Morgunblaðið - 02.07.1976, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JULI 1976
+
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
frá Blonduósi,
andaðist á Elliheimilinu Grund,
30 júní.
Fyrir hönd barna hans búsettra í
Danmörku
Þorvaldur Jónsson
+
PÁLÍNA PÁLSDÓTTIR
sem andaðist 2 7 júní verður
jarðsungin frá ísafjarðarkirkju
laugardaginn 3 júlí kl 2
Dóttir
tengdssonur
og barnaböm
+ ESTHER B HELGADÓTTIR
Álfhólsvegi 26,
andaðist hinn 28 síðastliðinn
Foreldrar eiginmaður
systkini börn
+
Móðir min
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Miklubraut 76
sem andaðist 24 júni, verður jarðsungin frá Háteigskirkju i dag
föstudaginn 2 júli kl 3 e h
Baldur Boðvarsson
+
Útför mannsins mins
JÓHANNESAR ÓLAFSSONAR
fyrrverandi skrifstofustjóra
Þrúðvangi, Seltjarnarnesi
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 2 júli kl 3 e h
Steinunn Finnbogadóttir
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
VALGERÐAR ÞORBJARNARDÓTTUR
Mýrarbraut 29. Blönduósi
Kristján Gunnarsson
Þormar Kristjánsson
Hilmar Kristjánsson
Sigurður Kristjánsson
og aðrir vandamenn
+
Innilegar þakkir til allra, sem hafa auðsýnt okkur samúð og vinarhug
við fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
INDRIÐA JÓHANNSSONAR,
logregluþjóns
Melgerði 16, Reykjavfk.
Jóna Kristófersdóttir
Andrés Indriðason Valgerður Ingimarsdóttir
Gunnar Þór Indriðason Elín Sjöfn Sverrisdóttir
og barnabörn
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar
mágs og frænda
ANDRÉSAR JÓNSSONAR,
Njarðargötu 27
Elfsabet Jónsdóttir Finnbogi Jónsson
Ingibergur F. Gunnlaugsson Leifur Jónsson
Kristfn Þorvaldsdóttir
Bjarni Guðjónsson
Guðrún Sigurjónsdóttir
Guðrún Guðmundsdótti
Elfnborg Tómasdóttir
Ástráður Jónsson
Guðrún Jónsdóttir
Þórarinn Jónssoni
Kristófer Jónsson
Sigurjón Jónsson
Rannveig Lárusdóttir og systkinabörn
+
Inmlegar þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður okkar, stjúpmóður, tengda-
móður og ömmu,
BJÖRGU ÞORVARÐARDÓTTUR
Borgarholtsbraut 52,
Kópavogi
Sigursveinn Tómasson
Gráta Sigurðardóttir
Eggert Sigurðsson
Þorvarður Már Sigurðsson
Birna Ellnbjörg Sigurðardóttir Pérur Sigurðsson
Jóhannes Sigursveinsson og barnabörn
EUnbjörg Jónasdóttir
Sigurður Hreiðarsson
Helga Sigurjónsdóttir
Jóhanna Guðmundsdóttir
Minning:
Gunnar Hannesson
framkvœmdastjóri
Fæddur 28. marz 1915.
Dáinn 24. júnl 1976.
Það eru nú nær fjórir tugir ára
síðan leiðir okkar Gunnars heit-
ins Hannessonar lágu fyrst
saman. Eiginkonur okkar eru
æskuvinkonur úr Eyjum. Það var
upphafið og kveikjan, — fyrst
kunningsskapur, en síðan vinátta.
Ég ætla ekki eða get í þessum fáu
orðum rakið ættir Gunnars heit-
ins, til þess brestur mig þekkingu,
enda talaði hann aldrei um þau
mál við mig. Á því sviði var hann
dulur. Um flest önnur mál var
hann opinskár og sagði hug sinn
allan.
Það sem ég vildi einkum koma
að var neistinn í þessum góða
dreng, — lifsorkan og dugnaður-
inn í sambandi við áhugamál hans
— og þau æði mörg og stundum
næsta ólík. Það var alveg sama
hvar borið var niður, þrautseigj-
an, gefast ekki upp og sækja á
brattann.
Þegar okkar fyrstu kynni hóf-
ust var Gunnar í forystusveit í
knattspyrnufélaginu Víking. Þá
var ekki slegið slöku við. Satt best
að segja fannst mér nú að fullmik-
ið gengi á, á stundum, en þó var
ekki annað hægt en að dást að
þeim feiknakrafti og vinnu er
hann lagði í það að gera hlut sins
gamla félags sem mestan. Og þá
er það rósaræktin. Garðurinn að
Miklabraut 7 fannst mér hrein
fullkomnun. Enda var ekki fyrr
komið heim úr vinnu en farið var
út í garð, hlúð að gróðri, gerðar
tilraunir með eitt eða annað, eða
plantað út einhverju alveg nýju.
Árangurinn sem hann náði í rósa-
ræktinni var hreint undraverður
og sú viðurkenning er hann hlaut
á þvi sviði var svo sannarlega
verðskulduð.
Já, Gunnar heitinn átti mörg
áhugamál. Oft bar á góma skipu-
lag og fegrun heimabyggðar hans,
er hann unni svo sannarlega,
umferðarmál og þá ekki sizt
ferðalög um byggðir og óbyggðir
Islands. Ég held að ég hafi aldrei
hitt nokkurn mann er lofsöng
eins mikið fegurð landsins eins og
Gunnar. Þegar hann tók flugið og
til að mynda tók að lýsa fegurð og
mikilleik Vatnajökuls, þá tók
hann mann svo sannarlega með,
og maður sannfærðist um að
Vatnajökull væri fegursti staður
á jörðu hér, þótt maður hefði
aldrei á Vatnajökulslóðir komið.
Hin seinustu ár var ljósmyndun
hjá Gunnari upphafið og endir-
inn, ef svo má að orði komast. Þar
lagði hann sig allan fram og jafn-
vel meira en það, — og þar náði
hann alveg undraverðum árangri.
Ég er -ekki dómbær um hvað er
fuilkomnun í þessari listgrein,
sjálfsagt er hún ekki til, en eigi að
síður finnst mér sumar myndirn-
ar hreinustu perlur. En þetta var
ekki tekið út með sældinni — og
þó, Gunnar hafði ákaflega næmt
auga fyrir fegurð og sérkennileg-
heitum þess sem í kringum okkur
er. En þrátt fyrir það var með
ólikindum sá tími er lagður var í
að ná sem beztri mynd af einu
litlu puntstrái er barðist fyrir til-
veru sinni i hrjóstrugum jarðvegi
á heiðum uppi, lækjarsytru í dal-
verpi, eða biða langtímum saman
eftir réttri birtu til þess að lands-
lag og litadýrð haustsins nyti sín
sem bezt.
Og árangur var líka góður, um
það er enginn efi. Það sanna ótal
dæmi, sýningar innanlands og
utan, og er mér þá efst í huga
sýning hans á verkum sínum að
Kjarvaisstöðum. Sú sýning var
mér opinberun og hygg ég að svo
hafi verið um velflesta er þá sýn-
ingu sáu.
Gunnar dó fyrir aldur fram.
Hann átti margt ógert enda si-
vinnandi til hins siðasta, var með
sýningar í undirbúningi, og þess
er ég fuilviss að hefði honum enzt
lengri lifdagar hefði hlutur hans
á sviði ljósmyndunar orðið mun
stærri heldur en hann þegar er
orðinn og er þá nokkuð sagt.
Lífsstarf Gunnars var við verzl-
un. Starfaði hann um langt árabil
hjá einu þekktasta verzlunar-
fyrirtæki þeirra tíma, Marteini
Einarssyni, er verzlaði við Lauga-
veginn. Þar var gaman að lita inn
og sjá Gunnar að starfi. Snyrti-
mennska og glaðværð var honum
í blóð borin, viðskiptamönnum
ráðið heilt i vöruvali, og einhvern
veginn hefi ég það á tilfinning-
unni að margur maðurinn hafi
nokkuð treyst Gunnari um klæða-
burð sinn. Eftir nokkurt árabil
hætti Gunnar störfum hjá Mart-
eini Einarssyni og tók þá við
framkvæmdastjórastarfi við inn-
flutningsfyrirtæki er hann rak í
félagi við mág sinn. Um hans dag-
legu störf var það sama að segja,
dugnaðurinn og krafturinn í
fyrirrúmi.
Gunnar var gæfumaður, kvænt-
ist 18. október 1938 Margréti
Kristjánsdóttur frá Vík í Vest-
mannaeyjum, einhverri beztu
konu er ég hefi kynnzt. Þau áttu
saman 3 góð börn, sem öll eru
vaxin úr grasi, mikið myndarfólk.
Heimili þeirra að Miklubraut 7
var til fyrirmyndar, utan sem inn-
an dyra var snyrtimennska og
smekkvisi í öndvegi. Á heimili
þeirra var gott að koma, þar sveif
andi gestrisni og hjartahlýju yfir
vötnum og margar yndislegar
minningar eigum við hjónin um
ótal heimsóknir, þar sem móttök-
urnar voru með þeim hætti að
timinn leið fljótt við rabb, góðar
veitingar svo ég tali nú ekki um
þegar húsbóndinn tók fram
tjaldið og fyrir brá stórkostlega
fallegum myndum úr islenzkri
náttúru.
Gréta mín, ég veit að harmur
þinn og barnanna er mikill. Góður
lífsförunautur er genginn. Og á
þessum raunarstundum bið ég
þér og þinum allrar blessunar, og
við hjónin og börnin okkar send-
Sverrir Gunnars-
son — Minning
Fæddur 30. maí 1969
Dáinn 25. júní 1976.
Hann var nýorðin sjö ára. Með
sól i sinni var hann að hjóla á nýja
hjólinu sínu. Hann hlakkaði til áð
dvelja í sveitinni um helgina.
Nýja litabókin var þegar komin í
ferðapokann.
Á þessum degi, þegar sumarið
var loksins komið með fyrirheit
um betri tíð, barst fréttin um bæ-
inn. Hún skar inn að dýpstu
hjartarótum: Hörmulegt slys!
Lítill drengur lætur lífið í um-
ferðarslysi. Röð tilviljana, sem
enginn fær ráðið við. í einni svip-
an slokknar líf, eins og dögg, sem
hverfur fyrir sólu. Litli drengur-
inn var Sverrir Gunnarsson.
Ösjálfrátt verður sú spurning
áleitin, hvers vegna börn þurfi að
láta lífið. Hvers vegna börn? Það
er svo ólýsanlega sárt að venjast
þeirri tilhugsun að fá ekki framar
að hafa lítinn frænda og vin sér
við hlið. Fyrir nokkrum dögum
sagði hann mér frá nýju veiði-
stönginni, sem Sigrún amma
hafði gefið honum. Ég vissi, hvað
hann var að gefa i skyn, þegar
hann horfði á mig iengi með blik i
augu. Áður en varði vorum við
farnir að hlakka til veiðiferðar-
innar. Sú ferð verður aldrei farin.
Yfir huga Sverris litla hvíldi
skuggi. Hann saknaði mjög afa
síns, sem var nýlega dáinn. „Af
hverju er afi hjá Guði?“, spurði
hann. Við, sem stöndum hljóð
álengdar, kunnum ekkert viðhlít-
andi svar við svona barnslegri
einlægni.
I vikunni hafði hann lokið við
verkefni frá Umferðarskólanum.
Hann lagði sig allan fram um að
gera það sem bezt úr garði, og
brosti til mfn stoltur, þegar hann
sýndi mér það. Þannig þyrpast
minningar i hugann, örlítil brot,
sem hugurinn hefði ef til vill
aldrei dvalið við. Nú eru þær
orðnar að dýrmætri minningu.
Sverrir var tápmikill og efnileg-
ur drengur. Það fór fátt fram hjá
honum. Hann spurði margs, eins
og barna er gjarna vandi, og var
opinn fyrir öllu, sem gerðist í
kringum hann. Dugnaður hans
var einstakur. Hann sparaði ekki
sporin, þegar hann vildi leggja
öðrum lið.
Ella mín og Gunnar. Megi góður
Guð veita ykkur styrk og huggun.
Blessuð sé minning litla frænda.
Andrés Indriðason.
Vorndi þig englar, elskan mín,
þá augun fögru lykjast þfn;
Ifði þeir kringum hvflu hljótt
á hvftum vængjum um miðja nótt.
S.Th.
Dáinn — horfinn — harma-
fregn. Þessi sigilda setning fyllti
huga minn er fregnin um lát
Sverris litla barst mér.
Það er svo stutt siðan ég kvaddi
hann hressan og kátan ásamt
bekkjarsystkinunum, að loknum
vetri í 6 ára deild Fellaskóla.
Það er oft sagt að litil börn séu
líkt og óskrifuð blöð. Smám sam-
an bætist á blaðið. Sum eru þögul
og feimin, önnur glöð örugg og
full af sjálfstrausti og orkan
stundum órþjótandi. Á blaði
Sverris, I huga mér, sé ég ljós-
hærðan, sérstaklega fallegan
dreng, glaðan og prúðan. Ef hon-
um hefði enst aldur til, hefði
sjálfsagt margt gott og fallegt ver-
ið skrifað á það.
Sverrir litli var sonur hjónanna
Elínar Sjafnar Sverrisdóttur og
Gunnars Þórs Indriðasonar, Þóru-
felli 6 Reykjavík.
Fyrir mína hönd og bekkjar-
systkina hans sendi ég foreldrum
hans og öðrum aðstandendum
innilegustu samúðarkveðjur.
Auður Kristmundsdóttir.
Lokað
í dag frá kl. 1 —4
vegna jarðarfarar Gunnars Hannessonar.
Gleraugnaverzlun,
Ingólfs S. Gislasonar,
Bankastræti 14.