Morgunblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 2. JULÍ 1976
Nýr maður í
30 daga gæzlu
— vegna aðildar að hasssmygli
NVR maður var f gær úrskurð-
aður í allt að 30 daga gæzluvarð-
hald í tengslum við hassmál það,
er uppvíst varð um fyrir nokkru,
þegar reynt vár að smygla um 3
kg af hassi í stól, sem fluttur var
með skipi til landsins. Eins og
Mbl. skýrði frá f gær var gæzlu-
varðhald annars manns
framlengt um allt að 30 daga
vegna þess sama máls. Auk þessa
máls er ffkniefnadómstóllinn í
Reykjavík með tvö önnur hass-
mál til rannsóknar um þessar
mundir.
Dómstóllinn hefur undanfarið
afgreitt nokkur mál, aðallega með
dómssátt. í sl. viku var m.a. eitt
slfkt mál afgreitt með dómssátt,
þar sem viðkomandi aðila var gert
að greiða um 370 þúsund krónu
sekt. Er þetta hæsta sektar-
greiðsla hérlendis vegna fíkni-
efnamáls til þessa. Mál þetta
snerist um sölu og dreifingu á
allmiklu magni af fíkniefnum af
Keflavíkurflugvelli og komst upp
um það um síðustu áramót.
Dæmt í hnífstungumálinu á Ólafsvík:
Pilturinn hlaut
4ra ára fangelsi
PILTURINN f Olafsvík, sem varð
manni að bana með hnffstungu
þar f þorpinu f maímánuði f fyrra
og hefur sfðan setið f gæzluvarð-
haldi, var sl. þriðjudag dæmdur í
fjögurra ára fangelsi. Af hálfu
piltsins var þvf haldið fram að
hann hefði unnið þennan verknað
f sjálfsvörn en niðurstaða dóms-
ins var sú, að ákærði hafi farið út
fyrir takmörk leyfilegrar neyðar-
varnar.
1 fréttatilkynningu frá sýslu
manni Snæfells- og Hnappadals-
sýlsu segir svo:
Allt rólegt
á miðunum
ALLS var 41 erlendur togari að
veiðum við landið f gær, en allt
með ró og spekt á þessum 50.
afmælisdegi landhelgisgæzlunn-
ar að sögn Gunnars Ólafssonar
skipherra. Brezku togararnir
voru 19 og yoru þeir flestir norð-
an og norðaustan við landið.
Þýzku togararnir voru 18 og hafa
þeir verið óvenjumargir að veið-
um við Island undanfarið, flestir
þeirra voru sunnan og suðaustan
við landið. Auk þeirra voru svo 2
belgískir og 2 færeyskir togarar
að veiðum við landið i gær.
I sakadómi Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu var þann 29.
júní 1976 kveðinn upp dómur í
máli, sem höfðað var af hálfu
ákæruvaldsins gegn Sigurgeiri
Einari Karlssyni fyrir að hafa orð-
ið manni að bana með hnífstung-
um aðfaranótt 14. maí 1975 í ver-
búð í Ölafsvík.
Atvik málsins eru þau, að
ákærði og maður þessi sátu við
áfengisdrykkju í herbergi ákærða
í verbúðunum. Þegar á leið urðu
ýfingar með þeim út af sparisjóðs-
bók, sem ákærði átti. Leiddu þær
til átaka milli mannanna, sem
lyktaði svo, að ákærði brá hnifi og
veitti andstæðingi sinUm það
alvarlega áverka, að hann lézt þar
á staðnum.
Af hálfu ákærða er þvf haldið
fram, að hann hafi unnið verknað
þennan í neyðarvörn. Niðurstaða
dómsins er sú, að ákærði hafi
farið út fyrir takmörk leyfilegrar
neyðarvarnar og var honum
dæmd refsing samkvæmt 211. gr.
almennra hegningarlaga. Með til-
liti til neyðarvarnarsjónarmiða
var refsing ákærða ákveðin fjögra
ára fangelsi.
Ákærði hefur setið i gæzlu-
varðhaldi síðan rannsókn málsins
hófst og kemur gæzluvarðhalds-
tími hans, með fullri dagatölu, til
frádráttar dæmdri refsingu. Þá
var ákærði og dæmdur til greiðslu
alls sakarkostnaðar.
LITLU munaði að
illa færi f flugtaki
loftbelgsferðar,
sem farin var frá
Alftanesi í gær.
Karfan slengdist f
jörðina og lenti síð-
an f girðingu. Af-
leiðingar urðu þær
að annar flugkapp-
inn, Ómar Ragnars-
son, fékk útbyrðis,
en Holberg Más-
son, eigandi belgs-
ins og aðalflugmað-
ur, meiddist Iftil-
lega áfætiog í baki.
Holberg hélt ferð-
inni áfram og gekk
allt eins og í sögu
þar til komið var að
lendingunni f Leir-
ársveit í Borgar-
firði. Slóst þá karfa
belgsins utan f
sfmalfnur, en betur
fór en á horfðist og
lendingin tókst vel,
ái
að öðru leyti en
þvf, að flugmaður-
'inn fékk smáskurð
á enni. Loftbelgur-
inn skemmdist Iftið
sem ekkert í þess-
ari ævintýraferð og
ætlar Holberg sér
aftur á loft með
belgnum f næstu
viku.
Nánar segir frá
loftbelgsferðinni á
blS. 3. <ljósm. Mbl. RAX).
Hækkanir
á brauðum
og unnum
kjötvörum
VERÐLAGSNEFND hefur ákveð-
ið hækkanir á brauðum og unnum
kjötvörum og nema þessar hækk
anir frá 7%—19%. Mestar eru
hækkanirnar á vínarpylsum og
kindabjúgum, en þær hækkanir
stafa af miklu leyti af nýjum
reglugerðum um pökkun og
merkingu þessara vörutegunda,
en einnig vegna verðhækkunar á
hráefni og launahækkana.
Franskbrauð og heilhveitibrauð
hækka nú úr 69 krónum i 74 krón-
ur og nemur sú hækkun 7%. Rúg-
Framhald á bls. 35
Vinsamleg-
ar viðræður
við Mikla
norræna
ISLENZK sendinefnd hóf í gær
viðræður við forráðamenn Mikla
norræna ritsfmafélagsins í Kaup-
mannahöfn um hugsanlega
endurskoðun á samningi þeim,
sem er í gildi milli félagsins
og fslenzkra stjórnvalda um sfma-
samband við útlönd. Að sögn
Brynjólfs Ingólfssonar. ráðu-
nevtisstióra og eins nefndar-
manna, verður fundunum haldið
áfram f dag og á mánudag.
Brynjólfur sagði að á fundinum
í gær hefðu málin aðeins verið
reifuð. Viðræðurnar hefðu verið
Framhald á bls. 35
T j æreborgarf arþeg-
arnir fá að fara utan
Viðræður milli ferðaskrifstofanna og gjaldeyrisyfir-
valda um einhvers konar rýmkun á gjaldeyrisreglum
MAL þeirra liðlega 40 farþega,
sem fara eiga á morgun f ferð
með dönsku ferðaskrifstofunni
Tjæreborg á vegum ÍJtsýnar, var
tekið fyrir á fundi gjaldeyris-
nefndar f gær. Sem kunnugt var
leit út fyrir að ekki yrði af þessari
ferð vegna þess að hún samræmd-
ist ekki reglum um gjaldeyrisyf-
irfærslur. Morgunblaðinu er nú
kunnugt um að lausn var fundin á
þessu máli f gær og ferðin verður
farin, en hins vegar tókst blaðinu
ekki að afla upplýsinga um það í
DEILUR UMMAL-
ARNÁM ÍLANDI
MÖÐR UVALLA
Ijósm. Mbl. Fr. Vestmann.
MALIN RÆDD — Fulltrúar Náttúruverndarnefndar Eyjafjarðar,
Sóknarnefndar Möðruvallaprestakalls og Vegagerðar rfkisins ræða
málin við Möðruvelli f gær.
f BRÝNU hefur slegið í Eyjafirði
þar sem deila annars vegar
náttúruverndarmenn og sóknar-
nefnd Möðruvallasóknar og hins
vegar fulltrúar Vegagerðar ríkis-
ins. Snýst málið um það hvort
Vegagerðin fær að taka möl f
landi Mörðuvalla til ofanfburðar
á veginn til Ólafsf jarðar eða ekki.
Mál þetta hefur þegar komið til
kasta samgönguráðuneytisins og
kirkjumálaráðuneytisins.
Klukkan 18 í gær kom Náttúru-
verndarnefnd Eyjafjarðar ásamt
sóknarnefnd Möðruvallasóknar
og yfirverkfræðingi Vegagerðar
ríkisins, Snæbirni Jónassyni,
saman til fundar á Sléttumelum
sunnan við Möðruvelli. Tilefni
þessa fundar var sú fyrirætlun
Vegagerðarinnar að hefja malar-
nám úr melum þessum. Eins og
áður segir eru melarnir sléttir en
trúlegt er að á ísöld hafi sjór náð
að rótum þeirra og eru þarna
allháir bakkar. Neðan þeirra er
flatlendi, sem i tíð munkanna á
Möðruvöllum hafa verið forar-
Framhald á bls. 35
hverju þessi lausn hefði verið
fólgin.
Þá hafa undanfarið átt sér stað
viðræður milli forráðamanna
ferðaskrifstofanna og gjaldeyris-
yfirvalda um einhvers konar
rýmkun á gjaldeyrisreglum
vegna sólarlandaferða. Munu for-
ráðamenn ferðaskrifstofanna
telja að unnt eigi að vera að gefa
sólarlandsförum kost á kynnis-
ferðum þar ytra og greiða þær f
fslenzkum krónum án þess að það
brjóti f bága við þær hámarksyfir-
færslur á gjaldeyri, sem skrifstof-
unum er skammtaður vegna
slfkra ferða.
Morgunblaðið sneri sér í gær til
Steins Lárussonar, framkvæmda-
stjóra Ferðaskrifstofunnar Ur-
vals, sem jafnframt er formaður
samtaka islenzkra ferðaskrif-
stofa, og leitaði álits hans á þeirri
ráðstöfun gjaldeyrisyfirvalda að
herða enn gjaldeyrishömlur með
þvf að taka fyrir gjaldeyrisyfir-
færslur vegna ferða með erlend-
um ferðaskrifstofum.
Steinn Lárusson sagði, að óhætt
væri að segja, að sá gjaldeyris-
skammtur er búinn væri að vera
við lýði síðan 1964, þ.e. 3VS sterl-
ingspund á dag, væri orðinn gjör-
Framhald á bls. 35