Morgunblaðið - 24.07.1976, Side 21

Morgunblaðið - 24.07.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JULÍ 1976 21 Magnús Þorgeirsson HöUustöðum - Minning Fréttabréf frá Sveini í Miðhúsum: Góð grasspretta — Félags- störf — Skuldir aukast — Látinna minnst Miðhúsum f Revkhólahreppi. 18. júlí. F. 12. maí 1898 D. 16. júlf 1976. Magnús Þorgeirsson, bóndi og fyrrum oddviti, Höllustöðum í Reykhólasveit, lést að heimili sínu aðfaranótt föstudagsins 16. júlí sl. og bar dauða hans brátt og óvænt að. Utför hans verður gerð í dag frá Reykhólakirkju. Magnús var fæddur að Höllu- stöðum 12. maí 1898, sonur hjón- anna Kristrúnar Salbjargar Jó- hannsdóttur og Þorgeirs Þorgeirs- sonar, oddvita og búfræðings. Bjuggu þau hjónin þar nær allan sinn búskap, en Kristrún hafði flust að Höllustöðum barn að aldri með foreldrum sinum. Syst- kini Magnúsar voru átta, og eru að honum gengnum þrjú eftir á lifi, Jóhann, Þorgeir og Ingibjörgi Eins og svo margir aðrir af hans kynslóð, hlaut Magnús litla skóla- göngu í æsku. Þorgeir faðir hans var hins vegar vel menntaður á þeirra tima vísu, búfræðingur úr Ólafsdal, og áhugasamur um menntun og menningarmál. Mun Magnús hafa numið margt af föð- ur sínum, enda átti hann létt með að læra og varð með tímanum prýðilega sjálfmenntaður. Það fór heldur ekki hjá því, að‘ sveitungar Magnúsar veittu hæfi- leikum hans athygli, og voru hon- um snemma falin ýmis trúnaðar- störf. Þannig átti hann á árunum 1942 —1954 sæti i hreppsnefnd, og var þá jafnframt hrepps- nefndaroddviti, einnig var Magnús i sýslunefnd i allmörg ár og í stjórn Kaupfélags Króks- fjarðar, auk annarra trúnaðar- starfa, sem hér verða ekki rakin frekar. Lengst var hann þó spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykhóla- hrepps. Tók Magnús við því starfi af föður sinum, en Þorgeir stofnaði sparisjóðinn árið 1913, og hélt Magnús því til dauðadags. Mun sjáldgæft, ef ekki einstakt, að sparisjóður hafi þannig verið undir stjórn feðga í meira en 60 ár samfleytt. í gegnum starf sitt sem spariSjóðsstjóri varð Magnús ráðgjafi ýmissa sveitunga sinna i fjármálum. Þeim þótti gott að leita til hans, vissu sem var að hann réði þeim heilt og brást aidrei trúnaði þeirra. Magnús stóð fyrir búi foreldra sinna á Höllustöðum, eftir að þau voru orðin öldruð, en þau létust bæði í góðri elli. Eftir lát föður síns 1947 keypti Magnús jörðina af systkinum sánum, nema Ingi- björgu, sem átti hlut i henni áfram. Bjó hann þar síðan, en ásamt honum hefur búið og býr á Höllustöðum fósturbróðir Magnúsar, Samúel Björnsson ásamt fjölskyldu sinni. Var Magnús alla tíð eftir lát foreldra sinna f heimili hjá þeim hjónum. Hann hafði nú nýverið ásamt Ingibjörgu systur sinni selt þeim jörðina, en svo var ráð fyrir gert að hann yrði þar áfram heimilis- maður. Eins og ráða má af ofanskráðu var Magnús ókvæntur, en einn son eignaðist hann, sem fæddist 1933, Heiðar að nafni. Örlögin höguðu þvi hins vegar svo, að sonur hans ólst upp með móður sinni annars staðar. Heiðar var að kunnugra sögn afar efnilegt barn, en heilsutæpur og lést úr berkl- um 9 eða 10 ára gamall. Hann var lagóur til hinstu hvilu í Reykhóia- kirkjugarði, þar sem faðir hans' hlýtur nú legstað. Dauði drengsins hlýtur að hafa verið Magnúsi þung raun, enda þótt hann bæri það ekki fremur en önnur sín einkamál á torg. Hann var sjálfur einstaklega barngóður og börn hændust ósjáifrátt að honum. Það fékk kona mín að reyna, en hún var öli sumur á Höllustöðum frá sex ára aldri og til unglingsára. Mest og best samband hafði Magnús þó við börn Samúels og Theodóru og mátti hann og yngsti sonur þeirra þannig vart hvor af öðrum sjá. Enda þótt Magnús væri um æv- ina valinn til margra trúnaðar- starfa fyrir sveitunga sina, var hann þá síst af öllu framgjarn. Að eðlisfari var hann frekar hlé- drægur og ómannblendinn, en engu að siður óvenju viðræðu- góður. Hann átti auðvelt með að ræða um hin óskyldustu viðfangs- efni og heimspekilegar ihuganir voru honum mjög að skapi. Tal sitt blandaði hann gjarnan léttri og græskulausri kimni. Af öllu hans tali og atferli mátti merkja grandvaran og heiðarlegan mann, sem okkur hinum var til sóma að umgangast. Þegar ég kynntist Magnúsi fyrir 22 árum, varð mér maðurinn strax hugstæður sökum þeirra eóliskosta hans, sem hér hafa ver- ið raktir. Þar kom og til frásögn konu minnar, sem hafði þekkt hann frá þvi hún var barn, eins og áður segir. Fyrir þessi kynni vil ég nú þakka fyrir okkar hönd. Við hjónin vottum systkinum hans, fólkinu á Höllustöðum og öðrum aðstandendum samúð okkar. Olafur S. Valdimarsson. útiaraskreytingar blómouol Groðurhusið v/Sigtun simi 36770 í VOR og það sem af er sumri hefur tiðarfar verið með ágætum. Grasspretta er ágæt nema þar sém kal herjaði átúnin. Skurðgrafa er nú við störf í héraðinu, en lítið er um túnrækt, en starfsemi ræktunarsambands- ins liggur niðri til óhagræðis bændum. Félagsstörf Nýlega er aðalfundi Sambands breiðfirzkra kvenna lokið og að þessu sinni var hann haldinn í Króksfjarðarnesi. Þær breytingar urðu á stjórn sambandsins að Ingibjörg Árna- dóttir, Miðhúsum, baðst undan endurkosningu og kosin var í hennar stað Guðlaug Guðmunds- dóttir, Tindum í Geiradal. í sambandi við fundinn gekkst kvenfélagið í Geiradal fyrir vand- aðri kvöldvöku og auk heima- manna komu þessir listamenn fram: Guðmundur Jónsson óperu- söngvari ásamt pianóleikara sin- um Ólafi Vigni Albertssyni. Einn- ig söng Sigrún Harðardóttir og lék sjáif undir á gitar. Það er aiitof sjáidan hér að við fáum að komast í snertingu við ágæta listamenn. Skuldir viðskiptamanna aukast Aðalfundur Kaupfélags Króks- fjarðar var haldinn i Vogalandi 17. þ.m. og kom þar fram að vöru- sala nam 110 millj. kr. á árinu 1975, en afkoma bænda hefur versnað mjög og eru nú skuidir viðskiptamanna 33 milljónir sem er ískyggileg þróun og lesendur geta haft það í huga, að það iíður hjá sauðfjárbónda nær hálft ann- að ár frá þvi að áburður er keypt- ur og þar til hann ieggur inn dilkinn, sem á að borga hann. Agnar Tryggvason fram- kvæmdastjóri Búvörudeildar S.l.S. mætti á fundinum og hélt erindi fyrir fundarmenn og það helsta sem bréfritari hjó eftir verður hér skráð. 1. Grundvalllarverð til bænda hefur aldrei náðst. 2. Veruleg tekjurýrnun er hjá bændum. 3. Ekki verður hægt að borga fullt verð fyrir gærur siðasta ár. 4. Á siátursölu hefur alltaf verið tap. 5. Geldfjárkjöt selst illa vegna of mikiilar fitu og verðlag er of hátt. 6. Vöruverð á landbúnaðarvörum hefur alltaf verið heimatilbúið og ekki sambærilegt við markaðs- verð annarra landa. 7. Hækkunin á ullinni sem varð i vor er blekking því að þetta er aðeins tilfærsla á milli vöru- flokka. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLl skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar yérða að berast blaðinu með gððum fyrirvara. Þannig verð- ör grein, sem birtast á 1 mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar- mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu 'fnubili. Að lokum sagði Agnar Tryggva- son: „Hógværð er ekki metin i okkar þjóðfélagi og ráðamenn virðast ekki skilja annað en hörku. Við verðum að standa fast á rétti bændanna og nú má ekki níðast á þeirri stétt einni.“ Dauðsföll Á þessu sumri hafa 4 aldraðir bændur fallið hér frá og skal þeirra minnst með örfáum orðum. Árni Hyrónemusson, Hyrnings- stöðum, var þéttur á velli og þétt- ur i lund. Hann var minnugur vel og hafði skemmtilegt tungutak enda sagði hann manna best frá. Hann kunni mikinn fróðleik utan- bókar, sem vert hefði verið að geyma. Niður við sjóinn á Hyrnings- stöðum er vel hlaðinn stekkur sem Árni hlóð og hlýtur það að vera akkur þessu byggðarlagi að hann varðveitist um komandi ár. Danfel Ólafsson frá Trölla- tungu. Hann átti stutta búskapar- sögu hér i sveit, en flyst norður yfir heiðar og eftir nokkra dvöl þar hefja þau hjón búskap í Tröllatungu og rækta mikil tún og byggja stórar byggingar og gera trjá- og blómagarð svo fagran að hann gaf fólki er hann sá nýja trú á landið og að hægt væri að gera umhverfi sitt fagurt, ef vilji og dugnaður væru fyrir hendi. Þess vegna fóru allir rikari frá Trölla- tungu. Daniel starfaði mikið að félags- málum og var allsstaðar góður liðsmaður vegna þess að hann hugsaði áður en hann kvað upp dóma sina enda bæði greindur vel og velviljaður. Siðustu æviár sin dvaldi hann hjá syni sinum Jóni og konu hans að Ingunnarstöðum í Geiradal. Magnús Þorgeirsson, Höllustöð- um. Hann var sjálfmenntaður bæði til bókar og handar og það svo vel að langskólagengnir menn gátu sótt til hans lífsspeki. Magn- ús vann mikið að félagsmáium og var t.d. sparisjóðsstjóri til dauða- dags. Hann var einn af þeim mönnum sem ekki breyttust við það að hafa yfirráð yfir fjármagni og í okkar þrönga og oft á tiðum harðsnúna samfélagi minnist ég ekki að hafa heyrt að nokkur mað- ur hefði horn i siðu hans. Þetta er þeim mun sjaldgæfara, þar sem hann bar hærra i sínu byggðar- lagi á lifsferli sínum en flesta menn aðra, og fæstir koma óbenj- aðir úr þeim leik. Magnús hafði yndi af fagurbók- menntum og unni ljóðum þeirra skálda er notuðu stuðla og rim. Hann skrifaði rithönd fagra og hafða gott vald á tungu sinni svo ánægja var hverjum er viðræður átti við hann Sesselja Helgadóttir, Skógum. I Reykhólasveit búa nokkrir kven- bændur og hafa þeir jafnan verið í fremstu röð búenda, en um Sess- elju hefur verið svo mikið ritað að hún var löngu orðin þjóðkunn kona. Hún var elsti þegn þessa byggðarlags og átti rúma öid að baki er hún lést. Sesselja var sjálfstæð i hugsun og gjörðum og vildi gjalda hverj- um sitt. Hún var kvenna orð- heppnust og fáir áttu hjá henni er þvi var að skipta, enda var hún kona hreinskiptin. Hún var trú- kona einlæg og átti sína barnatrú ómengaða. Jafnvel þó að komið hafi verið misjafnlega fram á vöku hjá þessu fólki þegar dyr eilifðarinn- ar opnuðust því, þá er sjónarvipt- ir að burtför þessa fólks, en góðar minningar eiga að gera þá betri sem eftir lifa. t RAGNHEIÐUR ERLA BENEDIKTSSON lést 21. júli á sjúkrahúsi i London. Fyrir hönd fjarstaddra systkina, ættingja og vina, Sigriður Benediktsson t Sonur okkar og bróðir JOHN WOODS lést i Kaliforníu 21 júli s.l. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð John A. Woods og Áslaug S. Woods og systkini. t Alúðar þakklr fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar FANNEYJAR FRIÐRIKSDÓTTUR Jóhannes Þóroddsson t Öllum þeim mörgu er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför sonar mins og bróður okkar, EGILS ÞORSTEINSSONAR tollvarðar sendum við hjartans alúðar þakkir Guð blessi ykkur öll Steinunn Guðbrandsdóttir og systkini hins látna. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför KRISTJÁNS HALLDÓRSSONAR kennara frí PatreksfirSi Laufásveg 36. Reykjavlk Jóhanna Ólafsdóttir Ólafur BarSi Kristjánsson Hanna Karen Kristjánsdóttir Guðríður Kristjánsdóttir Helgi Geir Valdimarsson Gunnar Kristjánsson Helga Loftsdóttú/ Kristján Halldórsson Gestur Gunnarsson Ingibjörg Ólafsdóttir Elln Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.