Morgunblaðið - 14.04.1976, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.04.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976 15 Hans G. Andersen á hafréttarráðstefnu: Landlukt og landfræði- lega afskipt ríki setja fram öfeakenndar kröfur HANS G. Andersen, sendiherra, flutti eftir- farandi ræðu í 2. nefnd á Hafréttarráðstefnunni í fyrrakvöld: Herra formaður, Sendinefnd íslands mundi heldur hafa kosið að nota þagnarregluna í umræðunum um 57.—59. grein og láta þannig í ljós að við styðjum þær greinar eins og þær nú eru i frumvarpinu. En vegna þeirra ummæla, sem fram hafa komið hér i nefndinni og vegna þess, hversu sumar þær tillögur, sem fram hafa komið, eru fjarri iagi, telur sendinefndin nauð- synlegt að skýra afstöðu sína nánar. Ég vil þess vegna leggja áherzlu á nokkur grundvallar- atriði. Grundvallarsjónarmið ís- lenzku nefndarinnar er, að sjálft hugtakið efnahagslögsaga feli i sér, að strandrikið hafi fullveldisrétt yfir auðlindunum á svæðinu, svo sem fram kemur i 45. grein. Að því er varðar lifrænar auðlindir mundu önn- ur ríki hafa aðgang að þvi, sem umfram kynni að vera — og í mörgum tilvikum mundi þar vera um mikið magn að ræða — samkvæmt tvihliða samn- ingum, sem gerðir yrðu í þvi skyni og gegn leyfisgjöldum og öðrum ákvæðum. Heildarkerfið er byggt á þessum sjónarmið- um. Nú er hér fjallað um sérstak- ar kröfur landluktra og land- fræðilega afskiptra ríkja. Sam- kvæmt núverandi orðalagi 57. greinar erú þessi sérstöku rétt- indi að meginstefnu til miðuð við aðgang að efnahagslögsögu- svæði aðliggjandi ríkja fyrir landlukt ríki, sem eru þróunar- lönd, og að því er varðar þróuð riki þá nálæg svæði þróaðra ríkja. Og samkvæmt 58. grein eru sérstök réttindi miðuð við þróunarriki á nálægum svæð- um. Svo sem ég hef þegar tekið fram er sendinefnd íslands sammála þessum ákvæðum. Við teljum, að þau séu sanngjörn og réttlát. En nú hafa landlukt og land- fræðilega afskipt ríki sett fram þær öfgakenndu kröfur, sem lagðar voru fram hér i nefnd- inni sl. föstudag. Þessar kröfur eru ekki takmarkaðar við þró- unarríki eða kröfur þróaðra landluktra ríkja á nálægum svæðum né eru þær heldur tak- markaðar við það magn, sem umfram kann að verða. Nú taka kröfurnar einnig til þróaðra ríkja, sem fara fram á aðgang að auðlindum strandrikisins á svæðagrundvelli, þannig að um jafnrétti sé að ræða við þegna strandrikisins eða að um sann- gjörn réttindi sé að ræða. Sendinefnd íslands telur það litt skiljanlegt, hvers vegna Hans G. Andersen þróunarrikin álita það nauðsyn- legt eða jafnvel æskilegt að leggja til jafns hinar mjög svo sanngjörnu kröfur, sem þau hafa og ósanngjarnar kröfur þróaðra ríkja, sem eru allt annars eðlis. Skoðun islenzku sendinefndarinnar er sú, að þessi málsmeðferð sé einungis til þess fallin að grafa undan kröfum þróunarríkjanna, gera aðstöðu þeirra veikari og leiða til afleiðinga, sem engan rétt eiga á sér. Til þess að gera málið ljósara get ég tekið Is- land sem dæmi. Ef byggt er á svæðagrundvelli í stað þess að ræða um aðlæg eða nálæg lönd, eins og nú hefur verið lagt til, mundu ekki aðeins landlukt riki i Evrópu — eins og t.d. Sviss — geta farið fram á að- gang til veiða innan íslenzku fiskveiðimarkanna ( og við skulum ekki gleyma því að svissnezkir auðhringar standa nú að veiðum undan ströndum Noregs) heldur einnig þróuð landfræðilega afskipt ríki, sem hafa áður stundað veiðar þar. Þannig mundu háþróuð ríki í Evrópu væntanlega gera slíkar kröfur, þ.e. að fara fram á að- gang að íslenzkum fiskimiðum, sem eru þær einu auðlindir, sem við höfum yfir að ráða. Ef svo væri staðið að málum, mundum við hafa fært út fisk- veiðimörkin í samræmi við meginregluna í 45. grein, en jafnframt misst af þeim hags- munum, sem við það eru bundnir samkvæmt 57. og 58. grein. Með öðrum orðum mætti lýsa þessu þannig að við mundum hafa 200 milna efna- hagslögsögu að frádregnum 188 mílum. Ef hugmyndin væri sú að þróuð landfræðilega afskipt ríki, sem stundað hafa veiðar innan efnahagslögsögu rikja á svæðinu eigi rétt á að halda þeim veiðum áfram, til hvers er þá útfærslan og hvað hefur þá orðið af fullveldisrétti strand- ríkisins yfir hinum lifrænu auðlindum? Að því er ísland varðar mundi slikt ástand vera algjörlega fráleitt og þessar til- lögur eru því óaðgengilegar. Svæðafyrirkomulagið getur verið og mundi vafalaust vera sanngjarnt meðal þróunarrikj- anna, þar sem þróunarríki hafa komið sér saman um slíkt kerfi sín á milli. En fyrir þróuðu rikin í Evrópu .mundi slíkt fyrirkomulag sem sagt vera frá- leitt. Að lokum vil ég segja, herra formaður, að þær öfga- kenndu kröfur, sem nú hafa verið settar fram, eru ekki til þess fallnar að auðvelda sam- komulag og ef þeim er haldið fram gætu þær eyðilagt mögu- leikana á hafréttarsáttmála. Þessi aðferð að leggja til jafns sanngjarnar kröfur þróunar- ríkja og óraunhæfar kröfur þróaðra ríkja er einungis til þess fallin að skaða málsstað þeirra þróunarþjóða, sem sér- staklega stendur á um, vegna þess að ef ekkert verður úr hafréttarsáttmála mundu þær tapa mestu. Slik niðurstaða mundi hvorki vera réttlát né sanngjörn. En hvað sem þvi líður mun sendinefnd íslands ekki á nokkurn hátt standa að þeim öfgafullu kröfum, sem nú hafa verið lagðar fram. Að því er varðar greinarnar 57—59 mun- um við nú snúa okkur aftur að þagnarreglunni og láta þannig i Ijós að við munum halda áfram að styðja orðalag frumvarpsins. enda þótt við munura hafa opin Framhald á bls. 18 Nýtt mútuhneyksli í uppsiglingu: Shell játar greiðslur til ítalskra stjórnmálaflokka London 13. apríl — Reuter. FJÖLÞJÓÐAFYRIRTÆKIÐ Shell Oil viðurkenndi i dag að hafa greitt Itölskum stjórnmála- flokkum um 500,000 sterlings- pund á árunum 1969 til 1973 með milligöngu dótturfyrirtækis síns á Italiu. Shell Italiana. Þessi játning kom f kjölfar frétta sem birtust f brezkum fjölmiðlum um helgina þess efnis að Shell og annað stórt olfufélag, British Petrolium, BP, hefði sent ftölsk- um stjórnmálaflokkum slfkar fjárfúlgur. Þykja fréttir þessar æði auðmýkjandi fyrir brezku rfkisstjórnina þar eð hún ræður yfir um 70% hlutafjár í BP, en um 40% hlutabréfa ensk- hollenzka Shell er f höndum brezkra aðila. BP hcfur hingað til aðeins neitað þvf að hafa haft rangt við og sagt að ekkert nýtt kæmi fram f þessum ásökunum. Viðurkenning Shell á greiðslum þessum var f dag ákaft varin af formanni Shell Transport and Trading, Sir Frank McFadzean. „Ég tel að hér hafi verið ráðizt að óþörfu á félögin," sagði hann. Hann kvaðst lfta svo á að kröfur um pólitiskar og annars konar peningagreiðslur væru óhjá- kvæmilegar í vissum löndum. Hann kvartaði yfir því að ekki hefðu sams konar greiðslur innan annarra atvinnugreina verið blásnar jafn mikið upp. „Því fyrr sem látið verður af öllum pólitisk- um peningagreiðslum, hvort sem þær eru sjálfviljugar eða þeirra krafizt, því betra.“ 1 yfirlýsingu Shell sem gefin var út í London og Haag í dag, var sagt að stjórnmálaflokkarnir sem notió hefðu góðs af þessum greiðslum væri hvorki öfgaflokk- ar til hægri né vinstri. Hefðu þær farið gegnum nefnd úr flokk- unum sjálfum, sem síðan hefði veitt þeim áfram til dagblaða og upplýsingaskrifstofa í tengslum við flokkana. Lögð var áherzla á að engar greiðslur hefðu farið beint til italskra embættismanna. Spænskir lögreglumenn Iáta til skarar skríða. 87 Baskar handteknír Madrid 13. apríl — Reuter SPÆNSKA lögreglan óttast að skæruliðar úr þjóðernissinnahrevfingu Baska muni myrða tvo spænska rannsóknarlögreglumenn, sem hafa horfið I Frakklandi i hefndarskyni fvrir þá herferð sem hafin hefur verið gegn hreyfingunni á Spáni. Mennirnir tveir hurfu I landamæra- bænum Hendaye fyrir átta dögum, — og er talið að skæruliðasamtök Baska, ETA hafi rænt þeim. Lögreglan á Spáni hefur handtekið 87 meinta félaga i ETA og stuðningsmenn hrevfingarinnar, þ.á m. þrjá menn sem sagðir eru bera ábvrgð á því að hafa rænt og mvrt auðmanninn Angel Berazadi. Innanríkisráðuneytið bannaði að birtar yrðu fréttir af handtök- um þessum í heilan sólarhring í von um að takast mætti að hand- taka fjórða manninn sem aðild átti að ráninu á Berazadi. Sá maður, sem sagður er vera aðeins 17 ára að aldri, á að hafa myrt Berazadi, og hefur enn ekki náðst til hans. Talið er að handtökur þessar séu mikið áfall fyrir ETA sem berst fyrir þvi að komið verði á sósialisku lýðveldi í Baska- héruðunum á Norður-Spáni. Anægja með ferð Vorsters — bæði í Pretoriu og Jerúsalem Pretoriu, Jerúsalem 13. apríl — Reuter JOHN Vorster, forsætisráðherra Suður-afrfku, kom í dag heim eftir fyrstu heimsókn suður- afrísks forsætisráðherra til tsra- els í 24 ár og f höfuðborginni Pretórfu er almennt talið að ferð- in hafi verið mikill sigur í við- leitni Suður-Afrfkustjórnar til að rjúfa einangrun landsins. Jafnvel Olíuborun hefst senn við Alaska Anchorage 13. apríl—NTB BANDARÍSK stjórnvöld eru nú f þann veginn að selja réttindi til olfuborunar f Alaskaflóa fyrir vfir 30 milljarða fsl. króna. Meira en 70 olfufélög, þ. á m. öll hin stærstu, hafa lagt inn um- sóknir til borunar á 189 mismunandi svæðum á yzta hluta landgrunnsins. Talið er að mjög erfitt muni revnast að bora eftir olíu á þessu svæði vegna þess að þar eru tiðir storm- ar og veður vond á borð við það versta á Norðursjónum. Mikil andstaða hefur verið í Al- aska gegn því að hefja oliuborun svo snemma og landstjórinn hef- ur hvatt til. þess að henni verði frestað í að minnsta kosti þrjú ár til að afla megi frekari vitneskju um hvernig bezt megi standa að olíuborun við svo erfið skilyrði. Engu að síður var í gær ákveðið að borun gæti nú hafizt. ■ ■■ 1 ERLENT, stjórnarandstæðingar og málgögn þeirra fóru lofsamlegum orðum um heimsóknina og það efnahags- lega, vfsindalega og iðnaðarlega samkomulag sem gert var f henni milli tsraels og Suður-Afríku. Embættismenn í Israel lýstu einnig ánægju sinni með heim- sóknina og telja að löndin tvö muni nú vinna nánar saman en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir, að þvi hafi verið neitað af beggja hálfu að til viðræðu hafi m.a. verið vopnakaup, ýtti löng heim- sókn Vorsters í herflugvélaverk- smiðjur Israels engu að síður undir sögusagnir um að Suður- Afríkustjórn hefði mikinn áhuga á að kaupa ísarelskar orrustuþot- urnar Kfir. Búizt er við, að sam- komulagið muni leiða til mikillar aukningar í gagnkvæmum við- skiptum landanna, sameigin- legum verkefnum þar sem notað yrði israelskt vinnuafl og suður- afrísk hráefni, og frekari visinda- samvinnu. Sett verður á fót sér- stök ráðherranefd beggja sem á að koma saman a.m.k. árleg til að f jalla um samskipti landanna. Lofthelgisbrot af misgáningi Tel Aviv 13 april—Reuter SUÐUR-arabísk herflugvél sem í gær var neydd til að lenda i ísrael af því að hún var í israelskri lofthelgi fékk í morgun að halda frá Ben Gurion-flugvellinum í Tel Aviv með farþega og áhöfn innan- borðs. Öryggiseftirlitið í Israel yf- irheyrði þá sem í vélinni voru og komst að þeirri niðurstöðu að loft- helgisbrotið væru mistök ein. Meðal þeirra sem voru um borð voru þrír Bandarikjamenn sem kváðust vinna fyrir Lockheed- flugvélaverksmiðjurnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.