Morgunblaðið - 02.07.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976
í fundarhléi á prestastefnu
Prestastefnu lauk í gær:
Nauðsyn að aðlaga starfs-
hættí kirkjunnar samtímanum
PRESTASTEFNUNNI lauk í gær
I Bústaðakirkju. Eins og fram
hefur komið var aðalumræðuefni
hennar sálgæzla og ríkti almenn
ánægja meðal presta með fram-
soguerindi, sem flutt voru þar um
þetta mál. 1 umræðuhópum sem
störfuðu kom margt fróðlegt fram
m.a. að hjá rómversk-kaþólskum
leita um 57% þeirra, sem lenda í
erfiðleikum til presta með vanda-
mál sín en aðeins um 8% hjá
ATHUGASEMD
Verkfræðingar hjá borginni hafa
komið þeirri athugasemd á fram-
færi við frétt Mbl. í gær, að
einungis þriðji hluti verk-
fræðinga borgarinnar hafi rúm
140 þúsund krónur í laun, en aðr-
ir minna og allt niður í 88 þúsund.
mótmælendum. Flestir mót-
mælenda leiti til vina sinna en
minna sé um að menn leiti til
lækna og félagsráðgjafa.
Þá kom fram í þessum umræð-
um að verulegur hluti af tíma
prestsins fer í að sinna fólki með
margvíslegustu vandamál og
kemur því oft til samvinnu við
aðra s.s. lækna, sálfræðinga og
félagsráðgjafa. Einnig hafa prest-
ar staðið fyrir hópmeðferð fólks,
sem lent hefur í svipuðdm erfið-
leikum. Það kom fram að þekking
presta á sálgæzlu er tæpast nógu
mikil og var kosin nefnd til að
kanna leiðir í því efni t.d. halda
námskeið og beint var þeim til-
mælum til Prestafélags Islands að
það leiti e.t.v. samstarfs við
Læknafélag íslands varðandi
sálgæzlu sjúkra, þar sem fram
hafði komið í umræðum að lækn-
ar æsktu oft eftir samvinnu við
presta.
Á prestastefnunni lagði Starfs-
háttanefnd Þjóðkirkjunnar fram
hugmyndir til kynningar og
umhugsunar og voru þessi atriði
helzt:
1. Nefndin leggur áherzlu á
ábyrgð og réttindi safnaðanna
sem þeirrar grundvallareiningar,
sem allt starf og skipulag kirkj-
unnar verður að taka mið af.
Framhald á bls. 35
„VERÐI af þessu verkfalli
mælingaverkfræðinganna
fimm kemur það til með að
valda því að það stöðvast
afsetning á öllum nýjum
lóðum hér í borginni,"
sagði Ingi Ú. Magnússon
gatnamálastjóri í samtaii
við Morgunblaðið í gær, er
hann var spurður hvaða
áhrif það myndi hafa, ef
mælingaverkfræðingar, er
starfa hjá gatnamálastjóra,
legðu niður vinnu 5. júlí
n.k.
Verkfall þetta yrði einn liður í
aðgerðum verkfræðinga sem
starfa hjá Reykjavíkurborg, en
þeir eiga sem kunnugt er í vinnu-
deilu um þessar mundir við
borgaryfirvöld og undanfarið
hafa tveir verkfræðingar á skrif-
stofu byggingafulltrúar borgar-
innar verið I verkfalli fyrir hönd
annarra verkfræðinga hjá
borginni.
Ingi sagði að meðan þessi að-
gerð stæði yfir væri ekki hægt að
mæla fyrir nýjum lóðum, en
nokkrir tugir umsókna frá
væntanlegum húsbyggjendum
liggja nú til afgreiðslu hjá gatna-
málastjóra og munu þeir þvi ekki
geta byrjað að grafa fyrir
grunnum á lóðum sínum meðan
ekki fæst mælt fyrir lóðum
þeirra.
Ingi var spurður að þvi hvort
aðrir gætu tekið að sér slíka af-
setningu lóða, en hann taldi svo
ekki verða.
Neita að
greiða
skatt af
skatti
FORSVARSMENN SKEMMTI-
STAÐARINS Þórskaffi hafa lagt
fram stefnu á hendur fjármála-
ráðuneytinu fyrir hönd Toll-
stjðraembættisins. Telja þeir að
allt frá 1970 hafi veitingastaður-
inn þurft að greiða of háa skatta
af seldum aðgangseyri og krefjast
3.9 milljón króna f bætur, en
stefnan nær yfir tímabilið frá
1970 og til seinni hluta ársins
1975.
— Eigendur Þórskaffis hafa um
langt skeið gert ítrekaðar athuga-
semdir vegna þess að þeim sem
öðrum veitingastöðum hefur
verið gert að greiða 20% söluskatt
og 20% skemmtanaskatt af
hverjum seldum aðgöngumiða,
Framhald á bls. 20
Næg loðna finnst
en vill ekki í nötina
LOÐNUSKIPIN Guðmundur og
Sigurður eru nú komin á loðnu-
miðin norður af Vestfjörðum, þar
sem rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson hefur verið fyrir
með Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðing um borð. Vart verður við
töluvert af loðnu í sjónum þarna
á allstóu svæði, en erfiðlega hefur
gengið að ná henni.
2ja ára loðnu að ræða. Sigurður
kom einnig á miðin í gær en var
ekki farinn að kasta þegar Mbl.
ræddi við Hjálmar.
Hjálmar sagði að þeir á Bjarna
Sæmundssyni hefðu undanfarið
orðið varir við töluvert af all-
Framhald á bls. 35
„Svartsýnisspár byggð-
ar á hœpnum forsendum
— MÉR virðist I fljótu bragði
að hæpnar forsendur liggi að
baki þessum útsýringum, sagði
Magnús Einarsson veðurfræð-
ingur í gær er Morgunblaðið
bar undir hann fréttir um að
ástæðurnar fyrir miklum hit-
um I Evrópu að undanförnu
væru miklar breytingar á veðr-
áttu á Atlantshafi. tsbrúnin f
N-lshafi hafi dregizt saman og
lægðirnar fari nú að mestu
framhjá meginlandi Evrópu,
en yfir fsland og Skandinavíu.
— Þetta er að mínu mati ein-
hver svartsýnisspá og ein af
mörgum sem skýtur upp kollin-
um þegar veðrátta er með
óvenjulegum hætti einhvern
— segir Markúr Einars-
son veðurfræðingur um
veðurfarsbreytingar í
Evrðpu.
tíma, sagði Markús.. — Undan-
farin 10 ár eða svo hefur verið
spáð kólnandi veðráttu og þess-
ar skýringar stangast algjör-
lega á við forsendur þeirra spá-
dóma, til dæmis í sambandi við
að ísbrúnin í N-íshafinu hafi
dregizt nær norður^kautinu. Ég
tek lítið mark af þessum spám
og finnst að í þessum útskýring-
um sé ýmsu snúið við af því
sem spáð hefur verið undan-
farin ár.
Aðspurður um hvort Islend-
ingar mættu eiga von á góðu
sumri I sumar sagði Markús, að
þeir á veðurstofunni ættu fullt
í fangi með spá nokkra daga
fram í tímann þó þeir tækju
ekki allt sumarið fyrir. —
Næstu daga held ég að veðrið
verði með svipuðum hætti og
undanfarið og lítilla breytinga
von meðan hæðarsvæðin eru
svo mjög áberandi yfir Bret-
landi og Skandinaviu. Meðan
svo er beinast lægðirnar hingað
og íbúar suðvestanlands t.d.
verða að sætta sig við skýjað
veður og jafnvel regn, sagði
Markús Einarsson að lokum.
meðan verkfall mælingaverkfræðinga stendur
Að sögn Hjálmars var
Guðmundur að kasta með nót í
gær á loðnutorfur, sem skipið
hafði fundið nokkuð nær landi
heldur en Bjarni Sæmundsson
hefur verið að undanförnu. Ekki
var afraksturinn af þessum köst-
um mikill, þvi að loðnan slapp í
gegnum nótina. Gat Hjálmar sér
til að þarna hefði verið um smáa
Nú bíða Sigl-
firðingar bara
eftir loðnunni
Siglufirði |. júli.
SIGLFIRDINGAR eru nú
tilhúnir að taka á móti loðnu og
hefur löndunaraðstaða SR í Siglu-
firði, sem ekki hefur verið notuð I
meira en áratug, verið lagfærð og
betrumbætt. Geta Siglfirðingar
nú landað loðnu úr 2—3 bátum í
einu og bíða nú bara eftir að
Framhald á bls. 20
sly& 15 ára dreng-
ur undir dráttarvél
Fnjóskadal I S.-Þingeyjarsýslu.
Fimmtán ára drengur, Arnór
Stefánsson, til heimilis að Reyni-
hvammi 7 I Kópavogi, beið bana
er dráttarvél, sem hann ók, valt.
Tiidrög slyssins voru með þeim
hætti, að Arnór heitinn hafði ver-
ið að láta dráttarvélina renna i
gang og var að snúa henni við, er
hún valt út af vegkantinum. Vélin
fór heila veltu og varð Arnór heit-
inn undir henni. Hann var látinn
þegar að var komið. Dráttarvélin,
sem Arnór ók, var ekki með ör-
yggisgrind.
Arnór hafði verið i sveit á
Þverá síðast liðin átta sumur og
var vanur meðferð dráttarvéla.
Hann var sonur hjónanna Arn-
þrúðar Arnórsdóttur og Stefáns
Pálssor.ar framkvæmdastjóra.
BANASLYS varð siðastliðinn
þriðjudag við bæinn Þverá f
Arnór Stefánsson
Ekki mælt fyrir
nýjum húsalóðum
Skipherrarnir tóku við Fálkaorðunni
SKIPHERRARNIR Guðmundur Kjærnested og Helgi Hallvarðsson
tóku f gær á móti riddarakrossi hinnar fslenzku fálkaorðu úr hendi
forseta tslands, Kristjáns Eldjárn. Eins og kunnugt er voru allir
fastráðnir skipherrar Landhelgisgæzlunnar sæmdir riddarakrossinum
17. júnf sfðastliðinn, en þeir Helgi og Guðmundur voru þá erlendis.
Myndin er frá athöfninni í gær.
Ljósm. Mbl. Frlóþjófur