Morgunblaðið - 24.07.1976, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JULl 1976
IA - Fram verður
viðureign helgarinnar
ÞRÍR leikir fara fram nú um helgina í
1. deildar keppni íslandsmótsins i
knattspyrnu, auk þess sem leikin
verður heil umferð i 2. deild og
fjölmargir leikir i 3. deild og i yngri
aldursflokkunum.
í dag fer fram á Akranesi leikur ÍA og
Fram og er það tvímælalaust „leikur
helgarinnar" Bæði þessi lið berjast
nærri toppnum í 1. deildinni, og ef
Framarar vinna sigur í þessum leik,
verður ekki annað sagt en að staða
þeirra í mótinu sé orðm hin ágætasta,
en Framarar hafa sótt sig mjög mikið
að undanförnu og eru nú með
skemmtilegt og sterkt lið En sigur
verður örugglega ekki auðsóttur í
greipar Skagamanna á Akranesi Fyrri
leik þessara !iða, sem fram fót í Reykja
vík, lauk með sigri ÍA 2— 1.
Kl 20.00 á morgun leika á Laugar-
dalsvellinum KR og UBK og á sama
tíma leika í Keflavík ÍBK og Valur Ættu
báðir þessir leikir að geta verið hinir
tvísýnustu og skemmtilegustu Fyrri
leik Vals og IBK sem fram fór i Reykja-
vik lauk með 2—0 sigri Vals, en fyrri
leík KR og UBK lauk með jafntefli
0—0
Miklar
afmælis-
veizlur
ÞJÁLFARI íslenzku júdómann-
anna á Ólympíuleikunum, Japan-
inn Naoki Murata, átti 27 ára af-
mæli á miðvikudaginn og var
haldin mikil veizia honum til
heiðurs eins og fyrir önnur af-
mælishörn sem dvelja í Olympíu-
þorpinu. fækk Murata gjafir frá
kanadisku Olympiunefndinni og
íslendingum, og auk þess voru
góðar kökur á boðstólum og mikið
sungið í þessari fjölþjóðlegu af-
mælisveizlu. Fleiri ísiendingar
eiga afmæli meðan á leikunum
stendur. Jóhanna Þorsteinsdóttir,
eiginkona Hreins Halldórssonar,
fær væntanlega sina veizlu en
Ágúst Asgeirsson, sem átti
afmæli s.l. föstudag missti af
veizlunni, þar sem kanadíska
Óiympíunefndin náði ekki sam-
bandi við hann nógu timaniega.
— áij.
Verðlaunahafar I 4x100 metra fjórsundi karla á Ólympfuleikunum f Montre
al Lengst til vinstri er sveit Kanada sem hlaut silfurverðlaun, þá sigurvegar-
arnir frá Bandarfkjunum sem settu nýtt heimsmet og loks Vestur-Þjóðverjar
er urðu f þriðja sætí.
- Þrjú ný heimsmet og það ijórða jafnað
í sundkeppninni í Montreal í fyrrakvöld
AUSTUR-ÞVZKA stúlkan Korn-
elia Ender vann það glæsi-
lega afrek á Ólympfuleikunum í
Montreal f fyrrakvöld að hreppa
þá tvenn gullverðlaun — sigraði
bæði f 400 metra skriðsundi og
100 metra flugsundi og það sem
meira var að aðeins liðu 20 mínút-
ur á millu úrslita í þessum sund-
greinum. Ender setti glæsilegt
heimsmet í 400 metra sundinu og
jafnaði heimsmetið f 100 metra
sundinu. Er varla vafi á því að
hún hefði stórbætt það met einn-
ig, hefði henni gefizt tími til betri
hvíldar.
Kornelía Ender hefur nú hlotiö
fern gullverðlaun í Montreal og
hefur engin stúlka unnið slíkt
afrek í sundíþróttinni til þessa.
1968 vann Debbie Reynolds
þrenn guilverðlaun og þótti
gífurlega mikið til afreks hennar
koma.
í sundunum í fyrrakvöld kom
strax fram að Ender myndí hafa
sigurinn nokkurn veginn í hendi
sér. Var það aðeins til að byrja
með að keppinautar hennar héldu
í við hana, en smátt og smátt dró í
sundur, svo sem bezt má sjá á hve
mikill munur var á tímunum.
I fyrrakvöld var einnig keppt til
úrslita i 400 metra skriðsundi
karla og í 4x100 metra fjórsundi
karla, og litu ný heimsmet dags-
ins ljós i báðum greinum. Sýndu
Bandarikjamenn hinn gífurlega
styrk sinn í boðsundinu, þar sem
þeir sendu B-sveit sina til keppni
í undanrásunum og þar sigraði
hún á nýju heimsmeti. Það var
sföan hlutverk A-sveítarinnar
setn keppti í úrslitum að slá það
heimsmet og það tókst henni svo
um munaði. í sveitinni voru John
Naber, sem synti baksundið á
55,89 sek., John Hencken sem
synti bringusundið á 1:02,50 mín.,
Matt Vogel sem synti flugsundið á
54,50 sek./og loks Jim Montgom-
ery sem synti skriðsundið á 49,57
sek. Tók bandarfska sveitin þegar
forystu á fyrsta spretti og úr því
varð henni ekki ógnað — þvert á
móti fór munurinn á henni og
næstu sveit stöðugt vaxandi.
I 400 metra skriðsundinu varð
hinn 17 ára Brian Goodell sigur-
vegari og voru þetta önnur gull-
verðlaun hans á Ólympíuleikun-
um, þar sem hann sigraði einnig i
1500 metra skriðsundinu. Goodell
tók forystuna eftir 300 metra, en
landi hans Tim Shaw fylgdi
honum eftir og var ekki mikill
munur á köppunum þegar í mark-
ið kom. Kom það nokkuð á óvart
að Shaw skyldi ekki hljóta gull-
verðlaun í þessari grein, þar sem
hann varð sigurvegari í heims-
meistarakeppninni 1975 i 200, 400
og 1500 metra skriðsundi.
Andrea Pollack frá A-Þýzkalandi sem hlaut silfurverðlaun I 100 metra
flugsundi óskar Wendy Bogiioli frá Bandarlkjunum til hamingu meS brons-
verSlaunin. Milli þeirra stendur sunddrottning leikanna, Komella Ender sem
hlaut sin fjórSu gullverSlaun á leikunum fyrir sigur í þessu sundi.
Olympíumetið lá í fyrsta kasti
SOVÉTMAÐURINN Alexander
Barisnikov kastaði aðeins einu
sinni f undankeppninni í kúluvarpi
á Ólympiuleikunum Í Montreal i
gærkvöldi, og það nægði honum
lika til þess að setja nýtt Ólympíu-
met. Varpaði Sovétmaðurinn, sem
notar mjög sérstæðan stil i kúlu-
varpinu, 21,32 metra.
Það kom töluvert á óvart, að ekki
náðu nema 1 1 keppendur lágmark-
inu fyrir aðalkeppnina, sem var
19,40 metrar. Því var 12 mannin-
um bætt við — þeim sem átti kast
sem næst var lágmarkinu og var sá
Bandarikjamaðurinn George Woods
— fyrrum heimsmethafi í greininni,
og silfurverðlaunahafi frá leikunum i
Miinchen. Hann varpaði 19,35
metra í undankeppninni.
Undankeppnin fór fram í tveimur
riðlum og urðu úrslit í þeim þessi.
1. riðill:
Hans Peter Gies,
A-Þýzkalandi 20,52
Geoffrey Capes, Bretlandi 20,40
Hans Höglund, Svíþjóð 19,76
Udo Beyer, A-Þýzkal. 19,69
Peter Shmock, Bandar. 19,48
George Woods, Bandar. 19 35
Yves Brouzet, Frakkl. 19,14
Ivan Ivanco, Júgóslv. 18,75
Bruce Prinie, Kanada 1 7,82
Mohammad Alzinkawi,
Kuwait 13,17
Saal al Bishy, Saudi-Arabíu 1 1,68
2. riðill.
Alexander Barisnikov, Sovétr. 21,32
Evgeni Mironov, Sovétr 20,26
Heinz Joachim Rothenburg,
A-Þýzkal 19,92
Allan Feuerbach, Bandar 19,87
Jaroslav Brabec, Tékkóslv 1 9,80
Reijo Stahlberg, Finnl 19,40
Ralf Reichenbach, V-Þýzkal 19,31
Hreinn Halldórsson, íslandi 18,93
Hans Almström, Svíþjóð 18,76
Georges Schroeder, Belgíu 18,33
Jean-Pierre Eggert, Sviss 18,13
Juan a. Turri, Argentínu 17,76
Alls voru keppendurnir i kúluvarpi
þvi 23 talsins og varð Hreinn 1 5. í
röðinni
Olympíumet í
undankeppni í
spjótkasti kvenna
VESTUR-ÞÝZKA stúlk-
an íVIarion Becker setti
nýtt Ólympíumet í spjót-
kasti kvenna í f.vrsta
kasti sínu í undankeppn-
inni í gær er hún kastaði
65,14 metra. Gamla met-
ið átti Ruth Fuchs frá
Austur-Þýzkalandi og
var það 63,88 metrar, sett
á leikunum í Múnchen
1972.
Fuchs er einnig heimsmet-
hafi í þessari grein, kastaði ný-
lega 69,12 metra. Átti hún nú
annað bezta kastið 1 undan-
keppninni, en lagði greinilega
ekki áherzlu á að slá Ólympíu-
met Beckers — ætlar sér senni-
lega að geyma það til úrslita-
keppninnar.
Þær stúlkur sem náðu lág-
markinu i undankeppninni í
gær voru eftirtaldar:
Marion Becker (VrÞýzkalandi),
Ruth Fuehs, (A-Þýzkalandi),
Kathryn Schmidt (Bandar.),
Eva Janko, (Austurríki)
Jacqueline Hein (A-Þýzkal.),
Karin Smith (Bandaríkjunum)
Theresa Sanderson (Bretlandi)
Svetlana Babich (Sovétr.),
Yordanka Peeva (Búlgariu)
Nadejda Yakubovic (Sovétríkj-
unum), Salbine Serowski (A-
Þýzkalandi) og Eva Zorgo
(Rúmeníu).
Ender vann gullverðiaun
með 20 mínútna millibili