Morgunblaðið - 14.04.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1976
19
Aukin starfsemi Ferðaleikhússins:
„Bjartar nætur” — létt
kvöldskemmtun í apríl og maí
Ferðaleikhúsid, sem þau
Kristfn Magnús Guðbjartsdótt-
ir og Halldór Snorrason stofn-
settu I desember árið 1965,
hyggst nú færa út kvfarnar og
efna til starfsemi allt árið um
kring. Er fyrirhugað að færa
upp létta kvöldskemmtun fvrir
tslendinga f leikhúsi Loftleiða-
hótelsins og verður fyrsta for-
sýningin, sumardaginn fyrsta
kl. 21.00 en áætlað er að hafa
fjórar sýningar f viku hverri
eftir það til 31. maf, þ.e. á
fimmtudags-, föstudags-, laug-
ardags- og sunnudagskvöldum
og verða sýningar því 24 tals-
ins.
í viðtali við Morgunblaðið um
þessa nýju starfsemi sagði
Kristin Magnús Guðbjartsdótt-
ir, að fyrstu þrjár sýningar kall-
aði hún forsýningar en þá
fjórðu frumsýningu. Sýning-
arnar bera heitið „Bjartar næt-
ur.“ Þetta eru fimmtán stutt
atriði, sem eiga að koma áhorf-
endum í sumarskap. Islenzk
skáld hafa á öllum öldum ort og
skrifað mikið um vortímann,
sem ekki er undarlegt eftir
langan og harðan vetur eins og
við megum búa við hér á hjara
veraldar, sagði Kristín Magnús.
Áætlað er að hafa þessar sýn-
ingar, „Bjartar nætur“, með
fjölbreyttu efni ár hvert. Það er
frá sumardeginum fyrsta til 31.
mai. Ég vona að þetta verði
fastur liður hjá fólki, segir
Kristín Magnús. Ekki veitir af
góðri upplyftingu eina bjarta
sumarkvöldstund eftir allt
skammdegið. Tilgangur Ferða-
leikhússins er jafnframt með
þessum sýningum að kynna ný
verk. Að þessu sinni verða
sýndir tveir nýir leikþættir,
sérstaklega skrifaðir fyrir
þessa uppfærslu. Annar þáttur-
inn er eftir Ásu Sólveigu og
hinn eftir ónafngreidan höf-
und. Báðir þættirnir eru enn-
fremur sérstaklega skrifaðir
fyrir þær þrjár leikkonur, sem
fram koma í sýningunni, en það
eru þær Sigríður Eyþórsdóttir,
Þórunn M. Magnúsdóttir og ég.
Önnur atriði á sýningunni eru
stutt klassísk verk eins og lítið
ljóð eftir K.M. og Örn Arnar og
stuttar spaugilegar frásagnir
erlendra ferðamanna frá fyrri
tímum um Island og Islendinga
svo eitthvað sé nefnt.
Ferðaleikhúsið vill gefa ung-
um leikritahöfundum tækifæri
til að sýna verk sin, verk sem
ekki henta stórum leikhúsum
og eru jafnvel aðeins stuttir
þættir í tíu til tuttugu mínútur.
Það er augljóst, að þannig verk
eiga ekki upp á pall hjá stóru
leikhúsunum og þá er að snúa
sér til okkar, sagði Kristin
Magnús. Ef við álítum verkið
nógu gott, gæti Ferðaleikhúsið
hugsanlega komið því fyrir al-
menningssjónir. Svo hef ég líka
gaman af að uppgötva ungt
hæfileikafólk. Núna að þessu
sinni hef ég þá ánægju að koma
með sönglagatríóið „Við þrjú“
en það skipa Sturla Erlendsson,
Ingibjörg Ingadóttir og Harald-
ur Baldursson. Eftir að hafa séð
þau á þjóðlagahátíð 1976, er
þau stóðu fyrir til ágóða fyrir
þroskaheft börn, bað ég þau að
spila og syngja hjá okkur á sýn-
ingum „Bjartar nætur“ og tóku
þau því boði. Þetta er ungt og
heilbrigt fólk, sem ánægjulegt
hefur verið að vinna með.
Ferðaleikhúsið mun ekki
starfa í júnimánuði, en hefja
sýningar á „Light nights" um
miðjan júli og út ágústmánuð
til þriðja september. Engar sýn-
ingar verða i september, en
byrjað verður að undirbúa
næstu uppsetningu, sem von-
andi sér dagsins ljós fyrir enda
októbermánaðar. Það er ný-
skrifuð revía íslenzk í húð og
hár, þar sem þjóðfélagsmál eru
séð í spéspegli.
Þess má að lokum geta, að
Ferðaleikhúsinu var boðið að
halda sýningar á „Light nights"
í desember 1974 í New York og
Chicago. Stóð American
Skandinavian Foundation fyrir
þeirri leikferð, en síðan voru
stór erlend og islenzk fyrirtæki,
sem greiddu allan kostnað til og
frá Chicago. Jafnframt kynntu
forsvarsmenn Ferðaleikhússins
sér það sem var að gerast í
leikhúsum Chicagoborgar og
New York og nutu til þess
styrks frá menntamálaráðu-
neytinu, sagði Kristfn Magnús
að lokum.
EDEN
Páskar í Eden
í Eden liggur leiðin—Opið alla daga og öll kvöld
Má bjóða þér í bæinn?
EDEN
TIZKU
SÝNINGAR
(Karon-samtökin)
MÁLVERKA
SÝNING
(Steingrímur).
Blómaverzlun -—
Gjafavöruverzlun.
Tvær
sælgætisverzlanir.
ísbar og
kaffiterian vinsæla.
Allt opið frá
kl. 9 til 23.30
alla daga
STORSÝNING STEINGRÍMS
opnuð miðvikudagskvöld
Tízkusýningar Karon samtakanna fimmtudagskvöld
(skírdag), mánudagskvöld (annar í páskum) og fyrsta
sumardag.
Öll kvöldin kl. 1 9.30.
Páskablóm í þúsundatali
í EDEN Hveragerði