Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAl 1976 23 öðrum ættingjum hans, votta ég og kona mín einlæga samúð. Við vonum og vitum að minningin um‘ ástríkan eiginmann, föður, tengdaföður og son mun milda þeim þennan mikla missi, sem varð svo alltof fljótt. Halldór V. Sigurðsson VINARKVEÐJA. Vinur minn Óli örn Ölafsson andaðist 7. maí, 50 ára að aldri. Óli Örn var fæddur á Akranesi 1. júlí 1925, sonur hjónanna Gyðu Halldórsdóttur og Ólafs Gunn- laugssonar, sem lifa son sinn. Óli Örn kvæntist ungur að árum Gíslínu Magnúsdóttur, sem bjó honum ástríkt heimili. Eignuðust þau fjögur dásamleg börn, Magnús, Hlöðver, Sigriði og Val- entínus, það var sannkallað barnalán. Það er rúmlega aldarfjórðung- ur liðinn siðan við Óli hittumst fyrst við spilaborðið. Með okkur tókst strax kunningsskapur, sem siðan þróaðist upp í vináttu, sem aldrei féll skuggi á. Helgina 30. apríi til 2. maí sið- astliðinn, áttu þau hjónin vist er- indi til Reykjavikur, þar sem þau áttu bæði 30 ára skólaafmæli, hún úr Verzlunarskólanum en hann úr Samvinnuskólanum. Ég er forsjóninni þakklátur fyr- ir að Óli hringdi í mig laugardags- kvöldið og bað mig og konu mina, ásamt öðrum hjónum, að vera með sér þetta kvöld. Ekki grunaði mig þá að þetta yrði slðasta stund- in, sem við ættum saman, en kall- ið gerir ekki boð á undan sér. Að fara að tíunda allan hans frama á lífsbrautinni, var ekki að skapi vinar míns Óla Arnar, en þeir sem minna mega sín í lifs- gæðakapphlaupinu í þessum heimi, missa af góðum dreng. Þegar ég skrifa þessar fátæk- legu línur sækja á mig allar gleði og ánægjustundirnar, sem við hjónin höfum átt með honum og konu hans. Þótt við færum í ferðalag saman um okkar fallega land, þá var það svo, að best náð- um við saman á heimilum hvors annars. Þegar við heimsóttum heimili hans á Akranesi, var eins og maður væri kominn heim, fyrir þær stundir þakka ég af alhug. Ég og fjölskylda mín vottum eiginkonu hans, börnum, tengda- börnum, barnabörnum, foreldr- um og öllum ástvinum, okkar dýpstu samúð. Róbert Sigmundsson. Kveðja. Föstudaginn 7. maí s.l. andaðist á Sjúkrahúsi Akraness ÓIi Örn Ólafsson, aðalbókari. Hann hafði að undanförnu kennt nokkurs las- leika, en ekki svo að okkur nánustu samstarfsmönnum hans kæmi til hugar að svo alvarleg væru veikindi hans. Nokkrum dögum fyrir andlát hans var hann við full störf. Hann hafði nýlokið fullnaðarfrágangi á öllum reikningsskilum Sementsverk- UM ÁRABIL hefur Bifreiðastöð Hafnarfjarðar haft opna nætur- sölu í Hafnarfirði þar sem unnt hefur verið að kaupa bensfn og einnig hefur verið þar sælgætis- sala. 1. aprfl s.I. var nætursölunni lokað og inntum við Hreiðar Georfkson framkvæmdastjóra Bifrefðastöðvar Hafnarf jarðar eftir ástæðunni f.vrir lokuninni. „Við höfum leyfi til að selja að næturlagi bæði bensin og smá- varning," sagði Hreiðar, „en lengur fáum við ekki bensín hjá Skeljungi þótt við viljum selja og það hefur mælzt mjög illa fyrir hér í Firðinum að þessari nætur- sölu skuli lokað, þvi fólk hefur kunnað að meta það, að þessa þjónustu sé hægt að sækja smiðju ríkisins og Flutningsjöfn- unarsjóðs fyrir s.l. ár. Sunnudag- inn 2. mai s.l. sáumst við í síðasta sinn er við vorum á leið til Akra- ness á m/s Akraborg. Hann var þá hress og ánægður, eins og þeir menn eru sem vita sig hafa af vandvirkni og samvizkusemi lokið störfum sínum. Hann hafði unnið til góðrar hvfldar og ætlaði sér að njóta hennar. Sú hvíld varð þó léngri en við höfðum ætlað. Þó ekkert sé öruggara en það að eitt sinn skal hver deyja, þá verður okkur hverft við er dauðann ber svo skyndilega og óvænt að garði. Ég kynntist Óla Erni fyrst er aðalskrifstofa Sementsverk- smiðjunnar var flutt frá Reykja- vík til Akraness árið 1969. Hann vann þá áður við ýms skrifstofu- störf á skrifstofu verksmiðjunnar á Akranesi. Mér varð fljótlega ljóst að hann væri vel fær um að taka að sér yfirstjórn reiknings- halds verksmiðjunnar. Hann tók að sér þessi störf og leysti þau af hendi vel og samvizkusamlega alla tið síðan. Það átti hann auð- velt með að gera vegna menntunar sinnar á þessu sviði og eigi siður hins að hann var mjög skýr og rökvís i hugsun. Óla Erni var annt um það fyrir- tæki sem hann starfaði við. Hann vildi hag þess sem mestan og hafði eins og fleiri, sem skildu hvern vanda óðaverðbólgan skapaði í rekstrinum, nokkrar áhyggjur af framtíð fyrirtækisins. Hann kom oft með ábendingar um ýmsa þætti í rekstrinum, sem betur mættu fara. Hann áleit það skyldu sína að gera það sem opin- ber starfsmaður. í þessu efni sinnti hann skyldu sinni sem aðal- bókari að fullu. Fáir aðrir starfs- menn hafa betri aðstöðu til að vega og meta réttilega þann árangur er I raun næst við tilteknar aðgerðir í stjórnun fyrirtækisins en aðalbókarinn. Ég þakka Óla Erni vel unnin störf á liðnum árum um leið og ég færi konu hans, börnum og að- standendum öllum hugheilar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans. Svavar Pálsson. Kveðja frá skrifstofufólki Sementsverksmiðju rfkisins. Er sú frétt barst um byggðina hér á Akranesi að Óli Örn væri látinn, setti marga hljóða og fannst okkur starfsfélögum hans hjá Sementsverksmiðju ríkisins, sem sól hefði hnigið á dagmálum. Að visu hafði hann kennt nokkurra óþæginda á heilsu sinni undanfarið, en sú von var alin i brjósti, að hann myndi sigrast á þeim. Sú von brást og staðreyndin sú, að hann varð ekki sigurvegar- inn í þeirri baráttu. Hann féll í valinn þann 7. þ.m. tæplega 51 árs að aldri. Þegar leiðir skiljast með svo snöggum hætti, sem nú er orðin raun á, fer ekki hjá því, að við finnum til hins auða skarðs, sem nú er orðið í hópnum. Skarð, sem hingað. Nú verða Hafnfirðingar að fara til Reykjavíkur að nætur- lagi ef þeim liggur á bensíni, en við höfum alla aðstöðu sem þarf hér, mannskap og vilja.“ Hörður Árnason hjá Skeljungi sagði I samtali við Mbl. um þetta mál að oliufélagið hefði orðið fyrir ýmsum óþægindum af þess- ari nætursölu og hún hefði kostað mikla fyrirhöfn fyrir litia sölu, því meðalsalan á mánuði hefði verið um 20 þús. lítrar og þar af hefðu bifreiðastjórarnir sjálfir keypt um 10 þús. lítra. „Ut af fyrir sig,“ sagði Hörður, „erum við ekkert hrifnir af þessari nætursölu á sama tíma og olíu- félögin eru að gera út nætursölu i Reykjavik." aldrei verður fyllt, eins og það var, því þó maður komi í manns stað, eins og til orða er tekið, verður þó aldrei þar hinn sami og áður var. Hinn auði stóll, sem nú blasir við augum á skrifstofunni, þögn simans og hljóðlátt herbergið, vekja óhjákvæmilega minningar frá starfi, frá önn daganna, frá sérhverjum degi, sem unnið var saman, fengist við viðfangsefnin, sem úrlausnar biðu og varð að leysa i þágu fyrirtækisins, gaman- mál millum stunda. Minningar sem gleðja, reynsluskóli og þroskaskeið. Hinir erfiðu tímar, sem undan- farið hafa verið í efnahagsmálum þjóðarinnar höfðu rík áhrif á fyrirtækið. Mótuðu mjög við- fangsefni liðandi stundar og kröfðust mikillar starfsorku, þegar við þau var fengist, einkum þegar sú reynd varð á og breytingar svo örar, að verk, sem unnið var i dag var ónothæft á morgun. Fyrir ágætlega starfshæfan mann varð þetta mikil raun. Það var sem allt starfið og öll orka í lögð væri til einskis. Allar áætlan- ir hrundu á einni nóttu, ef svo má orðum haga, og sá árangur, sem gert var ráð fyrir að ná og færð voru allrík rök fyrir að næðist, varð að engu. Stokka þurfti upp á nýtt. Nýjar forsendur, nýjar ályktanir, nýir útreikningar. Slíkt setur á mann- inn mark og hefur sín áhrif, sem mjög fáir eða engir verða varir við nema þá helst viðkomandi sjálfur og finni til þess. Öll viðfangsefni krefjast úrlausnar. Hana varð að finna og hún var fundin með hæfileikum og starfi. Það er ekki svo að skilja, að ekki hafi verið annað en erfið- leikar og amstur í starfi. Sem betur fer voru einnig sólskins- blettir, sem veittu ánægju og juku bjartsýni þegar vel gekk og sýni- legt var, að tilætluðum árangri yrði náð. Það veitti aukið þrek og jók ánægjuna yfir farsællega unnu starfi að dagsverki loknu. Varð orkulind til næsta áfanga. Dagleg umgengni og samvinna hlaut að verða náin á mörgum sviðum. Aukin og styrkt kynni hlutu þvi að myndast þess vegna. Gagnkvæmur trúnaður i ýmsum innri þáttum fyrirtækisins varð þar snar þáttur. Virðing fyrir starfshæfni hafði og sín áhrif. Vináttutengsl mynduðust og vinsamleg samskipti voru ein- kenni daglegrar umgengni. Nú er röddin þögnuð og fótatak- ið heyrist ei meir. Eftir er minningin, einkamál okkar hvers og eins. Sú minning er mynd okkar af Óla Erni. Þegar þetta er skrifað er vor- bjart um Akranes. Slík birta er yfir minningunni um Óla Örn í hugum okkar. Megi sú birta lýsa eftirlifandi eiginkonu og börnum svo og öldruðum foreldrum og öðrum að- standendum. Milda harm þeirra og græða sár saknaðar og trega. Samúðarkveðjur okkar og allra annarra megi styrkja þau og létta þeim sporin. Skrifstofufólk SR Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLf skal vakin á þvf, að afmælis- og minningafgreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á i mið- vikudagsblaði, að berast i sið- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Bifreiðastöð Hafnarfjarðar: Fær ekki bensín til sölu að næturlagi Minning: Kristín Sigríður Sigurgeirsdóttir Fædd 8. október 1898 Dáin 10. maf 1976 í dag, laugardaginn 15. maí 1976, verður jarðsungin frá Ólafs- víkurkirkju merkiskonan Kristín Sigríður Sigurgeirsdóttir. Hún var fædd 8. október 1898 á Arnarstapa á Snæfellsnesi. For- eldrar hennar voru hjónin Stein- unn Vigfúsdóttir og Sigurgeir Árnason. Skömmu eftir siðustu aldamót fluttu þau hjón með börnum sínum, sém þá voru fædd, aó Brimilsvöllum. Kringum höfuðbólið á Brimilsvöllum vorii margar hjáleigur og ein þeirra heitir Nýibær, en vegna þess að þar sem Nýibær stóð, stóð áður bær, sem hét Gata, var því Nýi- bær alltaf kallaður Gata i daglegu tali. Þegar Sigurgeir Árnason fluttist frá Arnarstapa með fjöl- skyldu sína, settist hann að í Nýjabæ. Mannmargt var i Brimilsvallaplássi. Allir karl- menn stunduðu sjóinn. Meðan róið var á opnum bátum var góð lending í Brimilsvallavör. Sigur- geir Árnason var einn þeirra, sem reri frá Brimilsvöilum, og komst hann allvel af þótt fátækt væri mikil á hjáleigukotunum. Stein- unn Vigfúsdóttir var dugleg og stjórnsöm móðir og húsmóðir. Þau hjón eignuðust 5 dætur og auk þess ólu þau upp fóstur- dóttur. Þessar stúlkur allar voru kallaðar Götusysturnar. Brátt fór mikið orð af þeim systrum fyrir dugnað og skemmtilega fram- komu. Þær voru söngelskar og höfðu fallega söngrödd. Flestar þeirra sungu í mörg ár, i kirkju- kór Ólafsvikurkirkju og var Kristín ein þeirra. Vegna þess hve gott orð fór af þeim , vildu margir fá þær í vinnu, vinnu var þá helst að fá i Ólafsvík. Kristín var ung, er hún fór að starfa þar. í fjögur ár var hún vinnukona hjá sr. Guðmundi Einarssyni prófasti og konu hans, frú Önnu G. Þorkelsdóttur. Ég heyrði frú Önnu tala um það, hve góð og dugleg Kristín hefði verið. í Ólafsvík kynntist Kristin Þor- steini Guðmundssyni frá Rimabæ i Ólafsvik og giftist honum 15. nóv. 1919. Þau bjuggu mörg ár í Efstabæ í Ólafsvík. Þorsteinn var vel gefinn maður, hann var nokkur ár hreppsnefndarmaður og lét sér annt um hag hreppsins og var gott að starfa með honum. en þvi miður var hann ekki heilsuhraustur og varð Kristín þvi þess vegna að leggja enn meir á sig. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið, sem eru, Geir húsa- smiður í Hafnarfirði, Sigurður verkstjóri í Ólafsvík og Steinunn húsmóðir i Ölafsvík, en fyrsta barn þeirra hjóna dó ungt. Nú eru þrjár af þeim systrum eftir á lifi, sú elsta, Guðrún ekkja i Ólafsvík og þær yngstu, Guðríður og Kristensa, hús- freyjur í Reykjavík. Á síðustu 7 mánuðum hafa þrjár af þeim systrum verið kallaðar héðan, Vigdís og Friðdóra í október 1975 og Kristín 10. þ.m. Eiginmann sinn, Þorstein Guðmundsson, missti Kristín 22. maí 1957. Eftir lát hans átti Kristin athvarf hjá Steinunni dóttur sinni og manni hennar Hauk Sigtryggssyni, út- gerðarmanni og önnuðust þau hana eftir að heilsa hennar þvarr, þvi hún var heilsulítil siðustu æviárin. Allir vinir Kristinar þakka Steinunni og fjölskyldu hennar fyrir þá umönnun alla. Kristín hafði um áraraðir sungið Guði og frelsaranum lof í helgri Ólafsvíkurkirkju, en nú syngur hún lof og dýrð í helgi- dómi himnanna. Ég, kona mín og börn kveðjum Kristinu sálugu með þakklæti fyrir einlæga vináttu í tugi ára. Guð blessi okkur og öllum vinum minningu hennar. Magnús Guðmundsson Guðrún Guðmunds- dóttir — Minning Fædd 8.10 1884 Dáin 7.5 1976 Þessar örfáu og fátæklegu línur eru skrifaðar til minningar um ástkæran vin, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Ég átti þvi láni að fagna að dvelja á sama heimili og Guðrún heitin siðastliðin tuttugu og sjö ár, hjá kjörforeldr- um mínum Ágústi Ólafssyni og Bjarnfríði Sigurjónsdóttur. Guðrún var mér alla tið einstak- lega góð og minning J|ennar er i huga mér umvafin nlyju og ást- kæru viðmóti. Undanfarin fjörutiu ár átti Guðrún við mikla vanheilsu að striða. Bar hún raúnir sínar með einstöku þolgæði og þrátt fyrir þungar byrðar varðveitti hún óskertan sálarstyrk og lífslöngun. Guðrún var kona vinnusöm og nægjusöm, hafði ríka réttlætis- kennd, öfundaði engan og lifði sátt við guð og menn. Ég þakka Guðrúnu fyrir allar samveru- stundirnar. Blessuð veri minning hennar. Steinar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.