Morgunblaðið - 28.04.1976, Page 18

Morgunblaðið - 28.04.1976, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRlL 1976 — Þjóðverjar Framhald af bls. 32 bókun m. o, sem er fyígiskjal við samning milli Islands og Efna- hagsbandalagsins frá 22. júlí 1972, taki gildi, eru báðir aðilar ásáttir um, að þrátt fyrir gildis- tímabil það sem greint er í 9. lið samkomulagsins • (þ.e. að samningurinn gildi í 2 ár) megi fresta framkvæmd þess, ef bókun nr. 6 hefur ekki tekið gildi innan 5 rnánaða." Samningurinn tók gildi 28. nóvember 1975 og þess vegna eru 28. april liðnir 5 mánuðir. Samkvæmt upplýsingum Mike Smartt, fréttaritara Mbl. í Hull, voru Austin Laing, framkvæmda- stjóri Sambands brezkra togara- eigenda, og Mike Burton, forseti þess, í White Hall í gær, þar sem þeir ræddu m.a. við hinn nýja utanríkisráðherra Breta, Anthony Crosland. Ennfremur er Mbl. kunnugt um að margir for- ystumenn aðrir úr brezkum fisk- iðnaði m.a. Don Lister, fram- kvæmdastjóri Consolidated Fisheries, voru á þessum sama fundi. Utanríkisráðherrann, Cros- land, er þingmaður fyrir Grimsby og hefur verið heldur mótsnúinn íslendingum i fiskveiðideilunni við Breta. Er utanríkisráðuneytið var spurt um þennan fund i gær varðist það allra frétta af honum og sagði að um væri að ræða einkafund, sem ekki mætti búast við að gefin yrði út fréttatil- kynning um. Samt sem áður var Ijóst — segir Smartt — að um- ræðuefnið á fundinum var tsland og stefna Efnahagsbandalagsins i fiskveiðimálum. Jafnframt var búizt við því að á fundinum yrði rætt um hafréttarráðstefn- una. Sagði Smartt, að sennilegt væri að þrýstingur Þjóðverja hefði orðið hvati að fundinum, enda væri ljóst að þeim væri mikið i mun að fiskveiði- samningnum milli íslands og Þýzkalands yrði ekki frestað. Þjóðverjar vinna að því að bókun 6 taki gildi í reynd, þótt ekki yrði það með formlegun hætti. — Blökkumenn Framhald af bls. I Tilkynnt var í kvöld að stjórn- völd í Ghana hefðu aflýst heim- sókn Kissingers þangað á fimmtu- dag af þeirri ástæðu að þjóðhöfð- inginn, Ignatius Acheampong, ofursti, væri veikur. Bandarfskir embættismenn töldu hins vegar f kvöld að hin raunverulega ástæða væri þrýstingur frá Sovét- ríkjunum. Sem fyrr segir var ræðu dr. Kissingers almennt vel tekið, bæði af afrískum leiðtogum og á Vesturlöndum. Kenneth Kaunda, Zambíuforseti, sagði að ræðan væri „mikilvæg breyting til hins betra. Áætlun sú sem þér hafið lýst mun hljóta fullan stuðning okkar“, sagði forsetinn við Kiss- inger í hádegisverðinum. Búizt er við að Tanzaníustjórn muni einnig fagna yfirlýsingu Kiss- ingers um harðari refsiaðgerðir gegn Rhódesíu. en Samora Machel, forseti Mozambique, kom í dag til viðræðna við Julius Nyerere, forseta Tanzaníu, um viðræður þeirra Kissingers. Hins vegar sagði Elliott Gabellah, sem nú gegnir for- mennsku i Afrfska þjóðarráðinu (ANC) aðyfirlýsing utanríkisráð- herrans ylli vonbrigðum og ekkert nýtt væri i tillögum hans. „Þegar hann talar um að segja bandarískum íbúum aó flytja á brott gleymir hann því að mikill fjöldi Bandaríkjamanna berst sem málaliðar við hlið öryggis- sveitanna gegn blökkumönnum,“ sagði hann. Talsinaður náma- iðnaðarins f Rhódesíu sagði að stöðvun króminnflutnings til Bandaríkjanna væri vissulega áfall en myndi þó ekkí valda veru- legu tjóni. í ræðu sínni sagðí Kissinger að Bandarikin myndu reyna að leiða Rhódesiustjórn fyrir sjónir það viðhorf að „skjótt samkomulag sem leiðir til meirihlutastjórnar" væri mjög brýnt. „Hvítir sem blakkir ættu að geta notið öryggis og mannréttinda 1 Zimbabwe (Rhódesiu) í framtíðinni þegar kynþáttalegu réttlæti hefur verið náð“. Hann lofaði þreföldun núverandi þróunaraðstoðar Bandaríkjanna við suðurhluta Afriku. Þá lofaði hann aðstoð við þau Afríkulönd, t.d. Zambíu og Mozambique, sem beðið hafa tjón vegna refsiaðgerða þeirra gegn Rhódesíu. Hann hvatti Suður- Afrikustjórn til að hraða því að Namibíu yrði veitt sjálfstjórn, og lítill tími væri til stefnu til afi afnema aðskilnaðarstefnuna. Hann lýsti stuðningi við einingu Afríkuríkja og varaði Sovétríkin við ihlutun í álfunni. • ÓTTI VIÐ NYTT ANGÓLA 1 ræðu sinni í kvöld sagði Ian Smith að ljóst væri að brezku og bandarísku stjórnirnar væru „dauðhræddar" við að nýtt Angólaástand skapaðist í Rhódesíu. „Þær telja ranglega, að ef takast megi að fá hvíta menn í Rhódesíu til að gefast upp þá myndu Rússar ekki hafa neina afsökun til íhlutunar hér. Þess vegna eru þær reiðubúnar til að fórna hvitum Rhódesíubúum, — og ef þurfa þykir öllum suður- hluta Afríku — til þess að kaupa tíma fyrir sig gagnvart frekari íhlutun Rússa. . .“ Hann sagði að ef hvítir Rhódesíumenn gæfust upp myndi það leiða til þvilíks valdastriðs milli blökkumanna að borgarastyrjöldin í Angóla yrði hreinn barnaleikur. Ian Smith sagði: „Ég vil segja alveg tæpitungulaust að við höf- um alls ekki í hyggju að gefast upp og afsala okkur landi okkar til að friða kommúnista. Við höf- um ekki í hyggju að láta land okkar drabbast niður í slíkt forað sem við sjáum I Mozambique og Angóla í dag.“ — Vængir Framhald af bls. 2 ákveðið að stofna nýtt flugfélag. Þ.e. nýtt flugfélag með því mark- miði að viðhalda þeirri sjálfsögðu þjónustu í samgöngumálum, sem hverju byggðarlagi er nauðsyn. Þar má nefna sérstaklega staði úti á landsbyggðinni svo sem: Siglufjörð, Blönduós, Hvamms- tanga, Hólmavík, Gjögur, Suður- eyri, Flateyri, Bíldudal, Búðardal, Reykhóla, Rif, Stykkishólm, Ólafsvík, Hellissand. Stofnfundur félagsins var hald- inn mánudaginn 26. apríl, en ákveðið er að halda framhalds- stofndund, þar sem endanlega verður gengið frá stofnun félagsins. Ákveðið er að bjóða þeim aðilum, sem hagsmuna éiga að gæta, eignaraðild að hinu nýja flugfélagi. Þar er-u einkum höfð í huga þau sveitarfélög og ein- staklingar, sem notið hafa þeirrar þjónustu, sem nú er verið að leggja niður. I'ljótlega verður' gerð grein fyrir því, hvernig endanlegri stofnun hins nýja félags verður háttað." Það kom fram á fundinum, að hið nýja flugfélag verður form- lega skrásett einhvern næstu daga. Hlutafé er 2 milljónir til að byrja með en verður síðan aukið. Ljóst er, að afar stuttur tími er til stefnu fyrir hið nýja félag, ef Vængir hætta 1. maí og hið nýja félag ætlar ekki að láta ferðir falla niður. Að sögn flug- mannanna eru uppi hugmyndir um að leita samvinnu vð önnur flugfélög á meðan hið nýja félag kemur sé upp vélakosti. F"lug- mennirnir sögðu að allt væri óákveðið með þátttöku annarra flugfélaga i þessu nýja félagi, en blaðamenn spurðu sérstaklega um Flugleiðir í þessu sambandi. Nafn hefur ekki verið valið á hið nýja félag. I lok fundarins i gær sögðu flugmennirnir að Vængir hefðu undanfarin ár komizt upp með það að greiða ekki flugmönnum sinum mannsæmandí laun og sloppið við að greiða öll launa- tengd gjöld, þar sem starfs- mennirnir hefðu ekki verið í stéttarfélagi. Félagið hefði því dafnað vel á skömmum tíma. Nú virtist hins vegar enginn áhugi hjá eigendunum að halda áfram, þegar þeir þyrftu að fara að greiða mannsæmandi laun og launatengd gjöld, því þetta væri ekki sama gullkistan og áður. „Við erum þess fullvissir áð hægt er að reka þetta flug með því að greiða sanngjörn laun, það sýnir vöxtur félagsins á undanförnum árum,“ sögðu flugmennirnir að lokum. Á blaðamannafundinum afhentu flugmenn Vængja greinargerð vegna deilu þeirra við stjórn Vængja og verður hún birt I heilu lagi I Morgunblaðinu á morgun. — Póst og sími Framhald af bls. 32 eyjum hefðu haft. Samkvæmt alþjóðalögum er heimilt að afgreiða ekki skip, ef um hernaðarleg fyrirmæli er að ræða, sem koma viðkomandi aðila illa, en Jón Skúlason sagði að hann sæi ekki hvernig unnt værí að túlka fréttir Óla á þann hátt. Ef hins vegar skeyti eða samtöl inni- halda fyrirmæli varðandi deiluna milli Islendinga og Breta, skulu fjarskipti stöðvuð og upprunastöð tilkynnt um stöðvunina. í fréttatilkynningu Póst- og símamálastjórnarinnar segir: „Ef vafi leikur á um stöðvun skulu stöðvarstjórar skera úr, en þeir geta haft samráð við póst- og símamálastjórnina, ef þörf krefur. Póst- og símamálastjórn felur umdæmisstjórum og stöðvarstjórum að sjá um að eftir þeim fyrirmælum verði farið og lítur svo á að brot gegn þessum fyrirmælum varði við lög um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkis- ins, sbr. 29. gr. laga nr. 38/1954.“ Um þetta síðasta atriði og við spurningunni um það, hvort við- komandi yrðu látnir sæta ábyrgð fyrir breytni sína, sagði póst- og símamálastjóri að um það gæti hann ekkert sagt. Hann ætti enn eftir að kynna sér málavöxtu. Loks segir i fréttatilkynningu pósts- og símamálastjórnarinnar: „Póst- og símamálastjórnin telur, að forðast beri að aðhafast nokkuð það, sem túlka mætti sem brot gegn þeim skyldum, sem ís- land hefur tekið á sig sem aðili að alþjóðafjarskiptasamningum, en samkvæmt þeim samningi er Is- landi skylt að veita almenna fjar- skiptaþjónustu, án mismununar eftir þjóðerni, nema því aðeins að viðkomandi skeyta- og frétta- sending stríði gegn öryggi lands- ins eða lögum." — Fágætar Framhald af bls. 2 staka athygli á sex binda útgáfu á Heimskringlu Snorra Sturlu- sonar, sem út kom í Kbh. á árunum 1777 til 1826. Seldist þessi útgáfa á 180.000 þús. kr. auk söluskatts síðast er hún var á uppboði hérlendis árið 1974. Þetta eintak er mjög gott, og fylgja því jafnmörg kort og töfl- ur og í eintaki Fiskesafns. Af 4. bindi þessa verks munu bara vera til 200 eintök. Á þessu uppboði eru F.ddur stærsti flokkurinn. í þeim flokki eru innlendar og erlendar Edduútgáfur, þýð- ingar og rit um Eddukvæðin. Rétt er einnig að nefna orða- bækurnar, sem eru allt gamlar bækur og fágætar, sérstaklega Supplementin eftir Jón Þor- kelsson. Lítið kver. leiðbein- ingar til bandarískra hermanna frá 1941, og orðasafn, hefur áreiðanlega ekki komið fram á uppboði fyrr. Fjórar ferðabækur eru boðnr upp, allt eru það fágæt rit og eftirsótt, ferðabók Collingwood frá 1899 með litmyndum þeim, sem gefnar voru hingað til lands. — 100 þúsund Framhald af bls. 32 yfir daginn. Að jafnaði kemur tonnið út á 50 þúsund krónur þannig að þessir menn hafa fengið 100 þúsund krónur vfir daginn. En þetta eru auðvitað undantekningar og svona fiskerí gerist ekki nema ör- sjaldan. — Skellti mér Framhald af bls. 32 en rétt áður en áréksturinn varð svo að það gafst enginn tími til að forða sér og afstýra óhappinu, sagði Eiríkur. Þegar jeppinn lenti með hliðina framan á leigubílnum steig ég á bremsurnar en þær höfðu orðið gjörsamlega óvirkar við áreksturinn, því að hásingin færðist til. Stýrið fór úr sam- bandi, bremsurnar fóru alveg og bíllinn varð þar með alger- lega stjórnlaus. Ég hef senni- lega gleymt mér aðeins við höggið, því að ég veit það næst til min að jeppinn var kominn fram á brúnina. — Ég ætlaði að fara að teygja mig í handbremsurnar en þá var bíllinn kominn framaf og allt orðið um seinan svo að ég skellti mér flötum í gólfið, skorðaði mig þar og beið þess sem verða vildi. Ég gat hvort sem var ekki haft nein áhrif á ferðina eða stefnuna og þess vegna var ekkert annað að gera. Mér datt aldrei í hug að kasta mér út, ég vissi að það þýddi ekki neitt. Brekkan var líka nærri standbrött og ferðin á bílnum varð strax ofboðsleg. — Pabbi var nýlega búinn að segja mér frá manni, sem var á bíl, sem varð allt í einu bremsu- laus, en að koma að rauðu um- ferðarljósi og hafði stóran flutningabíl næst fyrir framan sig. Maðurinn hafði kastað sér aftur í aftursætið og þaðan í gólfið og slapp ómeiddur við skellinn. Þess vegna datt mér nú i hug að gera svipað, fleygja mér í gólfið. —Á leiðinni var ég að hugsa með mér hvort jeppinn tylldi á hjólunum eða ylti en þá var mikil hætta á því að ég fengi gírstengurnar i gegnum mig. Ég var líka að hugsa um hvar jeppinn og ég sjálfur lentum að lokum. Jeppinn fór aldrei af hjólunum fyrr en hann stöðvaðist, og ekkert skil ég í því hvernig hann komst hjá því að velta. Ég gerði mér ljóst að ef hann endastyngist væri mjög tvísýnt um líf mitt en mest var ég hræddur um að hann kast- aðist alveg niður í fjöru og út í sjó og ég lenti i sjónum, kannski rotaður eða beinbrot- inn og það hefði verið óglæsi- legt. Lika hefði útlitið verið svart ef hann hefði runnið austur af húsþakinu og þar fram af en það sá ég ekki fyrr en seinna. — Hraðinn var nú orðinn ofsalegur. Ég fann óljóst þegar jeppinn tókst á loft og sveif yfir girðinguna, en dálítið fyrir högginu þegar hann kom niður aftur. Loksins heyrði ég dynki og læti, brak og bresti og vissi ekki fyrr til en jeppinn lá á hliðinni uppi á húsþakinu. Ég skreiddist þá upp úr flakinu og steig út, ekki einu sinni skrámaður neins staðar nema hvað þessi smá rispa á fingur- inn. Ég hef ekki einu sinni sett á hana plástur. — Já, þetta kalla ég heppni. Það er kannski ekki nógu sterkt til orða tekió, kraftaverk væri sanhi nær, þettavar vitan- lega kraftaverk og ekkert annað. Og þetta var á afmælinu mínu, ætli það hafi ekki átt að vera manndómsvígsla eða eitt- hvað svoleiðis? — Sv.P. — PPD hótar Framháld af bls. 1 stjórn sósíalista myndi hins vegar auka hættu á byltingu hægri afl- anna. Hann kvaðst vita um tvenn samtök utanlands sem hefðu slíkt í huga. Hann hvatti einnig til þess að þessir þrír flokkar veldu sam- eiginlegan frambjóðanda úr hópi herforingja við forsetakosn- ingarnar í júni, en eftir þær verður ný ríkisstjórn mynduð. Sa Carneiro sagði i dag að ef svo færi að sósíalistar mynduðu stjórn einir myndi PPD ekki beita þingstyrk sínum til að steypa henni, heldur aðeins hafna þeim stefnumálum hennar sem ekki væru aðgengileg fyrir flokkinn. Hins vegar hafnaði hann hug- mynd um að PPD og CDS mynduðu stjórn saman: Stjórnmálanefnd Kommúnista- flokksins sagði í yfirlýsingu í kvöld, að flokkurinn væri „reiðu- búinn til að taka til athugunar allar hugmyndir sem gætu Ieitt til staðfestingar á vinstri þingmeiri- hlutanum í raun og myndunar vinstri stjórnar“. — Moro Framhald af bls. 1 Giovanni Leone, forseti, muni leysa upp þingið í síðasta lagi 5 mai og boða til nýrra kosninga 20. júní. Óttazt er að kosningabarátta nú yki ekki aðeins sundrunguna i landinu heldur og kynti undir of- beldisverk, sem verða æ fleiri á ítaliu, Flestar skoðanakannanir spá því að kommúnistar verði stærsti flokkur landsins eftir kosningar og bindi þannig enda á 30 ára yfirburðastöðu kristilegra demókrata i ítölskum stjórn- málum. — Brezka útgerðin Framhald af bls. 2 af islandsmiðum og sá siðast- nefndi missti einmitt vörpu í viðureign við varðskip í þessari veiðiferð, sem nú er að ljúka. Grimsbytogarinn Christal Palace hafði i gær ekki boðað löndun í Grimsby, en hann lenti í útistöðum við varð- skipið Óðin á sunnudag eins og getið var í Mbl. í gær. Fór hann þá af miðunum. Jón Olgeirsson kvað talið að togarinn hefði haldið á Færeyjamið og myndi ljúka veiðiferð þar áður en hann kæmi heim. — Tollheimta Framhald af bls. 14 stefnt er að með nefndri laga- setningu, þ.e. að auka varnað og að létta verulegu álagi af dómstól- um með því að eigi er nauðsynlegt að vísa smærri brotum almennt til meðferðar dómstólanna, er lagt til, að nefndum sektarmörkum verði breytt þannig, að hámarks- fjárhæð sekta verði hækkuð í kr. 4.000.000 og heimild tollyfirvalda til að ákvarða sektir verði bundin við hámarkssekt kr. 60.000. Eigi er talin þörf á að hækka að svo stöddu núgildandi hámarks- heimild tollyfirvalda til eignar- upptöku, sem nú nær til verð- mæta allt að kr. 100.000. — Afengisfræðsla Framhald af bls. 14 — hafa orðið margar gerbreyt- ingar í þjóðfélagi okkar, sem nauðsynlegt er að taka mið af. í öðrum lið tillögunnar er farið fram á aukið liðsinni fjölmiðla í baráttunni gegn áfengisbölinu. Er þar sérstaklega bent á sjón- varpið sem vafalaust er hvað áhrifamesta tækið, sem við höfum yfir að ráða til að ná athygli fólks á öllum aldri. Hljóðvarpið hefur þegar um alllangt skeið haldið uppi ágætum þáttum um áfengis- mál, og ber að virða þá góðu við- leitni. Nefndin bendir réttilega á, að mikið væri unnið, ef hægt væri að svipta hinum falska dýrðar- ljóma af áfenginu með markvissri fræðslu og áróðri í fjölmiðlum — dagblöðum og útvarpi. Athyglisverðar fréttir um áfengismál af innlendum og erlendum vettvangi í fréttatímum sjónvarps, auk sérstakra umræðu- þátta, t.d. i Kastljósi, sem vel væri vandað til, gætu tvímælalaust orðið hér að liði. Þá væri og eðli- legt og sjálfsagt, að um þessi efni væri fjallað í íþróttaþáttum fjöl- miðla og áhersla lögð á, að áfengi og íþróttir fara ekki saman. Ríkisfjölmiðlum ber tvímæla- laust siðferðileg skylda til að sinna þessum málum af meiri alvöru en hingað til, svo drjúg tekjulind sem ágóði af áfengis- sölu er íslenska ríkinu. Sá ágóði er þó að stórum hluta blekking ein, og enginn vafi er á, að aukin bindindissemi þjóðarinnar og minnkandi áfengisneysla mundi skila margföldum arði í betra og heilbrigðara þjóðlífi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.