Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAt 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fróttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur. Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Árni GarSar Kristinsson Aðalstræti 6, shri 10100 ASerlstræti 6, slmi 22480. Áskriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakiS. Nokkrar umræður urðu á Alþingi um miðja vik- una vegna meðferóar þing- nefndar á frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um rann- sóknarlögreglu, en frum- varp þetta gerir ráð fyrir nokkrum skipulagsbreyt- ingum á starfsemi rann- sóknarlögreglu og er ætlað að styrkja starfssemi henn- ar. í umræðum þessum kom fram, að dómsmála- ráðherra hefði óskað eftir því, að frumvarp þetta, ásamt fylgifrumvörpum, yrði afgreitt frá þessu þingi. Hins vegar skýrói formaður þingnefndar þeirrar, sem hlut átti að máli frá því, að frumvarp- ið, sem er all viðamikið, heföi verið sent fjölmörg- um umsagnaraðilum og hefðu komiö fram á- bendingar og athugasemd- ir, sem óhjákvæmilegt væri að fjalla um. Þar sem ekki væri gert ráð fyrir, að frumvarpið tæki gildi fyrr en 1. janúar 1977, jafnvel þótt það hefði hlotið sam- þykki á Alþingi nú, hefði nefndin einróma komizt að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að bíða með endan- lega afgreiðslu þess til haustsins og tryggja þar með vandlegri undir- búning þess án þess að seinka gildistíma væntan- legra laga. Við venjulegar aðstæður eiga þessi sjónarmið þing- nefndarinnar fullan rétt á sér. Frumvarp þetta kom fram á miðjum vetri og eðlilegt, að þingið vilji hafa rúman tíma til þess að fjalla um mál, sem snertir svo þýðingarmikið svið. Á hinn bóginn verða þing- menn að gera sér grein fyr- ir því, að við búum ekki við venjulegar aðstæður í rannsókn sakamála um þessar mundir. Þvert á móti stöndum við um þess- ar mundir frammi fyrir þeirri spurningu, hvort hér á íslandi kunni að hafa þróazt svika- og glæpa- starfssemi af þvi tagi, sem stofnanir þjóðfélags okkar ráði ekki við. Þess vegna vakti það verulega athygli, þegar ríkisstjórnin lagði fram frumvarp þetta um rannsóknarlögreglu og mun meiri athygli en frum- varpinu hefði hlotnazt að öðru jöfnu. Með tilliti til þessara sjónarmiða og þess mikla uggs og ótta, sem nú ríkir í samfélagi okkar, er nauðsynlegt að Alþingi af- greiði þetta frumvarp. Af- greiðsla þess eða frestun, er í huga almennings orðin spurning um traust eða ekki traust. Afgreiðsla frumvarpsins er eindregin vísbending um, að þing- menn séu tilbúnir til þess að leggja á sig, þegar í stað, nokkra vinnu til þess að treysta og efla rannsóknir sakamála á íslandi. Óhikað má fullyrða, af því að rætt var um peninga i þessum umræðum á Alþingi, að skattgreiðendur vilja um þessar mundir fremur sjá skattpeninga sína ganga til þessara þarfa en ýmissa annarra. Nú er að vísu komið að þinglokum, en það skiptir varla miklu máli úr því sem komið er, hvort þingi lýkur einum degi fyrr eða seinna. Þess vegna skal þeim tilmælum beint til þingmanna í fyllstu alvöru, að þeir taki þetta mál til meóferðar nú og afgreiði það á þessu þingi svo að þegar í stað verði unnt að hefja undirbúning að þeirri endurskoðun rann- sóknarlögreglukerfisins, sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Samþykkt frum- varpsins á þessu þingi mundi efla trú almennings á, að stjórnvöld séu tilbúin til þess að taka nokkuð á til að tryggja það að þau, að því er virðast stórfelldu svika- og glæpamál, sem skotið hafa upp kollinum, verði upplýst að fullu. Undanfarna daga hafa Morgunblaðinu borizt fjöl- mörg bréf skeyti og upp- hringingar frá fólki víðs vegar að á landinu vegna skrifa Morgunblaðsins um þessi mál. í einu þeirra bréfa sem blaðinu hafa borizt segir bréfritari m.a.: „Hugmyndir og vilji al- mennings í þessu voðamáli er, að allir þættir þess verði upplýstir eins og ýtrasta geta leyfir og að málið sé nú þegar fengið í hendur okkar fremstu og færustu manna á sviði sakamála og verði þeir leystir frá öllum öðrum störfum á meðan þeir vinna að þessu máli.“ Með þessum orðum bréfritara er engri rýrð varpað á þá aðila, sem unnið hafa að rannsókn málsins. Hins vegar er ástæða til, að yfir- menn þeirra stofnana sem hér eiga hlut að máli endurskoði nú alla með- ferð Geirfinnsmálsins rannsóknaraðferðir og önnur vinnubrögð, og taki til endurmats á hvern hátt líklegast sé að nokkrum árangri verði náð. í þeim efnum er engin ástæða til að leiða hjá sér að leita erlendrar aðstoðar, ef það er mat manna að eitthvert gagn geti orðið af slíkri að- stoð. Kjarni málsins er sá, að hvarf Geirfinns Einars- sonar og ýmsar grunsemd- ir, sem vaknað hafa í tengslum við það, hvort sem þeir þættir eru tengd- ir hvarfi Geirfinns eða ekki, gefa tilefni til víð- tækustu rannsóknar á hugsanlegum glæpamálum og sakamálum sem efnt hefur verið til á íslandi. Morgunblaðinu er ekki kunnugt um, að sú sam- ræmda, víðtæka rannsókn, hafi í raun og veru hafist enn. Endurskipulagning rannsóknarkerfis Jóhann Hjálmarsson Snorri Hjartarson AIJGU ÞJÓÐARINNAR SVAVAR Gestsson, ritstjóri Þjóðviljans, hefur eflaust talið að Árni Bergmann stæði sig ekki nógu vel í menningarbar- áttunni því að sunnudaginn 25. apríl sl. skýst. hann fram á rit- völlinn í senn í gervi bók- menntagagnrýnanda og í hinu venjulega hlutverki þjóðmála- vandlætara. Svavar ritar I grein sinni, sem nefnist Enn er veg- ljóst, um tvö skáld, þá Snorra Hjartarson og Ölaf Jóhann Sig- urðsson, sem báðir hafa að hans mati snúist skörulega gegn „hernámsstefnunni" svo- nefndu. Með greininni birtir hann ljóð Snorra Land þjóð og tunga og hluta úr öðru ljóði hans í garðinum. Land þjóð og tunga var að sögn Svavars „ort i marsmán- uði 1949, þeim sama mánuði og launráðin gegn þjóðinni voru brugguð f bandaríska utanrlkis- málaráðuneytinu". Ljóð þetta er nú orðin slík þjóðareign að jafnvel höfundur Reykjavíkur- bréfs Morgunblaðsins (25.4. 1976) vitnar í það, enda geta allir verið sammála um ágæti jafn fallegra hendinga: Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móöurkné; ég lék hjá þér við læk og blóm og stein, þú leiddir mig f orðs þfns háu vé. Örlagastundin, sem nálgast grimm og köld í ljóðinu, þarf ekki endilega að merkja sam- stöðu Islands með vestrænum þjóðum og hin tryllta öld, sem skáldið ætlar að verja ísland gegn, gæti alveg eins verið lýs- ing á lífinu austan járntjalds, ekki síst þegar ofsóknir gegn hinu frjálsa orði og mannrétt- indum eru hafðar í huga. En segjum svo að Snorri hafi í Landi þjóð og tungu ort um inngöngu Islands í Atlantshafs- bandalagið og sláum því um leið föstu að í 1 garðinum sé hann að brýna þjóð sína „gegn undirlægjuhættinum við hið er- lenda vald“, svo að stuðst sé við orð Svavars Gestsonar. En spurningin er: Af hverju er seilst svo langt aftur? Svavar segir undir lok grein- ar sinnar: „En fullvíst er að bili ekki kjarkur skáldanna, haldi þau áfram að færa okkur ljóð eins og þau sem birt voru hér á undan eftir Snorra Hjartarson frá árinu 1949 er þjóðin ekki í hættu stödd, hversu hart sem að henni er sótt.“ Síðan er vitn- að í Kristin E. Andrésson: „Skáldin eru augu þjóðarinnar. 1 skáldskapnum, og einvörð- ungu þar, speglast hugur henn- ar og örlög: allt sem liggur milli dýpstu dælu og sorgarinnar þungu." Hefði Svavar Gestsson haft fyrir því að fletta upp i síðustu ljóðabók Snorra Hjartarsonar Laufi og stjörnum (1966) hefði hann skilið betur þessi augu þjóðarinnar. Framarlega í bók- inni er ljóðið Eg heyrði þau nálgast, sem lýsir stjórnmála- legum vonsvikum skáldsins eft- ir uppreisnina i Ungverjalandi 1956, og er ef til vill skýringin á því hvers vegna ekkert „heítt baráttuljóð" gegn stjórnmála- ástandinu heima fyrir hefur birst eftir skáldið síðan á Gnita- heiði (1952) kom út. Kynslóð 1949 er sú kynslóð, sem Svavar Gestsson vill áreiðanlega telja sig til, þótt hann hafi ekki verið af barnsaldri þá. Kynslóð 1956 kemur honum ekki við. En rifjum upp Ijóð Snorra Ég heyrði þau nálgast, sem með einföldu orðfæri og skýrum myndum tjáir okkur mikinn harmleik. Engin stóryrði eða hávær hvatningarorð rúmast í sliku ljóði: Ég heyrði þau nálgast f húminu, beió á veginum rykgráum vegínum. Hann gengur með hestinum höndin kreppt um tauminn gróinn við tauminn Hún hlúir að barninu horfir föl fram á nóttina stjarnlausa nóttina. Og ég sagði: þið eruð þá enn sem fyr á veginum flóttamannsveginum, en hvar er nú friðland hvar fáið þið leynzt með von ykkar von okkar allra? Þau horfðu á mig þögul og hurfu mér sýn ínn f nóttina myrkrið og nóttina. 1 öðru ljóði I Laufi og stjörn- um, Ung móðir, yrkir Snorri: Fegurð og góðvild þetta tvennt og eitt hvað er umkomulausara f rangsnúnum heimi 1 Laufi og stjörnum birtist okkur skáld, sem af einurð horfist i augu við rangsnúinn heim. Ég á erfitt með að hugsa mér slíkt skáld verða við þeim sókum Þjóðviljaritstjórans að yrkja eins og það gerði 1949 þótt eflaust finnist einhver skáld, sem vilji hlýða auðmjúk- lega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.