Morgunblaðið - 28.04.1976, Page 12

Morgunblaðið - 28.04.1976, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRlL 1976 Yfirlýsing frá lækna- deild Háskóla Islands í SKRIFUM Morgunblaðsins und- anfarið um veitingu prófessors- embættis f kvensjúkdómum og fæðingardeild Háskóla íslands virðist gæta nokkurs misskilnings og ókunnugleika á reglum um veitingu kennaraembætta við Há- skólann og kemur þetta sérstak- lega fram í ritstjórnargrein blaðs- ins laugardaginn 24. þ.m. Þykir því rétt að taka fram eftirfarandi. 1. I 11. gr. laga nr. 84/1970 um Háskóla íslands segir svo varð- andi skipun prófessora og dós- enta: „Dómnefnd skal láta uppi rök- stutt álit um það, hvort af vísinda- gildi rita umsækjenda og rann- sókna, svo og námsferli hans og störfum megi ráða, að hann sé hæfur til að gegna embættinu. Álitsgerð nefndar skal höfð til hliðsjónar, er embættið er veitt, og má engum manni veita prófess- orsembætti eða dósentsstarf við Háskólann, nema meiri hluti nefndarinnar hafi látið i ljós það álit, að hann sé hæfur til þess. Ennfremur skal leita álits hlutað- eigandi háskóladeildar um um- sækjendur, og eiga fulltrúar stúd- enta á deildarfundi þá ekki at- kvæðisrétt.“ 2. Með nokkru millibili voru auglýstar lausar stöður prófessors og dósents í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp við læknadeild. Læknarnir dr. med. Gunnlaugur Snædal og dr. med. Sigurður S. Magnússon sóttu um báðar stöð- urnar. Dómnefndir voru skipaðar samkvæmt lögum til þess að meta hæfni þeirra. 3. Með bréfum dagsettum 3. 75 ára: i Landnámabók segir svo m.a. um Ketil Hæng, landnámsmann, e'n hann nam Rangárvelli: „Hann kom skipi sfnu í Rangárós ok var enn fyrsta vetr at Hrafntóftum. Ketill nam öll lönd á milli Þjórsár og Markarfljóts. Þar námu síðar margir göfgir menn með ráði Hængs. Ketill eignaði sér einkum land milli Rangár og Hróarslækjar, allt fyrir neðan Reyðarvatn og bjó at Hofi. Þá er Ketill hafði flutt flest föng sín til Hofs, varð Ingunn léttari og fæddi þar Hrafn, er fyrst sagði lög upp á íslandi. Því heitir þar að Hrafntóftum." Síðan Hrafn Hængsson leit fyrst ljós þessa heims í bæjartóft- unum við Ytri-Rangá eru runnar 11 aldir. Mikið vatn hefur áin, sem mér er kærust allra áa, flutt til sjávar á þessum tíma. Kyn- slóðir hafa komið, byggt bæi sína á bökkum hennar — bjargast af eða farist eftir atvikum—, og nú hefur einn ábúanda Hrafntófta, Sigurður Þorsteinsson, nýlega átt merkisafmæli. Hann varð 75 ára hinn 16. apríl s.I. Á Hrafntóftum er hann borinn og barnfæddur. Þar hefur hann alltaf átt heima og hefur nú stundað búskap í meira en hálfa öld eða frá árinu 1924. Þá var það, sem hann kvæntist sinni góðu konu, Kristjönu Þórðardóttur frá Hrafnkelsstöðum á Mýrum. Sigurður Þorsteinsson er 5. ætt- liðurinn í beinan karllegg, sem búið hefur óslitið á Hrafntóftum. Hann er sonur Þorsteins Jóns- sonar bónda þar og síðari konu hans Guðnýjar Vigfúsdóttur frá Skálakoti undir Eyjafjöllum. Fyrri konu sína, Sigríði Páls- dóttur frá Gaddstöðum á Rangár- febrúar 1976 og 20. febrúar 1976 sendi menntamálaráðuneytið læknadeild umsóknargögnin til álits. Dómnefnd sú, sem fjallaði um umsókn ofangreindra aðila um prófessorstöðuna, taldi báða umsækjendur hæfa, en dr. med. Gunnlaug Snædal hæfari á grund- velli vísindastarfa og lagði nefnin því til að honum yrði veitt staðan. Dómnefndina skipuðu prófessor- arnir Þorkell Jóhannesson, sem var formaður nefndarinnar, Ing- elman Sundberg frá Karolinsa Institutet í Stokkhólmi og Mogens Ingerslev frá Árósarháskóla. í nefndinni, sem fjallaði um dós- entsstöðuna áttu sæti prófessor Þorkell Jóhannesson og sérfræð- ingarnir í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp Guðjón Guðnason og Viglundur Þór Þorsteinsson. Töldu þeir báða umsækjendur hæfa. Hins vegar áleit meiri hluti nefndarinnar (G.G. og V.Þ.Þ.) að dr. med. Sigurður S. Magnússon væri hæfari, þar sem doktorsrit- gerð hans væri meira á sviði sér- greinarinnar en doktorsritgerð Gunnlaugs Snædals og lagði því til að Sigurði yrði veitt staðan. 4. Á almennum fundi í lækna- deild þann 5. marz 1976 voru of- angreindar álitsgerðir lagðar fram til afgreiðslu eins og lög Háskóla íslands mæla fyrir að gert sé. Álits deildarmanna var leitað með leynilegri atkvæða- greiðslu að viðteknum hætti. At- kvæðisrétt um stöðuveitingar á deildarfundi hafa allir prófessor- ar, dósentar og lektorar deildar- innar, svo og forstöðumaður til- raunastöðvar Háskólans í meina- fræði að Keldum. Fyrst var leitað álits deildarmanna um það hvor- völlum missti Þorsteinn á bezta aldri. Með henni átti hann tvær dætur, sem upp komust, Ingigerði og Pálínu. Eina dóttur, Guðbjörgu,. eignaðist Þorsteinn áður en hann kvæntist. Sigurður var elstur fjögurra alsystkina. Hin eru Vig- fús, járnsmiður í Reykjavík, Margrét giftist Birni sýslumanni Rangæinga. Hún féll frá á bezta aldri. Yngstur systkinanna er Rafn, sem alltaf hefur dvalið með Sigurði og búið í félagi við hann um langt skeið. Svo sem fyrr segir hóf Sigurður búskap árið 1924 sama árið, sem hann kvæntist. Fengu ungu hjón- in ‘A hluta Hrafntófta til ábúð- ar. Settu þau saman bú af litl- um efnum eins og fleiri á þeim ár- um. Foreldrar mínir bjuggu á % hluta jarðarinnar og fluttu þau að Hrafntóftumsamaár ásamt okkur systkinunum 6, sem þá vor- um enn öll í foreldrahúsum. Bjuggum við í Vesturbænum, en Sigurður og Kristjana í Austur- bænum. Ég var svo ungur þegar þetta var, að ég get ekki lagt dóm á búskap þeirra Austurbæjar- hjóna þessi fyrstu ár. En mér finnst flest benda til þess, að þeim hafi vegnað vel. Eitt er stað- reynd sem ekki segir svo litla sögu. Sigurður á Hrafntóftum var einn af þeim fáu bændum, sem ekki sótti um lán úr Kreppulána- sjóði, þegar kreppan mikla, sem skall á árið 1931, var að sliga landbúnaðinn og allur þorri bænda varð nánast gjaldþrota. Margt og mikið gæti ég sagt um Sigurð Þorsteinsson ef ég færi fyrir alvöru að rifja upp gömlu dagana. Til þess er ekki mögu- leiki í blaðagrein. Þau fáu orð, sem ég læt frá mér fara í tilefni Ólafur Bjarnason. um umsækjenda þeir vildu mæla með í prófessorsstöðu. Atkvæði féllu þannig að 22 mæltu með Sigurði S. Magnússyni, en 16 með Gunnlaugi Snædal. Einn seðill var auður. Rétt til þátttöku í ofan- greindri atkvæðagreiðslu höfðu 48 manns. Mun þetta vera einn allra fjölmennasti fundur, sem haldinn hefur verið í læknadeild til þessa. Að lokinni atkvæðagreiðslu um prófessorsstöðuna bar deildarfor- seti upp tiilögu þess efnis að Gunnlaugi Snædal yrði veitt dós- entsstaðan og var sú tillaga sam- þykkt einróma. 5. Gagnrýnt hefur verið og spurt hvers vegna læknadeild léti afmælis hans, eru aðeins lítill vottur um þakklæti til hans og konunnar hans látnu, fyrir vin- áttu og órofa tryggð við okkur systkinin og foreldra okkar alla tíð meðan þau voru ofar moldu. „Fáir lofa einbýlið, sem vert er“, segir gamalt máltæki. Víst er um það, að oft reynist tvíbýli erfitt — veldur vinslitum og orsakar jafnvel fullkomið hatur milli fólks —. Þessu var ekki til að dreifa á Hrafntóftum þau 10 ár, sem foreldrar mínir bjuggu á móti Sigurði og Kristjönu, eða þar til þau brugðu búi, var þar miklu fremur sambýli en tvíbýli. Bæirnir stóðu hlið við hlið. Túnin Iágu saman, engjalöndum var skipt i skákar og voru þær nytjaðar til skiptis af báðum aðilum. Allur fénaður gekk saman á óskiptu landi. Sum peningshúsin voru i sameign. Veiðiskapur i Ytri-Rangá var sam- eiginlegur. Bátur og veiðarfæri voru sameign. Veiðin sem oft var mjög góð á þessum árum, var stunduð þannig, að sinn maður var frá hvorum bæ. Minni sam- skipti nágranna en hér hafa verið nefnd, gefa oft tilefni til ágreinings, en það kom aldrei til. Fullkomið traust og einlægni ríkti milli heimilanna. Ágangur og óþarfa afskiptasemi þekktist ekki. Það er bjart í huga mér yfir þessum árum æsku minnar. Þar á Sigurður Þorsteinsson og hans fólk sinn hlut. Þótt margt væri ólíkt því allsnægta og eyðsluþjóð- félagi, sem við þekkjum nú, þæg- indi minni og takmörkuð fjárráð, leið fólkinu vel. Ánægjustundirnar voru margar þrátt fyrir mikla vinnu og frítím- inn var oft vel nýttur. Sigurður var félagslyndur og glaðsinna. Hann fylgdist vel með því sem var að gerast hverju sinni í landsmál- um og öðru. Skoðanir hans voru fastmótaðar og hélt hann þeim fram óhikað og varð ekki haggað. Hann hafði gaman af að rökræða allt milli himins og jarðar, ekki sist stjórnmál ef kosningar voru i ekki fylgja greinargerð með áliti sínu um umsækjendur. En þar sem hér er um leynilega atkvæða- greiðslu að ræða, má öllum ljóst vera að slíkt er útilokað. Engin fyrirmæli eru til um það að menn skuli gera grein fyrir atkvæði sínu við val umsækjenda í stöður og verður því ekki vitað um af- stöðu einstakra deildarmanna í því efni. Hins vegar er mönnum að sjálfsögðu heimilt að gera grein fyrir atkvæði sínu, ef þess er sérstaklega óskað. 1 gildandi lögum eru fyrirmæli um það að álits hlutaðeigandi há- skóladeildar skuli leitað jafn- framt áliti dómnefndar. Hefir lög- gjafinn væntanlega byggt þau fyrirmæli á því m.a. að í umsögn dómnefndar komi ekki fram öll sjónarmið varðandi umsækjend- ur, sem ástæða sé að taka tijlit til og deildarmönnum mætti vera kunnugt um vegna persónulegra kynna eða reynslu af umsækjend- um. Einnig getur meirihluti deildar haft önnur sjónarmið en dómnefnd um það á hvaða hæfi- leika beri að leggja höfuðáherzlu (vísindastörf, kennsluhæfileika, stjórnun o.s.frv.) 6. Að tillögu menntamálaráð- herra skipaði forseti islands Sig- urð S. Magnússon prófessor í kvensjúkdómum og fæðingar- hjálp í læknadeild og yfirlækni við kvensjúkdómadeild Landspít- alans frá 1. apríl 1976 að telja. jafnframt skipaði menntamála- ráðherra Gunnlaug Snædal dós- ent i sömu greinum frá sama tíma að telja og var í skipunarbréfi hans tekið fram að dósentsstaðan væri bundin við yfirlæknisstöðu þá er hann nú gegndi við kven- sjúkdómadeild Landspítalans. 7. Eins og ofanrituð greinar- gerð ber mér sér hefir afgreiðsla máls þessa af hálfu læknadeildar farið fram í fullu samræmi við gildandi lög og reglur. F.h. Læknadeildar Háskóla ís- lands. Ólafur Bjarnason, deildarforseti. Sigurður Þorsteinsson, Kristjana Þórðard. kona hans og Jón Þor- berg, fóstursonur þeirra. aðsigi. Hitnaði mönnum þá stund- um í hamsi, en þegar upp var staðið voru allir sáttir. Ég veit, að ég mæli fyrir munn systkina minna allra, er ég á merkum tíma- mótum í lífi Sigurðar þakka hon- um fyrir öll samveruárin. Þær voru margar ánægjustundirnar, sem við áttum með honum bæði í starfi og leik. Margt vetrarkvöldið leið fljótt, þótt ekki væri útvarp og því síður sjónvarp. Nóg var af góðum bókum í lestrarfélaginu, Málfundafélagið Vísir starfaði mikið á þessum árum, þótt ekki væri það fjölmennt. Mikið var sungið við orgelið í stofunni heima og oft spilað bridge, lomb- er og whist fram á nætur. í öllu þessu var Sigurður þátttakandi. A vorin og sumrin voru hestarnir teknir þegar færi gafst og þeyst um allar jarðir. Ekki skorti góða hesta eða góða reiðvegi á Rangár- bökkum. Ég minnist í því sam- bandi Grána hans Sigurðar, sem ekki hikaði við að lyfta sér yfir grindina í túnhliðinu með knap- ann á bakinu ef svo vildi til aó Keisari á umdeildu hafsvæði Izmir, 23. apríl. Reuter. ÍRANSKEISARI sigldi inn á Eyjahaf í dag ásamt tyrknesk- um og pakistönskum leiðtog- um til að fylgjast með æfingum tyrkneska sjóhersins og flughersins. Tyrkir og Grikkir hafa deild um yfiijráð yfir hafsbotninum á Eyjahafi slðan olfa fannst þar. Keisarinn hefur átt fund i Izmir með Hahri Koroturk, forseta Tyrklands, og Zulfikar Ali Bhutto, forseta Pakistans. Löndin hafa með sér efnahags- samvinnu. Ákveðið var að efla þessa samvinnu á fundinum, stofna fríverzlunarbandalag landanna og sameiginlegan fjárfestingarbanka. Kunnugir telja að Tyrkir noti nærveru iranskeisara til að leggja áherzlu á kröfur sinar á Eyjahafi. Utanríkisráð- herra irans, Ali Abbas Khalatbari, segir að stofnun fríverzlunarbandalagsins taki tíu ár. Sprenging í Boston Boston 24. apríl — AP SPRENGJA sprakk í gær í dómshúsi í Boston og særði a.m.k. 18 manns, m.a. missti einn maður fótinn. Talið er að um hafi verið að ræða tilræði vegna ástandsins i kynþátta- málum og 20 mínútum fyrir sprenginguna hringdi kona og varaði við henni. Hún skír- skotaði, að sögn lögreglunnar, til máls blökkumanns sem sakaður er um að hafa myrt hvítar námsmeyjar við háskóla borgarinnar fyrir fjórum árum, en úrslit þess máls eru væntanleg. hliðið var lokað þegar þeir félagar voru á ferðinni. Þegar farið er að rekja minningarnar kemur fleira og fleira fram í hugann og verður einhvers staðar að setja punktinn. í huga mínum er Sigurður alltaf sami góði drengurinn, sem öllum vill vel og alltaf er gott að hitta. Þeim Sigurði og Kristjönu varð ekki barna auðið. En þau ólu upp og ættleiddu systurson Sigurðar, Jón Þorberg Eiríksson. Hann var mjög vel gefinn piltur og lauk námi í sögu frá Oslóarháskóla. Hann lézt á unga aldrei í Nor- egi, en þar starfaði hann sem kennari. Þá ólu þau hjón upp stúlku, Sigurlaugu Egilsdóttur frá 7 ára aldri. Hún er nú búsett að Eyrar- bakka. Hjá þeim dvaldi einnig f fjölda ára Þórunn Árnadóttir. Má segja að hún væri þriðja barn hjónanna þar sem hún var rúmföst í áratugi og þurfti þar af leiðandi mikillar umönnunar við. Þórunn var stór- gáfuð og merk manneskja, sem fylgdist með öllu úr rúmi sínu utanhúss sem innan. Var hún heimilinu án efa til mikillar upp- byggingar á ýmsan hátt, þrátt fyr- ir líkamlega fötlun. Hún naut virðingar f jölskyldunnar og allra, sem henni kynntust. Þá dvaldist Þorsteinn faðir Sigurðar á heimil- inu og andaðist þar í hárri elli. Þorsteinn var á sinni tíð athafna- og félagshyggjumaður. Hann var greindur vel og víðlesinn hug- sjónamaður. Sigurður missti konu sina fyrir allmörgum árum. Varð það hon- um þungt áfall þvi að hjónaband þeirra var gott og þau samhent. Kristjana var góð kona. Við Sigurð vin minn vil ég að lokum segja þetta. Þessi afmælis- kveðja til þín er síðbúin nokkuð. En hún er send þér af góðum hug með þökk fyrir langa og góða sam- fylgd og vona ég að þú takir viljan fyrir verkið. Megi ævikvöldið verða þér bjart og hlýtt eins og þú hefur til unnið. „ Ragnar Jonsson Sigurður Þorsteins- son, Hrafntóftum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.