Morgunblaðið - 15.05.1976, Side 7

Morgunblaðið - 15.05.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976 7 Heimsstríð og þorskastríð Brezka Verkamanna- flokksstjórnin stýrir gróf- um herskipa- og flugflota- aðgerðum gegn óvopnaðr: smáþjóð og bandalags- þjóS. sem á llfshagsmuni að verja I viðhaldi llfs i hafinu umhverfis landið. Þegar neyð Bretans var stærst, á tlmum siðari heimsstyrjaldarinnar, fluttu íslenzkir sjómenn þeim sjávarafla sinn. ís- lenzka þjóðin galt þá að- stoð hlutfallslega meira mannfalli en Bretar sjálfir sina styrjaldarþátttöku. Þrátt fyrir þessa stað- reynd og þrátt fyrir viður- kenningu brezkra visinda- manna á hrunhættu þorskstofnsins stunda þeir rányrkju á miðum okkar. jafnvel alfrið- uðum hrygningar- og ungf iskasvæðum, und- ir herskipavernd. Lifi löggæzlumanna okkar (varðskipsmanna), sem sumir hverjir bera heið- ursmerki fyrir björgun brezkra sjómanna úr sjáv- arháska. stefnir brezki flotinn i endurtekna hættu á sifellt grófari og viðurstyggilegri hátt. Á öllu þessu ber brezka stjórnin fulla ábyrgð: að- förinni að lifshagsmunum vopnlausrar vinaþjóðar, aðförinni að lifkeðju sjáv- ar (sem er glæpur gegn framtíðinni) og aðförinni að einingu vestrænna lýð- ræðisrikja (sem verið hef- ur hvalreki á fjörur kommúnista hér á landi og andvestrænnar stefnu þeirra) Og það er út af fyrir sig skiljanlegt, að fólki hitni svo I hamsi að tilfinningahitinn beri rök- hyggju þess og heilbrigt mat á aðstæðum öllum yfirliði, þó skapsmunir megi ekki verða skynsem- inni yfirsterkari til lang frama Að nýta vopnin eða kasta þeim frá sér Við þvi var að búast. að kommúnistar hér á landi nýttu þau tækifæri, sem ofbeldi brezku stjórnar- innar færir þeim i hendur, til að knýja fram andstöðu gegn aðild að Nato og veru varnarliðs i landinu. Áróður kommúnista og yf- irgangur Breta falla að þessu leyti i sama farveg. þjóna sama tilgangi og eru samverkandi. Engu að siður er það staðreynd, að aðild okkar að Nato hefur i öllum þorskastriðum, sem við höfum háð, kom- ið i veg fyrir, að Bretar þyrðu að beita hermætti sinum til fulls gegn okkur. Engum dylst. að hernaðar- legir yfirburðir þeirra eru fyrir hendi, þó að mál- efnalega séum við sterk- ari. Þeir sem allar götur hafa talið aðild ísland að Nato af hinu illa heimta nú háværir, að við nýtum þau „tiltæku vopn" i þorskastriðinu, sem þessi aðild fær okkur I hendur. Af lævisi er þessi krafa þó þann veg fram sett, að ef eftir henni væri farið. þ.e. að ísland gangi úr Nato og visaði varnarliðinu á braut. stæðum við uppi ÁN ÞESSARA VOPNA. sem krafizt er að nýtt séu. Við islendingar förum ekki úr Nato, við köllum sendiherra okkar ekki heim frá Brússel og við vísum varnarliðinu ekki úr landi. Þvert á móti. Við hagnýtum okkur þann vettvang sem Nato er. til sóknar gegn Bretum, til þess að sýna umheimin um framan i ofbeldi þeirra. Við höfum allar götur sýnt sáttfýsi að þeim mörkum, sem fiski- fræðilegar staðreyndir okkar leyfa, og það hefur ekki sizt styrkt okkur á erlendum vettvangi og fært okkur þann árangur. sem þar hefur náðst. Gluggað í gærdaginn íslenzkir kommúnistar stóðu, meðan stætt var, gegn útfærslu fiskveiði- landhelgi okkar I 200 sjó- mílur í viðtali við Þjóð- viljann sagði Lúðvík Jós- epsson, er þetta mál var I deiglunni, að þetta spor ætti ekki að stíga fyrir en einhvern tíma í framtið- inni, að breyttum hafrétt- arlögum eða lokinni haf- réttarráðstefnu Samein- uðu þjóðanna Þetta voru hans fyrstu viðbrögð, eftir fiskifræðilegar staðreynd- ir um hrunhættu þorsk- stofnsins, sem íslenzk ir f iskif ræðingar og fundur Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðiráðs- ins létu frá sér fara þegar á árinu 1972. Þá var sóknin í þorskstofninn á þessu hafsvæði þegar tal- in helmingi meiri en veiði- þol hans leyfði. Næstu viðbrögð hans og þings- manna Alþýðubandalags- ins allra voru samningarn- ir við Breta, ári siðar (1973), til tveggja ára, þ.e. 130.000 tonna þorskafla, þeim til handa hvort árið. Ráðherrar og þingmenn kommúnista höfðu sælir setið i tveimur ríkisstjórnum, innan Nato, í sátt við varnarliðið á Miðnesheiði, og háð sín þorskastríð, án þess að slíta stjórnmálasambandi við Breta (samningar við þá komu i þess stað). Þannig eru nú heilindin i „hugsjónunum" Komm- únista, þegar gluggað er i gærdag þeirra, staðreynd- imar að baki vigorðunum, sem „nytsamir sakleys- ingjar" eiga undir að ganga í dag. Það, sem skiptir öllumáliog ráða á afstöðu okkar Það sem skiptir öllu máli, þegar aðstæður eru skoðaðar ofan i kjölinn, er að ná þeim markmiSum, sem a8 er stefnt, hóflegri veiðisókn i þorskstofninn og stjómun á nýtingu f iskimiðanna. Það er rangt að heyja strið striðs- ins eins vegna, þó að við getum neyðzt til þess að verja lifshagsmuni okk- ar. Það er rangt að semja samninganna einna vegna, þó það geti verið skynsamlegt, ef við tryggjum hagsmuni okkar og rétt betur með þeim hætti en án samninga. Þar um verða efnisatr- iði að ráða. þ.e. hvort veiðisókn verði nægilega skert, fiskverndarsjónar- mið virt, hættuástandi bægt frá, tollfriðindi tryggð og önnur efnisatr- iði með þeim hætti, sem við má una örfáa mánuði fram yfir hafréttarráð stefnu Sameinuðu þjóð- anna. AA nefnu (ilefni skal á það bent að messutilkynningar í þessum dálkum verða að berast árdegis á fimmtudng- um. DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd. Séra Þórir Stepensen. BREIÐHOLTSPRESTAKALL Messa í Breiðholtsskóla kl. 2 síðd. Séra Lárus Halldórsson. HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Lesmessa miðvikudag kl. 10.30 árd. Beðið fyrir sjúkum. Prestarnir. DÓMKIRKJA KRISTS konungs Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. GRENSASKIRKJA Messa kl 11 árd. — altarisganga. Séra Halldór S. Gröndal. SELTJARNARNESSKÓKN Guðþjónusta kl. 11 árd. í félagsheimilinu. Séra Guð- mundur Óskar Ölafsson. Arbæjarprestakall Guðþjónusta í Arbæjarkirkju kl. 11 árd. (Athugið breyttan messustað og tíma). Séra Guð- mundur Þorsteinsson. FRIKIRKJAN Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björns- son. IIJALPRÆÐISHERINN Klukkan 11 árd. helgunarsam- koma. Kl. 8.30 síðd. Hjálp- ræðissamkoma. Brigadier Ingi- björg Jónsdóttir. LANGIIOLTSPRESTAKALL Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Séra Árelíus Níelsson. Guð- þjónusta kl. 2 síðd. Ræðuefni: 1 vor kirkju jarðar. Séra Sig- urður Haukur Guðjonsson. Sóknarnefndin. BUSTAÐAKIRKJA Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Ólafur Skúlason. FELLA- OG HÓLASÓKN Guðþjónusta í Fellaskóla kl. 2 siðd. Ingólfur Guðmundsson lektor prédikar. Séra Hreinn Hjartarson. LAUGARNESKIRKJA Messa kl. 2 siðd. Séra Garðar Svavarsson HATEIGSKIRKJA Messa kl. 2 síðd. Séra Arngrimur Jónsson. ASPRESTAKALL Kirkjudag- ur, sem hefst með guðþjónustu kl. 2 siðd. að Norðurbrún 1. Séra Grímur Grímsson. NESKIRKJA Guðþjónusta kl. 2 síðd. Frank M. Halldórsson Kaffisala kvenfélagsins að lok inni guðþjónustu. FlLADELFlUKIRKJAN Safn aðarguðþjónusta kl. 2 siðd. Almenn guðþjónusta kl. 8 siðd. Einar ,1. Gíslason. ELLI- OG HJtJKRUNAR- HEMILIÐ Grund. Messa kl. 2 síðd. Séra Gunnar Árnason messar. Fél. fyrrv. sóknar- presta. FÆREYSKA Sjómanna- heimilið Samkoma verður kl. 5 Séra Frank M. Halldórsson Guðspjall dagsins Jóh. 16, 5,—15.: Sending heilags anda prestur í Nessókn talar. Þetta verður síðasta samkoma í sjó- mannaheimilinu á þessu vori. Johan Olsen. LAGAFELLSKIRKJA Guðþjónusta kl. 2 sfðd. Séra Bjarni Sigurðsson. DIGRANESPRESTAKALL Guðþjónusta kl. 2 síðd. í Kópa- vogskirkju. Séra Þorbergur Kristjánsson. KARSNESPRESTAKALL Guðþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11 árd. Séra Árni Pálsson. GARÐAKIRKJA Helgiathöfn kl. 11 árdegis. Hluti af vortón- leikum Tónlistarskólans og skólaslita. Séra Bragi Friðriks- son. FRlKIRKJAN í Hafnarfirði. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Fermingarmyndir vorsins af- hentar. Safnaðarprestur. NJARÐVÍKURPRESTA- KALL Sunnudagaskóli i Innri Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd. og i Stapa kl. 1.30 siðd. Séra Páll Þórðarson. KEFLAVÍKURKIRKJA Guðþjónusta kl. 11 árd. Séra Ölafur Oddur Jónsson. STOKKSEYRARKIRKJA Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. GAULVERJABÆJAR- KIRKJA Guðþjónusta kl. 2 siðd. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA Messa kl. 2. síðd. Séra Sigurður Sigurðar- son. AKRANESKIRKJA Messa kl. 10.30 árd. (Athugið breyttan messutíma). Séra Björn Jóns- son. Islenzka umboðssalan hf., sími 26750 Snör handtök lækka kostnaðinn Sjálfvirka FMC-bindi- vélin er fljótvirk og örugg. Verðið er þó hagstætt. Leitið upplýsinga ísima 26750. l-2-trio... stærsta úrval ársins! Komið og sjáið TJALDBÚÐIR Sími GEITHÁLSI 28553 Vorkapp- reiðar 1. kappreiðar ársins verða haldnar sunnudag- inn 1 6. maí á skeiðvelli félagsins að Víðivöllum, (Selási) og hefjast kl. 14, með glæsilegri hóp- sýningu unglinga. Þá fer fram keppni 1 eftirtöld- um hlaupum: Skeiði, 250 m. Stökki 250 m., 350 m., og 800 m. Þar að auki 1 500 m brokki. Þarna koma fram einhverjir snjöllustu hestar landsins milli 60 — 70 hlaupagarpar. Veöbanki starfar Komið og fylgist með spennandi keppni. Vatnsveituvegur verður eingöngu opinn gestum mótsins, frá kl. 13 —17. Starfsmenn mæti kl. 1. Hesthús félagsins í Selási verða lokuð milli kl 13 og 17. Ath. Forskoðun kynbótahrossa sem sýna á Fjórðungsmótinu á Rangárbökkum, verður á skeiðvelli félagsins, laugardaginn 15. maí. Stóðhesturinn Hrafn frá Holtsmúla, verður til afnota hjá okkur næstu vikur. Hestamannafélagið Fákur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.