Morgunblaðið - 15.08.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGUST 1976
19
— Medvedev
Framhald af b!s. 18
tilgangi." Solzhenitsyn er nú á
annarri skoðun bæði um októ-
berbyltinguna og Lenín.
Ég mun einungis fjalla um
tvær af fjölmörgum sökum,
sem Solzhenitsyn ber Lenín —
beint eða með augljósum hætti.
Solzhenitsyn segir að Lenín
hafi 1917 haldið því til streitu
að gerð yrði ný „öreiga- og
kommúnistabylting" í Rúss-
landi, þótt hvorki Rússland né
Rússar hafi verið reiðubúnir til
þess né talið sig þurfa á henni
að halda. Og Solzhenitsyn
heldur því fram, að Lenín hafi
fúslega gripið til hryðjuverka I
baráttu sinni við stjórnmála-
andstæðinga.
Það er auðvelt að setja
fingurinn á mistök byltingar-
manna fimmtíu árum eftir
byltinguna. En fyrsta
kommúnistabyltingin var að
sjálfsögðu skref út í óvissuna.
Engin mælistika lá fyrir og leið-
togarnir höfðu ekki reynslu
annarra að styðjast við. Undir
slfkum kringumstæðum er
ómögulegt að áætla, vega og
meta allt fyrirfram og taka
allar ákvarðanir með þeim
hætti Jafnvel mikilvægustu
ákvarðanir voru teknar,
byltingarmennirnir gripu til
nýrra baráttuaðferða eða
breyttu um baráttutækni jafn-
skjótt og á reyndi. Lenfn var
þetta vel ljóst og vitnaði oft til
orða Napóleons: „Gangið fyrst
til orrustunnar — hugið síðan
að gangi hennar. “ Ekki er unnt
að gera byltingu án þess að taka
áhættu, hætta á ósigur og hætta
á að verða á mistök. En að láta
undir höfuð leggjast að hrópa
heróp til byltingar, þegar
byltingin er möguleg er líka
mjög mikil áhætta fyrir
byltingasinnaðan flokk.
Það er því engin furða, þótt
Lenín og ríkisstjórnin, sem
hann veitti forystu, gerðu oft
rangar áætlanir og yrðu á mörg
mistök. Þessi mistök drógu
borgarastyrjöldina í Rússlandi
á langinn og gerðu hana biturri
en ella. Þessar röngu áætlanir
ollu því, að hinni nýju efna-
hagsáætlun (tímabil með tak-
mörkuðum einkarekstri) seink-
aði, og efnahagslegt misrétti
jókst f fyrstu. Byltingin, sem
Lenín hafði þótzt sjá á næstu
grösum í Evrópu, varð aldrei að
veruleika og hlaut Rússland þvf
engan tæknilegan og menning-
arlegan stuðning úr þeirri átt.
Sovézka ríkisstjórnin hafði þá
þegar skorið lýðræðinu f landi
okkar of þröngan stakk.
Ég gæti haldið áfram með
þennan lista yfir mistök og
rangar forspár. En það er ekki
til nein fræðigrein um stjórn-
kerfi, sem getur sannað að hin
vopnaða uppreisn, sem hófst
24. október 1917, hafi verið fyr-
irmálsburður né heldur að
glæpir og ódæði stjórnar
Stalíns sfðar meir eigi rætur
sínar að rekja til þessara ör-
lagariku mistaka Leníns. Einn-
ig eftir dauða Leníns hlaut leið
flokks okkar að liggja um full-
komlega ókannaða stigu. Þvf
miður hafði forysta flokksins,
sem tók vtð af Lenín, hvorki til
að bera gáfur hans, þekkingu
né hæfileika hans til að finnna
rétta leið úr meginþorra flók-
inna kringumstæðna. Þeim mis-
tókst því að hagnýta jafnvel
brotabrot af þeim tækifærum,
sem októberbyltingin færði
þeim í hendur til að ná skjótum
árangri í baráttunni fyrir
kommúnisma og lýðræði. Jafn-
vel enn í dag erum við fjarri
því marki. Því Stalín fór ekki
nákvæmlega „troðnar slóðir“
(slíkra troðinna slóða getur
ekki í sögunni). Hann lagði
fljótlega fyrir róða jafnvel hin
fáu leiðarmerki, sem Lenfn
hafði reist i síðustu ritum sfn-
um.
Þegar borgarastyrjöld geisar
getur engin rfkisstjórn komizt
hjá þvf að beita valdi með ein-
um eða öðrum hætti. En jafnvel
hinn óhlutdrægasti sagnfræð-
ingur hlýtur að viðurkenna að
sovétstjórnin gekk oft og tíðum
miklu lengra öllum skynsam-
legum takmörkunum valdbeit-
ingar á fyrstu árum sfnum. Oft-
ast var þessi valdbeiting gegn
fjölmennum hópum gjörsam-
lega ónauðsynleg og reyndar til
óbætanlegs tjóns, jafnvel þótt
litið sé á hana með hugmynda-
fræði og hagsmuni stéttabarátt-
unnar í huga. Þessi hryðjuverk
mögnuðu andstæðingana f and-
spyrnu sinni, drógu styrjöldina
á langinn og ólu af sér ný
hryðjuverk.
Því miður fyrirskipaði Lenín
sjálfur miklu oftar en atburða-
rásin gaf tilefni til „aftökur
með byssum“. Hér vitnar
Solzhenitsyn í orð Lenfns og
rangfærir þau á engan hátt.
Það er t.d. ósennilegt að nokkur
myndi nú samþykkja eftirfar-
andi fyrirskipun, sem Lenfn
gaf formanni ráðstjórnar Niz-
gorod-héraðs G. Fyodorov (9.
ágúst, 1918): „Þú verður að
spenna hverja taug til hins ýtr-
asta... komdu þegar í stað á
ógnarstjórn fyrir fjöldanum,
láttu skjóta og flytja nauðug
brott hundruð vændiskvenna,
drykkfelldra hermanna, fyrr-
verandi liðsforingja og annarra
slíkra" (undirstrikað af Lenfn
sjálfum). Flytja nauðuga — já,
en hvers vegna myrða konur?
Það ber að harma og for-
dæma slíka misbeitingu valds.
En þessi hryðjuverk voru fram-
in meðan borgarastyrjöldin
stóð yfir, og það er ekki nauð-
synlegt að ætla að þau leiddu
óhjákvæmilega til hinna hræði-
legu hryðjuverka Stalintfmans.
Lenfn urðu á mörg mistök og
hann viðurkenndi sjálfur sum
þeirra við ýmis tækifæri. Heið-
arlegur sagnfræðingur hlýtur
að skrá öll þessi mistök og
skýra einnig frá því þegar valdi
er misbeitt. En við kommúnist-
ar erum sannfærðir um, að þeg-
ar á heildina er litið hafi þáttur
Lenins verið góður. Solzhenit-
syn er annarrar skoðunar. Til
þess hefur hann fyllsta rétt. í
landi þar sem rikja á kommún-
ismi verður sérhver maður að
eiga þess kost að gera grein
fyrir sjónarmiðum sinum og
skoðunum á stjórnmálaleiðtog-
um.
Vantar þig lán
get útvegað skammtímalán og selt vöruvíxla
einnig stutt fasteignatryggð skuldabréf. Tilboð
merkt: öruggt 6363 sendist Mbl sem fyrst.
FAZA&ftÁFAft
ÖDYRIR OG HENTUGIR
Í mörgum stærðum og gerðum.
Sendum hvert á land sem er.
Biðjið um myndalista.
STÍL-HÚSGÖGN
AUDBREKKU 63 KÓPAVOGI SiMI 44600
OKKAR
LANDSFRÆGA
ÚTSALA HEFST
mánudaginiY 16. ágúst
Gaílabuxur frá kr. 2.690 —
Flauelsbuxur frá kr. 2.690 —
Terylenebuxur frá kr. 2.900.—
Herraskyrtur frá kr. 1.590 —
Dömublússur frá kr. 1.790 —
Dömu- og herrapeysur
og alls konar bolir frá kr. 490 —
Gallakjólar frá kr. 4.950 —
Kápur, jakkar, mittisblússur
og alls konar annar fatnaður
á þessari stórkostlegu
útsölu okkar.
10% afsláttur
af öllum hljómplötum.
laugavegi 89-37
10353 12861 13303