Morgunblaðið - 02.07.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976
15
FRÁ LEWBEININGASTÖfl HIÍSMÆflRA
Hvernig Danir leysa
kvörtunarmál neytenda
Samkvæmt lögum hóf kvört-
unarnefnd neytenda starfsemi
sina í Danmörku 1. júní 1975.
Nefndin er ríkisstofnun, en í
nefndinni eru ásamt formanni
fulltrúar frá atvinnuvegunum
og frá neytendum. Nefndin rek-
ur skrifstofu meö 10—11 starfs-
mönnum þar af eru 5 lögfræö-
ingar. Samtök neytenda og at-
vinnurekenda hafa samtals til-
nefnt 52 menn sem til skiptis
taka þátt i meðferð mála. En
tveir fulltrúar frá samtökum at-
vinnurekenda og tveir fulltrúar
frá samtökum neytenda dæma
ásamt formanni nefndarinnar í
hverju máli um sig.
í flestum tilvikum hefur
nefndin umboð til að koma á
sáttum i deilumálum varðandi
vörur og þjónustu sem látin er i
té og sem kostar innan við
10.000 danskar kr. (um 300.000
íslenskar kr.) Nefndin getur að
vísu ekki tekið til meðferðar öll
mál sem upp kunna að rísa á
milli neytenda og seljenda, en í
Danmörku hafa kvörtunar-
nefndir sem taka til meðferðar
ýms sérmál starfað undanfarin
ár. Þessar nefndir starfa áfram
og eru nú viðurkenndar af
hinni opinberu kvörtunar-
nefnd. Nefndin hefur ekki um-
boð til að taka til meðferðar
ýmis mál sem aðallega varða
þjónustu enn sem komið er, en
Danir voru hræddir við að
starfsemin yrði þá nefndinni
ofviða I upphafi.
Nefndin tekur að sjálfsögðu
aðeins þau mál til meðferðar
sem neytandinn hefur árang-
urslaust snúið sér með til selj-
anda eða atvinnurekanda.
Neytandinn þarf að greiða 25
danskar kr. um leið og hann
óskar eftir að leggja mál sitt
fyrir nefndina en þær verða
endurgreiddar ef neytandinn
hefur á réttu að standa.
Ef seljandi eða atvinnurek-
andi fer ekki eftir úrskurði
nefndarinnar getur neytandinn
snúið sér til umboðsmanns
neytenda sem aðstoðar hann
við að fá málið rekið fyrir dóm-
stóli. í mörgum tilvikum er það
neytandanum að kostnaðar-
lausu.
Kvörtunarnefnd neytenda
hefur undanfarið sent frá sér
fréttatilkynningar við og við og
sagt frá úrskurðum i málum
sem ætlað er að skapi fordæmi.
Við Islendingar getum nokkuð
lært af þessu og verður hér sagt
frá nokkrum málum sem birt-
ust í fréttatilkynningu frá
nefndinni 21. mai sl.
Um gallabuxur sem láta lit og
um ábyrgð varðandi framleiðsl-
una
Gallabuxurnar létu lit á
rúskinnsjakka sem eigandinn
notaði við buxurnar. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
„Dansk Textil Institut“ var
ástæðan sú, að litþol efnisixjs
við þurrt nudd var of lítið.
Kaupandanum hafði ekki verið
bent á þennan galla þegar hann
keypti buxurnar og engar leið-
beiningar fylgdu buxunum um
það hvernig mætti koma í veg
fyrir að þær létu lit við venju-
lega notkun.
Nefndin var því á þeirri skoð-
un að kaupandinn yrði að fá
buxurnar endurgreiddar. Enn-
fremur áleit nefndin að með
þvi að koma slíkum buxum á
markaðinn án þess að mæla
með ákveðnum reglum til þess
að koma I veg fyrir að buxurnar
létu lit við venjulega notkun
hefði innflytjandinn bakað sér
ábyrgð á þeim skemmdum sem
liturínn olli. Nefndin áleit enn-
fremur að verslunin sem selt
hafði gallabuxurnar bæri
ábyrgð gagnvart kaupandanum
á þvi að hann fengi tjónið sitt
bætt hjá innflytjandanum eða
hjá versluninni.
Rúmteppi frá Pakistan sem
ekki þoldi þvott.
Litirnir runnu saman, þegar
rúmteppið sem var úr bómull
var þvegið við 30°. Teppið kost-
aði 78 d. kr. (um 2300 islenskar
kr.). Engin vitneskja fylgdi um
það að ekki mætti þvo teppið.
Kvörtunarnefndin sagði að
þrátt fyrir hið lága verð og upp-
lýsingar um framleiðsluland
hefði kaupandinn mátt búast
við að bómullarvara eins og
þetta rúmteppi þyldi venjulegt
viðhald, sem er þvottur. Enda
var varan ekki merkt með
ábendingum um, að ekki mætti
þvo hana og ekki hafði kaup-
andanum verið bent á þennan
galla á annan hátt. Kvörtunar-
nefndin áleit því að kaupand-
inn ætti að fá andvirði rúm-
teppisins endurgreitt.
Utsöluvörur. Ullarpeysan var I
tveim mismunandi litbrigðum.
Neytandinn hafði keypt
peysu á útsölu. Verðið var nið-
ursett úr 118 kr. í 48 kr. Eftir að
kaupin voru gerð sá neytand-
inn að peysan var svolítið öðru-
vlsi á litinn að framanverðu
sem ef til vill stafaði af þvf að
peysan hefði legið í sýningar-
glugga.
Nefndin áleit að þar sem
peysan hefði verið keypt á út-
sölu og hefði aðeins kostað 48
kr. og þar sem neytandinn
hefði mátt sjá þennan galla á
peysunni áður en hann keypti
hana ætti hann engar kröfur á
hendur seljanda.
Jakki úr kálfsskinni. Upplýs-
ingar seljanda og gæðakröfur
neytanda.
Neytandi kvartaði vegna þess
að jakki hans hljóp við að verða
gegnblautur af regni. Þegar
kaupin voru gerð hafði seljandi
sagt að jakkinn þyldi regn.
Kvörtunarnefndin áleit hins-
vegar að neytandinn gæti ekki
búist við að jakkinn þyldi að
verða gegnblautur án þess að
breyta um útlit, jafnvel þó að
hann hefði fengið þá vitneskju
að jakkinn þyldi regn. Neytand-
inn fékk þvi engar bætur.
S.H.
Endurvæðing lands og vatns
ALÞJÓÐARAÐSTEFNA um
Endurvæðingu lands og vatns
verður haldin á vegum Vistfræði-
nefndar Vfsindaráðs NATO á
Hötel Loftleiðum dagana 5.—10.
júlí. Forseti ráðstefnunnar verð-
ur dr. M.W. Holdgate, yfirmaður
Umhverfismálastofnunnar Bret-
lands, en dr. Sturla Friðriksson
annast framkvæmd hér á landi.
A ráðstefnunni verður fjallað
um samskipti mannsins við um-
hverfi sitt, einkum á norðurhveli
jarðar. Ræddar verða óskynsam-
legar aðgerðir, sem valdið hafa
röskun á jafnvægi náttúrunnar,
leiðir til að leiðrétta mistök, sem
þegar hafa verið gerð og til að
fyrirbyggja endurtekningu
þeirra.
Um 60 erlendir og innlendir
visindamenn sitja þessa ráð-
stefnu. Af Islands hálfu flytja eft-
irtaldir erindi: Dr. Sturla Frið-
riksson um Vandamál hnignunar
islenzkra vistkerfa, Hákon
Bjarnason um Uppblástur og
skógrækt á íslandi, Sveinn
Runólfsson um Landgræðslu á ís-
landi og Þór GuðjónSson um Líf í
fersku vatni og fiskiræktar-
áætlanir.
Sumarhótel
r
i
Nesjaskóla
NVLEGA var opnað að nýju sum-
arhótel i Nesjaskóla í Hornafirði
og er þetta þriðja sumarið i röð,
sem þarna er starfrækt sumar-
hótel. I hótelinu eru 35 tveggja
manna herbergi, þar af 26 með
handlaug. Gisting kostar frá 1500
krónum fyrir einstakling og 2900
krónur fyrir tvo, en einnig er
leigt út svefnpokapláss. Aðstaða
er til að taka á móti stórum hóp-
um, og að sögn Karls Rafnssonar
hótelstjóra hafa þegar allmargir
hópar erlendra ferðamanna boðað
komu sina til dvalar i júlimánuði.
Veitingar eru fram bornar allan
daginn í skólanum og hópar geta
fengið heitan mat, geri þeir boð á
undan sér.
Nesjaskóli er i um 8 km fjar-
lægð frá Höfn og um 1 km frá
flugvellinum. Hægt er að fara í
skipulagðar ferðir frá hótelinu
um helztu ferðamannastaði i ná-
grenninu.
Rotarymenn gáfu
augnlækningatæki
Rotaryklúbbur Vestmannaeyja
færði sjúkrahúsinu þar fyrir
skömmu augnlækningatæki til
þess að unnt sé að gera ýmsa
uppskurði og rannsóknir á hinu
nýja og giæsilega sjúkrahúsi
Vestmannaeyja. Myndin er af
stjórn Rotary og forsvarsmönnum
frá sjúkrahúsinu. Ljósmynd Mbl.
Sigurgeir.
r
s«.
Allt tU að
auka listína
í hinni nýju teiknivörudeild Pennans Hallarmúla 2
höfum við á boðstólum m.a.:
teikniborð með og án - véla, teikni- teikniblýanta og blý, skabalón og
penna, teiknipappír ótal tegundir, reglustikur.
vasatölvur fyrir verkfræðinga,
Sendum í póstkröfu.