveir bátar, sem enn eru ofan- sjávar af skipunum, eru Sæunn Sæmundsdóttir ÁR og Lundev RE. Hjálmar R. Bárðarson, siglinga- málastjóri, sem teiknaði þessi FISKIFRÆÐINGAR á vegum Al- þjóðahafrannsóknaráðsins telja að sfldarstofninn I Norðursjó sé 1 mikilli hættu og á fundi ráðsins, sem hefst 1 Kaupmannahöfn á næstunni, verður lögð fram-til- laga frá vinnuhóp um að stöðva þurfi veiðar næstu 2—3 árin. Jakob Jakobsson fiskifræð- ingur sat undirbúningsfund þennan í Kaupmannahöfn. Hann NVLEGA var safnað undir- skriftum 1 Efstalandshverfi f Kópavogi á meðal fbúa hverfisins f þeim tilgangi að ýta undir það að bæjaryfirvöld hröðuðu fram- kvæmdum við gerð leiksvæða og gæzluvalla. Um 300 undirskriftir söfnuðust og má gera ráð fyrir — að þvf er segir í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum undir- skriftasöfnunarinnar — að um 99% fbúanna hafi ritað nafn sitt f þessum tilgangi. Fulltrúar undirskrifenda gengu ætti kapla þá er nú lægju frá islandi til Færeyja af pðirri ástæðu að íslenzka ríkið hefði ekki kosið að gerast eignaraðilji að hálfu á sínum tíma, en það væri venja. Að sögn Jóns á nú aðeins eftir að kanna betur hvort borgar sig betur, jarðstöð eða nýr kapall. is- lendingar yrðu ekki óháðir öðrum löndum hvað verð samtala snertir, þótt jarðstöð yrði sett upp, en jarðstöð hefði þann kost i för með sér að hægt væri að fá mikið af sjónvarpsefni um hana sem reyndar kostaði mikið. Norðurlandaþjóðirnar reka í sameiningu eina jarðstöð, sem er í Tánum í Svíþjóð. Nú stendur til að byggja aðra stöð á sama stað og þá hafa Norðmenn byggt jarðstöð sem notuð er til símtala við olíu- borpalla í Norðursjó. Kvað Jón þá stöð vera japanska, og sér væri skip á sínum tíma, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, að þegar bátarnir hefðu verið byggðir fyrir tuttugu árum hefðu verið gerðar á þeim stöðugleikaprófanir, sem voru strangari en krafizt var þá. „Siðan þessi skip komu til landsins hafa verið gerðar á þeim margar breytingar, t.d. var búið að skipta um vél I Álftanesi: í skipinu var þungbyggð 280 ha. MWM-vél, um 10 lestir að þyngd, en um borð fór 495 ha. Cummings-vél, um 3 lestir að þyngd. Svona nokkuð raskar stöðugleikapunkti ekki stærra skips mjög mikið. Einnig var búið að setja á það opinn „bakka“, en við hjá Siglingamálastofnuninni höfðum ekki minnstu hugmynd sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að fiskifræðingar teldu þennan stofn nú í geigvænlegri hættu og nauðsynlegt að friða hann. Hins vegar væri nokkuð erfitt að stöðva veiðarnar með öllu, þar sem alltaf veiddist nokkuð af smásíld með brislingi. Enn hefði ekki tekizt að safna nægum gögnum um hegðan smá- síldarinnar f Norðursjó og því síðan á fund bæjarritarans í Kópavogi síðastliðinn mánudag. Lögðu þeir fram listann með þeirri ósk að nú þegar yrði hafizt handa um framkvæmd við leik- svæði. Bentu fulltrúarnir á að bráðlega yrði hverfið um eitt þús- und manna byggðarlag, þar sem hvorki væri félagsleg aðstaða fyrir börn eða fullorðna. Þá bentu fulltrúarnir einnig á að nauðsynlegt væri að koma upp lýstri zebrabraut yfir Nýbýlaveg, sem er umferðargata sem liggur um hverfið. ekki kunnugt um verð hennar, en verð á amerískum stöðum væri nú 4,5—5 millj. dollara. Þá sagði Jón, að það væri mikill misskilningur að talsímagjöld frá islandi væru 5 sinnum dýrari en víðast hvar í Evrópu. Því væri ekki að neita að gjöldin hér væru hærri, og væri það eðlilegt. Það væri ekki hægt að bera saman kerfi í Evrópu með þús- undum rása og kapla milli íslands og Færeyja með fáum rásum. Það kostaði jafn mikið að gera við bilanir hvort sem um þúsundir rása væri að ræða eða fáar eins og i umræddum köplum. Póst- og simamálastjóri sagði ennfremur, að það væri mjög mis- jafnt hvort lönd veldu sér jarð- stöðvar eða sækapla. T.d. væri nú verið að leggja 4000 rása sækapal milli Frakklands og Bandarfkj- anna. um þessar breytingar," sagði Hjálmar. Þá sagði siglingamálastjóri að orkumunur vélanna hefði verið mikill og breyttist skipið einnig i meðförum við að fá meiri orku. Hjálmar sagði ennfremur, að mjög lítið rými hefði verið lokað ofan dekks á þessum bátum, þannig að lítið flot væri í þeim þegar sjór gengi inn á þá og hefði þetta versnað mikið með því að setja á þá opinn bakka. Siglingamálastjóri sagði, að það væri lagabrot að tilkynna ekki Siglingamálastofnuninni um allar breytingar á skipum. Þeir yrðu að treysta þvf, að skipstjórar, vél- stjórar og vélsmiðjur tilkynntu um allar breytingar, en á þvi væri mikill misbrestur. Ráðherra væri nú búinn að skrifa undir nýja reglugerð um stöðugleika fiski- skipa sem tæki gildi alveg á næst- Framhald á bls. 18 væri ekki vitað á hvaða tfma hún héldi sig með brislingnum. Þá sagði Jakob að nú væri hrygningarstofn sildarstofnsins í Norðursjó talinn vera 220—230 þúsund lestir, en fyrir örfáum árum hefði hrygningarstofninn verið talinn vera um milljón lestir, sem fiskifræðingar teldu vera hans eðlilegu stærð. i textanum, sem íbúarnir undir- rituðu, er talað um neyðarástand í þessum málum I hverfinu, þar sem samkvæmt fbúaskrá væru 887 fbúar í hverfinu, þar af 273 börn undir 10 ára aldri. Þar segir ennfremur að eina leiksvæðið, sem fbúar hverfisins eigi völ á sé við Þverbrekku, en þar eru að sögn gæzlukvenna 60 til 70 börn á vorin, en 80 til 90 á sumrin. Því krefst fólkið þess að tvö leiksvæði verði í hverfinu þ.e.a.s. bæði í „Hjöllum" og „Hólmum" Steingrímur með „Konu á hestbaki” STEINGRÍMUR Sigurðsson, listmálari, opnar málverkasýn- ingu kl. 9 í kvöld, miðvikudag, í Eden í Hveragerði. Sýnir hann 50 málverk, sem hann hefur málað austan Fjalls frá sl. hausti. Sýningin verður yfir páskana. Hér er Steingrímur með eina mynd sína, Kona á hestbaki, en hestar hafa verið listamannin- um hugleikið viðfangsefni að undanförnu. Þau mistök urðu í blaðinu í gær, að sagt var að sýningin yrði opnuð þá um kvöldið. Leiðréttist það hér með. Óhressir Bretar undan Vestfjörðum ALLUR brezki togaraflotinn var kominn á Vestfjarðamið í gær. Togararnir voru alls 27, þar af voru 14 vió Víkurál. Um hádegisbil f gær var komið vonzkuveður á Vestfjarða- miðum og urðu togararnir að hætta veiðum þá. Einn þeirra ætlaði að leita landvars, en varðskip varð vart við hann og rak hann strax út. Skipstjórar togaranna kvarta mikið undan lélegum afla og sigla fram og til baka. Er haft eftir þeim, að ef þeir fengju leyfi myndu þeir færa sig suður fyrir land, þar sem íslenzki fiskiskipaflotinn heldur sig að mestu. Austfjarða- sjómenn felldu SJÓMENN hafa nú greitt at- kvæði um sjómannasamning- ana á Austfjörðum. Við sam- eiginlega atkvæðagreiðslu felldu sjómenn samningana með 132 atkvæðum gegn 19. Einn atkvæðisseðill var ógildur og annar auður. i gær voru útvegsmenn og sjómenn kallaðir á fund sátta- semjara og þar var útvegs- mönnum skýrt frá niður- stöðum atkvæðagreiðslunnar. Ekkert markvert annað gerðist á fundinum. Ingólfur Arnarson með 240 lestir AFLI togara, sem gerðir eru út frá Reykjavík, hefur verið all- sæmilegur síðustu daga. Ingólfur Arnarson landaði um 240 lestum í gær af góðum fiski. Og Snorri Sturluson landar nú um 180 lestum. Siglingamálastjóri: Hættulegt að breyta stöðugleika skipanna Siglingamálastofnuninni ekki tilkynnt um vélarskipti og breytingar á skipum Fiskifræðingar: Vilja síldveiðibann í Norðursjó næstu 2-3 ár Kópavogsbúar krefjast leiksvæða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.