Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976
Magnús A rnason
húsvörður 70 ára
Á LOKADAGINN 11. maí s.l. varð
Magnús Árnason, húsvörður í
Vogaskóla, sjötugur. Hann kaus
að skreppa úr bænum á afmælis-
daginn og láta sem minnst vita af
þessum tímamótum. Því birtist
þessi afmæliskveðja eigi á réttum
degi ogverður raunarsmá í snið
um. Hins vegar er Magnús slíkur
maður að eftir honum er tekið
hvar sem hann dvelur lengur eða
skemur. Valda þar einstakir hæfi-
leikar hans til mannlegra sam-
skipta, þægiiegt viðmót og lipurð.
Orsakir þessa munu margar, má
þar til nefna frábært minni um
ættir manna og uppruna, við-
ræðuhæfni, að ógleymdum arfi og
uppeldi úr foreldrahúsum, en
Magnús er sonur sr. Árna Þórar-
inssonar, sem oftast er kenndur
við Stóra-Hraun, og konu hans
önnu Maríu Elísabetar Sigurðar-
dóttur frá Syðra-Skógarnesi. Þótt
hér verði eigi rakið frekar, standa
sterkir ættstofnar að Magnúsi
húsverði og engi hefur hans
reynzt ættieri. Hygg ég kunnug-
um þyki sannmæli um hann það
er Þorbergur skráði eftir föður
hans: „Ég trúi því, að allir þeir,
sem eru af góðum ættum, hljóti
þá gæfu að gera eitthvað til
gagns."
Kynni okkar Magnúsar hófust
fyrir tæpum 9 árum, er hann kom
að Vogaskóla sem húsvörður, en
hafði þá um nokkurt skeið starfað
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Strax við fyrsta mót okkar vakti
hið hlýja viðmót athygli mína.
Þótti mér sýnt, að annaðhvort
væri maðurinn mikill leikari eða
hann mundi reynast næsta vel
fallinn til samskipta við skóla-
nemendur. Sannazt hefur hér hið
síðara en hitt jafnhliðaorðið vissa
mín, að eigi væri Magnús vel fall-
inn til að leika neinn — nema
sjálfan sig. Heiðarleiki og velvilji
einkenna svo viðræðu hans og
störf öll að engum leynist sem
manninum kynnist. I erilsömu og
oft vanþökkuðu starfi við umsjón
og eftirlit I skóla eru þessir kostir
ómetanlegir. Aldrei veit eg
Magnús hafa hrakið skólanem-
SÉRTILBOÐ
— LITAVER — LITAVER
LITAVER — LITAVER
GOLFTEPPI
Veggfóöur — Málning
Lítið við í Litaveri því það hefur
ávallt borgað sig.
msrv
Hreyfilshúsinu við Grensásveg
SÉRTILBOÐ
Að mörgu er að hyggja,
er þú þarft að tryggja
Heimilistrygging SJÓVÁ bœtir tjón ó innbúi af völdum
eldsvoóa, vatns, innbrota og sótfalls, einnig óbyrgóar-
skyld tjón - svo nokkuó sé nefnt.
anda frá sér með hryssingslegum
svörum eða viðbrögðum. Kvabbi
þeirra tekur hann með afalegri
hlýju, cnda er hann að eðlisfari
barngóður með afbrigðum. Fróð-
leikur hans um menn og málefni
verður oft tilefni til ánægju-
stunda, þar sem Magnús rekur
saman ættir nemenda, sem lengi
hafa þekkzt en aldrei vitað nokk-
ur skyldleikabönd sín í milli. Hefi
ég haft margt gaman að undrun
nemendanna og gleði fræða-
mannsins, er frændsemin var
fundin. Þótt eg sé sá skussi að
kunna engar ættartölur, þá hefi
eg alltaf dáðst að þeim hæfileika i
fari annarra og talið hann mjög
mikils virði. Eg er alinn upp við
það viðhorf, að spurt væri hverra
manna gesturinn væri og þá „ekki
verið að tala um fátæka og ríka“
eins og sr. Árni segir í ævisögu
sinni. Hitt var trú manna eða
vissa, „að sjaldan félli eplið langt
frá eikinni“, af ætterni manna
mætti allglöggt spá hvers vænta
mætti. Við skólamenn trúum auk
þess á mikilvægi uppeldis. Ef
saman fer góður stofn og gott
uppeldi, þá fer vart hjá að úr
verði nytjaþegn. Sú mun og trúa
Magnúsar, enda hefur það sann-
azt á honum sjálfum.
Ekki veit eg hvort Magnús hef-
ur lent á „réttri hillu" í ævistörf-
um, en hitt veit eg að allir sam-
starfsmenn hafa auðgazt af kynn-
um við hann. Hann er ættaþulur
mikill, en þar að auki persónu-
leiki, sem eykur ósjálfrátt bjart-
sýni manns og lífstrú. Af honum
geislar barnsleg einlægni, hann
er trúmaður, snjall leikmaður að
tafli og svo skapi farinn að engan
á hann óvildarmann, en vini fjöl-
marga.
Kynni mín af Magnúsi hafa
styrkt sannfæringu mína um
sannleik íslendingasagna. Hann
sannar hversu varðveitzt getur
hjá einstöku mönnum skýr lýsing
löngu liðinna atburða, manna og
málefna og borizt lítt brengluð
frá einni kynslóð til annarrar,
mann frá manni. Þenna frásagn-
arhæfileika spegla fornsögurnar,
og hann hefur orðið tákn íslend-
ings að fornu og nýju. Magnús er
mynd þessa íslendingseðlis.
Ég færi Magnúsi Árnasyni sjö-
tugum þakkir mínar, fjölskyldu
minnar og skólans okkar. Við árn-
um honum, konu hans og fjöl-
skyldu allra heilla á komandi tið.
Um leið vildi eg óska að skólum
hins nýja tíma gæfist frelsi og
færi til að njóta slikra fræðaþula
og sagnamanna í daglegu við-
ræðustarfi með nemendum. Er
þess meiri þörf nú en nokkru
sinni, þegar flest heimili eru afa-
og ömmulaus og aldrað fólk vistað
í biðsölum á elliheimilum fjarri
börnum og ungmennum. Slíkan
kennarasess mundi Magnús skipa
með sæmd og skóla til heilla.
Helgi Þorláksson.
Laun og kjör póst-
manna verði stórbætt
r
Björn Björnsson kjörinn formaður P.F.I
AÐALFUNDUR Póstmanna-
félags Islands var haldinn 29.
apríl 1976. Kosið hafði verið nýtt
félagsráð sem síðan kaus nýja
framkvæmdastjórn. Formaður
var kjörinn Björn Björnsson og
meðstjórnendur Pétur Eggerts-
son, Gyða Jónsdóttir, Sævar
Einarsson og Sigurður Samúels-
son.
Fundurinn taldi P.F.Í. hafa bor-
ið skarðan hlut frá borði í kjara-
samningum undanfarin ár og
skoraði á samninganefnd
félagsins að krefjast þess i
samningum þeim, sem framund-
an eru, að laun og kjör póstmanna
verði stórbætt.
Ennfremur var samþykkt svo-
felld áskorun og send samgöngu-
ráðherra:
Aðalfundur P.F.Í. haldinn 29.
apríl 1976, skorar á samgönguráð-
herra að hlutast til um að hraðað
verði byggingu aðalpósthúss í
Reykjavík, þar sem allar greinar
póstþjónustunnar verði stað-
settar. Fundurinn telur rétt að
aðalpósthúsið verði i nýja mið-
bænum við Kringlumýrarbraut.
Telja verður óviðunandi á 200
ára afmæli hinnar íslenzku póst-
þjónustu 13. maí n.k. að
húsnæðismálin séu í slíkum
ólestri, að ógerlegt sé að fylgjast
með framförum á sviði hag-
ræðingar og tæknivæðingar til
hagsbóta fyrir notendur.
Alþingsmenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum
frá klukkan 14:00 til 16:00. Er þar tekið
á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend-
ingum og er öllum borgarbúum boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa
Laugardaginn 15. maí verða til viðtals:
Ellert B. Schram, alþingismaður
Davíð Oddsson, borgarfulltrúi
Sigriður Ásgeirsdóttir varaborgarfulltrúi.
Sigrlður
Davið
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík