Morgunblaðið - 28.04.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1976
15
Carter reynir að
stöðva Humphrey
Philadelphia, 27. apríl. AP. Reuter.
JIMMY Carter fvrrum ríkisstjóri
í Georgiu getur nánast trvggt sér
útnefningu sem forsetaframbjóð-
andi demókrata og orðið óstöðv-
andi með sigri þeim, sem honum
er spáð í forkosningum demó-
krata í Pennsvlvaníu f dag. Við
liggur að forsetaframbjóðandi
demókrata sé þar með kosinn.
Forkosningarnar geta ráðið úr-
slitum um hvort Hubert
Humphrey öldungadeildarmaður
hefur meiri eða minni möguleika
á útnefningunni en Carter.
Carter telur Humphrev skeinu-
hættasta keppinaut sinn og revnir
nú að stöðva baráttu hans áður en
hún bvrjar.
Carter nýtur stuðnings mikils
hluta millistéttarfólks í
Pennsylvaníu og margir blökku-
menn og verkamenn fylgja
honum að málum. Þó hefur hann
orðið að heyja harða baráttu við
Henry Jackson öldungadeildar-
mann, sem hefur mikið fylgi í
verkalýðshreyfingunni.
Jackson verður að vinna til að
sanna fyrir demókrötum að hann
geti sigrað frambjóðanda repú-
blikana í forsetakosningunum. Ef
þingmaðurinn Morris Udall frá
Arizona fær slæma útreið má
segja að hann sé úr sögunni.
George Wallace frá Alabama
hefur haft sig litið í frammi.
Ef frambjóðandi stendur sig
illa í Pennsylvaníu er ólíklegt að
hann geti sigrað í forsetakosning-
um. Pennsylvaníu-ríki er dæmi-
12 létust í
þyrluslysi
New Orleans, 26. apr. Reuter.
ÞYRLA sem var að fljúga með
verkamenn út að olíuborunar-
palli á Mexíkóflóa hrapaði í
sjó niður og munu allir þeir
sem voru um borð, tólf menn,
hafa beðið bana. Um orsakir
slvssins er allt á huldu, og
veður var gott er atburðurinn
gerðist.
Jimmy Carter
gert fyrir styrk demókrata í
Bandaríkjunum i heild. Þar er
verkalýðshreyfingin sterk og
venjulega eru kosningasigrar þar
mikilvægir.
Ford forseti er einn í kjöri í
forkosningum repúblikana og
leggur nú mikla áherzlu á for-
kosningarnar sem fara fram í
Texas á laugardag. Hann vonar að
tillaga sin til Þjóðþingsins um
322.400.00 dollara framlög til
smíði fleiri Minuteman-eldflauga
og fullkomnari kjarnaodda treysti
stöðu sína.
Forsetinn fór i dag i fjögurra
daga kosningaferð til Texas.
Hann viðurkennir að keppinautur
sinn, Ronald Reagan standi betur
að vigi, en er vongóður um að geta
valdið Reagan svo alvarlegu áfalli
að hann verði nánast að gefa upp
alla von um að verða tilnefndur
forsetaframbjóðandi repúblik-
ana. Kunnugir segja að Reagan
verði að vinna ef hann eigi ekki
að hætta við baráttu sína fyrir
útnefningunni, enda hefur hann
sjö sinnum beðið ósigur fyrir
Ford.
m k i-
- i 'S
\ I’ ni> nd
LOCH NESS-SKRÍMSLIÐ — Þetta er teikning byggð á
ljósmynd sem birtist í riti Massachusetts Institute of
Teehnology (MIT), „Technical Review“, i siðustu
viku, en visindamenn sem segjast hala ljósm.vndað
Loch Ness-skrímslió í Skotlandi halda því fram að
ljósmyndin sýni að höfuð skrimslisins sé um tveggja
feta langt og með allnokkrum hornum. Á teikningunni
líkist skrímslið einna helzt gíraffa með stuttan háls.
Övíst hvenær eftirmaður
Franjiehs getur tekið við
Hubert Humphrev
Ansjóvetu-veiðum við
Norður-Perú frestað í bili
Lima, 27. apríl — Reuter —
SJAVARUTVEGSRAÐHERR-
ANN í Perú, Fransisco
Mariategui Augulo, tilkynnti f
dag, að ansjóvetuveiðum við
Norður-Perú hefði verið frestað
fyrst um sinn vegna þess hve
ansjóvetan væri blönduð smá-
fiski, peladilla.
Hafrannsóknastofnunin
(IMARPE) mun ákveða hvenær
veiðar hefjast að nýju á norður-
svæðinu. Angulo sagði að fram til
þessa hefði rúmlega milljón tonn-
um af ansjóvetu verið landað á
vertfðinni. Svarar það til þess að
framleidd hafi verið 200 til 250
þúsund tonn af fiskmjöli og um
24 þúsund tonn af lýsi. Seinni
vertfðin hefst væntanlega í bvrj-
un október í haust.
Beirul 27 april. NTB Reuter-AP
AKVÖRÐUN líbanska þingsins
um að koma saman á laugardag
og kjósa nýjan forseta var í dag
mjög vel tekið meðal stjórnmála-
manna í Líbanon og þriðja dag-
inn f röð var nú tiltölulega rólegt
f Beirut. Hins vegar er langt í frá
að búið sé að levsa deilumálin í
landinu. Hinn nýi forseti getur
ekki tekið við völdum fvrr en
Suleiman Franjieh segir af sér og
hann hefur ekkert látið uppi um
hvenær hann hvggist draga sig í
hlé. Lfklegastur eftirmaður hans
er talinn vera leiðtogi kristinna
marnníta, lögfræðingurinn
Ravmond Edde, en Þjóðfylk-
ingarflokkur hans hefur verið
hlutlaus í átökunum í landinu.
Dagblaðið An Nahar, en útgef-
andi þess á sæti í ríkisstjórninni.
segir í dag, að Franjieh forseti
vilji nú að Sýrlendingar bindi
enda á borgarstrfðið og að óskað
verði eftir því að sýrlenzkum her-
sveitum verði veitt sex mánaða
umboð til að koma á friði.
Sýrlenzkar hersveitir halda nú
þegar uppi eftirliti í nokkrum
héruðum í austurhluta Líbanons
og undan ströndum þess til að
koma í veg fyrir að vopn komist
til herja múhameðstrúarmanna
og kristinna.
Kamal Jumblatt leiðtogi vinstri
manna, lagði á það áherzlu í dag,
að það eitt að velja nýjan forseta
væri ekki nægilegt til að
múhameðstrúarmenn yrðu
ánægðir, en afsögn Franjiehs
hefur verið höfuðskilyrði þeirra
fyrir þvi að taka þátt í friðsamleg-
um sáttaumleitunum. Jumblatt
vill koma á róttækum breytingum
í stjórnmálum í landinu og m.a.
afnema þá hefð sem skiptir valda-
stöðum ríkisins milli trúflokk-
anna, en samkvæmt henni fær
40% minnihluti kristinna manna
— Afli glæðist
Framhald af bls. 32
ÞORLAKSHÖFN
Hjá Pétri Friðrikssyni á vigt-
inni f Þorlákshöfn fékk Morgun-
blaðið þær upplýsingar í gær-
kvöldi að aflinn hefði heldur
glæðzt síðustu daga, en þó væri
langt í frá að þessu kippur
bjargaði því að hægt væri að kalla
þetta vertíð. Afli Þorlákshafnar-
báta á mánudaginn var 225 lestir
hjá 25 bátum. I gærkvöldi var
aflinn ekki eins góður. Pétur
sagði að það væri þorskur sem
bátarnir kæmu nú með að landi,
fallegur fiskur.
HORNAFJÖRÐUR
Egill Jónasson frystihússtjóri
sagði að síðasta vika hefði verið
ein sú skásta á þessari annars
afar slöku vetrarvertíð. Voru
bátarnir þá með 20—75 tonn yfir
vikuna. Hæst komust þeir í 50
tonn í tveimur lögnum. Á mánu-
daginn hefði svo aflinn verið
heldur tregari eða 8—13 tonn,
tveggja nátta fiskur. Bátarnir eru
allir á netum og hafa þeir fengið
aflann á Meðallandsbug og á
heimaslóð. Uppistaðan í aflanum
er vænn þorskur. Egill sagðist
hafa af því fréttir, að Austfjarða-
bátar hefðu aflað prýðilega að
undanförnu, en nú virtist heldur
vera aö draga þar úr afla.
GRINDAVlK
„Mánudagurinn var skásti
dagur vertíðarinnar, 1033 tonn
hjá 80 bátum,“ sagði Bjarni
Þórarinsson á vigtinni í Grinda-
vik, þegar við spjölluðum við
hann um 10-leytið í gærkvöldi.
Grindavikurbátar stunda ein-
göngu net og leggja aðallega á
Selvogsbanka og sagði Bjarni að
aflinn væri góður þorskur en
ekkert „trollrusl". Aflinn á mánu-
daginn var tveggjanátta fiskur en
í gærkvöldi komu bátarnir inn
með einnar nætur fisk og var
aflinn þá hlutfallslega svipaður
eða um 500 tonn. Á mánudaginn
var hæsti bátur með 48 tonn.
„Þetta hefur verið með allra bezta
móti undanfarna daga en samt
langt frá því nóg til að bjarga
vertíðinni," sagði Bjarni að
lokum.
SANDGERÐI
Þar hefur aflinn sömuleiðis
glæðzt töluvert að undanförnu
þótt ekki vilji Jón Júlíusson
fréttaritari Mbl. tala um að
ástandið sé gott. „Þetta er ekki
eins andskoti svidið og það hefur
verið i vetur,“ sagði Jón. Troll-
bátarnir hafa veitt mjög vel
undanfarna daga, allt upp i 25
tonn á sólarhring, og er það ýsa,
þorskur og koli. Aflinn hefur
einnig glæðzt hjá netabátunum og
bjóst Jón við því að þessi hrota, af
kalla mætti fiskeríið að undan-
förnu þvi nafni, myndi jafna
metin við vertiðina í fyrra þannig
að þær yrðu álíka lélegar, eins og
Jón vildi orða það.
— Bretinn
forðast
Framhald af bls. 32
stjórarnir sáróánægðir með
verndina, en eins og skýrt var frá
i Mbl. í gær hefur brezki flotinn
breytt um starfsaðferðir, lætur
togarana veiða dreift, en frei-
gáturnar fylgja varðskipunum
eftir eins og skuggar og tilkynna
með stuttu millibili um veru
þeirra.
Morgunblaðið reyndi í gær að
fá það frá brezka flotamálaráðu-
neytinu, að breytt hefði verið um
aðferðir við vernd togaranna
við Island. Flotamálaráðuneytið
neitaði eindregið að viðurkenna
að nokkur breyting hefði átt sér
stað og að freigáturnar verðu
togarana eftir sem áður. Tals-
maður ráðuneytisins sagði að ef
til vill væri þessi misskilningur,
eins og hann orðaði það, kominn
til vegna þess að gefin heföi verið
út tilkynning um að togaraskip-
stjórar gætu ekki búizt við vernd,
ef þeir héldu sig utan afmarkaðra
svæða.
Þá spurði Mbl. talsmann Sam-
bands brezkra togaraeigenda um
hið sama. Hann sagði að ekkert
lát væri á verndinni, en hins
vegar sagði talsmaðurinn: „Flot-
inn hefur orðið að undanförnu
fyrir talsverðum búsif jum og frei-
gátur hafa skemmzt í viðureign
við íslenzk varðskip. Því getur
verið að flotinn reyni nú fremur
en áður að koma í veg fyrir eða
forðast beina árekstra við varð-
skipin."
í AP-frétt, sem Mbl. barst i gær
segir að margir togaraskipstjórar
hafi farið af Islandsmiðum eftir
síðustu ,,árásir“ varðskipanna og
þeir segja að freigáturnar „skorti
frumkvæði“ i viðureigninni við
Landhelgisgæzluna. I skeytinu
segir að flestir togaranna, sem
hafi yfirgefið miðin, séu frá
Fleetwood.
Þá segir blaðamaður Morgen-
bladet frá Ösló, sem er um borð i
varðskipinu Baldri á miðunum, að
herskipin hafi breytt um aðferðir
við v-ernd togaranna og beiti sér
nú ekki í beinum varnarað-
gerðum, heldur fylgi varðskipun-
um og gefi upp staðarákvarðanir
þeirra. Togaraskipstjórarnir eru
reiðir brezka flotanum fyrir
þessar breyttu starfsaðferðir og
spyrja, hvort þeir séu á miðunum
til þess að veita upplýsingar eða
vernda togarana.
yfirburða pólitíska stöðu og
forsetaembættið. Vinstri öflin
hafa ekki útnefnt múhameðs-
trúarmann sem forsetaefni, en
hafa stutt Edde, sem verið hefur
harður andstæðingur F'ranjiehs.
Shimon Peres, varnarmálaráð-
herra Israels, sagði í sjónvarps-
viðtali i dag að tsraelar hefðu
enga löngun að blanda sér í deil-
urnar í Líhanon.____________
— Hvolpurinn
Framhald af bls. 32
missti maðurinn á bryggjuna
og náði sjómaðurinn hvolpin-
um, sem er á að gizka mánaðar-
gamali.
Maðurinn, sem kom með
hvolpinn í gærkveldi á mið-
borgarstöð lögreglunnar.
kvaðst hafa sagt við manninn.
sem kastaði hvolpunum þrem-
ur i höfnina. að sér líkaði ekki
athæfi sem þetta. Reiddíst að-
komumaður og sagði sjómað-
urinn, að hann hefði gert sig
líklegan til þess að ráðast á sig.
síðan séð sig um hönd, stigið
upp í bifreið sína og ekið á
brott.
Sjómaðurinn fór með hvolp-
inn um borð i togara sinn, þar
sem hann hafði hann þar til i
gærkveldi, er hann gafst upp á
hundahaldinu. Skilaði hann
hvolpinum til lögreglunnar i
miðborgarstöð, þar sem hann
er nú. Varðstjórinn þar sagði,
að lögreglan myndi geta gevmt
hvolpinn eitthvað, en þar sem
hann væri svona tilkominn
vildi lögreglan ekki annað en
hann lifði. — Þetta er greini-
lega ekki lánlaus hvolpur —
sagði varðstjórinn — og þvi
auglýsum við eftir einhverjum
sem vildu taka hann í fóstur.
en sá verður að búa á sva'ði,
þar sem hundahald er leyft
lögum samkvæmt.
Athugasemd
VEGNA siendurtekins misskiln-
ings, leiðinda og þess aö hópur
isfirskra húsmæðra móðgaðist
stórlega við mig á röngum for-
sendum vil ég undirritaður blaða-
maður við Morgunblaðið. taka
fram að ég rita ekki greinar eða
plötudóma undir stöfunum A.J. á
Stuttsiðu Morgunblaðsins.
Arni Johnsen blaðamaður.