Morgunblaðið - 29.05.1976, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.05.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1976 19 — Listahátíð Framhald af bls. 10 una milli landa. Og sýníngin, sem nú er verið að skapa i Iðnó, er mjög vel til þess fallin að fara með hana i ferðalög, út á landsbyggðina. Engin leiktjöld eru, leikararnir túlka sviðsbúnað- inn í látbragðsleik. Hægt er að færa verkið upp á hvaða sviði sem er, i minnstu samkomuhús- um. Og þó ljósabúnaður sé all flókinn á sýningunni i Iðnó, sögðu leikendur að auðveldlega mætti einfalda hann. Og síðast en ekki sizt, þarna er um að ræða flutning á einni af perlum heimslistarinnar, sem samræm- ir mörg listform, og sem fengur er að því að kynna hvar sem er. Listafólkið, sem að þessari sýningu stendur, leggur mikið til listahátiðar, en æfingar allar, bæði hljóðfæraleikara og leikara, eru sjálfboðavinna. Kammerhljómsveit Reykja- víkur byggir raunar á sjálf- boðavinnu hljóðfæraleik- aranna. Hún var stofnuð til að standa fyrir reglubundnum flutningi á kammertónlist og fá reglubundna samæfingu, en áður höfðu menn myndað hópa til að flytja ákveðin verk, og hóparnir svo leystst upp. Flytur hljómsveitin 4 reglulega tón- leika yfir árið í sal Hamra- hliðarskóla fyrir áskrifendur. — Minning Gísli Framhald af bls. 23 æviár sin áttu þau heima i Reykjavík. Gtsli var elstur sex barna þeirra en tvö voru áður látin. Kristján faðir Gísla var son- ur Gísla Gfslasonar, Björnssonar bónda i Grundarkoti og viðar i Skagafirði og konu hans Kristínar Jónsdóttur, Pálssonar. Aðalbjörg móðir Gísla var af hinni þekktu Djúpadalsætt í Skagafirði, dóttir Vagns bónda i Miðhúsum Eiríks- sonar, hreppstjóra í Djúpadal, Eirikssonar, Bjarnasonar prests á Staðarbakka. Kona Vagns var Þrúður Jónsdóttir, Björnssonar bónda í Miðhúsum. Gisli ólst upp hjá foreldrum sínum við almenn sveitastörf þeirra tima. Árið 1948 kvæntist Gísli eftirlifandi konu sinni Jóhönnu Freyju Jónsdóttur bónda Sigurðssonar í Réttarholti og konu hans Sigríðar Rögnvalds- dóttur. Settist hann þá i bú tengdaforeldra sinna og hafa þau hjón búio þar siðan. Gísli og Jóhanna eignuðust þrjú börn: Elstur er Jón, sem nú býr í Réttarholti, kvæntur Auði Frið- riksdóttur. Þrúður Aðalbjörg. trú- lofuð Eggert Sigurjónssyni, þau eru búsett á Akureyri. og Sigurð- ur. sem er í heimahúsum. Fjórða barn Gísla er Birgir, sem á heima á Torfastöðum i Grafningi. Gisli var afar vel gefin maður og minnugur. las mikið er tími var til frá daglegunt störfum bóndans. Hann varfróðurum ís- í Hellubíó í kvöld Ath. Þetta er síðasti dansleikurinn m fyrir Spánarferðina Mætum öll og segjum biess lenska byggð og öræfi þó ekki gerði hann víðreist utan sinnar heimabyggðar. Er við hjónin dvöldum i Réttarholti í sumar- leyfum. sem oft var og nutum frábærrar gestrisni þeirra hjóna, átti ég því láni að fagna að kynn- ast mági minum náið. Hann var afar glaðlyndur og geðprúður maður og hafði þá hlýju og ljúfu kímnigáfu til að bera. sem laðaði fólk að honum, einkum börn og unglinga. Systkinabörn hans, sem voru svo gæfusöm að eiga ógle.vm- anleg sumur i Réttarholti með frænda sínum. minnist allra stunda «r hann sagði þeim sögur, kenndi þeim visur og spjallaði við þau og fyrir það veganesti þökk- um við foreldrar þeirra. Gisli var svo gæfusamur að eignast góða konu, sem stóð við hlið hans alla tið og nú siðast við banabeð hans í erfiðri sjúkralegu. Er við í dag, vinir hans og vensla- fólk, kveðjum Gísla í Réttarholti hinstu kveðju og þökkum sant- fylgdina. sendum við Jóhönnu konu hans og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þau. Ó.B. HLÉGARÐUR EIK Stórdansleikur meö Eik frá 9 — 2 í kvöld Hin frábæra nektardansmær EflMIbbfl Ath. 20% afsláttur fyrir þá sem sýna skírteini úr Verzlunarskólanum og Menntaskólunum. kemur fram Sætaferöir frá B.S.Í. Stapi Stapi I fyrsta skipti á íslandi The Kerbstone Rudoif ásamt Lindu Taylor Sætaferðir frá Grindavík, Hafnarfirði og B.S.Í. Munið nafnskírteinin. Ofsalegt fjor í kvöld JIEXICD og Linda Taylor RUDOLF ásamt LINDU TAYLOR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.