Morgunblaðið - 02.07.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976
13
Ný byggðahverfi hafa risið beggja vegna Blöndu en
þessi mynd er frá byggðinni sunnan árinnar.
HÚN GERÐI SITT GAGN — Þessar bryggjuleif
ar má finna i fjöruborðinu sunnan við Biontluós,
Ný bryggja norðanmegin hefifr leyst þessa af
hólmi.
Hér er unnið við framkvæmdir við fyrsta f jölbýlishúsið,
sem rfs á Blönduósi.
tekinn í notkun flugvöllur hér
skammt frá og er nú flogið hingað
fjórum sinnum í viku en vonandi
á ferðunum eftir að fjölga í fram-
tíðinni. Þetta er 800 metra löng
flugbraut og aðflugsskilyrði eru
mjög góð. Það hjálpast margt að
því að gera staðinnðleppilegan til
búsetu, hér er gott bæjarstæði og
gott veður. Þekking og framtaks-
semi Ibúanna sjálfra verður því
það atriði, sem mestu ræður um
framtíðina.
HITAVEITA A
NÆSTU GRÖSUM
— Stærsta verkefni hrepps-
félagsins, hvað snertir verklegar
framkvæmdir, er borun eftir
heitu vatni á Reykjum við Reykja-
braut og lagning hitaveitu til
kauptúnsins. Nú er búið að bora
þar og þá fengust 40 til 50
sekúndulítrar af 70 til 80 gráðu
heitu vatni en hreppsfélaginu
nægir að fá um 300 sekúndulítra
þannig að við þurfum ekki að
fullnýta þetta vatn strax. Þessar
framkvæmdir eru mjög fjár-
frekar en mér telst til ^ð kostnað-
ur við borunina sé tæpar 40
milljónir króna og 60% af þvl
fáum við að láni frá Orkusjóði en
það sem eftir er verður hrepps-
félagið að afla. Það hjálpar mikið
hvað lán Orkusjóðs eru hagstæð.
Samanlagt nam upphitunar-
kostnaður með ollu og rafmagni
um 33 milljönum króna I fyrra og
á árinu 1977 er áætlað að þessi
kostnaður verði um 47 milljónir.
Lagning hitaveitu frá Reykjum
gæti hins vegar kostað milli 80 og
130 milljónir og lögn hér innan
bæjar milli 130 og 160 milljónir
en kostnaður er breytilegur eftir
því hvaða efni er notað I leiðslur.
Það að sjá hitaveitu á næstu grös-
um vekur vissulega enn bjartari
vonir um framtíð staðarins.
BÓKHLAÐA BYGGÐ
VIÐ VÖXT
— Hér á staðnum hefur einnig
verið unnið við varanlega gatna-
gerð og er nú búið að leggja olíu-
möl á 2 kílómetra en allar nýjar
götur eru einnig undirbyggðar.
Við höfum hér barna- og gagn-
fræðaskóla og hússtjórnarskóla
en hann er I daglegu tali alltaf
nefndur Kvennaskólinn og nú er
verið að setja þar upp heimilisiðn-
aðarsafn. Félagsheimili staðarins
er stórt og rúmgott enda byggt
Framhald á bls. 20
um við Blöndu ef veður
leyfir en klukkan 14 hefst
hátiðardagskrá á sama stað
og meðal atriða þar verður
ræða, sem Brynleifur
Steingrímsson, héraðs-
læknir, flytur. Þá verður á
sunnudeginum kvik-
myndasýning fyrir börn og
um kvöldið verður leikrit-
ið Þið munið hann Jörund
sýnt í Félagsheimilinu.
----------------------------(
Þá verður í tiiefni af af-
mælinu opnuð sögusýning I
í Barnaskólanum en þar |
sýna m.a. fyrirtæki og |
stofnanir hreppsins. Heim-
ilisiðnaðarsafnið við
Kvennaskólann verður op-
ið yfir helgina og sérstak- I
ur dagstimpill verður í |
notkun á pósthúsinu á |
Blönduósi á laugardaginn í .
tilefni afmælisins.
Geller sigraði í
Las Palmas
EINS og flestir munu minnast
tók Guðmundur Sigurjónsson
þátt I miklu skákmóti, sem
haldið var I Las Palmas á
Kanarfeyjum jsnemma I vor.
Þetta er án efa eitt sterkasta
mót, sem haldið er á þessu ári
og urðu úrslitin sem hér segir:
I. Geller (Sovétr.) 10,5 v., 2.
Larsen (Danm.) 10 v. 3.—4. R.
Byrne (U.S.A.) og R. Hiibner
(V.-Þýzkal.) 9,5 v„ 5.-7. L.
Portisch (Ungv.) Zvetskovsky
(Sovétr.) og F. Georghiu
(Rúmenfa) 9 v„ 8. Guðmundur
8.5 v. 9. K. Rogoff (U.S.A.) 8 v„
10. R. Debarnot (Spánn) 7,5 v„
II. R. Hernandez (Spánn) 6 v„
12.—14. K. Garcia, K. Eraguela
(Spánn) og O. Rodrigez (Perú)
5.5 v„ 15. K. Bellon (Spánn) 4,5
v„ 16. A. Menvielle (Spánn) 2,5
v.
Geller bætti þarna einni
skrautfjöðrinni enn I hattinn,
en hann hefur náð mjög góðum
árangri að undanförnu. Larsen,
sem ekki hefur teflt mikið
síðastliðið ár sýndi að hann
hefur engu gleymt, og R. Byrne
náði sinu bezta í langan tíma.
Ég hef enga af skákum
Guðmundar úr mótinu séð, en
hér koma tvær skemmtilegar
skákir.
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Hvftt: E. Geller
Svart: R. Hiibner
Sikile.vjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — a6, 5. Bd3 — g6
6. 0-0 — Bg7, 7. c3 — Rf6, 8.
Rd2 — Dc7, 9. a4 — 0-0, 10. Hel
— d6, 11. a5 — Rbd7, 12. Rc4 —
d5, 13. exd5 — Rxd5, 14. Bfl —
Rc5, 15. Bg5 — f6, 16. Bh4 —
e5, 17. Df3! — Rf4, 18. Rb6 —
Hb8, 19. Bg3 — g5. 20. Bxf4 —
gxf4, 21. b4 — Re6, 22. Bc4 —
He8, 23. Rxc8 — Dxc4, 24. Rd6
— Rxd4, 25. cxd4 — De6, 26.
Rxe8 — Dxe8, 27. dxe5 — fxe5,
28. Hacl — Df7, 29. Hedl —
He8, 30. De4 — Bf8, 31. Hd5 —
Dg6, 32. Hel — Dxe4, 33. Hxe4
— Hc8, 34. Hdxe5 — Bxb4, 35.
He8 — Hxe8, 36. Hxe8 — Kf7,
37. Hb8 — Bxa5, 38. Hxb7 —
Kg6, 39. Ha7 — Bc3, 40. Hxa6
— Kg5, 41. Kfl og svartur gafst
upp.
Þeir Larsen og Portisch hafa
marga hildi háð við skákborðið
og á ýmsu oltið uni úrslitin. Hér
sjáum við viðureign þeirra I
þessu móti.
Hvftt: L. Portisch
Svart: B. Larsen
Vængtafl
1. c4 — Rf6, 2. Rc3 — e6, 3. Rf3
— Bb4, 4. Dc2 — 0-0, 5. a3 —
Bxc3 6. Dxc.3 — d6, 7. b4 — e5,
8. Bb2 — Rc6, 9. e3 — Re4, 10.
Dc2 — f5, 11. Be2 — a5, 12. d3
— Rf6, 13. b5 — Re7, 14. c5! —
b6, 15. cxd6 — cxd6, 16. Hcl —
Bb7, 17. 0-0 — Hc8, 18. Dbl —
Dd7, 19. a4 — Rg6, 20. Ba3 —
Kh8, 21. Rd2 — Rh4, 22. f3 —
Rd5, 23. Hxc8 — Hxc8, 24. Rc4
— Hxc4, 25. dxc4 — Rxe3 26.
dd3! — Rxfl, 27. Bxfl — d5, 28.
cxd5 — Bxd5, 29. De3! — e4, 30.
fxe4 — Bxe4, 31. Dxb6 — h6,
32. Dd6 — Dc8, 33. Bb2 — Kh7,
34. De7 — Dg8, 35. Dxh4 —
Da2, 36. Df2 — Dxa4, 37. Da7 og
svartur gafst upp.
LEÐURJAKKAR — LEÐURBLÚSSUR — NÝ SENDING AF TERY-
LENEBUXUM — ÞUNNIR FRAKKAR — ÞUNNAR BLÚSSUR —
GÍFURLEGT ÚRVAL AF PEYSUM — GALLABUXUR — GALLAPILS
— GALLAVESTI FYRIR DÖMUR OG HERRA OG FULLT AF NÝJUM
BOLUM.