Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.05.1976, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976 Islenzkir knattspjrnumenn ern sterkari en ég átti von á - segir Mike Fergnson, þjálfari Islandsmcislara Akraness, sem leika gep nýliðum Þrótíar á morpn — MÉR finnst íslenzkir knattspyrnumenn á margan hátt betri en ég átti von á áður en ég kom hingað, sagði Mike Ferguson þjálfari Akurnesinga er við ræddum við hann f gær. — Einstaklingarnir eru margir hverjir mjög góðir, liðin sjálf ef til vill ekki eins sterk heild. Akurnesingar hefja vörn íslandsmeistaratitilsins á morgun og leika þá gegn Þrótti á Skipa- skaga. Hefst leikurinn klukkan 14.30 og spurðum við Ferguson hvernig honum litist á Islands- mótið, sem nú er nýhafið. Sagði Ferguson að fyrir hönd Akur- nesinga væri hann hvergi smeyk- ur. Hann bæri að vísu virðingu fyrir öllum andstæðingum sínum, sama hvað þeir hétu, en næðu Akurnesingar að útfæra það sem þeir hefðu verið að æfa, ynnu Skagamenn íslandsmótið þriðja árið í röð. — Ég hafði ekki áhuga á að sjá Þrótt leika á fimmtudaginn, það skiptir ekki öllu máli hvernig andstæðingurinn leikur, sagði Ferguson. — Aðalatriðið er að við náum þvi sem við höfum verið að æfa. Mér hefur verið sagt að Val- ur og Víkingur verði okkur erfiðustu andstæðingarnir, en ég hef hvorugt þessara liða séð, þannig að ég get ekki dæmt um getu þeirra. Ég veit að Framarar eru með gott lið, líkamlega sterka einstaklinga, en ég held ekki að þeir verði okkur hindrun. — Það hefur verið sagt við mig að Akurnesingar geti ekki leikið á möl, en ég er þessu algjörlega ósammála, þvf ég hef verið ánægður með alla nema einn leik hjá mínum mönnum í sumar. Leikurinn sem var lélegur var tapleikurinn gegn ÍBK í meistara- keppninni, þá léku Akurnesingar eins og skólastrákar. Sýni þeir miklar framfarir þegar á grasið kemur er ég að sjálfsögðu bara ánægður, sagði Ferguson. FYRSTU UMFERÐ ISLANDS- MÓTSINS LVKUR ANNAÐ KVÖLD Fyrstu umferð íslandsmótsins lýkur á Laugardalsvellinum ann- að kvöld, en þar mætast þá Vík- ingur og Fram. Hefst leikur þess- ara liða klukkan 20 í Laugardaln- um, en fyrr um daginn leika ÍA og Þróttur á Akranesi eins og áður sagði. í dag mætast Keflavík og FH í Keflavík og hefst leikurinn kl. 14.00. Tveimur tímum síðar leika Breiðablik og Valur á grasvellin- um við Fífuhvammsveg f Kópa- vogi. i sambandi við þann leik er rétt að geta þess að bílastæði verða aðeins við Fifuhvammsveg- inn, en ekki að sunnanverðu við lækinn. Vegurinn að vellinum þeim megin er ætlaður fyrir sjúkrabifreiðar ef slys skyldi verða í leiknum. 2. DEILDIN A MELAVELLINUM i dag hefst keppnin í 2. deild og verða 4 leikir i deildinni í dag. Einn leikur fer fram í Reykjavík og eigast þar við Ármann og ÍBÍ, átti leikurinn að fara fram á Laugardalsvellinum, en hefur verið fluttur á Melavöllinn og hefst þar klukkan 16.00. í Kaplakrika mætast Haukar — KA kl. 16, á Akureyri Þór og ÍBV kl. 16 og loks leika Völsungur og Selfoss á Húsavík og hefst sá leik- ur klukkan 14.00. Leikirnir í Hafnarfirði og á Akureyri eru mjög þýðingarmiklir og gætu orð- ið spennandi því þar mætast lið, sem af mörgum eru talin liklegust til sigurs í deildinni. Þorvaldur Þorvaldsson og Halldór Björnsson berjast um knöttinn leiknum f fyrrakvöld en báðir stóðu þeir sig vel. Björn kom mest á óvart í leikKR-inga ogÞróttara Bjöm Pétursson var sá leikmaður sem mest kom á óvart er KR-ingar unnu Þrótt 4:1 í fyrrakvöld, skoraði Björn 2 mörk sjálfur og átti stærstan þáttinn I þvf þriðja. Er þetta sérstaklega athyglisvert þar sem Björn hefur ekki skorað mark í 1. deildinni f rúm tvö ár og heldur ekki verið sérlega markheppinn f öðrum mótum. Ef til vill verður Björn sá KR-ingur, sem hættulegastur verður uppi við mark andstæðinganna í sumar, hver veit? Norskir knattspgrnupunktar Þremur umferðum er nú lokið f 1. deildinni í Noregi og hefur Lilleström forystu með 5 stig, en með þvf félagi leikur miðherji norska landsliðsins, Tom Lund. Um sfðustu helgi urðu þessi úrslit f Noregi: Fredrikstad — Rosenborg 1:1 Molde — Brann 2:3 Strömsgodset — HamarKam. 1:1 Vard — Lilleström 0:0 Viking — Mjöndalen 0:0 Start — Bryne 1:1 BB-keppni KeiUs GOLFKIÚBBURINN Keilir genst fyrir innanfélagsmóti á Hvaleyrarholti i dag og verða leiknar 18 holur, en keppnin hefst klukkan 10 fh Mót þetta er svokallað BB-mót. en þeir Birgir og Boði Björnssynir gáfu fyrir 10 árum bikar til þessara keppni og að lokinni keppninni í dag verður þeim sem oftast hafa farið með sigur af hólmi á þessum 10 árum afhentur bikarinn til eignar Staðan: Lilleström HamKam Brann Rosenborg Start Viking Mjöndalen Bryne Fredrikstad Strömsgodset Vard Molde 2 1 0 120 2 0 1 1 20 1 2 0 1 2 0 1 1 1 1 1 1 02 1 02 1 0 1 2 0 03 6:1 6:4 5:4 2:1 3:1 3:2 3:2 3:3 2:4 3:7 0:3 5:9 0 Ftaggakeppni GR FYRSTA mótið á Grafarholtsvellinum í ár verður laugardaginn 1 5 maí og er þar um svokailaða ..flaggakeppni" að ræða Mótið er innanfélagsmót og er keppnin fólgin í því að keppendur stinga niður flaggi þegar þeir hafa slegið 70 högg að viðbættri fullri for- gjöf sinni Sá sigrar í keppninni, sem lengst kemst með flagg sitt Hefst keppnin klukkan 14 á Grafarholts- vellinum, sem sjaldan eða aldrei hefur komið eins vel undan vetri Sölvi Helgason þjálfari Þróttara var óhress með útkomuna í leiknum er við röbbuðum við hann á leiðinni til búningsklefanna eftir leikinn — Mínir menn hafa enn ekki nægilega hörku miðað við þessa kalla í KR-liðinu og reyndar í flestum öðrum 1 deildarlið- um, sagði Sölvi —Þróttarliðið er mjög ungt og sumarið i sumar verður mjög erfitt fyrir strákana Þeir hefðu þó getað haft yfir 1, 2 eða jafnvel þrjú mörk í leikhléi, því liðið sótti meira undan vindinum og áttu þá bæði Sverrir Brynjólfsson og Gunnar* Ingv- arsson mjög góð skot, sem strukust við stangir eða slár. í stað þess var KR yfir 1:0 og undan vindinum var ekki erfitt fyrir KR að skora, þvi varnarleikur Þróttaranna var mjög skipulagslaus. Guðmundur Pétursson, annar þjálf- ari KR-inganna, var hins vegar hressari þó svo að hann hefði ekki verið fylli- lega ánægður með leik liðsins —Þetta var þó allt annað og miklu betra en gegn Þrótti i Reykjavíkurmótinu síð- asta laugardag, sagði Guðmundur. — Þá unnum við að vísu lika 4:1 en við vorum hálf heppnir að vinna með svo miklum mun ÞRjR BÓKAÐIR Nokkur harka var i ieiknum og bókaði Hinrik Lárusson ágætur dóm- ari þessa leiks þrjá leikmenn Sá sem fyrstur fékk að lita gula spjaldið var Ólafur Ólafsson úr KR, en skömmu siðar einnig þeir Jóhann Hreiðarsson og Guðmundur Gísla- son úr Þrótti Svo sé litið i minnisbókina og mörkin rifjuð upp þá komu þau sem hér segir: 1:0 á 9 mlnútu. KR-ingar byggðu upp laglega sóknarlotu alveg frá eigin vallarhelmingi og var Halldór Björnsson upphafsmaðurinn að henni. Löng sending var gefin fram völlinn og Árni Guðmundsson renndi knettinum frá endamarkalínu fyrir markið þar sem þrir KR-ingar gátu allir náð knettinum, en það var Björn Pétursson, sem sendi knöttinn i netið 1:0 2:0 á 46 minútu. Strax I byrjun seinni hálfleiksins skoruðu KR-ingar sitt 2. mark i leiknum. Magnús Guðmundsson spyrnti frá marki og inn i vitateig Þróttara barst knöttur- inn Þar var Jóhann Torfason skyndilega á auðum sjó og skoraði framhjá Jóni Þorbjörnssyni, 2:0. 2:1 á 49. minútu. Börkur Ingvars- son nýliði i liði KR slæmdi hendinni til knattarins innan vitateigs og ekki var um annað að ræða en að dæma vítaspyrnu. Úr henni skoraði Þor- valdur Þorvaldsson auðveldlega 2:1 3:1 á 57. minútu. Baldvin Elias- son tók hornspyrnu frá hægri og gaf út i vitateiginn á Björn Pétursson, sem skaut viðstöðulaust i átt að marki Á leið sinni, sennilega fram- hjá markinu, fór knötturinn i Ottó Guðmundsson og i Þróttarmarkið. 3:1 4:1 á 59 minútu. Björn Péturs- son innsiglaði stórsigur KR-inga með laglegu skoti frá vitateigslinu á 59. mín. 4:1. — áij. LIÐ KR: Magnús Guðmundsson 2. Guðjón Hilmarsson 2, Börkur Ingvarsson 2. Ottó Guðmundsson 3. Ólafur Ólafsson 2. Halldór Bjömsson 3, Baldvin Elíasson 2, Guðmundur Ingvason 2. Jóhann Torfason 2, Ámi Guðmundsson 2. Björn Pétursson 3, Hálfdán Örlygs- son (varam) 1, Einar Ámason (varam) 1. LIÐ ÞRÓTTAR: Jón Þorbjörnsson 2, Ottó Hreinsson 2. Gunnar Ingva- son 2. Guðmundur Gíslason 2, Ásgeir Árnason 1, Erlendur Björnsson 2, Aðalsteinn Örnólfsson 1, Þorvaldur Þorvaldsson 3, Halldór Arason 1, Jóhann Hreiðarsson 1, Sverrir Brynjólfsson 3, Daði Harðarson (varam) 1, Stefán Stefánsson (varam) 1. DÓMARI: Hinrik Lárusson 3. Ölympíuleikamir í máU og myndum LYMPIULEIKAR E//VW 'A t- £ / pA VAfl SVOKAtc AÞ .. 1-A*JL AOp " /2 S'/J'J Jflfl K't'A'í U/H LS’t*'JA'JG- l/i*i í/ r</V\ . //Öc/Tl) T TTt* K/f/V/9<2/T só/zJ þe* s e/í> fld SVi/G D/ie*/G- Sflsrp r xepps/t ReestsJ <y/e//t f/'K nyi>//V& S~oo flnJtr\ Stjtflfl /oitj /e/j/fl't////t Hflcit'/- /fl. /fltLLt STA / DAi/ D ' SJÓDA if A /1< * tfli/d > £Á t/O/flO fleppei/t/JA J-/L te/Jfl ófl. STfl/0 t °G flé/.DJ flerJfl A /tfl /Slc /lyi/ flD flspp/// LOfl/flr/t . T'L flo fljflfl fl sre'/'/Jr/fl /flfl nvtfl sá rrx//vw ar lIp/ ,scifl t/tfl- fld' strvo f/i/Aj es/ e*Jt<i í /v/ésTfl sfltpT/ Ko/JJ/l Fe/J&J Éflfl/ -pfl-TTTóflj i cetflJ/J- u/*\ PAJ{>flfleest//e t-A j/s> ee s u pestÁ Jaa- /3AOT//J. eér ~ flfl/E T / /3AeV T///SAfl P peseflfl/ jescJ SAST V/SL /f OL/iflP/J Li£/fl • J//Jflt flCf-JZ FeSAfl DLSA tflo/fl/3JT /V Á A.A /ij .. - - nestfl orjLtflA /A///v ö/te/j/j sjLcee/t i>c aJ/J . ÖLYMPÍULEIKARNIR f Montreal verða settir eftir rúma tvo mánuði eða nánar tiltekið 17. júll. Þar munu mætast heimsins fremstu áhugamenn í fþróttum og etja kappi saman f tvær vikur. Augu heimsins munu fvlgjast með atburðum f Montreal, gleði og sorg, sigrum og ósigr- um. Morgunblaðið byrjar í dag birtingu mvndasögu, sem birt- ast mun reglulega á íþrótta- sfðu fram yfir Ólympfuleik- ana, alls 60 sinnum. 1 þessari mvndasögu er saga leikanna rifjuð upp í máli og myndum, helztu viðburða er getið, stærstu stjörnurnar nefndar. Þess má geta að myndasaga þessi er birt f blöðum vfðs vegar úti um heim og nýtur mikilla vinsælda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.