Morgunblaðið - 15.08.1976, Blaðsíða 38
38
MORCUNBI.AÐIÐ. SUNNUDAOUR 15. ÁGUST 1976
Guðbjörg Bjarnadóttir
frá Eskifirði — Minning
Á morgun, mánudag, verður til
moldar borin Guðbjörg Bjarna-
dóttir frá Eskifirði. Hún fæddist
1. desember 1909, dóttir hjónanna
Gunnhildar Steinsdóttur og
Bjarna Marteinssonar. Voru
systkinin átta. Snemma fór hún
að vinna fyrir sér eins og tíðkaðist
þá, og eftir að hún kom hingað
suður til Reykjavíkur fór hún að
vinna á sjúkrahúsum, lengi á Víf-
ilsstaðahæli. En síðustu rúm 20
árin vann hún hjá systrafyrir-
tækjunum Esju og Frón. Var hún
hamhleypa til vinnu, ósérhlífin,
samvizkusöm og féll aldrei verk
úr hendi.
I fristundum sínum vann hún
mikið að handavinnu og var mik-
ill snillingur í höndunum. I
sumarfríum fór hún oft til út-
landa. Var hún ágætis ljósmynd-
ari og átti mikið safn af fögrum
myndum, sem hún naut að skoða
+
Móðir okkbf
AÐALHEIÐUR BENEDIKTSDOTTIR.
lé/t fimmtucJagmn 1 2 áyúst s I
F 11 aðstandenda
Leifur Karlsson, Finnur Karlsson.
+
Hjartkic,r eiyinniaður mmn faðir tongdafaðir og afi
AMUNDI SIGURÐSSON,
Er lóst í Lancfakotsspitala 8 ágúst. verður jarðsungmn frá Háteigs
kirkju þriðjudagmn 1 7 ágúst kl 1 3 30 Blóm vmsamlegast afbeðm.
en þeim sem vildu nnnnast bins látna er vinsamlegast bent á
líknarstof nanir
Nanna Ágústsdóttir,
Margrét Amundadóttir, Guðmundur G. Einarsson,
Sigurður Amundason, Rannveig Bjarnadóttir,
Jón Orn Amundason, Erna Hrólfsdóttir,
og barnaborn
+
Móðir mín tengdamóðir'og amma
MARIA SVEINSDÓTTIR
Þjórsárgötu 1
sem lóst 5 þ m verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 1 6
ágúst kl 3
Steinunn Guðmundsdóttir Kristmundur Jónsson
María Kristmundsdóttir Helga Kristmundsdóttir
Magnea Kristmundsdóttir Skúli Halldórsson
Guðmundur Kristmundsson
og barnabarnaborn
+
Utfor eigmmanns niins
PALS ROGNVALDSSONAR
Hólmgarði 56, Reykjavík
fer fran' frá Fossvogskirkm mánudagum 1 6 ágúst kl 1 3 30
Fyrir fiond barna. tengcfabarna og barnabarna
Asa Björnsdóttir
+
Utfor eigmmanns míns
SKULA KRISTMUNDSSONAR
Er lóst 10 þ m fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudagmn 1 7 ágúst kl
15
Blóm vinsamlega afbeðm
Birna Björnsdóttir.
+
Utfor konu mrnnar, móður ogtrmmu.
INGIBJARGAR BJARNADÓTTUR,
Stigahlíð 46.
or aridaðist þann 10 ágúst í Vifilsstaðaspítalanum, verður jarðsungtn
frá 'ossvogskirkju nnðvikudaginn 18 ágúst kl 10 30
Bloni vinsamlega afbeðm
Vilhjálmur Guðmundsson,
Elin Vilhjálmsdóttir,
Erla I Vilhjálmsdóttir,
Ingibjörg B Albertsdóttir.
Pétur Guðmunds-
son — Minning
og ylja sér við bjartar minningar
á löngum, dimmum vetrarkvöld-
um.
Guðbjörg sáluga för ekki var-
hluta af hörmungum lifsbarátt-
unnar. Ung missti hún unnusta
sinn og litinn dreng, og telpan
hennar var þroskaheft. Stundum
var hún döpur og sagði að það
væri oft svo erfitt að verða ekki
bitur, þegar maður hugsaði um,
hversu lífskjör mannanna væru
misskipt. En strax vann lifsorkan
bug á vanlíðan hennar og hún
varð aftur glöð, skemmtileg og
bjartsýn.
Sjúkdóm hafði hún lika við að
striða, tvisvar vond beinbrot og
tvisvar varð hún að ganga undir
stóra uppskurði. En aldrei bilaði
kjarkurinn, hún barðist til sigurs.
Alltaf reis hún upp aftur og hugs-
aði bara um að fara að vinna.
Fyrir rúmu ári fékk gamli verk-
stjórinn okkar slag. Var það okk-
ur mikill harmur þvi að hann var
vinsæll og réttlátur. Fyrir nokkr-
um mánuðum vorum við við
jarðarför hans, og þegar við kom-
um út úr dómkirkjunni var mikil
rigning. Sagði þá Guðbjörg sáluga
hljóðlega: Einhverntíma hefði
blessað gamla fólkið sagt að fljót-
lega myndi einhver af okkur
fylgja á eftir honum, því það rign-
ir í opna gröf.
Við samstarfskonur Guðbjargar
þökkum henni kærlega fyrir góða
samvinnu þg margar skemmtileg-
ar samverustundir og biðjum Guð
að blessa heimkomu hennar að
landi ljósanna.
Guðrún Jensen.
Fæddur 3. febrúar 1896
Dáinn 7. ágúst 1976
Föstudaginn 13. ágúst s.l. var til
moldar borinn frá Lágafells-
kirkju í Mosfellssveit Pétur Guð-
mundsson frá Kjarri í Ölfusi.
Með honum er kvaddur merkur
persónuleiki — einn fárra frum-
kvöðla íslensks iðnaðar á fyrsta
áratugum þessarar aldar.
Pétur var fæddur í Kollafirði 3.
febrúar 1896 — en þar voru þá
foreldrar hans, hjónin Margrét
Kolbeinsdóttir og Guðmundur
Pétursson, skipasmiður, til heim-
ilis hjá móðurafa Péturs, Kolbeini
Eyjólfssyni.
Pétur ólst síðan upp í Reykja-
vík á heimili foreldra sinna en
þeir bjuggu lengst af við Vestur-
götuna.
Ungur hóf hann störf í Slippn-
um í Reykjavík og vann þur um 10
ára skeiö. Hann minntist siðar
þeirra ára mað þakklæti. Þar
vann hann í nánum tengslum við
höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar,
lærði að einbeita sér i störfum og
þar fæddist með honum hug-
myndin að stofnun Málarans —
sérverslunar með málingarvöru
og veggfóður.
Það fyrirtæki stofnaði Pétur 27.
janúar 1925, hóf fyrst starfsemi i
Lækjargötu 2 en fluttist fljótlega
að Bankastræti 7 þar sem verslun-
in var til húsa í fjölda mörg ár.
Starfsemi Málarans fór hægt af
stað en örugglega, þó erfiðir tím-
ar færu í hönd.
Heimskreppan skali yfir með
ýmsum örðugleikum, ekki síst á
sviði atvinnurekstrar, en Pétur
missti ekki sjónar á því takmarki
sínu að stofna til innlendrar mál-
ingarframleiðslu og auka þannig
góðri alin við íslenzkt athafna- og
atvinnulíf.
Á fertugsafmæli sínu 3. febrúar
1936 hóf hann starfsemi Máling-
arverksmiðjunnar Hörpu við
Skúlagötu í Reykjavík í félagi við
bróður sinn og fleiri. Á ýmsu
gekk við að yfirvinna hvers konar
byrjunarörðurleika en með at-
orku og þrautseigju tókst að sigr-
ast á þeim öllum og leggja grunn
+
Jarðarför foður okkar. tengdafoður afa og fósturfóður,
DANÍELS BERGMANN,
fyrrv. bakarameistara,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18 ágúst n k kl 3 00
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðlaugur Bergmann.
+
að innlendum iðnaði, sem í dag
skilar ómældum ágóða í þjóðarbú-
ið.
Fyrri kona Péturs var Halldóra
Samúelsdóttir — þau slitu sam-
vistum.
Börn þeirra eru bræðurnir Koi-
beinn og Gunnar og systurnar
Kristín og María — öll búsett í
Reykjavík.
Seinni kona Péturs er Ragna
Sigurðardóttir, sem lifir mann
sinn. Arið 1951 urðu þau þáttaskil
í lífi Péturs, að hann flytst austur
yfir Fjall og kveður sinn fyrri
starfsvettvang.
Þau Ragna hefja þá búskap að
Þórustöðum undir Ingólfsfjalli.
Þar var á skömmum tíma byggt
upp og búskaparhættir með þeim
myndarbrag að orð fór af.
Á Þórustöðum bjuggu þau við
rausn í 13 ár en seldu meginhluta
jarðarinnar 1964.
Þá byggðu þau garðbýlið Kjarr
í landi Þórustaða.
Heimilið að Kjarri varð Pétri
unaðsreitur á elliárum þar sem
hann naut hvíldar og aðhlynning-
ar konu sinnar eftir viðburðaríka
starfsævi. •
Pétur Guðmundsson var þeirr-
ar gerðar sem einkennir hinn
dæmigerða athafna- og fram-
kvæmdamann.
Hann átti snarpheitan vilja,
sem hann naut að beita.
Slíkir menn bera sigurinn í sér
— hver stund verður þeim heilla-
stund.
Að leiðarlokum þakka ég tryggð
hans i minn garð og fjölskyldu
minnar.
Við sendum Rögnu og öðrum
aðstandendum Péturs hugheilar
samúðarkveðjur og biðjum minn-
ingu hans blessunar hins hæsta.
Óli Þ. Guðbjartsson
Þökkum innilega sýnda samúð og hlýju við andlát og útför föður okkar
BJARNA M KRISTMANNSSONAR.
Minni-Borg, Akranesi.
Helga Kristfn Bjarnadóttir,
Guðmundur Bjarnason
+
Inmlegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug viðandlát
og útför foður míns
HARALDSMAGNÚSSONAR,
Suðurgotu 54, Hafnarfirði,
Sigurjón Haraldsson.
+
Þökkum sýnda vmáttu í sambandi við andlát og útför
SOFFÍU JENSDÓTTUR
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Hvammstanga og
annarra sem hlúðu að henni
Vandamenn
+
Jarðarför dóttur minnar
GUÐBJARGAR
BJARNADÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju.
mánudaginn 16 ágúst kl
10 30
Bjarni Marteinsson
frá Eskifirði.
+
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför konunnar
minnar,
guOrúnar
MAGNÚSDÓTTUR,
Vinamóti,
Bfldudal
Guð blessi ykkur öll
Jósef Jónasson
og aðrir vandamenn.