Morgunblaðið - 29.05.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.05.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1976 11 Gardamarlustakkur á steinvegg Rœktið Maríustakk Gæðastakkur — græðir sár, guilþyrstir á vit þín leita. Af þér drjúpa daggartár, daglangt í þeim sólin gljár; vfir hvelfist himinn hár heitnavöllur englasveita. Jurtin er kennd við Maríu mey eins og fleiri gæðajurtir. Þið þekkið hin stóru, nær kringlóttu blöð maríustakks og hafið séð stóra daggardropa glitra í þeim líkt og tærar perl- ur. I miklum raka sjást ltka dropar á jöðrum blaðanna, en þeir eru ekki dögg heldur af- gangsvatn sem kemur innanfrá og vætlar út um blaðstrengina (æðarnar). Dropaglitrandi maríustakkur er fögur sjón og hafa margir málarar spreytt sig á henni. Maríustakkur er gömul lækningajurt. Marin blöðin voru lögð við sár og fleiður og þykja græðandi. Mikil trú var fyrrum á maríu- stakk og á fyrri öldum notuðu gullgerðarmenn jafnan þessa jurt og döggina á henni við til- raunir sinar. Hið latneska nafn á jurtinni ALCHEMILLA er kennt við gullgerðarmennina „alchemistana". Nokkrar tegundir maríu- stakks vaxa hér villtar t.d. við læki og á öðrum hálfrökum stöðum. En í görðum eru rækt- uð og þrífast vel miklu stór- vaxnari tegundir t.d. HJARÐMARÍUSTAKKUR (Alchemilla pastoralis). Hann er stórvaxinn, grágrænn með rauðbrúnum blæ. Blöðin verða mjög stór. Þau eru með 9 sep- um, þétthærð og mjúkhærð báðum megin. Stöngullinn er með gisnum útstæðum hárum. Blómin eru smá, en mörg sam- an i gulgrænum skúfum. Hjarð- maríustakkur vex villtur í Skandinavíu. GARÐAMARlUSTAKKUR (Alchemilla acutiloba) er að líkindum ættaður frá Kákasus. Hann verður 30 — 40 sm hár með langa blaðstilka og flatar nýrlaga blöðkur með breiðu opi um blaðstilkinn. Blómskúfarnir hærri en á hjarðmaríustakki. Þrifst vel á rökum stöðum. Fer prýðilega við læki og tjarnir og þolir hálfskugga. Mariustakk er fjölgað með skiptingu. Sveppir sækja stund- um á maríustakka bæði villta og ræktaða en venjulega þrífast þeir vel. Sumir þurrka hina gulgrænu blómskúfa á haustin og hafa til vetrarprýði i stofum. Maríustakkur þarf gott pláss, þarf að geta breitt vel úr sér og orðið fyrirferðarmikill. Þið þekkið frænda hans, LJÓNSLAPPANN, sem vex á þurrum stöðum og er stundum notaður í te til hollustu með blóðbergi ofl. jurtum. Bæði maríustakkur og ljónslappi telj- ast til rósaættar. Af þeirri ætt þekkið þið t.d. jarðarber og hrútaber og fjalldalafífilinn sem.á hverju sunnudagskvöldi sést i sjónvarpinu. I.D. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Hlutavelta Bræðra- félags Arbæjarsafnaðar í DAG, laugardaginn 29. mal, heldur Bræðrafélag Arbæjar- safnaðar glæsilega hlutaveltu að Hallveigarstfg 1 (Iðnaðarmanna húsinu) og verður húsið opnað kl. 2 eftir hádegi. Númer á hlutveltunni skipta þúsundum og fullyrða má, að þar verður margt góðra og gagnlegra muna. Hlutaveltur hafa lengi not- ið mikilla og almennra vinsælda, enda er þar ávallt vinningsvon og margir, sem fara heim með happ í hendi. Engin núll verða á hluta- veltunni og fá því allir eitthvað í sinn hlut. Allur ágóði af hlutaveltunni gengur óskertur til safnaðar- heimilis Arbæjarsafnaðar, sem nú er i smíðum en í sumar og haust er ráðgerð að vinna við að fullgera jarðhæð heimilisins. svo að þar fáist aðstaða til félags- starfa á vetri komanda. Þeim, sem sækja þessa hlutaveltu heim i dag, gefst því einnig kostur á að styrkja gott málefni og leggja steina i grunn þess húss er verða mun öldnum og óbornum ’i Ar- bæjarprestakalli til mikillar blessunaráframtið, ekki hvað síst því unga fólki, er þar vex úr grasi. Bræðrafélag Arbæjarsafnaðar, er gengst fyrir þessari fjáröflun til safnaðarheimilisins, hefur á undanförnum árum lagt fram verulegt fé til byggingarinnar og þar hafa ýmsir unnið framúr- skarandi fórnfúst starf. Hið opin bera býr heldur fátæklega að þjóðkirkju Islands, að ekki sé meira sagt, hvað viðkemur smiði guðshúsa og þvi hefur þetta uppbyggingarstarf að langmestu leyti mætt á söfnuðunum sjálfum. Þar standa venjulega fáir trúverðugir vinir kirkju Jesú Krists i fararbroddi ög hafa með Guðs hjálp oftlega lyft Grettistök- um því að „ef Drottinn byggir ekki húsið erfiða smiðirnir til ónýtis". Hann kallar menn til hinnar óeigingjörnu þjónustu veröld sinni til þarfa. A þeim akri vantar fleiri liðsmenn svo 'að hér geti dafnað gróandi þjóðlif. Reykvíkingar! Sleppið ekki þessu gullvæga tækifæri. Um leið og þið freistið sjálf gæfunnar styrkið þið mikilvægt málefni i þágu Guðs kristni i þessari borg. Guð blessi og launi öllum þeim, er af örlæti hjarta síns leggja góðum málum lið. Hittumst heil að Hallveigarstíg 1 i dag. Guðmundur Þorsteinsson. BIHGÖ. SKEMMTIKVÖLDu Polyfónkórinn heldur bingó og skemmtikvöld að Hótel Sögu sunnudaginn 30. maí og hefst með borðhaldi kl. 19.00 Skemmtiatriði: Spilaðar verða Kórsöngur Franskur veizlumatur Gigot d'agneau á la Bretonne Tízkusýning 4 umferðir í Bingó i Húsið opnar kl 1 9.00. módelsamtökin sýna nýjustu sumartízkuna. Þjóðdansar vinninga m.a. 3 sólarferðir. Borðum haldið til kl. 1 9.30 Þjóðdansafélagið sýnir. Ragnar Bjarnason Borðapantanir eftir kl. 16 hjá yfirþjóni, Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi. stjórnar. í síma 2022 1 Missið ekki af glæsilegri skemmtun um leið og þið styrkið gott málefni Poiyfónkórinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.