Morgunblaðið - 15.05.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAl 1976
3
Leifur Eiríksson í
fararbroddi 4. júlí
Skipverjar byrjaðir að safna skeggi
EINS og flestum er kunnugt
halda Bandarfkin 200 ára þjóð-
hátfð þann 4. júlf næst kom-
andi og í þvf tilefni mun fjöldi
skipa frá mörgum þjóðlöndum
sigla upp East River við New
York. Öll eru skipin af gamalli
gerð og sum gömul. Þetta atriði
þjóðhátfðarinnar er talið vekja
hvað mesta athygli. Akveðið er
að íslendingar taki þátt f sigl-
ingunni upp East River og
verður farkosturinn þjóðargjöf
Norðmanna til tslendinga á
1100 ára afmælinu, vfkinga-
skipið Örn. Fvrir siglinguna
upp East River verður skipt um
nafn á þvf og verður það fram-
vegis nefnt Leifur Eirfksson.
Þeir Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi og Sigurður A.
Magnússon rithöfundur hafa
unnið mikið að undirbúningi
fyrir þessa för. Þeir sögðu er
Mbl. hafði samband við þá í
gær, að lagt yrði upp frá smá-
höfn á Long Island eyju.
Skipunum yrði skipt í flokka,
og fyrsti flokkur yrði heiðurs-
flokkur 11 smáskipa. Ekki er
fullráðið hver röð skipanna
verður, en að líkindum verður
farið eftir starfrófsröð þannig
að ísland yrði nr. 5 eða 6 á
undan Italfu.
Þessa dagana er unnið að við-
gerð á Erni, en skipið var orðið
nokkuð skemmt, m.a. var kjölur
þess brotinn og sömuleiðis
stýri. Bandarfkjamenn hafa
beðið íslendinga um að hafa
drekahöfuð í stafni skipsins og
verður það smíðað áður en lagt
verður af stað i förina.
Flugleiðir og Eimskipafélag
íslands hafa sýnt þessu máli
mikinn áhuga og munu Flug-
leiðir flytja áhöfn skipsins til
Bandaríkjanna, en Eimskip
mun sjá um flutning skipsins.
Gert er ráð fyrir að átta
manna áhöfn verði á skipinu.
Þegar er ákveðið að í áhöfninni
verði þeir Sveinn Sæmundsson,
Sigurður A. Magnússon, Viggó
Maack, Hinrik Bjarnason og
Knútur Mogensen, en hann var,
einn þeirra er sigldi skipinu frá
Noregi til íslands. Þá hefur
Framhald á bls. 31.
Vfkingaskipið örn. Það mun
bera nafnið Leifur Eirfksson f
nánustu framtfð.
Norræna félagið:
17 kennurum boð-
ið til Danmerkur
SU HEFÐ hefur skapast að, Danir
bjóði fslenzkum kennurum f
heimsókn annað hvert ár og Is-
lendingar dönskum kennurum á
sama hátt f heimsókn f jórða hvert
ár.
Nú í sumar býður danska
Norræna félagið og dönsku
kennarasamtökin 17 íslenzkum
kennurum, af öllum skólastigum,
til ókeypis dvalar í landinu, frá
14. ágúst til 1. september.
Þátttakendur þurfa aðeins að
greiða ferðina Reykjavík —
Kaupmannahöfn — Reykjavík.
Dvalið verður í Kaupmannahöfn,
Snoghöj lýðháskóla og hjá dönsk-
um kennurum á landsbyggðinni.
Þá verður kennurunum gefinn
kostur á að heimsækja skóla og
menntastofnanir meðan á dvöl
þeirra í Kaupmannahöfn stendur.
Umsóknir þurfa að hafa borist
Norræna félaginu í Reykjavík
fvrirlO iúnf
Tónlistarfélagið:
Píanósnillingnrinn
Gilels leikur í
Háskólabíói í dag
RUSSNESKI pfanósnillingurinn
Emil Gilels heldur píanótónleika
f dag á vegum Tónlistarfélagsins.
Þeir eru í Háskólabfói og hefjast
kl. 2.30. Gilels leikur verk eftir
Beethoven, Brahms og Debussy.
Emil Gilels lék einleik með
sinfónfuhljómsveit íslands sl.
fimmtudagskvöld. Hlaut hann fá-
dæma góðar undirtektir áheyr-
enda, sem risd á fætur til að hylla
hann að leik loknum.
Á efnisskránni á tónleikum
Tónlistarfélagsins í dag eru þrjár
sónötur Beethovens, nr. 25, op. 79
í G-dúr. nr. 26, op. 81 a i Es-dúr og
nr. 27, op. 90 í e-moll.
Þá eru fjórar ballöður, op. 10,
eftir Brahms og Tónamyndir
(Images) eftir Debussy.
Norræna félagið:
15 boðið ókeypis
til Svíþjóðar
TVÖ sfðastliðin ár hefur Norræna
félagið f Norrbotten f Svfþjóð
boðið nokkrum fslendingum á
hálfsmánaðarnámskeið f sænsku,
þeim að kostnaðarlausu. Að nám-
skeiði loknu hefur þátttakendum
verið boðið f nokkurra daga ferð
um norðurhéruð Svíþjóðar, Finn-
lands og Noregs, um byggðir
sama, er f daglegu tali kallast
Nordkalotten á skandinavisku
málunum.
Það er einróma álit þeirra er
farið' hafa, að allt fyrirkomulag
námskeiðsins sé frábært, öll
kennsluskilyrði eins góð og best
verður á kosið og áð þátttakend-
um sé kynnt þjóðlif og menn-
ingarlíf þessa norræná hluta
Svíþjóðar svo vel að þeir hafi
öðlast nýja innsýn í lifnaðarhætti
fólks á þessum norðlægu slóðum.
Nú í sumar er enn á ný boðið
fimmtán íslendingum á slíkt nám-
skeið, er haldið verður 2.—14.
ágúst. Áhugafólk getur snúið sér
til Norræna félagsins í Norræna
húsinu, kl. 16—19 og fengið þar
nánari upplýsingar og þar geta
væntanlegir umsækjendur fengið
umsóknareyðublöð.
Umsóknarfrestur er til 23. maí.
Vortónleikar hjá
Tónlistarskólanum
1 Görðum 1 dag
VORTÓNLEIKAR Tónlistarskól-
ans í Görðum verða haldnir i
íþróttahúsinu Ásgarði í dag,
laugardag og hefjast kl. 5 sd. og
sunnudaginn 16. maí kl. 11
árdegis við helgiathöfn í Garða-
kirkju. Skólanum verður síðan
slitið að tónleikunum loknum.
Gítartónleikar Péturs Jónassonar
verða endurteknir fimmtudaginn
20. maf kl. 20 i Garðaskóla.
AJAX með sítrónukeim
nýja uppþvottaefnið
sem
fjarlægir fitu
fljótt og vel.
Nýja AJAX -
uppþvottaefnið
fjarlægir fituleifar án
fyrirhafnar. Teskellur
- eggjabletti - varalit.
Vinnur bug á lykt -
jafnvel fisk- og
lauklykt - heldur
uppþvottavatninu
ilmandi.
AJAX með
sítrónukeim -
hin ferska
orka.