Morgunblaðið - 14.04.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1976
29
VEL\/AKAI\IDI
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl 14—1 5, frá'mánudegi til föstu-
dags
0 Heilbrigðis-
mál
Magnús Ölafsson skrifar
undir ofangreindri fyrirsögn:
Ég var að lesa i Staksteinum
Morgunblaðsins þingsályktunar-
tillögu, sem læknarnir Sverrir
Bergmann og Oddur Ölafsson
hafa flutt á Alþingi. Sagt er frá
itarlegri ræðu, sem Oddur flutti
þar, og að hann hefði lagt áherslu
á, að þá fyrst er læknar fóru að
leita eftir sjúkdómum á byrjunar-
stigi, hafi verulegur árangur sagt
til sin í heilsugæslunni. Hann hafi
nefnt þar sem dæmi baráttuna við
berklaveikina. Og í því sambandi
minnst á fyrirbyggjandi
ráðstafanir, sem væri besta
heilsuvörnin.
Þá telur blaðið mjög athyglis-
vert þar sem læknirinn hafi sagt
um siðari tíma sjúkdóma, orsakir
þeirra og afleiðingar. Hafi hann
nefnt þar fyrst og fremst sjúk-
dóma. sem stafa af reykingum,
áfengisnautn og notkun
Þar sem læknirinn leggur
áherslu á það í ræðu sinni að
fyrirbyggjandi ráðstafanir séu
besta heilsuvörnin, kom mér i
hug að vekja athygli á því, að
Góðtemplarareglan hefur frá
upphafi haft því mikla hlutverki
að gegna, að vera það fyrir-
byggjandi afl, sem gæti forðað
þjóðinni frá ógæfu áfengisins. Að
vera sú uppeldisstofnun, sem
leitast við að móta barnssálina í
bindindisátt, með barnastúku-
starfi, og svo áfram með
bindindisstarfi á öllum stigum
Reglunnar — Hún hefur nú
starfað hér á landi i rúm 90 ár.
Hennar göfugu hugsjónir um
fegurra og fullkomnara niannlif
geta aldrei undir lok liðið.
Hvers vegna gengur lækna-
stéttin ekki til samstarfs við Góð-
templararegluna á baráttunni við
það böl, sem stafar af áfengi og
öðrum eiturefnum?
læknirinn hennar væri aftur
kominn í vinnu.
Kkki er gott í efni, ef heimilis-
la'knirinn er veikur. En varla er
verjandi að láta sjúklingana bíða,
þar til hann rfs upp aftur. Von-
andi rætist úr þessu, þegar heilsu-
gæslustöðvarnar eru komnar í
gagnið, því þá vinna fleiri læknar
saman og geta gripið inn í læknis-
störf hver annars. En á meðan
verið er að koma þeim upp,
verður sýnilega eitthvað að gera.
Þegar talað er um að hvergi sé
hægt að ná i lækni, hefi ég stund-
um spurt fólk hvort það hafi i
vandræðum sínum leilað til
göngudeildar Landspítalans, en
það er eins og enginnn hafi heyrt
nefnt að þar sé hægt að ná til
læknis. Þó er t.d. daglega í dag-
bók Morgunblaðsins getið um
hana. Þar segir: Læknastofur eru
lokaðar á laugardögum og helgi-
dögum, en ha'gt er að ná sam-
bandi við lækni * á göngudeild
Landspitalans alla virka daga kl.
20—21 og á laugardögum kl.
9—12 og 16—17, simi 21230. Þetta
er fyrir utan læknavaktina, sem
hægt er að ná i , ef ekki er hægt
að ná í heimilislækni.
Nú er mér ekki vel Ijóst hvert
þessi unga kona leitaði. En aðrir,
sem ég hefi hitt, hafa ekki vitað
af göngudeild Landspítalans, sem
hægt er að fara á, ef maður lendir
í vandra>ðum.
% Skíðamenn
og snjórinn
Utivistarmaður skrifar:
Nú er að koma ein mesta úti-
vistarhelgi ársins, páskahelgin og
við erum svo heppin hér sunnan-
lands að hafa mikinn snjó i skíða-
löndunum i nánd við þéttbýlið.
En þar sem kosturinn við skiða-
landið í Bláfjöllum er sá, að þar
snjóar óhemjulega mikið, þá
fylgir auðvitað að í slíkum vetrum
fer allt á kaf. vegir, skiðalyftur og
bílastæði og erfitt að halda því
auðu. Við, sem sækjum þessa
staði okkur til ánægju og heilsu-
bótar, ættum ekki að vera i
neinum vandræðum þó við sjáum
snjó. En því skrifa ég þér að mér
þykir dálitið fyndið að horfa upp
á svokallaða „skíðamenn", sem
ekki geta gengið á skíðunum
sinum á snjó, til að komast í
brekkurnar. Utbúnaðurinn er
stundum svo fínn, að hann virðist
eiga betur heima á stofugólfinu
heima en úti í íslenzkri náttúru að
vetrarlagi. Þessir ágætu menn
eiga greinilega bara heima i plast-
brekkum innanhúss, þar sem
brekkur eru tilbúnar og ekki er
hætta á snjókorni til að trufla þá.
E.t.v. finnst einhverjum þetta
•ýkjur, en ég hefi séð margt ungt
fullfrískt fólk, sent er alveg i
vandræðum og fokvont, ef það
þarf að ganga nokkur skref. Ég
vil þvi ráðleggja köppunum að fá
sér gúmmistigvél, fyrir páskana
eða gönguskó, svo þeir geti
bjargað sér ef eitthvað er að veðri
og fa'rð, og borið þá finu skóna
sina. Hitt er eins og að fara á
háum bandaskóm í fjallgöngu, og
á illa við á tslandi.
Laxveiðimenn
Veiðileyfi í Ölfusá fyrir landi Hellis- og Foss-
ness. Veiðitímabilið frá 21. júní — 20. sept.
eru seld hjá Kristjáni Ásgeirssyni, Miðvang
121, Hafnarfirði, sími 53121.
SAMKOMUR
í Aðventkirkjunni (Reykjavík)
um páskana
MIÐVIKUDAGUR 14. apríl
Almenn samkoma kl. 20:30
Dr. B.B. Beach talar.
FIMMTUDAGUR (skírdagur) 1 5. apríl
Biblíurannsókn kl. 9:30
Almenn samkoma kl 20:30
Hugh I. Dunton talar
FÖSTUDAGURINIM LANGI, 16. april
Biblíurannsókn kl. 9:30
Almenn samkoma kl. 20:30
R.E. Appenzeller talar.
LAUGARDAGUR 17.apríl
Biblíurannsókn kl. 9:45
Guðsþjónusta kl. 1 1
Æskulýðssamkoma kl. 20:30
PÁSKADAGUR 18. apríl
Almenn samkoma kl. 20:30
R .E. Appenzeller talar.
Opið til kl. 8
kvöld
í
£ Lækna-
skortur
Ung kona hafði samband
við Velvakanda. Hún hafði fengið
flensuna um daginn, eins og svo
margir aðrir, og varð af því tals-
vert veik. Þegar hún svo reyndi
að ná í lækni sinn, vildi ekki
betur til en svo, að hann var líka
kominn með flensu. En hvað var
þá til ráða. Hún kvaðst hafa leitað
vitt og breitt og fengið þau ein
svör, að við þessu væri ekkert að
gera. Hún yrði að bíða þar til
aftur þetta kvöldið. Tvö siysaskot
var of mikið af þvf góða.
Læknirinn batt um sárið þegar
hann hafði hreinsað það og gaf
honum sprautu.
— Þér megið ekki svæfa mig,
sagði David.
— Ég verð að sprauta yður svo
að ekki komi ilit f sárið. Eg er
ckki viss um þér þurfið neitt til
að sofa á. En ég skal þó skilja
eftir töflur handa yður til
öryggis.
— Meðal annarra orða, sagði
David. — flefur verið hringt á
lögregluna?
— Ég hef ekki hugmvnd um
það.
— Ég held ekki, sagði vínvrkju-
bóndinn væni. — Viljið þér láta
gera það.
— Ætli það sé ekki bezt á láta
Marcel um það.
— Hárrétt, sagði læknirinn. —
Þetta er hans heimili og hans
gestur. Nú ættuð þér að reyna að
sofna. Ég skal koma til yðar f
býtið f fyrramálið.
Hann rétti honum tvær verkja-
töflur og vatnsglas og David
hlýddi með góðu geði.
— Ég skal aðstoða yður við að
hátta, sagði vfnyrkjuhóndinn.
HÖGNI HREKKVÍSI
??
S\GSA V/QGA £ \tLVtMU
Allt á gamla
veröinu