Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK 104. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Símamynd AP JEAN BILSKI, maðurinn sem skaut til dauða Jacques Chaine, rösklega sextugan bankastjóra, á götu í Paris í gær, sést hér liggja fyrir framan bíl sinn eftir að hafa framið sjálfsmorð fáeinum andartökum eftir að hann hafði drepið Cháine. Sankastjóri skotiun París Morðinginn svipti sig lífi eftir að hafa framið ódæðið París, 14. maí. Reuter. JACQUES Chaine bankastjðri næst stærsta banka Frakklands var skotinn til bana á götu í París síðdegis í dag, er hann var að stíga út úr bifreið sinni. Morðinginn var ungur maður, Jean Bilski, sem lögreglan bar kennsl á vegna þess að hann er grunaður um að starfa í bönnuðum stjórnleysingjasamtökum. Bilski skaut sig strax á eftir og lézt samstundis. Atburður þessi gerðist skammt frá aðalbanka Lyonais á fjölfar- inni götu í París og var fjöldi manns vitni að honum. Eiginkona Chaine sem sat í framsæti bif- reiðar þeirra særðist nokkuð er flís úr einni af kúlunum sem skot- ið var á mann hennar lenti í and- liti hennar. bankastjórann. Bilski komst fyrst úndir mannahendur fyrir fimm árum, þegar hann var handtekinn með efni til að útbúa sprengjur. Þá var ekki höfðað mál á hendur honum, vegna þess hve ungur hann var. Heimildir innan lögreglunnar höfðu sagt rétt eftir morðið að Bilski væri grunaður um að vera í stjórnleysingjasam- tökum, en talsmaður innanríkis- ráðuneytisins sagði að það hefði ekki verið sannað. Bifreiðastjóri bankastjórans sagði að ungi maðurinn hefði hrópað að Chaine í þann mund er hann hleypti af, en honum hefði ekki tekizt að greina orðaskil. Náinn samstarfs- maður bankastjórans sagði Reu- ter fréttastofu frá því f kvöld að raddir væru uppi um að morðið gæri verið af persónulegum hvöt- um sprottið. Grunur léki og á að Chaine hefði fengið hótunarbréf upp á siðkastið og gæti verið að Bilski hefði staðið á bak við þau. Olíuskipsstrandið: Eldur tefur fyrir bj ör gunar star finu La Coruna, Spáni, 14. maí. Reuter. NTB. AP. ELDUR gaus upp á nvjan !eik f brú olíuskipsins Uriquiola úti fvrir La Coruna á Spáni og tafði það tilraunir hollenskra sérfræðinga sem komnir voru á vettvang til að revna að koma í veg fvrir meiriháttar olíuleka úr skipinu sem ógnar nú ströndunum i kring og skelfiskmið- um út af norðvesturströnd Spánar. Eldurinn slokknaði eftir tveggja klukkustunda slökkvi- störf. Skipið liggur í hafnarmynni La Coruna þar sem það steytti á skeri fyrir þremur dögum. Það var talið hið mesta kraftaverk að eldurinn skyldi lognast út af af sjálfu sér og ná ekki að breiðast út til eldsneytisgeymanna. Hol- lenzku sérfræðingarnir sem eru Carter hefur langmest fylgi Washington, 14. maí. Reuter. JIMMY CARTER mvndi bera sigur úr býtum í forsetakosn- ingum í Bandarfkjunum, færu þær fram nú og hvort sem mót- frambjóðandi hans væri Ford forseti eða Reagan. Þetta kem- ur fram f niðurstöðu skoðana- könnunar sem birt var í Washinglon Post f dag. Þar segir að Carter myndi sigra Ford með 14% atkvæða mun, fá 48%, en Ford 34%. Hann myndi sigra Reagan með ögn meiri mun, fá þó 50% og Reagan 32%. Átján prósent spurðra höfðu ekki gert upp hug sinn. Skoðanakönnun þessi var framkvæmd daginn áður en forkosningarnar fóru fram f Nebraska, þar sem Franch Church vann óvæntan Framhald á bls. 18 með sérstakan dæluútbúnað ætla að reyna að dæla nægilega mikilli olíu úr skipinu yfir í geyma til að koma skipsflakinu af skerinu svo að unnt verði að draga það í höfn. Öllum ber saman um að þessi aðgerð geti ekki hafist meðan eldur logar í skipinu. Bæjarstjórn La Coruna hefúr farið þess á leit við ríkisstjórnina að borgin og umhverfi hennar verði lýst neyðarsvæði og hefur óskað eftir því að þegar verði veitt til björgunarstarfsins einn milljarður peseta. í bænum og úthverfum búa um 150 þúsund manns. Talið er nú að enn sé í geymum skipsins milli 80—90 þús. tonn af hráolíu en geysi- þykkt olíulag hefur þegar flotið upp að strönd La Coruna. Urquiola var sjósett árið 1973 og var á leið til La Corona frá Persaflóa með um það bil 100 þús. tonn af olíu, þegar skipið strand- aði. . . . r vöruskipta- jöfnuður Breta London, 14. maí. AP. BREZKA fjármálaráðuneytið skýrði frá því í dag að vöruskipta- jöfnuður landsmanna hefði verið óhagstæður um 225 milljónir ster- lingspunda f sl. mánuði. Tilkynn- ing þessi olli miklum vonbrigðum í brezkum fjármálaheimi og gengi steriingspunds lækkaði um 1 cent gagnvart dollar og öðrum gjald- miðlum. Þetta er versta útkoma vöruskiptajafnaðarins á sl. 5 mán- uðum, en í marz var hann t.d. aðeins óhagstæður um 16 milljón pund. Er þetta í annað sinn á þremur dögum að morð er framið um há- bjartan dag I París, en sendiherra Bólivíu þar í borg var drepinn fyrir nokkrum dögum. Morðingi hans komst undan og hefur lög- reglu ekki tekizt að hafa hendur í hári hans. Talsmaður innanrikisráðu- neytisins sagði í dag að enda þótt Bilski væri lögreglunni ekki með öllu ókunnur væri ekki vitað til að hann hefði átt sökótt við Stjórnmála- samband Islamabad, 14. mai. Reuter. INDVERJAR og Pakistanar hafa ákveðið að taka á ný upp stjórn- málasamband og skiptast á sendiherrum. Var frá þessu sagt í Islamabad í dag i sameiginlegri yfirlýsingu fulltrúa ríkisstjórna landanna. Stjórnmálasambandi rikjanna var slitið í desember 1971 vegna Bangladeshstríðsins. Haig yfirmaður NATO: Hernaðarútgjöld í Sovét hærri en Bandaríkjanna Bríissel, 14. maf. Reuter. ALEXANDER Haig, yfirhershöfðingi Atlants- hafsbandalagsins, sagði í grein í NATO-blaðinu, sem út kom í dag að Sovétríkin væru orðin svo sterk, að þau gætu fylgt eftir útþenslu- stefnu um allan heim. Sagði Haig, að Angóla væri mjög mikilvægt dæmi í þessu sambandi. Haig, sem hefur hafist Haig handa um mikla endur- skipulagningu á herjum NATO til að gera þá virkari, sagði að NATO- ríkin yrðu að samhæfa hernaðargetu sína til að hafa í fullu tré við getu Sovétríkjanna. Hér er um að ræða sérútgáfu af NATO-blaðinu í tilefni utanríkisráðherrafundar NATO-ríkjanna, sem hefst í Ósló á fimmtudag nk. t greininni segir Haig að Sovétríkin hafi á undanförnum 10 árum aukid hernaðarú.tgjöld sín um 3—5% árlega Hann sagði aó á sl. ári hefðu Sovétríkin varið þriðjungi hærri upphæð til varnarmála en Banda- ríkin Haig sagði að geta bandalagsins til að sporna gegn sovézkri árás byggóist á sameig- inlegum vilja og á ásetningi vestrænna ríkja til að beita vopnum sínum i striði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.