Morgunblaðið - 28.04.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1976 J ’J
Sigurbjörn Þorbjörnsson ríkisskattstjóri:
Um staðgreiðslu
opinberra gjalda
Eins og fram kom hjá forseta
ykkar hef ég fallist á að ræða
litillega staðgreiðslu opinberra
gjalda.
Staðgreiðsla opinberra gjalda
felur í meginatriðum það í sér
að skattar séu greiddir af
tekjum jafnóðum og þeirra er
aflað. Markmið stað-
greiðslunnar er því að skatt-
greiðslum af tekjum ljúki, eða
sem næst því, á tekjuárinu.
Staðgreiðsla opinberra gjalda
hefur verið upp tekin í öllum
nágrannalöndum okkar í V.-
Evrópu og N.-Ameriku.
Fyrirkomulag staðgreiðslu i
nágrannalöndum okkar er
breytilegt að því er varðar:
I fyrsta lagi til hvaða aðila
hún tekur, hvort heldur laun-
þega, sjálfstæðra atvinnu-
rekenda og félaga, eins eða
allra.
I öðru lagi til hvaða opin-
berra gjalda hún tekur.
í þriðja lagi að því er varðar
ákvörðun fjárhæðar stað-
greiðslu sem launagreiðandi
heldur eftir af tekjum laun-
þega hverju sinni. Sú ákvörðun
fer eftir tveimur mismunandi
meginreglum:
annars vegar eftir svonefndri
„samsöfnunarreglu" stað-
greiðslu. Reglan er í því fólgin
að safnað er saman öllum fyrri
launatekjum ársins og bætt við
launatekjur útborgunartíma-
bilsins. Frádrætti launþega er
safnað saman á sama hátt. Á
þennan hátt er skattskyldum
tekjum og frádrætti, það sem af
er árinu, safnað saman og
skattur reiknaður þar af skv.
skatttöflum. Frá þannig reikn-
uðum skatti er síðan dreginn
áður greiddur skattur og mis-
munur innheimtur eða endur-
greiddur. Þessi regla er notuð í
Bretlandi og Irlandi. Reglan
var mjög einföld í framkvæmd í
Irlandi meðan eingöngu var um
að ræða hlutfallslegan tekju-
skatt þar. I Bretlandi er kerfið
þunglamalegt í framkvæmd
vegna stighækkandi tekju-
skatts. Með samsöfnunarregl-
unni er hægt að ná mestri
nákvæmni við innheimtu stað-
greiðsluskatta. Hins vegar er
það skilyrði fyrir því að það
svari kostnaði að taka hana upp
hér á landi að jafnframt verði
allir tekjuskattar hlutfallslegir,
og
hins vegar eftir svonefndri
„einfaldri reglu“ staðgreiðslu.
Þá er heildarfrádrætti laun-
þega skipt niður á ákveðin
timabil sem fylgja tímabilum
launaútborgana. Við hverja
launaútborgun er haldið eftir í
samræmi við regluna þeim
skatti sem launaupphæðin seg-
ir til um. Um ákvörðun
frádrátta launþega og fjárhæð
skatts í samræmi við launaupp-
hæð getur farið a.m.k. á tvo
vegu: skv. „einföldu reglunni":
Annars vegar er um það að
ræða að frádráttur launþega og
ákvörðun hundraðshluta skatts
af tekjum staðgreiðsluársins
byggist á áætlun sem í flestum
tilvikum er grundvölluð á
siðasta framtali launþegans.
Skattkort launþega, t.d. vegna
staðgreiðsluársins 1976, þar
sem fram kæmi skattalegur frá-
dráttur hans frá launum og sá
hundraðshluti skatts af þannig
ákveðnum eftirstöðvum laun-
anna sem greiða skal við sér-
hverja útborgun launa á árinu
1976, er í flestum tilvikum
grundvallaður á tekjum,
frádrætti og fjölskylduaðstæð-
um launþegans í framtali hans
1975 en það framtal sýndi
tekjur og aðrar aðstæður laun-
þegans á árinu 1974. Allar
veigamestu upplýsingarnar,
sem staðgreiðslan byggist á,
yrðu því oftast a.m.k. árs-
gamlar. Á þennan hátt er stað-
greiðslu háttað t.d. í Danmörku.
Þetta afbrigði staðgreiðslu er
engin búbót fyrir okkur um-
fram gildandi innheimtureglur
okkar. Þó er unnt samkvæmt
þessari innheimtureglu að
bregðast fyrr við varðandi inn-
heimtu hjá þeim launþegum
sem koma í fyrsta sinn inn á
vinnumarkaðinn á tekjuárinu
og gagnvart þeim sem falla út
af vinnumarkaðnum á tekju-
árinu.
Hins vegar er um það að ræða
að launþegi fái skattkort fyrir
upphaf innheioituárs þar sem
fram koma upplýsingar um
fjölskylduaðstæður hans í
byrjun innheimtuárs. Launa-
greiðandi fær í hendur skatt-
töflur þar sem fram koma upp-
hæðir staðgreiðslu sem halda
skal eftir, miðaðar við ákveðna
launaútborgun fyrir ákveðið
launatimabil annars vegar og
fjölskylduaðstæður og aðrar
aðstæður launþega skv. skatt-
korti hans hins vegar. Skatt-
töflurnar eru byggðar upp á
ýmsumákvæðumskattalöggjafa
varðandi persónufrádrátt eða
persónuafslátt og frádrátt frá
tekjum, sem er ákvarðaður sem
fastur frádráttur fyrir alla,
annaðhvort sem hundraðshluti
af launum án takmörkunar eða
með þaki, eða þá sem föst fjár-
hæð án tillits til tekna. Litið er
sjálfstætt til hverrar einstakrar
launaútborgunar, þ.e. án tillits
til fyrri launaútborgana, en
þetta felur í sér í reynd að
staðgreiðsla við hverja launaút-
borgun er við það miðuð að
launþegi hafi sömu laun á
öðrum launatímabilum skatt-
ársins. Þessari reglu er beitt I
flestum tilvikum í Banda-
ríjijunum og hefur gefist þar
mjög vel. Enn fremur er þessi
regla notuð í þvi landi sem
fyrst allra tók upp staðgreiðslu
að því er ég best veit þ.e. í
Vestur-Þýzkalandi, og hefur
reynst þar með afbrigðum vel.
Innheimtan er það vel þróuð
hjá Vestur-Þjóðverjum að
meginhluti launþega þar hefur
lokið að fullu skattgreiðslum
sínum í lok tekjuársins og þarf
því engu framtali að skila.
Upplýsingum um tekjur og
staðgreiðslu opinberra gjalda
launþega er safnað saman frá
einu launatímabili til annars og
flytur launþegi sem skiptir um
starf, þær milli launagreið-
enda. Síðasti launagreiðandi á
tekjuárinu heur því fyrir hendi
upplýsingar um heildartekjur
og heildarskattgreiðslur laun-
þegans. Fullnægi launþegi viss-
um skilyrðum skattalög-
gjafarinnar, en svo mun vera
um meginhluta launþega,
reiknar launagreiðandi út
heildarskatta launþegans og
innheimtir hjá honum við
síðustu launagreiðslu ársins
það sem á vantar eða endur-
greiðir honum það sem ofgreitt
var.
Áður en lengra er haldið
þykir mér rétt að ræða örlítið
um þá kosti og galla sem talið
hefur verið að séu á stað-
greiðslu opinberra gjalda og tel
þá upp kostina fyrst:
I fyrsta lagi. Öryggi gjald-
enda þar sem staðgreiðsla
stuðlar að jafnvægi (samræmi)
milli skattheimtu eða endur-
greiðslu og greiðslugetu gjald-
enda á teknaárinu.
I öðru lagi. Innheimta hins
opinbera yrði öruggari og jafn-
ari en nú er.
I þriðja lagi. Staðgreiðsian
mundi hafa jafnvægisáhrif á
efnahagslífið. Unnt yrði að búa
þannig um hnútana að hið opin-
bera gæti beitt opinberum
gjöldummeir íhagstjórnarskyni
en hingað, til. I þessu sambandi
má geta þess að í O.E.C.D.
Economic Survey — November
1975 — hefti um tsland, segir
m.a. svo (í lauslegri þýðingu):
„... Svo virðist sem það hafi
verið mikill áhrifavaldur mis-
vægis í efnahagsmálum á árinu
1974 að ekki var fyrir hendi
staðgreiðslukerfi við innheimtu
tekjuskatts.“ Enn fremur er að
þvi vikið að það mundi auð-
velda hagstjórn að taka upp
staðgreiðslu opinberra gjalda.
1 fjórða lagi. Álag á launa-
greiðendur (atvinnuveitendur)
við innheimtu opinberra gjalda
mundi minnka verulega frá því
sem nú er. Þessi staðhæfing er
vitanlega byggð á samanburði
við gildandi kerfi hjá þeim
launagreiðendum (atvinnurek-
endum), sem framfylgja í einu
og öllu gildandi ákvæðum og
fyrirmælum um innheimtu
opinberra gjalda um skyldu-
sparnað svo og um greiðslu or-
lofsfjár.
í fimn\ta lagi. Möguleikar á
einföldun (eða jafnvel af-
námi) skattframtala almennra
launþega með hliðsjón af þeirri
einföldun, sem jafnframt er
ráðgerð á skattalöggjöfinni,
sem segja má að sé nauðsynleg
hvort sem er.
Þá komum við að þeim atrið-
um sem talin hafa verið gallar:
t fyrsta lagi. Að framkvæmd
staðgreiðslu mundi a.m.k. fyrst
í stað krefjast aukins átaks og
kostnaðar hins opinbera. Að
vissu marki mundu skattyfir-
völd yfirtaka vissar skyldur at-
vinnurekenda varðandi dreif-
ingu á skilum á innheimtu
opinberra gjalda til margra inn-
heimtuaðila.
1 öðru lagi. Að gjaldendur
töpuðu því hagræði sem gildir í
dag, að geta dregið greiðslur
opinberra gjalda sem lengst,
þ.e. allt að V4—l'A ári eftir
teknamyndun eins og nú er, en
eins og fram hefur komið hjá
launþegasamtökunum telja
flestir launþegar mikilvægara
að vita hvar þeir standa á
hverjum tíma og þurfa ekki að
reikna með „bakkröfum" frá
hinu opinbera í ríkari mæli en
staðgreiðsla gæfi tilefni til.
1 þriðja Iagi. Að staðgreiðsla
mundi ýta undir meiri kaup-
kröfur en ella þar sem hluti
þeirra kauphækkana, sem
fælist i nýjum kjara-
samningum, yrði þegar i stað
tekinn af launþegum í
hækkuðum sköttum í stað
„greiðslufrests" i gildandi inn-
heimtufyrirkomulagi. Miðað
við það horf sem gerð kjara-
samninga virðist hafa færst í að
undar.förnu í auknum mæli
virðist ekki mikið hald í þess-
um galla.
1 fjórða lagi. Að gjaldendur
yrðu ófúsari að leggja á sig við-
bótarvinnu og heildarframboð
vinnuafls mundi því minnka af
þeim sökum þar sem launþegar
yrðu strax varir við opinberu
gjöldin i stað „gjaldfrests"
þeirra að öllu óbreyttu.
1 fimmta lagi. Að gjaldþegnar
færu að líta á laun að frádregn-
um opinberum gjöldum og taka
mið af þessum „nettó launum“
við launakröfur sínar. Þetta
mun aðallega geta átt við
fámenna starfshópa, sem geta
að meira eða minna leyti
ákveðið kjör sin sjálfir, en
getur ekki átt við hinn almenna
launamarkað.
t sjötta lagi. Afstaða sumra
gegn staðgreiðslu hefur mótast
af því að erfiðara sé að koma
henni á hér á landi en viða
annars staðar vegna atvinnu-
hátta okkar. Því er til að svara
að sömu vandamál, og ekki
siðri, blasa alls staðar við i gild-
andi innheimtu vegna atvinnu-
hátta okkar.
1 sjöunda lagi. Afstaða sumra
gegn staðgreiðslu hefur mótast
af því að betra sé að endurbæta
gildandi kerfi en taka upp stað-
greiðslu. Gildandi kerfi verður
aldrei endurbætt að neinu
marki. Það byggir nú á og
verður ávallt að byggjast á
teknamyndun og fjölskyldu-
stærðum, sem voru fyrir hendi,
fullu einu en tæpum tveim
árum áður en fyrirframgreiðsla
hefst en VA og allt að 2'A ári
áður en henni lýkur og enn
fremur að innheimta eftir-
stöðva álagðra gjalda á gjald-
árum byggist á sömu aðstæðum
(tekjum og fjölskylduað-
stæðum) sem eru þegar orðnar
7—19 mánaða gamlar við upp-
haf og eins til tveggja ára
gamlar þegar lýkur. Sömu
vandkvæðin verða nú uppi á
teningnum varðandi endur-
greiðslu barnabóta að hluta eða
fullu og þátttöku ríkissjóðs i
útsvörum.
I ársbyrjun 1975 fól fjármála-
ráðherra mér það verkefni: „að
gera tillögur um með hvaða
hætti og á hvaða grundvelli
framkvæma megi staðgreiðslu
opinberra gjalda hér á landi".
Tillögum mínum skilaði ég til
fjármálaráðherra um miðjan
maí 1975. I samræmi við það
verkefni, sem mér var falið,
voru gerðar beinar tillögur um
þetta efni án beins eða nánari
rökstuðnings. Tillögurnar eru
því nokkurs konar beinagrind
að staðgreiðslukerfi sem á eftir
að fylla út í og fullkomna þegar
og ef ákvörðun verður tekin um
upptöku staðgreiðslu hér á
landi.
Samkvæmt tillögunum legg
ég ákveðið til að tekin verði
upp staðgreiðsla opinberra
gjalda með eftirfarandi hætti:
í fyrsta lagi. Staðgreiðsla
opinberra gjalda launþega sem
byggi á „einfaldri reglu“ stað-
greiðslu með notkun skattkorta
og skatttaflna á sama eða svip-
aðan hátt og í Bandarikjunum
óg Vestur-Þýskalandi.
t öðru lagi. Staðgreiðsla opin-
berra gjalda af sjálfstæðri
starfsemi eða atvinnurekstri,
hvort heldur á vegum ein-
staklinga, félaga, stofnana eða
sjóða. Staðgreiðsla tekjuskatta
þessara aðila mundi miðast við
fyrirfram gerða áætlun en stað-
greiðsla annarra gjalda færi
eftir því sem stofn þeirra
myndast á greiðsluárinu.
Staðgreiðslan verði bráða-
birgðagreiðsla á skattárinu. Að
skattári loknu fari fram
álagning eftir framtölum skatt-
þegna. Mismunur, sem fram
kann að koma milli skatt-
greiðslna ársins og endanlegs
skatts, verði krafinn eða endur-
greiddur, eftir því sem við á,
samkvæmt föstum reglum.
Stefnt verði að einföldun
skattalaga á þann veg að laun-
þegi, að ákveðnum skilyrðum
uppfylltum, geti fullnægt fram-
talsskyldu sinni með einfaldri
gerð framtals. 1 framtiðinni
verði stefnt að þeirri þróun á
uppgjörum skatta launþega að
öllum skattgreiðslum sé lokið í
lok tekjuársins og bein fram-
talsskylda launþega afnumin.
Lagt er til að svið stað-
greiðslu nái til tekjuskatta,
þ.e.:
tekjuskatts og útsvars ásamt
byggingarsjóðsgjaldi og kirkju-
garðsgjaldi (og nú nýlegu
gjaldi sem lagt er á tekjur til
útsvars),
sölugjalds,
launatengdra gjalda,
gjalda tengdum rekstrar-
gjöldum,
landsútsvara,
en af gildandi gjöldum nái svið
staðgreiðslu ekki til eignar-
skatts en lagt er til að svið
staðgreiðslu nái enn fremur til
orlofsfjárskila,
skyldusparnaðarskila,
og til athugunar er að það
gæti náð til skila á ýmsum öðr-
um launatengdum greiðslum,
svo sem lífeyrissjóðsiðgjalda og
stéttarfélagsgjalda svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Tilhögun staðgreiðslu laun-
þega og samband hans og
launagreiðanda yrði hagað á
þann veg að launþegi fengi í
hendur svonefnt skattkort sem
innihéldi sömu upplýsingar og
nafnskírteini hans auk auð-
kenna um fjölskylduaðstæður
og hvort hann væri háður
skyldusparnaði. Við upphaf
starfs hjá aðalvinnuveitanda
sínum skilar launþegi honum
„skattkorti" sínu og verður það
i vörslu aðalvinnuveitandans
meðan launþeginn er i þjón-
ustu hans. Launþeginn flytur
skattkort sitt milli aðalvinnu-
veitenda ef hann skiptir um
starf. Launagreiðandinn fengi
hins vegar í hendur svonefndar
skatttöflur, gerðar fyrir
ákveðin greiðslutímabil launa
(viku- eða mánaðartöflur') og
ákveðinn fjölskyldukjarna
launþega svo og fyrir þá sem
háðir væru skyldusparnaði, en
þær upplýsingar koma fram á
„skattkorti" launþegans. Að
óbreyttum lögum yrði um að
ræða fjórar skatttöflur.
Að loknum útreikningi á
launum launþega fyrir hvert
launatímabil bæri aðalvinnu-
veitanda hans:
9 að reikna út orlofsfé af or-
(ofsskyldum launum launþega
0 og með hliðsjón af launafjár-
hæð, þ.m.t. orlofi, skatttöflu
Framhald á bls. 29
Erindi flutt
hjá Rotary-
klúbbi Reykja-
víkur sl.
miðvikudag
Sigurbjörn Þorbjörnsson