Morgunblaðið - 14.04.1976, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.04.1976, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976 JMtarguiiIrfafcifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiSsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100 Aðalstræti 6, sfmi 22480. Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 50,00 kr. eintakið Hinn 26. marz síð- astliðinn birti Mor&un- blaðið forystugrein í tilefni af fregnum, sem þá höfðu borizt um verðhækkanir á Bandarikjamarkaði og þýð- ingu þeirra fyrir pjóðar- búið og afkomu lands- manna. í forystugrein þessari sagði m.a.: „Þessi verðhækkun fiskblokkar á Bandaríkjamarkaði varpar nokkurri birtu gegnum sorta efnahagsvandans, sem byrgt heíur þjóðinni sýn til batnandi lífskjara um mjssera skeið. Engu að síður er ástæða til að hvetja þjóðina til að ganga hægt um gleðinnar dyr, því verð fiskafurða okkar á Bandaríkjamarkaði er háð framboði og eftirspurn og erfitt er að spá í stöðug- leika þessara verðhækk- ana. Vaxandi eftirspurn í Bandaríkjunum eftir góð- um fiski vekur að vísu von- ir um stöðugleika verðs- ins.“ í þessari sömu forystu- grein Morgunblaðsins sagði ennfremur: „Verð- hækkun fiskblokkar á Bandaríkjamarkaði er fyrsti sólargeislinn um langt skeið í milliríkjavið- skiptum okkar. Hún ætti að styrkja nokkuð erfiða rekstrarstöðu fyrirtækja í fiskiónaði. Ástæóa er til að fagna þessari þróun en vara jafnframt við of mik- illi bjartsýni og slökun á nauðsynlegum aðhalds- aögerðum í efnahagsmál- um okkar. Hún ætti og aó skerpa skilning okkar á þýðingu þessa langstærsta og hagkvæmasta markaðar islenzkra útflutningsvara.“ Daginn áóur en þessi for- ystugrein var birt í Morgunblaðinu, birtist sem aðalfrétt á baksíðu blaósins frásögn af þvi, aö fiskblokk hefði hækkað um 20% á Bandaríkjamarkaði og að hér væri um verð- mætaaukningu að ræða, sem skipti hundruðum milljóna krória. í því sam- bandi ræddi Morgunblaðið við talsmenn Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna og sjávarafurðadeildar Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga, ennfremur við forstjóra dótturfyrir- tækis Sambandsins í Bandaríkjunum. Sama dag og Morgunblaðið birti for- ystugrein þá, sem hér hefur verið vitnað til, birt- ist frétt á baksíðu Morgun- blaðsins þess efnis, að útlit fyrir sölu á skreið hefði ekki verið jafngott í langan tima og að fást mundu allt að 700 krónur fyrir kíló af skreið í Nígeríu. Fyrir nokkrum dögum, eða tveimur dögum eftir að fulltrúar SÍF komu úr sölu- ferð, skýrði Morgunblaðið frá stórum saltfisksölu- samningi, sem geröur hafði verið i þeirri söluferð og því verði sem samið var um fyrir saltfiskinn. Meðan á loðnuvertíóinni stóð aflaði Morgunblaðið alltaf við og við upplýsinga fyrir les- endur sína um verð á loðnumjöli og loðnulýsi, sem er mjög breytilegt, eins og allir vita, og þá skiptir að sjálfsögðu mestu á hvaða verði loónuafurðir okkar hafa verið seldar, en verulegt magn þeirra er selt fyrirfram. Ástæóan til þess, að þessar fréttafrásagnir Morgunblaðsins eru rifjað- ar upp og vitnað er í for- ystugrein, sem rituð var fyrir allmörgum vikum um áhrif verðhækkana á afkomu okkar íslendinga, er sú, að nú að undanförnu og síðast í forystugrein síðastliðinn laugardag-, hefur Þjóðviljinn haldið því fram, að þau dagblöð sem styöja núverandi ríkis- stjórn hafi reynt að „fela“ fréttir um þessar veró- hækkanir. Þannig segir í upphafi forystugreinar Þjóóviljans á laugardag: „Á sama tima og stjórnar- blöðin hafa eytt saman- lögðum blaðakosti sínum i það að telja fólki trú um, að allt væri i kalda koli á fisk- mörkuðum íslendinga þegja þau auðvitað vand- lega um allar þær fréttir, sem birtast og afsanna ger- samlega þessar fullyrð- ingar. Bendir nú margt til þess, að ástandið á fisk- mörkuðum landsmanna erlendis hafi aldrei verið betra en einmitt nú. Þjóð- viljinn hefur greint frá þessum fréttum sem stjórnarblöðin reyna að fela síðustu dagana." Og enn segir Þjóðviljinn i for- ystugrein þessari: „Öll þessi atriöi sýna að sjávar- útvegurinn skilar auknum gjaldeyristekjum, sem ættu siðan að geta komið atvinnuvegum og launa- fólki til góóa, ef rétt væri á spilunum haldið. En núver- andi ríkisstjórn hefur ekki þá stefnu, hún lætur mál- gögn sín flytja ósannindi af hinum alþjóðlegu mörkuð- um til þess að koma í veg fyrir að kaupið í landinu hækki.. ..“ Eins og sjá má af þess- um tilvitnunum i forystu- grein Þjóðviljans held- ur blaðið því fram, að t.d. Morgunblaðió hafi þagað um þær verðhækk- anir, sem orðið hafa á undanförnum vikum og mánuðum á erlendum mörkuðum á útflutn- ingsafurðum okkar íslend- inga. Hér er auðvitað um helber ósannindi að ræða, eins og ofangreindar til- vitnanir í forystugrein Morgunblaðsins og frétta- frásagnir af verðhækkun- um glögglega sýna, þar sem þær „afsanna gersam- lega“ fullyrðingar og ósannindi Þjóðviljans í þessum efnum. Raunar er sönnu nær að segja, að Þjóðviljinn hafi orðið flestum blöóum seinni til að birta frásagnir af þess- um verðhækkunum, þar sem blaðið er nú um þessar mundir að skýra lesendum sínum frá verðhækkunum, sem Morgunblaðið greindi frá síðari hluta marz- mánaóar. En nóg um ósannindi Þjóðviljans. Þau dæma sig sjálf. Aðalatriðið er, að þær verðhækkanir, sem orðið hafa á útflutningsafurðum okkar gefa vonir um, að íslenzkt efnahagslíf muni á næstu misserum ná sér upp úr þeim öldudal, sem það hefur verið í, frá því snemma á árinu 1974, þegar áhrifa verðlækkana á útflutningsafurðir og verðhækkana á innflutn- ingsvörur fór að gæta. En þótt nokkuð hafi birt til á þessu sviði, er ástæða til að ítreka það sem sagt var í forystugrein Morgunblaðs- ins hinn 26. marz síðastlið- inn: Þessar verðhækkanir eigum við að sjálfsögðu að nota til þess að koma betri skipan á efnahagsmál okkar. Það væri hið mesta glapræði, ef þjóðin gripi nú til þess að eyða umsvifa- laust þeim tekjuauka, sem við fáum vegna þessara verðhækkana. Nú skiptir mestu að nota þann tekju- auka til þess að koma efna- hagsmálum landsmanna á ný á heilbrigðan grundvöll. Ósannindi Þjóðviljans iNeitrJjJork Simc0 jNeitrJJork&htte# ;NTeUrJlork(2imc$ JícarJJorkStme$ iNeiu JJorkSmnc^ jNeUrJJorkemnctf Kúbumenn hugsjónamenn eða skósveinar Rússa? LONDON— Um allan heim leita menn nú svars viö þeirri brennandi spurningu, hvort hersveitir Kúbumanna, sem fyrir skömmu tryggðu MPLA sigur í Angóla hafi tekið á sig ómakið vegna ákefðar Fidels Castros í að stuðla að byltingum í þriðja heiminum eða hvort þeir hafi látið stjórnazt af hagsmunum bandamanna hans í Sovét- ríkjunum og gerzt málaliðar þeirra til að stuðla að valda- jafnvægi í heiminum þeim í hag. Ef þeir eru á mála hjá Rúss- um og þjóna hagsmunum þeirra í einu og öllu er það stórháskalegt fyrir Bandaríkja menn. Kúbumenn geta og hafa reyndar þegar látið að sér kveða víða um heim, og Rússar hafa séð þeim fyrir birgðum og vopnabúnaði. Með þessu móti geta þeir unnið að framgangi hagsmuna- mála Rússa á meðan stjórnvöld í Kreml þykjast halda í heiðri ákvæði Helsinki sáttmálans, sem þeir unnu sjálfir að að fá samþykktan sl. sumar. A hinn bóginn er harla ólíklegt, að Rússar þori að etja Kúbumönn- um út í leiki, sem hætt væri við að reitt gætu Bandaríkjamenn til reiði. Þj myndu Bandaríkja- menn ef til vill drepa sig úr þeim dróma, sem þeir hafa hvílt í um skeið, og látið sig litlu varða þróun mála á Vest- urlöndum. En ef þannig er i pottinn búið sem mig grunar að sé, að sveitir Castros berjist umfram allt í þágu heimsbyltingarinnar, en ekki fyrir Rússa eingöngu, þá gæti vel svo farið að þeir skytu upp kollinum í heimshlutum, sem Bandaríkjamönnum er hreint ekki sama um, svo sem í löndum Rómönsku Ameríku þar sem Henry Kissinger var nýlega á ferð, eða jafnvel í löndum, þar sem Bandaríkja- fáni blaktir við hún, t.d. við Panamaskurð eða í Puerto Rico. Þá myndi nú hitna ræki- lega í kolunum. Margt bendir til þess að Castro, sem er hálfgerður nýgræðingur á sviði kommúnismans, samanborið við aðra kommúnistaleiðtoga, setji hugmyndafræðileg sjónar- míð ofar d'ægurþrasi og stundar hagsmunum, og af þeim rótum séu runnar ýmsar hernaðarað- gerðir Kúbumanna víða um heim, ekki aðeins í Angóla, heldur einnig í Alsír, Sýrlandi, Kongó, Gíneu, Gíneu-Bissau, Sómalíu Suður-Yemen og jafnvel Öman, svo að ekki sé minnzt á aðgerðirnar á síðasta áratug í Zaire, Dóminikanska- lýðveldinu, Venezu da, Panama og Bólivíu. Castro er greinilega stoltur af afrekum Kúbumanna á hernaðarsviðinu, sem eru í rauninni einstæð fyrir van- þróað land, er hefur aðeins tæpra 10 irtilljónir íbúa. Hann gumar af þeim stuðningi, sem hann hefur látið I té og lofar að styðja „framsæknar ríkis- stjórnir og byltingaröfl" hvar sem er í heiminum. Og hann bætir við: — Þjóð okkar tilheyrir ekki einungis Rómönsku-Ameríku heldur einnig Rómönsku-Afríku: í æðum okkar rennur afrískt blóð. Og kúbanskir hermenn fóru reyndar sinn fyrsta meiri- háttar leiðangur alla leið til Alsír á sínum tíma, og Che Guevara sálugi gerði sitt ítrasta til að efla andstæðinga Mobutus í óeirðunum í Kongó, sem nú heitir Zaire, árið 1965. Það var ekki fyrr en síðar að hann fór til Rómönsku Ameríku og hóf hin örlagaríku afskipti sín af málefnum Bólivíu. Afskipti Kúbumanna af málefnum Afríku og jafnvel Mið-austurlanda, fara greini- lega ekki í bága við hagsmuni Rússa. Ef hlutirnir ganga úr- skeiðis, geta Rússar hæglega látið þá lönd og leið. En ef her Castros, sem er nýkominn frá Angóla, fer skyndilega að láta til sín taka i Rómönsku- Ameríku myndi það vafalaust kalla fram mótmæli af hálfu Rússa, sem vilja alls ekki magna viðsjár með Bandaríkja- mönnum og Kúbumönnum um þessar mundir. Það er Rússum áreiðanlega mjög í hag, að Kúbumenn séu önnum kafnir við afskipti af ríkjum fjarri Vesturiöndum og áhrifasvæði Bandaríkjanna. Með þvi móti vinna þeir hags- munum Rússa gagn án þess að eiga það á hættu að reita Bandaríkjamenn til reiði. En hugsjónarmaðurinn og Kúbu- maðurinn Castró hefur vita- skuld mestan áhuga á grann- ríkjum sínum í Rómönsku Ameríku, því að þrátt fyrir skyldleika við hina „Rómönsku- Afríku” tilheyra Kúbumenn þó umfram allt Römönsku- Ameríku. Enda þótt Castró hafi afskipti af málefnum furðumargra Afríkuríkja víða um álfuna, frá Angóla til Gíneu og frá Somalíu til Yemen, hefur hann eigi að síður haft tök á að halda úti herliði í Guayana og við landa- mæri Venezuela. Auk þess sjá Kúbumenn um þjálfun flug- manna frá Perú á flugbækistöð skammt frá Havana. Castró hefur ekki misst sjónar af draumsýninni um „frelsun“ Rómönsku-Ameríku, sem vald- hafar í Kreml skipuðu honum Eftir C.L. Sulzberger að varpa frá sér, þegar þeir töldu hyggilegra að hætt yrði við allan hernað við bæjardyr Sam frænda. Fyrir rúmlega hálfu ári settu Kúbumenn á svið alþjóðlega ráðstefnu til að styðja það að Puerto Rico-menn hlytu sjálf- stæði . A ráðstefnunni kom eftirfarandi fram: „Við munum aldrei sleppa hendinni af bræðrum okkar í Puerto Rico, enda þótt það kunni að kosta aldalöng vinslit við Bandaríkja- menn.“ Fyrir skömmu kom þjóðarleiótogi Panama, Torrijos hershöfðingi í heim- sókn til Kúbu, og var hann þar hvattur til að knýja enn frekar á um að þjóðin fengi full yfir- ráð yfir Panamaskurði og Bandaríkjamenn yrðu á brott með öllu. Ef það er rétt, að Castro sé umfram allt hugsjónamaður og vilji einskis svífast til að vinna byltingunni gagn, hvar sem því verði við komið hlýtur aó koma að því að hann virði að vettugi heilræði og viðvaranir Rússa og láti til skarar skríða i Rómönsku-Ameríku enn á ný. Castro hefur nú um 120.000 manns undir vopnum, og einn sjötti þess herafla, menn úr landher, flugher og flota, er nú erlendis. Eins og sakir standa er ekki gert ráð fyrir því að þessar herskáu sveitir verði kvaddar í nýjan leiðangur nær heimkynnum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.