Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 1
48 SIÐUR 178. tbl. 63. árg. SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dularfullum sjúkdómstilfellum fjölffar: Harrisburg, Pennsylvaníu — Flórfda — 14. ágúst — Reuter AP. TVEIR menn tóku nýlega þátt f ráðstefnu kaþólikka, sem haldin var í Fíladelffu og hafa þeir nú tekió veiki, sem Ifkist mjög þeirri, sem lagði 27 manns að velli, eftir fund fyrrverandi her- manna í sömu borg f síðasta mán- uði. Þeir, sem nú hafa veikzt, bjuggu f sama hóteli og fundur hermannanna var haldinn í. Handtökur í Suður-Afríku Jóhannesarborg, 14. ágúst. Reuter. AP. AÐ MINNSTA kosti 50 leiðtogar blökkumanna f Suður-Afrfku voru handteknir í helztu borgum landsins f nótt samkvæmt áreið- anlegum heimildum. Ein þeirra sem var handtekin var frú Winnie Mandela, eigin- kona blökkumannaleiðtogans Nelson Mandela sem hefur verið kallaður „Rauða akurliljan“. Handtökurnar koma á óvart þar sem hinir handteknu eru forystu- menn f samtökum sem stjórnvöld hafa reynt að hafa gott samband við f von um aðstoð frá þeim til að róa æsta blökkumenn. Kyrrð er komin á í bæjum blökkumanna umhverfis Höfða- borg eftir óeirðir sem hafa kostað 29 manns lífið samkvæmt opin- berum tölum en mikil ólga er undir niðri. Rúmlega 200 manns hafa beðið bana f óeirðum blökku- manna sfðan þær hófust fyrir tveimur mánuðum í Soweto. Frú Mandela er íhrifamikil í foreldrasamtökum blökkumanna sem hafa reynt að stilla til friðar í Soweto. Maður hennar hefur af- plánað 14 ár af lffstiðardómi sem hann hlaut fyrir samsæri um bylt- ingu og skemmdarverk. Hún bjó við skert ferðafrelsi f 13 ár og fékk ekki að tala við blaðamenn. Hún fékk fullt frelsi í fyrra. Meðal þeirra sem hafa verið handteknir í Soweto eru kaþólsk- ur prestur, Smangaliso Mkhatshwa, fyrrverandi féiagi i Afríska þjóðarráðinu (ANC), Framhald á bls. 2. Styrkir þetta grunsemdir um, að orsökin geti verið eitrun í and- rúmslofti, þótt ekki sé staðfest, að hér sé um sama sjúkdóm að ræða. Þá hefur komið upp dularfullur sjúkdómur á hjúkrunarheimili á Boynton-strönd á Flórída. Þrír sjúklingar hafa þegar látizt og tuttugu liggja þungt haldnir. Ein- kennin eru hár sótthiti og eymsli í hálsi, en heilbrigðisyfirvöld vilja ekki fullyrða að svo stöddu hvort hér er um sama sjúkdóm að ræða og upp kom í Fíladelfíu, en úti- loka þó ekki, að svo kunni að vera. Hjúkrunárheimilið hefur verið í einangrun síðan á föstudaginn var, og verður það þar til úr því fæst skorið hvort sjúkdómurinn á rætur sínar að rekja til eitrunar, eða hvort veira eða sóttkveikja veldur honum. Tveir starfsmenn klæddir hvftum hlífðarfötum í svissnesku verksmiðjunni Iemesa sem eitur lak úr í Seveso á italfu og mengaði nálæg svæði. Nýir bardagar í aðsigi í Líbanon: Hægri menn vilja friðarsamn- inga, en vinstri menn ekki Beirút — 14. ágúst — Reuter PIERRE Gemayel, leiðtogi hægri manna f Lfbanon, hefur óskað eft- ir því að fulltrúar kristinna manna og múhameðstrúarmanna hefji friðarviðræður til að binda enda á borgarastyrjöldina, sem staðið hefur f 16 mánuði. Sfðustu fregnir herma þó, að leiðtogar vinstri manna segi, að eftir fall Tel Al-Zaatar séu slfkar viðræður útilokaðar, og verður þess nú greinilega vart, að strfðsaðilar eru að búa sig undir nýja bar- daga. Haft var eftir Pierre Gemayel, að f friðarviðræðum ættu leiðtog- ar múhameðstrúarmanna að sitja öðrum megin við samningaborð, nema ætlun vinstri manna væri að láta forystuna i hendur hinni alþjóðlegu vinstri hreyfingu. Um það leyti, sem flóttamanna- búðirnar Tel Al-Zaatar féllu í hendur hægri manna s.l. fimmtu- dag, lýstu Palestínuarabar og libanskir vinstri menn því yfir, að viðbrögð þeirra við falli búðanna yrðu grimmileg. Þeir hafa síðan sagt, að lið hægri manna hafi framið striðsglæpi i búðunum eft- ir fall þeirra, og hafi 60 hjúkrun- arkonur m.a. verið myrtar. Tveir palestínskir læknar hafa sagt, að 10 karlar og um 50 hjúkrunarkon- ur hafi verið handtekin og skömmu siðar hefði heyrzt mikil skothrið og vein. Læknarnir segja, að um 2 þúsund manns i búðunum hafi fallið og um 3 þús- und særzt meðan á umsátrinu stóð. Framhald á bls. 2. Ford ekki enn viss um að hljóta tílnefninguna Kansas City, Missouri. 14. ágúst. AP. Reuter FORD forseti sefnir að sigri f fyrstu atkvæðagreiðslu á flokks- þingi repbúblikana sem hefst f Kansas City á mánudaginn, en munurinn á fylgi hans og keppi- nautar hans, Ronald Reagans, er enn sáralftill og enginn getur spáð fyrir tim úrslitin með vissu. Flestir sérfræðingar segja að Ford verði að sigra f fyrstu at- kvæðagreiðslu þvf annars geti svo farið að hann hljóti ekki út- Hafréttarráðstefna SÞ: Strandríki hefja viðræður við afskipt ríki í vikunni „Strandrfkjahópurinn, sem f eru 75 rfki, hefur falið for- mönnum 10 strandrfkja, þar á meðal lslands, að hefja sér- staka samninga við fulltrúa jafnmargra landluktra og land- fræðilega afskiptra rfkja f næstu viku, og ef árangur næst f þeim viðræðum er miklum áfanga náð,“ sagði Hans G. An- dersen, formaður fslenzku sendinefndarinnar á hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann f New York f gær. „Enn er of snenvnít að spá um árangur af fundunum hér f New York, en hingað til hefur allt gengið eðlilega fyrir sig, og hvorki betur né verr en við var að búast,“ hélt hann áfram. „Enn er ágreiningur um mörg atriði f hinu endurskoð- aða frumvarpi, sem nú liggur fyrir ráðstefnunni, og þar sem fulltrúar frá yfir 150 rikjum koma saman eru mörg ljón á veginum. Fulltrúar munu vera einhvers staðar milli 2 og 3 þúsund, og mikill tími fer í það að endurtaka í sífellu sömu sjónarmiðin. Við Islendingar erum hér ekki barnanna beztir. Við stöndum fast á okkar sjón- Framhald á bls. 2. nefninguna. Slfkt hefur ekki hent forseta f embætti f tæpa öld og alvarlegur klofningur og óvissa háir repúblikönum. Stjórnmála- sérfræðingar segja að forsetinn berjist fyrir pólitfsku lffi sfnu. Stuðningsmenn forsetans segja að hann muni sigra í fyrstu at- kvæðagreiðslu, en með aðeins fimm atkvæða meirihluta og þeir virðast alvarlega hræddir við þá ætlun James Buckleys, ihalds- sams repúblikana frá New York, að gefa kost á sér ef önnur at- kvæðagreiðsla reynist nauðsyn- leg. Til þess að hljóta útnefninguna þarf 1130 atkvæði og stuðnings- menn Reagans segja að hann hafi tryggt sér rúmlega 1140 atkvæði. Samkvæmt skoðanakönnun AP hefur Ford 75 atkvæði fram yfir Reagan en skortir enn 21 atkvæði til að hljóta útnefninguna. Staðan er þannig: Ford 1109, Reagan 1034, óháðir 116. N Stjórnmálasérfræðingar segja að það muni koma þeim á óvart ef klofningurinn i flokki repúblikana leiðir ekki til spreng- Framhald á bls. 2. Dvöldust á fund- arstað fyrrver- andí hermanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.